Morgunblaðið - 11.07.2002, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 47
DAGBÓK
Barnamyndatökur verð frá kr. 6.000
Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma,
aðrar stækkanir að eigin vali,
með allt að 50% afslætti
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Tilboð í júlí og ágúst
Grasaferð
í nágrenni Reykjavíkur
Grasaferð á vegum NLFR verður farin laugardaginn 13. júlí 2002.
Áætlað er að ferðin taki um 3 klst. frá kl. 11.00-14.00.
Farið verður undir leiðsögn Ásthildar Einarsdóttur grasalæknis og
fegrunarsérfræðings.
Tíndar verða jurtir til tegerðar og fleira í nágrenni Vífilsstaðavatns.
Í ferðinni verður boðið upp á jurtate og meðlæti.
Ferðin kostar kr. 500.
Allir velkomnir, frítt fyrir félagsmenn og börn.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 565 6133 og 899 0273.
PAS kvenbuxur ..................verð kr. 1.990
stærðir 36-56
FRANSA kvenbolir ...........verð kr. 600-900
VILA kvenpeysur .........verð kr. 700-1.500
herrabuxur .........verð kr. 500-1.500
GABBA herrapeysur .......verð kr. 700-1.500
herrajakkaföt ...verð kr. 3.900-7.900
Nýjar vörur daglega
Heildsölulagersalan
Laugavegi 82
Opið virka daga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
STÓRÚTSALAN
Árnað heilla
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 11. júlí, eiga
60 ára hjúskaparafmæli hjónin Hulda Jónsdóttir og Þor-
steinn Þorsteinsson, Guðrúnargötu 4, Reykjavík. Þau verða
á ferðalagi um landið með sonum sínum og tengdadætrum á
afmælisdaginn.
Morgunblaðið/Sverrir
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands. Þau heita Damjan Dagbjartsson, Freyja
Björk Dagbjartsdóttir og Þorri Arnarson. Á myndina vant-
ar Bergljótu Klöru Benjamínsdóttur.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 3.000 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Lára Sabido og
Kristín Sverrisdóttir.
LJÓÐABROT
ÍSLAND
Þú nafnkunna landið, sem lífið oss veittir,
landið, sem aldregi skemmdir þín börn,
hvert þinnar fjarstöðu hingað til neyttir,
hún sé þér ódugnaðs framvegis vörn.
Undarlegt sambland af frosti og funa,
fjöllum og sléttum og hraunum og sjá;
fagurt og ógurlegt ertu, þá brunar
eldur að fótum þín jöklunum frá.
Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði,
fjöll sýni torsóttum gæðum að ná;
bægi sem kerúb með sveipanda sverði
silfurblár Ægir oss kveifarskap frá.
- - -
Bjarni Thorarensen
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3
Bg7 4. g3 0-0 5. Bg2 d6 6.
0–0 Rc6 7. Rc3 Hb8 8. d5
Ra5 9. Rd2 c5 10. Dc2 e6
11. Hb1 exd5 12. Rxd5 Bf5
13. e4 Be6 14. Rb3 Rxb3
15. axb3 Rxd5 16. cxd5
Bd7 17. Bd2 f5 18. Hfe1
fxe4 19. Bxe4
Bd4 20. Be3 Df6
21. Bxd4 Dxd4
22. Hbd1 Df6 23.
He3 Hbe8 24.
Hde1 Dd4 25. h4
Kg7 26. h5 Hf6
Staðan kom
upp á öðru bik-
armóti FIDE
sem lauk fyrir
skömmu í
Moskvu. Sterk-
asti skákmaður
Úkraínu til
margra ára, Al-
exander Bel-
javsky (2.661), sem teflir
nú fyrir Slóveníu, hafði
hvítt gegn FIDE heims-
meistaranum og fyrrum
landa sínum, Ruslan Pon-
omarjov (2.743). 27. Bxg6!
Hxe3 28. Hxe3 hxg6 29.
