Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 52

Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÍSLENSKT eignarhaldsfélag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar, stofnenda bjórfram- leiðandans Bravo International í Rússlandi, sem fyrr á þessu ári var seldur til Heineken, sendi í síðastlið- inni viku framkvæmdanefnd um einkavæðingu erindi varðandi við- ræður um kaup á hlut ríkisins í Landsbanka Íslands. Björgólfur Thor Björgólfsson staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. Að sögn Björgólfs Thors hefur fé- lagið ekki sent inn formlegt tilboð heldur einungis erindi um viðræður um kaup á hlut ríkisins. „Okkur hafa ekki borist svör við erindinu og eru því engar formlegar viðræður í gangi. Við viljum leggja áherslu á að vinna málið hratt og örugglega. Við erum alþjóðlegir fjárfestar og aðstæður okkar breytast dag frá degi. Forsend- ur okkar geta því hæglega breyst ef dráttur verður á svörum við erindi okkar,“ segir Björgólfur Thor. Ríkið á 48,2910% í Landsbanka Ís- lands og er nafnverð hlutarins 3.305.859.276 krónur. Sé miðað við lokaverð bankans í Kauphöll Íslands í gær, 3,65, er markaðsverð hlutarins rúmir 12 milljarðar króna. Sátt var innan ríkisstjórnar- innar um skipan bankaráðs Halldór Ásgrímsson, starfandi við- skiptaráðherra, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að fram hefði komið áhugi hjá fjárfesti á að kaupa ráðandi hlut í Landsbankanum og rétt hefði þótt að taka þann áhuga til umfjöll- unar. Því hefði hluthafafundi Lands- bankans verið frestað á mánudag. Að sögn Halldórs ríkti sátt innan ríkisstjórnarinnar fyrir boðaðan hlut- hafafund um skipan nýs bankaráðs en ekki var gengið frá því endanlega vegna áhuga fjárfestis á kaupum á ráðandi hlut í bankanum. Í fyrra þeg- ar ákvörðun var tekin um að kanna áhuga kjölfestufjárfesta á stórum hlut í Landsbankanum var sérstak- lega hugað að fjárfestingu erlends fjármálafyrirtækis. „Það þarf að meta það hvort og með hvaða hætti það ferli sem sett var af stað á síðastliðnu ári um leit að kjölfestufjárfesti verður endurvakið og hvernig það verður gert,“ segir Halldór. Halldór segir að ekki hafi verið tek- in nein ákvörðun vegna erindis fjár- festisins en það ferli hafi verið opnað á ákveðnum forsendum og með til- teknum skilyrðum. „Það liggur ekki ljóst fyrir hvort viðkomandi aðili upp- fyllir þau og þess vegna þarf að fara yfir málið. Okkur þótti því rétt að fresta fundi bankans meðan það væri gert.“ Hann segir að ekki liggi fyrir nein tímasetning á því hvenær ákvörðun verður tekin í málinu en henni verði hraðað eins og kostur er. Ætlunin hafi verið að opna næst fyrir sölu á hlut í Búnaðarbankanum og meta þurfi málin með hliðsjón af því. Ekki sé heppilegt að selja í báðum bönkunum á sama tíma. „Það hefur ekki enn verið leitað eft- ir kjölfestufjárfesti í Búnaðarbankan- um. En nú verður, í því starfi sem framundan er, að leggja nýtt mat á aðstæður í ljósi markaðsaðstæðna en það hafa verið vísbendingar um að það sé meiri áhugi á kaupum á hluta- bréfum í bönkunum en var fyrir nokkrum mánuðum. Þar af leiðandi hljótum við að meta aðstæður í ljósi þess,“ segir Halldór. Að sögn Halldórs liggur ekkert á að velja nýtt bankaráð Landsbank- ans. „Landsbankinn hefur starfað ágætlega og ég tel að í útboði á 20% hlut nýverið hafi komið fram tiltrú á stjórn bankans,“ segir Halldór. Óskað eftir viðræðum um kaup á hlut ríkisins Félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar lýsir yfir áhuga á kaupum í Landsbankanum ÞÓTT tæp þúsund ár séu síðan vík- ingaferðir voru aflagðar á Norð- urlöndunum hafa sögur af ferðum víkinga til fjarlægra landa birst okkur ljóslifandi í sögubókum fram á þennan dag. Sjaldgæfara mun þó vera að hitta slíka á förnum vegi eins og ljósmyndari fékk að reyna í miðborg Reykjavíkur í gær. Þessir víkingar í Hafnarstræti virtust þó ekki líklegir til vandræða þar sem þeir sátu á útikaffihúsi og kneyfuðu öl og blésu sápukúlur í veðurblíðunni í höfuðborginni. