Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 41 Reykjavík, Hverfisgötu 6, sími 562 2862 Útsalan er hafin ÚTSALAN HEFST Á MORGUN! 20-50% af mörgum tegundum! Kringlan 8-12, sími 533 5150. afsláttur Kringlunni – Sími 568 1822 Lokað í dag Útsalan byrjar á morgun Auglýsingin kemur um kl. 20FRAMMISTAÐA íslenska lands-liðsins í opnum flokki á nýafstöðnu Evrópumóti í brids vakti nokkra at- hygli enda betri en almennt var búist við fyrirfram. Guðmundur Páll Arnarson lands- liðsfyrirliði valdi fjóra nýliða í liðið, þá Bjarna Einarsson, Snorra Karlsson, Steinar Jónsson og Stefán Jóhanns- son og að auki þá Karl Sigurhjart- arson og Þröst Ingimarsson. Liðið endaði síðan í 13. sæti af 38. þjóðum og var um tíma í baráttu um eitt af fimm efstu sætunum sem gáfu rétt til þátttöku á næsta heimsmeistaramóti. Guðmundur Páll segir að fyrir mótið hafi hann reiknað með að liðið endaði í 14.–25. sæti. Niðurstaðan var 13. sæti og því hafi liðið verið að gera betur en við mátti búast. Þrjú vinn- ingsstig skorti til að meðaltalið væri 16 stig í leik og er það mun betri ár- angur en náðst hefur á tveimur síð- ustu mótum þar sem meðaltal stiga íslenska liðsins var 15–15,5 stig. Guðmundur sagði að æfingatíminn fyrir mótið hefði greinilega nýst ís- lensku spilurunum vel og þeir hefðu náð að „toppa“ á réttum tíma. Mjög góður liðsandi hefði verið og ungu mönnunum hafi farið fram meðan á mótinu stóð. Sagði Guðmundur að því hefðu öll merkin verið jákvæð og jóst að kominn væri fram kjarni sem bera myndi uppi íslenska landsliðið næstu árin. „Þetta er lið sem á eftir að láta að sér kveða,“ sagði Guðmundur Páll. Eðlismunur á sagnkerfum Íslenska liðið spilaði í síðustu um- ferð mótsins við Hollendinga sem enduðu á svipuðum stað og Íslend- ingar. Að sumu leyti bar spila- mennskan það með sér að löngu og lýjandi móti var að ljúka og bæði lið misstu af ýmsum tækifærum. Niður- staðan varð jafntefli, 53:51 eða 15:15 í vinningsstigum. Íslendingar byrjuðu mun betur og eftir tvö spil var staðan 16:0 fyrir Ísland sem græddi m.a. 6 impa á spili 2. Þótt bæði liðin hafi spil- að útgáfur af Standard-sagnkerfi kom þó fram greinilegur eðlismunur á kerfinu. Austur gefur, AV á hættu Norður ♠ 10865 ♥ Á109 ♦ G ♣Á10865 Vestur Austur ♠ 92 ♠ ÁKDG4 ♥ KDG853 ♥ – ♦ Á653 ♦ K10974 ♣2 ♣G93 Suður ♠ 73 ♥ 7642 ♦ D82 ♣KD74 Við annað borðið sátu Þröstur og Bjarni NS og Berry Westra og Will- em van Eijck AV. Hollendingarnir voru ekki í miklu baráttuskapi: Westra Þröstur Eijck Bjarni 1 spaði pass 2 hjörtu pass 2 spaðar pass 3 hjörtu pass pass pass 2 hjörtu var ekki geimkrafa og Eijck valdi að segja 2 spaða frekar en 3 tígla sem sennilega hefðu lofað meiri spilastyrk. Þegar Westra sagði aftur frá hjart- anu óttaðist Eijck slæma samlegu í spilinu og passaði. Westra fékk síðan 10 slagi og 170 fyrir. Við hitti borðið sátu Stefán og Steinar AV og Bauke Müller og Sim- on de Wijs NS: Stefán Wijs Steinar Müller 1 spaði pass 2 hjörtu pass 3 tíglar pass 4 tíglar pass 4 grönd pass 5 tíglar pass pass pass Sá var munurinn við þetta borð að 2 hjörtu var geimkrafa og því gat Steinar sýnt tígullitinn án þess að lofa of miklum punktastyrk. Steinar kannaði slemmu áður en hann sló af í 5 tíglum sem voru auðunnir, 400 til Íslands og 6 stig. Ítölsku Evrópumeistararnir í brids kampakátir við verðlaunaafhendinguna í Salsomaggiore. Ítalar unnu Evrópumótið fimmta skipti í röð og það hefur aldrei áður gerst í 70 ára sögu mótsins. Lið sem á eftir að láta að sér kveða BRIDS Salsomaggiore Guðm. Sv. Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.