Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnar Gunn-arsson fæddist á Akranesi 22. desem- ber 1931. Hann varð bráðkvaddur mið- vikudaginn 3. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Gunnar L Guðmundsson, bóndi á Steinsstöð- um á Akranesi, f. 10. ágúst 1897, d. 8. febrúar 1988, og Guðríður Guð- mundsdóttir, f. 10. október 1899, d. 22. apríl 2000. Gunnar átti átta systkini. Þau eru: Guðmundur, f. 9. júlí 1920; Svava, f. 29. desem- ber 1921; Halldóra, f. 13. júlí 1923; Sigurlín Margrét, f. 16. febrúar 1927; Sigurður, f. 20. júní 1929; Ármann, f. 1. janúar 1937; Sveinbjörn, f. 7. júlí 1939; og Guðrún, f. 10. apríl 1942. Hinn 8. október 1958 gekk Gunnar að eiga Jóhönnu Þor- leifsdóttur, f. 20. júní 1929. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Grétar, f. 26. september 1951, maki Kristjana Þórarinsdóttir, f. 19. júlí 1952. Þeirra börn eru a) Gunnar, maki Lísbet Fjóla Hjör- leifsdóttir, þeirra sonur er Sig- urður Grétar. b) Jó- hanna, maki Freyr Geirdal. Þeirra syn- ir eru Ingólfur og Anton Freyr. c) Anna María; 2) Sig- urlín, f. 7. nóvem- ber 1956, maki Ei- ríkur Jónsson, f. 7. september 1954. Þeirra börn eru a) Ásgeir Þór, b) Rut, hennar sonur er Al- exander Máni, c) Ríkey Jóna. 3) Þór Arnar, f. 27. júlí 1960, maki Björg Agnarsdóttir, f. 17. september 1960. 4) Gunnar Rúnar, f. 18. febrúar 1967, maki Marta Ein- arsdóttir, f. 27. júlí 1969. Þeirra synir eru Einar Þór og Arnar. Gunnar ólst upp hjá foreldr- um sínum á Akranesi. Hann lauk námi í bifvélavirkjun og starfaði samfellt í þeirri iðn fyr- ir utan 16 ár sem hann var bóndi á Lambhaga í Skilmanna- hreppi í Borgarfirði. Síðastlið- inn áratug hafði hann umsjón með bílaverkstæði Haralds Böðvarssonar hf. á Akranesi. Útför Gunnars verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku tengdapabbi, það var svo erfitt að fá þær fréttir að þú værir látinn, þú sem varst svo lífsglaður. Þú sem varst að heyja fyrir hestana ykkar Jóhönnu fyrir veturinn í glaða sólskini, þegar áfallið kom. Ég kom inn í fjölskylduna ykkar aðeins 17 ára og tókst þú mér eins og þinni eigin dóttur og alveg frá fyrstu kynnum hefur þú verið fastur punkt- ur í lífi mínu. Þú varst svo stoltur afi þegar barnabörnin fæddust eitt af öðru, fylgdist með þeim öllum stækka og þroskast. Ykkur Jóhönnu ömmu munaði ekkert um að taka þau, allt upp í fjögur stykki, með ykkur í útilegu ef þið voruð að fara eitthvað ykkur til ánægju. Alltaf leit- uðu þau til þín ef eitthvað var að. Þú kveiktir áhuga Gunnars, Jóhönnu og Önnu Maríu á hestamennsku og voru þær margar ferðirnar farnar með afa í hestaferðir. Gunnar fékk alltaf ráð hjá afa ef eitthvað þurfti í sambandi við bíla og vélar, enda með sama áhugamálið þar. Síðan komu barnabarnabörnin sem öll fengu sína athygli hjá þér. Það er stórt skarð höggvið í fjöl- skylduna, þín verður sárt saknað. Þótt þú hefðir alltaf nóg fyrir stafni gafstu þér alltaf tíma til að koma við hjá okkur. Elsku tengdapabbi, hafðu hjart- ans þökk fyrir allt. Ég kveð þig með söknuði. Þín Kristjana. Elsku besti afi, nú ertu farinn, far- inn á annan stað, og söknuður okkar er ólýsanlegur. Þegar við fengum þær fréttir að afi Gunni væri farinn ætluðum við aldrei að trúa því, afi sem alltaf var svo frískur og fallegur á að líta og alltaf svo hress og tilbú- inn að gera allt fyrir alla. Þetta er ólýsanlegur missir sem við getum aldrei tjáð með orðum því að þú varst ekki bara afi. Þú varst svo góð- ur vinur okkar og varst alltaf til staðar fyrir okkur. Það var alltaf svo gott og gaman að hitta þig og segja þér hitt og þetta því þú hafðir svo gaman af að fá fréttir frá okkur. Þau voru ekki fá ferðalögin sem við fórum með þér og ömmu, alltaf vilduð þið hafa barnabörnin með og öll sóttumst við eftir að fá að vera nálægt ykkur. Því nærveran við þig og ömmu hefur alltaf verið svo ynd- isleg. Þegar við fórum að verða aðeins eldri fórum við öll að sækja meira í þig, afi, því öll höfðum við sama áhugamál og það var hestamennsk- an. Öll fengum við hest gefins frá þér og aldrei mátti maður borga þér neitt því þú vildir gefa öllum allt, sama hvað það var. Ef einhver var góður þá varst það þú, og oft varstu of góður. Þú varst alltaf svo duglegur að skipuleggja hestaferðir og alltaf varstu með okkur í huga þegar gerð- ir