He7+ Kh6 30. Hxd7 Dxd5
31. hxg6 Hxg6 32. Dc1+
Hg5 33. Df4 Dd1+ 34. Kh2
og svartur gafst upp enda
stutt í mátið.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
NORÐMAÐURINN Geir
Helgemo og Pólverjinn
Krzysztof Martens hafa
stundum spilað saman á
aðþjóðlegum tvímennings-
mótum með góðum ár-
angri. Þeir þekkjast því
vel og kannski var það
þess vegna sem Helgemo
lét eftir sér að sektardobla
Martens í laufbút með
frekar rýran varnarstyrk:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ G72
♥ 43
♦ G43
♣ÁD852
Vestur Austur
♠ ÁK1094 ♠ D83
♥ 92 ♥ KD865
♦ Á7 ♦ 9862
♣G1063 ♣9
Suður
♠ 65
♥ ÁG107
♦ KD105
♣K74
Norðmenn og Pólverjar
áttust við í fimmtu umferð
EM. Leikurinn var jafn og
endaði með naumum sigri
Pólverja, 16-14. Í opna
salnum voru Helgemo og
Helness í AV gegn Mart-
ens og Lesniewski:
Vestur Norður Austur Suður
Helgemo Lesn. Helness Martens
– Pass Pass 1 lauf
1 spaði 2 lauf Dobl * Pass
2 spaðar Pass Pass 3 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Martens og Lesniewski
spila Pólska laufið, sem er
háþróað Vínarkerfi, þar
sem laufopnunin getur
verið allt milli himins og
jarðar. Hækkun Lesn-
iewskis í tvö lauf lofaði
fimmlit og því ákvað Mart-
ens að berjast áfram á
kónginn þriðja. Sem er
djörf ákvörðun, og kannski
var það vegna þess að
Helgemo þekkti til sagnd-
irfsku Martens sem hann
lét eftir sér að dobla þrjú
lauf til sektar.
Doblið var með eindæm-
um misheppnað. Í ódobl-
uðu spili hefði Martens
farið hægt og hljótt einn
niður, en eftir doblið vann
hann rétt úr tromplitnum
– tók á kónginn og spilaði
litlu á áttuna! Gaf því að-
eins tvo slagi á spaða, einn
á hjarta og einn á tígul:
470 til Pólverja og 9 IMP-
ar, en á hinu borðum
spiluðu AV þrjá spaða og
fóru einn niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vel að þér og átt auð-
velt með að umgangast fólk.
Þú skalt leggja hart að þér á
árinu því það mun bera
ávöxt á því næsta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gefðu þér tíma áður en þú
tekur mikilvægar ákvarðanir
í dag. Þú ert ekki alveg viss
um hvað þú vilt gera í framtíð-
inni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú dregur í efa fyrirskipanir
einhvers sem er yfir þig sett-
ur. Þetta eru rétt viðbrögð því
að öllum líkindum liggja hinar
réttu staðreyndir málsins
ekki fyrir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki taka það nærri þér þótt
þú getir ekki gert upp hug
þinn í dag. Þú færð misvísandi
upplýsingar sem gera það að
verkum að nær ómögulegt er
að taka ákvörðun.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú býrð yfir innsæi og næmi.
Þetta er ástæða þess að þú
verður að treysta eðlisávísun
þinni í dag, sama hvað aðrir
segja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Sjálfstraustið er mikið um
þessar mundir því tunglið er í
merki þínu. Þú skalt nýta þér
þetta með því að sækja það
fast sem þú vilt ná fram.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt þú hafir tilhneigingu til
sjálfsgagnrýni kemstu í raun,
þegar þú hugsar málið betur,
að það er í raun engin ástæða
til slíks.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér tekst ekki að gera
ákveðnum hópi fólks til geðs.
Reyndu þess í stað að vinna
með einstaklingum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki taka það nærri þér þótt
þú eigir erfitt með að taka
ákvarðanir í dag. Þetta er ein-
faldlega einn þeirra daga þeg-
ar erfitt er að einbeita sér.
Frestaðu því mikilvægum
ákvörðunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ferðaáætlanir sem þú ætlar
að gera í dag, kunna að vera
byggðar á röngum forsend-
um. Ekki gera neinar skuld-
bindingar í dag, láttu þér
nægja að dreyma dagdrauma.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hafðu varann á þér varðandi
skuldir, húsnæðislán og fjár-
mál í heild í dag. Þessi mál eru
nokkurri óvissu háð um þess-
ar mundir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Eitthvað kann að valda því að
þú treystir ekki fyllilega við-
brögðum þínum í dag. Þú
skalt samt gæta þín á að slá
því föstu að þú hafir rangt fyr-
ir þér þótt einhverjum öðrum
sýnist annað.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu ekki uppskátt um áætl-
anir þínar og stígðu varlega
til jarðar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 14. júlí,
verður sjötugur Páll
Snævar Jónsson, Lindar-
síðu 4, Akureyri. Palli og
Hanna munu taka á móti
vinum og ættingjum í sal
Karlakórs Akureyrar,
Lóni, Hrísalundi 1, Akur-
eyri, laugardaginn 13. júlí
milli kl. 17–20.
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12.
Sigrún M. Þórsteinsdóttir leikur á orgel.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu-
bergi kl. 10.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka
deginum í kyrrð kirkjunnar og ber þar fram
áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum má
koma til presta kirkjunnar og djákna.
Hressing í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–15.
Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi for-
eldra með ung börn að koma saman og
eiga skemmtilega samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í Safnaðarheimili eftir stundina.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja.
KIRKJUSTARF