Morgunblaðið - 11.07.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HUGMYNDIR eru um það hjá
dómsmálaráðuneytinu að leggja einu
af þremur skipum Landhelgisgæslu
Íslands, Óðni, á næsta ári, í þeim til-
gangi að hagræða í rekstri Gæslunn-
ar. Sólveig Pétursdóttir, dómsmála-
ráðherra, segir að þannig megi
hagræða í rekstrinum um u.þ.b. 40
milljónir kr. á næsta ári. Er það um 3
til 4% af heildarrekstri Gæslunnar.
Tillögur þessa efnis hafa verið
kynntar stjórnendum Landhelgis-
gæslunnar. Hafsteinn Hafsteinsson,
forstjóri Gæslunnar, tekur ekki vel í
þær. Hann segir að Gæslunni veiti
ekki af þremur skipum. Samanlagt
séu skipin þrjú gerð út í tæpa 28
mánuði. Verði hins vegar af tillögum
ráðuneytisins verði skipin tvö ekki
gerð út nema í u.þ.b. nítján mánuði.
Árni Bjarnason, forseti Farmanna-
og fiskimannasambands Íslands,
tekur heldur ekki vel í tillögurnar.
Hann telur það vera algert lágmark
fyrir Gæsluna að halda úti þremur
skipum. Ekki sé gæfulegt að draga
saman hjá Gæslunni m.a. með tilliti
til öryggis sjófarenda.
Sólveig Pétursdóttir segir í sam-
tali við Morgunblaðið að dómsmála-
ráðuneytinu hafi eins og öðrum ráðu-
neytum verið gert að kanna
möguleikana á því að hagræða í
rekstri sinna stofnana í tengslum við
þá fjárlagagerð sem nú standi yfir
fyrir næsta ár. Ein af mörgum til-
lögum ráðuneytisins hafi falist í því
að leggja varðskipinu Óðni á næsta
ári. Á móti kæmi hins vegar til
greina að auka úthald hinna varð-
skipanna tveggja, þ.e. Týs og Ægis,
sem og að nota fokkervél Gæslunnar
meira við veiðieftirlit. Ráðherra
leggur þó áherslu á að engar ákvarð-
anir hafi verið teknar í þessu máli og
segist hún tilbúin til að skoða aðrar
tillögur um hagræðingu frá stjórn-
endum Gæslunnar.
„Varðskipið Óðinn er komið til ára
sinna. Það þarf að fara í klössun,
sennilega á næsta ári. Áætlað er að
sú viðgerð muni kosta í kringum 60
til 80 milljónir kr.,“ segir ráðherra og
bætir því við að með því að leggja
Óðni væri hægt að spara þann við-
gerðarkostnað en auk þess kostar
reksturinn á Óðni um 80 milljónir á
ári. Hluti af þeim kostnaði yrði þó
notaður til að auka úthald á hinum
skipunum tveimur. Þannig spöruð-
ust því um 40 milljónir kr.
Tímabundin aðgerð
Ráðherra minnir á í þessu sam-
bandi að ríkisstjórnin hafi á sínum
tíma ákveðið að fara út í byggingu
nýs varðskips en undirbúningur að
útboði í verkið er á lokastigi hjá Rík-
iskaupum. „Það verður því í raun
bara tímabundin aðgerð að leggja
einu varðskipanna þar sem við fáum
vonandi nýtt varðskip sem fyrst.“
Aðspurð kveðst ráðherra þó ekki
geta sagt til um það hvenær ætla
megi að nýja varðskipið verði tilbúið
til notkunar enda sé ljóst að um mjög
dýra framkvæmd sé að ræða.
Landhelgisgæsla Íslands hefur
þurft að glíma við uppsafnaðan halla
á síðustu misserum og bendir ráð-
herra á að starfshópur á hennar veg-
um sé nú að fara yfir fjárhagsvanda
Gæslunnar. Í þeirri vinnu sé það m.a.
til skoðunar að leggja meira fé í svo-
kallaðan viðhaldssjóð. Þannig eigi
Gæslan að geta betur komið á móts
við óvænt útgjöld.