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að hér voru á ferð erlendir ferðamenn sem að líkindum hafa verið hingað komnir til að stunda verslun fremur en að leggja undir sig ókunn lönd. Morgunblaðið/Jim Smart Víkingar í Hafnarstræti MIKIÐ framboð er á óseldu húsnæði í Grafarholti, sérstaklega á stórum eignum. Viðmælendur Morgunblaðs- ins segja að markaðurinn taki ekki við svo stórum eignum, í hverfið vanti minni íbúðir. Þeir segja þó að áhugi á fasteignum í hverfinu hafi aukist að undanförnu, einungis sé um tíma- bundið ástand að ræða. Vilhjálmur Bjarnason, sölustjóri hjá fasteignasölunni Húsinu, segir að varla sé hægt að finna íbúðir undir 120 fermetrum í hverfinu. Við skipu- lag hverfa verði að vera framboð á húsnæði af öllum stærðargráðum. Kristinn Ragnarsson arkitekt, sem hefur teiknað nokkur hús í hverfinu, segir að borgin hafi sett bygginga- verktökum mjög stífa skipulagsskil- mála og byggingarlínur. Það hafi t.d. verið skipulagsmistök að taka ekki inn í myndina að efnahagsástandið gæti breyst, hverfið hafi verið skipu- lagt á miklum góðæristímum. Hann segir nokkur dæmi þess að bygginga- verktakar hafi orðið gjaldþrota þar sem dýrt sé að bíða með stórt óselt húsnæði í fleiri mánuði. Fjármagns- kostnaður rjúki upp úr öllu valdi. Einnig hafi verið rangt að gefa engin frávik frá fjölda íbúða í hverjum byggingarreit. Síðar hafi verið ákveð- ið að rýmka þær reglur, en það hafi tekið langan tíma. Grétar Már Steindórsson, fram- kvæmdastjóri Íslenska bygginga- félagsins, segir að byggingarrétti hafi verið úthlutað á þann hátt að ákveðin hámarksstærð húsnæðis var gefin og byggingaverktakar hafi greitt sömu upphæð fyrir lóðina, hvort sem reit- urinn var fullnýttur eða ekki. Það hafi ekki verið rétt hjá borginni. Hann gagnrýnir einnig að búið hafi verið að semja við arkitekta áður en lóðunum var úthlutað. Mikið framboð á óseldu húsnæði í Grafarholti  Vantar /26 Byggð fyrir söfnunarfé en lokað vegna nið- urníðslu INNISUNDLAUG við Vonar- land á Egilsstöðum sem byggð var fyrir söfnunarfé og í sjálf- boðavinnu og afhent ríkinu til rekstrar fyrir um áratug hefur staðið ónotuð í marga mánuði vegna skorts á umhirðu og við- haldi. Laugin liggur nú undir skemmdum en enginn vill borga viðgerðarkostnað. Bygging sundlaugarinnar kostaði um 13 milljónir króna á þáverandi gengi. Laugin var upphaflega ætluð fötluðu fólki á Austurlandi. Einnig nýttist hún fólki sem einhverra hluta vegna átti erfitt með að fara í útisund- laug, svo sem öldruðum, og fyr- ir ungbarnasund. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi hefur haft umsjón með lauginni sl. 10 ár. Soffía Lárusdóttir, fram- kvæmdastjóri svæðisskrifstof- unnar, segir að aðstæður hafi breyst mikið á síðustu árum, m.a. með opnun nýrrar útilaug- ar á Egilsstöðum og þegar rekstri Vonarlands var hætt og starfsemin færð annað. Þá hafi Heilbrigðiseftirlit Austurlands gert miklar athugasemdir við laugina og ljóst sé að miklu þyrfti að kosta til viðhalds. „Það er mat svæðisskrifstofu að fjárhagslega og faglega séu ekki forsendur fyrir rekstri sundlaugarinnar á hennar veg- um, enda er það ekki lagalegt hlutverk svæðisskrifstofa að annast rekstur sundlauga, hvorki fyrir fatlað fólk né aðra hópa,“ segir Soffía.  Úrelt /16 RAFMAGN fór af í Þingholt- unum í Reykjavík í gær um kl. 19.16 þegar grafa sleit há- spennustreng á mótum Týs- götu og Skólavörðustígs. Við það duttu út fjórar spennu- stöðvar í Þingholtunum, að sögn Guðmundar Sigurvins- sonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur. Búið var að gera við strenginn um hálftíma síðar eða um kl. 19.48. Rafmagn fór af í Þing- holtunum TVÆR bifreiðar skullu saman við Auðólfsstaði í Langadal í gærkvöld. Fjórir voru í bílunum sem að öllum líkindum eru ónýtir, að sögn lögregl- unnar á Blönduósi. Engin slys urðu á fólki, en allir voru í bílbeltum. Að sögn lögreglu óku bílarnir í sömu átt og varð slysið með þeim hætti að bifreiðin á undan beygði til vinstri og ætlaði sá sem á eftir ók að fara fram úr henni en ók þess í stað inn í hliðina á fremri bílnum. Ætlaði fram úr en ók á bílinn TVEIR fólksbílar skemmdust mikið í hörðum árekstri á mótum Háaleit- isbrautar og Bústaðavegar um átta- leytið í gærkvöld. Fjórir, sem í bíl- unum voru, hlutu minniháttar meiðsl og voru allir í beltum. Að sögn lög- reglunnar í Reykjavík var fólkið flutt á Landspítala – háskólasjúkrahús til aðhlynningar. Engin slys á fólki í hörðum árekstri FIMM manns voru fluttir á Land- spítala – háskólasjúkrahús í Foss- vogi með minniháttar meiðsl eftir harðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Lækjargötu í Hafnar- firði og Reykjanesbrautar laust eftir klukkan sjö í gærkvöld. Að sögn lög- reglunnar í Hafnarfirði varð slysið með þeim hætti að fólksbíl á leið til Reykjavíkur, sem í voru fimm manns, var ekið í veg fyrir bíl sem kom úr hinni áttinni og var ökumað- ur einn í þeim bíl. Ökumenn og farþegar voru allir í beltum. Fimm á sjúkrahús ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.