Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
ÍSLENSKIR bíógestir sóttust eftir
slæmum félagsskap um helgina því
Bad Company, nýja kassastykkið úr
smiðju Jerry Bruckheimers, var vin-
sælust allra mynda sem sýndar voru
í kvikmyndahúsum. Myndin skartar
einhverju ólíklegasta teymi kvik-
myndasögunnar, enska séntilmann-
inum Sir Anthony Hopkins og
bandaríska götugrínistanum Chris
Rock. Og auðvita leika þeir löggur
sem semur illa í fyrstu en fara svo að
sjá kosti hvor annars er á félags-
skapinn reynir. Leikstjóri þessa
grínaktuga lögguhasars er síðan
enginn nýgræðingur heldur gamli
auglýsingagúrúinn Joel Schumach-
er en hann hefur sopið marga fjör-
una í henni Hollywood. Þegar út í
það er hugsað er í raun skrítið að
þeir Bruckheimer hafi ekki verið
löngu búnir að gera mynd saman
enda virðast þeir eiga saman eins
Simon og Garfunkel eða Davíð og
Halldór. Báðir voru þeir í essinu
sínu á blómatíma yfirborðsmennsku
og öfga á 9. áratugnum, báðir byrja
þeir í auglýsingageiranum og fikra
sig inn í Hollywood vegna næms
auga fyrir „rétta“ útlitinu, fyrir að
vita upp á hár hvað fjöldinn vill sjá.
Svo vel virðast þeir eiga saman að
handbragð hvors um sig má greina á
myndum hins. Þannig gæti The Lost
Boys hæglega hafa verið framleiðsla
Bruckheimers en mynd eins og The
Rock ber flest leikstjórnareinkenni
Schumachers.
Þær nýlegu fregnir að þeir hyggj-
ast halda samstarfi sínu áfram með
gerð myndarinnar Veronicu Guerin,
sem mun skarta Colin Farrell og
Cate Blanchett.
„Myndin gekk vel hjá okkur og
var sú mest sótta yfir helgina eins og
við mátti búast af mynd sem skartar
þessum aðalleikurum, er framleidd
af Bruckheimer og leikstýrt af
Schumacher,“ segir Róbert Wesley
frá markaðsdeild Sambíóanna. „Frá
föstudegi til sunnudags sóttu mynd-
ina rúmlega 3 þúsund manns og hún
er núna (fyrir þriðju-
dagssýningar) komin í
rúmlega 4 þúsund.“
Við tilkomu Bad
Company féll About A
Boy úr toppsætinu nið-
ur um eitt sæti. En að-
sóknin að myndinni
dróst samt furðu lítið
saman að sögn Chri-
stofs Wehmeiers frá
Ice kvikmyndadreif-
ingu/Háskólabíói.
„Við erum að tala um
10% samdrátt í aðsókn
frá því um frumsýn-
ingarhelgina sem er alveg ótrúlega
lítið og segir okkur aðeins eitt, að
myndin sé að spyrjast áberandi vel
út.“ Um helgina sáu myndina 2.900
manns, að sögn Christofs, sem þýðir
að á 9 dögum hafa 10 þúsund manns
séð hana.
Aðrar nýjar myndir síðustu helg-
ar, gamanmyndirnar Black Knight
með Martin Lawrence og Van Wil-
der með Ryan Reynolds úr sjón-
varpsþáttunum Two Guys, a Girl
and a Pizza Place, röðuðu sér í 3. og
4. sætið yfir þær myndir sem flestar
krónurnar tóku í peningakassa bíó-
anna, sem þýðir að fimm vinsælustu
myndirnar í bíóum landsins eru
gamanmyndir. Um næstu helgi fá
bíógestir ennþá meira til að hlæja
yfir því þá verður Scooby-Doo frum-
sýnd og svona til þess að undirstrika
að lífið er ekki eintómt spaug þá
hefjast einnig sýningar á Unfaithful,
nýjustu mynd Adrians Lynes.
!
#
#
$
%
!" #$ !
%
!" &
! ' !
%
!
( )
# (
&
! *)
+,
! "
# $%&
$%'
( ")))
(* ,
'
-
",)))
.+ /0
)))
1
-2
3"-&
&(-
,
-
,
,
.
/
0
1
2
3
-
-1
-.
4
-2
3
-3
-0
--
5
$
$
$
.
0
0
0
3
4
2
-
0
-0
-1
3
1
.
!"678 +"559: 9#5
9:
+ 65;<57 "67
;<57 "67967= 9"67#5
9,>"67:
+ 65
!<"67967" ?<"679@
"9"67#5
!"678 +"559: 9#5
9:
+ 65
!<"679@
"9A
;<57 "67967= 9"67#5
!<"679@
" ?<"679,>67#5
!<"67967"9
!
> !<"679@
" !"678 +"559B+>=
9#5
9;=+
!"678 +"559: 9#5
;<57 "67
?<"67
!"678 +"559: !<"67
!"67"
!"678 +"55
;<57 "67
Sóst í
slæman
félagsskap
Ólíklegt teymi - Hopkins og Rock. Næst verða
það þá líklega Paul Newman og Ali G.
Íslenskir bíógestir velja helst að sjá gamanmyndir
ÞETTA er ár afreka hjá Peter
Gabriel. Hann gifti sig fyrir
skömmu og breiðskífan Up er
væntanleg í september, sú fyrsta í
tíu ár. Fyrst er þó hér kominn
diskur, sem hefur að geyma tónlist
sem Gabriel samdi fyrir áströlsku
kvikmyndina Rabbit-Proof Fence.