Ráðherra leggur að síðustu
áherslu á að starfsemi Landhelgis-
gæslunnar sé mjög mikilvæg og að
stjórnendur hennar hafi staðið sig
vel í sínum störfum. „Vafalaust
mætti betur við þá gera en það er
einfaldlega þannig að það er mikil-
vægt fyrir þróun efnahagsmála á
næstu misserum að sýna aðhald í rík-
isrekstrinum. Þessi stofnun þarf því
að skoða sinn rekstur alveg eins og
önnur embætti.“
Dregur úr störfum Gæslunnar
Hafsteinn Hafsteinsson segir í
samtali við Morgunblaðið að tillögur
ráðuneytisins um að leggja Óðni
dragi augljóslega úr störfum Gæsl-
unnar. Þau skip sem eftir verða, Æg-
ir og Týr, geti ekki alltaf verið úti,
þau þurfi sitt viðhald og áhafnir þurfi
að vera á landi í ákveðinn tíma og því
verði í mesta lagi hægt að hafa þau
úti í samtals nítján mánuði.
Hafsteinn ítrekar mikilvægi Gæsl-
unnar, til að mynda við öryggisgæslu
og veiðieftirlit, og bendir m.a. á að í
fyrra hafi Gæslan staðið fjögur norsk
loðnuveiðiskip að ólöglegum veiðum.
Útgerðum og skipstjórum skipanna
hafi verið gert að greiða ríkissjóði
samanlagt um 32 milljónir kr. í sekt.
Aðspurður segir Hafsteinn að á
hverju varðskipi séu um 18 til 19
manna áhafnir, en hann telur þó ekki
að til fjöldauppsagna þurfi að koma
þótt Óðni verði lagt. „Það liggur þó
ekki fyrir hvort og þá hve mörgum
við þurfum að segja upp vegna
þessa,“ segir hann.
Hafsteinn bendir að lokum á
stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoð-
unar á Gæslunni árið 2001, en þar
hafi m.a. komið fram að núverandi
fyrirkomulag rekstrarins veitti lítið
svigrúm til sparnaðar. Þá segir í út-
tektinni: „Hefur verið dregið svo úr
umfangi rekstrarins í viðleitni til að
halda kostnaði innan fjárheimilda að
ekki verður komið við frekari sparn-
aði án samdráttar á þjónustu eða
með einhvers konar uppstokkun og
breytingu á rekstrarfyrirkomulagi.“
Tillögur um að varðskipinu Óðni verði lagt á næsta ári
Vænst að sparast muni
um 40 milljónir króna
„VISSIRÐU að við urðum heims-
meistarar í fótbolta í fimmta sinn,“
segir Ralf frá Brasilíu þar sem
hann og Renate njóta blíðunnar í
Laugardalnum. Renate tekur fram
að Ralf sé öfgasinnaður fótbolta-
áhugamaður og varasamt að
hleypa honum á flug. En það kem-
ur of seint: „Það var fagnað botn-
laust um allt landið, fótbolti er eins
og trúarbrögð fyrir okkur“, heldur
Ralf áfram. „Úrslitaleikurinn fór
fram átta að morgni að okkar tíma
og því stóð gleðin allan daginn og
langt fram á nótt og fólk safnaðist
saman í tugþúsundavís. Og við átt-
um titilinn svo sannarlega skilinn.“
Ralf og Renate hefðu væntanlega
verið sátt á hvorn veg sem úrslita-
leikurinn hefði farið, því bæði eru
af þýskum ættum og tala þýsku
sem annað mál á eftir portúgölsku.
Þau segja um tvær milljónir manna
í Brasilíu vera af þýskum ættum.
„Jú, þetta er í fyrsta sinn sem við
komum hingað og þetta var tölu-
vert ferðalag fyrir okkur, við urð-
um að fljúga fyrst til Kaup-
mannahafnar og þaðan til
Keflavíkur. Við erum búin að vera í
tvo daga hérna í Reykjavík en
leggjum af stað í Landmannalaug-
ar á morgun. Nei, við komum ekki
hingað út af veðrinu. Núna er vetur
í Brasilíu og hlýrra en hér á Ís-
landi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þar sem fótboltinn er trúarbrögð
LÍÐAN átta ára íslenskrar
stúlku, sem liggur á sjúkrahúsi
í Árósum í Danmörku eftir um-
ferðarslys sl. fimmtudag, var í
gær heldur betri. Stúlkunni var
þó enn haldið sofandi í öndun-
arvél en hitinn, sem var ríflega
39 gráður á þriðjudag, hafði
lækkað heldur.