það. Alltaf var jafngaman að fara með þér á hestbak, það var alltaf svo gaman að tala við þig og oft hafðirðu svo margt skemmtilegt að segja frá. Það verður eitthvað skrýtið að fara á hestbak í framtíðinni og enginn afi með, en þú verður alltaf í huga okk- ar. Og ekki þarftu að hafa áhyggjur af hestunum þínum því við skulum annast þá fyrir þig, afi. Við getum ekki lýst því hve mikið við söknum þín og erum svo sár og reið út í lífið, því þú varst svo lífs- glaður og hafðir svo gaman af lífinu, þú hafðir alltaf nóg fyrir stafni og oft komstu ekki yfir allt, því þú varst svo duglegur í vinnunni. En alltaf hafðirðu tíma til að kíkja í heimsókn eða hringja í fjölskylduna þína. Og það er mikið þér að þakka hvað fjöl- skyldan þín er samrýnd. Það er sárt að hugsa til þess að þú varst farinn að skipuleggja framtíð- ina eftir að þú ætlaðir að hætta að vinna kringum áramótin. Nýbúinn að kaupa þér bílskúr sem þú varst svo ánægður með og ætlaðir að dunda þér í. Við vonum bara að þú sért ánægður á þeim stað sem þú ert á og hafir nóg að gera á milli þess sem þú fylgist með okkur öllum. Það var yndislegt að sjá hvað strákunum okkar, Sigurði Grétari, Ingólfi og Antoni Frey, þótti alltaf gaman að sjá afa Gunna eins og öll- um börnum, því þú varst svo mikil barnagæla. Það var svo gaman að sjá hvað þú sýndir þeim mikinn áhuga. Og ef þeir t.d. veiktust eitt- hvað gafstu þér alltaf tíma til að hringja eða kíkja í heimsókn. Það verður mikill missir fyrir þá að geta ekki alist upp með þér. Elsku besti afi, þú varst og ert alltaf bestur. Og það verður sárt að venjast þeirri tilhugsun að þú komir aldrei aftur til okkar. Við vonum að þér líði vel á þeim stað sem þú ert á, og þú getir haldið áfram að fylgjast með okkur öllum sem vorum í kring- um þig. Við munum öll hjálpast að við að gæta ömmu og hjálpa henni í sorg- inni, því þetta verður erfitt hjá henni eins og öllum öðrum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afi, við kveðjum þig með söknuði. Megi guð geyma þig og blessa. Gunnar Sigurðsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Anna María Sigurðardóttir. Elsku afi minn. Það er svo ótrú- legt að þú sért farinn frá mér. Við sem ætluðum að fara saman að veiða uppi í sveit í sumarfríinu og gera svo mikið saman. Ég gleymi aldrei hvað við fórum oft saman út, á rúntinn, í hesthúsið, sjoppuna og til Dóra gamla. Ég gleymi þér aldrei, afi minn, og ég ætla að fara með bænina mína fyrir þig. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Þinn afastrákur, Einar Þór. Það virðist vera stutt síðan ég var í sveit hjá móðurbróður mínum, Gunnari í Lambhaga, og Jóhönnu, konu hans. Frá sex ára aldri var ég þar heimagangur öll sumur og marga helgina. Það var lítil tilhlökk- un á haustin að fara aftur á Skagann og það endaði með því að ég fór ekki heim eitt haustið heldur dvaldist hjá þeim Gunnari og Jóhönnu síðustu þrjú árin áður en ég „flutti“ aftur heim í foreldrahús fimmtán ára gam- all. Fyrsta hestinn fékk ég hjá Gunn- ari í sumarkaup árið 1973 og ekki latti það áhugann á hestamennsku. Farið var ríðandi á hestaþing í Öl- veri, auk annarra góðra stunda sem tengjast hestum. Mér er minnisstæð tilhlökkunin um væntanlega ferð með Gunnari á fjórðungsmót í Faxa- borg sumarið 1975 en áður en af því varð endaði ég á sjúkrahúsi. Hjá Gunnari og Jóhönnu átti ég mitt annað heimili öll uppvaxtarárin og fyrir það verður þeim hjónum seint fullþakkað. Einar Halldór Einarsson. GUNNAR GUNNARSSON                              !      !"  !# $" ""%&' ""  "$  !# $"   # (   ) *  !# $" ) " # %&+"  ,  !#    "-&.$  "!$" /  0  *,1!!  0  "$!) "  $"&                                             !"#   "$% $$%                    &  '&(  ( ) *+* +, "-.   *  ., */ #-        !         "    # $  ,'  "#     , 0#   '1" *"#   !&# 0#  **1 "#  &    0#  2",3 , . 0#"#   &# 40#  ,$.&# $  ' %&               52,6 *$ 1*)! *   *  .4   "78 #-         ' (  '  )  *  9# * "  *, 9#  ** ',"#  2+ +9#    , "#  $$%' +   )      )     ,       -   #            #  #   4 :(;:  &  : #-% * " ' .   )        /    / 0 1 #     "#  <-=>     -   !#"#  $$% $$$% $$$$%' %&             & : 4? ,:@9 , "% AB , "   )  2  9#  #5"#  , !#5 &##    0#&##   "#  .&##  &#, * ""#   $!%&##"#   +&##"#  2+4!%  $$%'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.