Myndin ku fjalla um nokkur
frumbyggjabörn, sem flýja þrælk-
un hvítra manna í Ástralíu, og
Gabriel leitar því rétta tónsins á
framandi slóðum, í svokallaðri
heimstónlist.
Engin sungin lög eru á Long
Walk Home og rétt að menn átti
sig á því, áður en þeir festa kaup á
henni. Um margt minnir hún á
tónlistina sem Gabriel samdi fyrir
Birdy (1985) og The Last Tempta-
tion of Christ (1989) en hér er þó
margt nýtt að finna og stundum
má sjá skyldleikann við Ovo, tón-
listina sem Gabriel samdi fyrir Þú-
saldarsýninguna í Lundúnum og
kom út á diski fyrir tveimur árum.
Long Walk Home er rík af dul-
úðlegri stemmningu og auðvelt er
að sjá fyrir sér að hún skapi sér-
stakan anda í Rabbit-Proof Fence,
og takist þannig jafnvel að lyfta
myndinni á æðra plan. Hún seður
að vísu ekki hungrið eftir eigin-
legri sólóskífu en þessir tónar leita
sannarlega á mann, löngu eftir að
slökkt hefur verið á geislaspilaran-
um. Tónlist
Löng
er sú bið
Peter Gabriel
Long Walk Home
Tónlist úr kvikmyndinni Rabbit-Proof
Fence. Útgefandi: Real World 2002.
Peter Gabriel samdi tónlist við kvikmynd
Alans Parkers, Birdy, árið 1985 og um-
deilda mynd Martins Scorsese, The Last
Temptation of Christ árið 1989. Hér er
kominn diskur, sem geymir tónlist hans
við nýja mynd Philips Noyce (Dead Calm,
Patriot Games, Sliver, Clear and Present
Danger, The Saint, The Bone Collector).
Davíð Logi Sigurðsson
Villtur skógarbjörn
(Wild Grizzly)
Ævintýramynd
Bandaríkin, 1999. Góðar stundir. VHS.
(97 mín.) Öllum leyfð. Leikstjórn: Sean
McNamara. Aðalhlutverk: Daniel Bald-
win, Michelle Green og Fred Dryer.
Í þessari sakleysislegu og dálítið
hroðvirknislegu fjölskyldumynd segir
frá unglingspilti sem tekur ástfóstri
við mannskæðan
skógarbjörn sem
líkt og pilturinn er
nýbúi í smábæ
nokkrum. Björninn
kemur til bæjarins
á vegum bæjar-
stjórans sem hefur í
hyggju að gera dýr-
ið að féþúfu sjálfum
sér til framdráttar,
en pilturinn ungi skerst í leikinn og
gerir sitt ýtrasta til að bjarga lífi
bjarnarins áður en fláráðar áætlanir
yfirvalda ná fram að ganga. Þetta er
mynd sem gæti höfðað til áhorfenda í
yngri kantinum, þeir sem meiri
reynslu hafa í kvikmyndaáhorfun
mun þó fljótlega þreytast á fyrirsjá-
anlegri framvindunni og tilþrifalaus-
um leik þeirra sem fara með aðalhlut-
verkin, en myndin skartar
þónokkrum allæsilegum atriðum með
dýrinu og það verður að viðurkennast
að risavaxinn björninn í ham er ansi
tilkomumikil sjón. Myndbönd
Dýrið geng-
ur laust
CAFÉ 22 Open Mic miðvikudags-
kvöld.
VÍDALÍN Hljómsveitirnar Coral og
Mute með tónleika kl. 21. Aðgangur
ókeypis.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Drósin
(Tart)
Drama
Bandaríkin, 2001. Myndform VHS. (95
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og
handrit: Christina Wayne. Aðalhlutverk:
Dominique Swain, Brad Renfro og Bijou
Philips.
LEIKKONAN unga, Dominique
Swain, sem brá sér fyrir nokkrum ár-
um í gervi Lólítu í eftirminnilegri en
umdeildri kvikmynd Adrians Lyne,
er hér í hlutverki Cat Storm, ungrar
stúlku sem á í erfiðleikum með að
passa í hópinn í einkaskóla fyrir börn
efnaðra foreldra. Myndin fjallar
þannig um hópamyndun og klíkur í
veröld unglinga
sem litlar áhyggjur
þurfa að hafa af
framtíðinni og verja
dögum sínum í dóp-
neyslu og skemmt-
anir.
Hún sver sig
nokkuð í ætt við
sögur bandaríska
rithöfundarins Bret
Easton Ellis í tilraun sinni til að lýsa
skuggahliðum mettaðs lífernis ungs
og neysluglaðs fólks. Frásögnin líður
þó verulega fyrir stefnuleysi og litla
sem enga persónusköpun sem gerir
það að verkum að dramatískir at-
burðir seinni hlutans reynast heldur
máttlausir. Stærsti galli myndarinnar
er þó það samansafn unglingaleikara
sem hún skartar, en enginn þeirra
reynist starfi sínu vaxinn og veldur
þar Swain mestum vonbrigðum. Heiða Jóhannsdóttir
Lífsreyndir
unglingar
FASTEIGNIR
mbl.is