Stúlkan er með sýkingu í
lungum en er í sýklalyfjameð-
ferð sem virðist vera farin að
skila árangri, að sögn móður
stúlkunnar.
Líðan stúlkunnar versnaði á
þriðjudag og í ljós kom að hún
mettaði súrefni í blóðinu verr
en hún hafði gert áður. Það
hafði lagast í gær og sagði móð-
ir hennar að dóttir sín ynni
hægt og rólega á þessu. Hún er
enn í öndunarvél en allar aðrar
slöngur, sem tengdar voru í
lungu og höfuð, hafa verið fjar-
lægðar. Líðan stúlkunnar hefur
verið stöðug frá því á þriðju-
dag.
Þá segist móðir telpunnar
allt eins gera ráð fyrir að dóttir
sín vakni ekki fyrr en eftir hálf-
an annan sólarhring. Fjölskyld-
an viti ekki frekari tímasetn-
ingar á því en læknar segi að
telpan muni fara heim, aðeins
sé tímaspursmál hvenær af því
verður og hún sé ekki í bráðri
lífshættu.
Líðan stúlk-
unnar held-
ur betri
EFNI sem lögreglu grunar að
séu fíkniefni fundust við leit í
bíl sem stöðvaður var á 142
kílómetra hraða, yfir tvöföldum
hámarkshraða, á Hafnarfjarð-
arvegi í fyrrakvöld. Tveir karl-
menn, ökumaður og farþegi,
voru handteknir og færðir til
yfirheyrslu en sleppt að þeim
loknum.
Á 142 km
hraða og með
fíkniefni
ÓLÍKLEGT er að Trygginga-
miðstöðin láti lyfta fjölveiði-
skipinu Guðrúnu Gísladóttur
KE-15 upp frá sjávarbotni.
Skipið, sem var tryggt hjá TM
fyrir rúmar tvær milljónir,
sökk við strendur Lofoten í N-
Noregi 19. júní síðastliðinn.
Í gær funduðu fulltrúar
Tryggingamiðstöðvarinnar
með sérfræðingum á vegum
endurtryggjenda félagsins.
Gunnar Felixsson, forstjóri
TM, segir sérfræðingana vilja
skoða málið aðeins betur eftir
fundinn í gær, en litlar líkur
séu á því að skipinu verði lyft
upp frá sjávarbotni og það
fært til hafnar. Endanleg
ákvörðun þar að lútandi verði
tekin í næstu viku. Áfram verði
leitað tilboða í flakið en ein-
hverjir hafi sýnt því áhuga á að
kaupa flakið þar sem það ligg-
ur á 40 metra dýpi. Hann segir
að engin formleg tilboð hafi
enn borist.
Um borð í skipinu er mikið
af dýrum búnaði og tækjum og
því gætu björgunarfyrirtæki
haft áhuga á því að kaupa flak-
ið og selja tækjabúnað og aðra
hluta úr skipinu.
Guðrún Gísladóttir
KE-15
Ólíklegt að
TM láti lyfta
flakinu frá
sjávarbotni
RÚSSNESKA varðskipið
Múrmansk, sem liggur við
bryggju Landhelgisgæsl-
unnar við Ingólfsgarð í
Reykjavík, hefur verið til
sýnis almenningi undanfarna
daga og voru þessir strákar
fljótir að nýta tækifærið og
skoðuðu skipið í krók og
kring. Skipið er 70 metra
langt og eru 90 manns í
áhöfn þess. Skipið kom á
sunnudaginn á vegum Land-
helgisgæslunnar og á að láta
úr höfn í dag.
Morgunblaðið/Jim Smart
Um borð
í Múrmansk