Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 45
Fransk/spænski listamaðurinn Manu Chao sló ófor- varandis í gegn á Hróarskelduhátíðinni í fyrra og var því hækkaður í tign í ár, lék á stærsta sviðinu við glymjandi lófatak, fótastapp og söng. Arnar Eggert Thoroddsen sótti blaðamannafund sem haldinn var fyrir tónleikana og hlýddi á lífsspeki kappans. þögn allra viðstaddra fylgdi i kjölfarið. Chao var fyrst spurður að því hvernig honum litist á að spila á stærsta sviðinu, þ.e. því Appels- ínugula. Chao og Radio Bemba Sound System eru nefnilega kunn- ir fyrir að halda stuðinu gangandi sleitulaust og aldrei er stoppað a milli laga. „Ja, þetta er nú ekki nema einn og hálfur tími sem ég fæ,“ svaraði Chao. „Vanalega spilum við í þrjá tíma þannig að þetta verður minna mál fyrir okkur núna.“ – „En finnst þér þú vera stærri nú, þegar þú ert kominn á aðal- sviðið?“ var þá spurt. „Nei, ég er enn þá einn sextíu fimm,“ svaraði Chao þá um hæl, glottandi, og hláturkviða fór í gegnum salinn. Chao var næst spurður að því hvernig hann færi að því að að- skilja vinnu og frítíma. Chao svar- aði því til að hann áliti vinnu ekki vera til. Allt sem hann gerði væri vinna, eða þá að vinnan væri lífið, hvernig svo sem menn vildu skilja það. – „Er það rétt að þú sért að hætta í tónlist?“ var þá spurt, en orðrómur er á kreiki um að Chao hyggist hætta tónlistargrúski, til þess að geta einbeitt sér að póli- tískri starfsemi. „Það gæti verið, það gæti verið,“ svaraði Chao þá, fremur leynd- arsdómsfullur á svip og vill sýni- lega ekki gefa of mikið upp um þetta mál. Í sömu skónum Blaðamaður Morgunblaðsins steig næst fram og spurði: – „Proxima Estacion: Esperanza hefur verið gagnrýnd fyrir að líkj- ast um of Clandestino. Hvað finnst þér um þá gagnrýni?“ Chao lét sér hvergi bregða og sagði: „Jú, ég verð að segja að það er góð gagnrýni (hlátur). En ég get ekki sagt að ég hafi hugsað það þannig, þessi tónlist virkaði fyrir mig á þeim tíma. Mér finnst oft of mikil áhersla lögð á að gera alltaf eitthvað nýtt, að nýlundan geri hlutina ósjálfrátt góða. Ég hef t.d. verið í þessum skóm (bendir á strigaskóna sína) í mörg ár og þeir eru enn í fínu lagi!“ Chao var þá inntur eftir því FÓLK fékk fyrst að kynnast Manu Chao almennilega sem leiðtoga heims/pönktónlistarsveitarinnar Mano Negra, sem starfaði í kring- um lok níunda áratugarins og í upphafi þess tíunda. Sveitin naut nokkurra vinsælda enda var kraft- mikil blanda af rokki og heimstón- list móðins á þessum tíma, og má nefna til sveitir eins og Les Negr- esses Vertes og 3 Mustaphas 3 því til stuðnings. Um 1995 leystist Mano Negra hins vegar upp og Chao stofnaði aðra sveit, Radio Bemba Sound System, sem hefur fylgt honum á hljómleikum meira og minna síðan. Sagan segir að hann hafi rölt sig inn á skrifstofu Virgin, sem var út- gáfufyrirtæki Mano Negra, og skilið upptökurnar, sem seinna urðu að Clandestino, hans fyrstu einherjaskífu, eftir í afgreiðslunni án þess að segja orð. Chao hvarf svo á braut og næstu mánuði voru Virgin-menn lafmóðir í símunum að reyna að ná í skottið á Chao, sem var á sínu endalausa ferðalagi, með bakpokann sinn og fjögurra rása upptökutæki. Clandestino mallaði svo hægt og hljótt i búðunum lengi vel en fór svo loks af stað. Í fyrra kom svo framhaldið út, Proxima Estacion: Esperanza, sem hefur reyndar fengið á sig nokkra gagnrýni fyrir að vera afrit af fyrri plötunni. Chao hefur hins vegar blásið á allt slíkt og ferðast nú góðglaður um með hljómsveit sinni, leikandi og syngjandi um hvippinn og hvapp- inn. Fámenn tréhlaða Það var heldur fámennt í tré- hlöðunni þar sem Chao hélt blaða- mannafund en þó voru spurningar flestra þeirra sem mættir voru sínu fátæklegri. Chao, þessi litli naggur, sat hins vegar stóískur, reykti sína rettu og svaraði öllum spurningum góðlát- lega, án þess að blikna. Chao er umsvifamikill maður og alltaf að, virkur pólitíkus og heimsmaður, í ögn breyttri merkingu þess orðs. Það var því sýnilegt að okkar mað- ur varð hvumsa yfir sumum spurn- ingunum, sem voru margar hverj- ar heimskulegar. – „Ertu í leynilegri sendiför?“ spurði einn t.d. og vandræðaleg hvernig hann ynni plöturnar sínar. „Það er nú ekki mjög útpælt,“ svarar hann. „Í raun set ég ein- faldlega inn það sem ég hef verið að vinna undanfarin misseri eða svo, en ég er alltaf með upp- tökutæki á mér og er alltaf að semja. Tónlistin gerir sig svo að miklu leyti á tónleikum.“ Þá kemur önnur spurning að bragði: – „Er þá ekki upplagt að gefa út tónleikaplötu?“ „Við eigum til á böndum tónleika sem voru teknir upp í fyrra,“ svar- ar Chao. „En það hefur ekkert verið ákveðið með útgáfu enn þá.“ Trúir ekki á gróða Að lokum var Chao spurður um efnishyggju samtímans, mál sem hann hefur látið sér fyrir brjósti brenna, og hvort lífsstíll hans hafi breyst með aukinni innkomu. „Ég hef átt mótorhjólið mitt í fimmtán ár og það dugar,“ segir Chao. „Til hvers ætti ég þá að kaupa mér nýtt? Ég eyði aldrei miklum upphæðum nema þegar ég þarf að kaupa flugmiða og þá geri ég það af nauðsyn. Stefna hljóm- sveitarinnar og mín er aldrei gróði, að sjálfsögðu vil ég að öllum sé borgað en ef það eru afgangspen- ingar þá skipuleggjum við góð- gerðartónleika. Ég trúi ekki á gróða, ég vil aðeins geta lifað sæmilega af starfa mínum og vil geta séð fyrir börnunum mínum. Peningarnir sem við vinnum okkur inn hérna fara t.d. í að skipuleggja góðgerðartónleika í Sarajevo.“ arnart@mbl.is Manu Chao var hækkaður í tign á Hróarskeldu í ár en stóra spurningin snerist þó frekar um hvort hann sé virkilega að segja „chao“ við tónlistina. Manu Chao lék við hvern sinn fingur á Hróarskeldu í ár Hann stækkar og stækkar FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 45 Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.