Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 20
ERLENT 20 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ UMBÓTATILLÖGUR George W. Bush Bandaríkjaforseta, sem hann kynnti í ræðu á Wall Street í fyrra- dag, duga ekki til að auka traust fjárfesta og almennings á bandarísk- um fyrirtækjum eftir hneykslismálin í bandarísku viðskiptalífi að undan- förnu, að sögn fjármálasérfræðinga í Bandaríkjunum. Þeir segja að tillög- ur forsetans séu ekki heldur líklegar til að halda aftur af stjórnendum bandarískra fyrirtækja og fækka bókhaldssvikum. Margar af tillögum Bush taka ekki á þeim vandamálum, sem svika- málin eru rakin til, og aðrar hafa þegar verið samþykktar, að sögn sérfræðinganna. Sumar virðast jafn- vel vera mildari en þær reglur sem nú gilda. „Við getum ekki sagt að ekkert kjöt hafi verið á beinunum, því þetta var ekki neitt,“ sagði Eliot Spitzer, saksóknari í New York, demókrati sem ákærði nýlega ráðgjafarfyrir- tæki fyrir meinta hagsmunaárekstra í verðbréfaviðskiptum. Ekki tekið á vandanum Forsetinn lagði meðal annars til að sett yrðu lög sem bönnuðu for- stjórum, sem dæmdir eru fyrir „að misnota völd sín“, að stjórna fyrir- tækjum, sem skráð eru á hlutabréfa- mörkuðum, til æviloka. Bandaríska fjármálaeftirlitið, SEC, hefur nú þegar lagalega heimild til að úr- skurða forstjóra í slíkt bann. Sérfræðingarnir gagnrýndu Bush einkum fyrir að taka ekki á helstu vandamálunum, sem voru undirrót flestra hneykslismálanna, svo sem því að forstjórum er akkur í að ýkja hagnað fyrirtækja sinna í afkomutöl- um þar sem það eykur oft tekjur þeirra. „Ég tel umbótatillögurnar eins rýrar í roðinu og þær gátu mögulega verið,“ sagði Lawrence Mitchell, lagaprófessor við George Wash- ington-háskóla. „Umbæturnar eru tilgangslausar vegna þess að þær taka ekki á þeim vandamálum sem jafnvel Bush viðurkennir sjálfur.“ Hert viðurlög talin hafa lítil áhrif Bush lagði til að þingið yki fjár- framlögin til fjármálaeftirlitsins og að starfsmönnum þess yrði fjölgað um hundrað. Hann boðaði stofnun „sérsveitar“ sem á að hafa yfirum- sjón með rannsóknum á stórfelldum svikum í fjármálalífinu. Forsetinn lagði ennfremur til að viðurlögin við fjársvikum yrðu hert og hámarksrefsingin yrði tíu ár en ekki fimm eins og nú er. Bandarískir lögspekingar efast um að þetta hafi mikil áhrif. „Sú var tíðin að Englendingar hengdu vasa- þjófa,“ sagði lögfræðiprófessorinn John Coffee, við Columbia-háskóla. „En við hverja aftöku voru þjófar sem stálu úr vösum þeirra sem fylgdust með henni.“ Helsta vandamálið er að miklu erfiðara er að fá kviðdóma til að sak- fella menn fyrir flókin bókhaldssvik en marga aðra glæpi, svo sem bankarán eða fíkniefnasmygl. Fjármálaeftirlitið á tiltölulega auðvelt með að beita valdi sínu til að knýja fyrirtæki til að yfirfara og lag- færa reikningsskil sín eða greiða sektir. Lögfræðingar segja að miklu erfiðara sé að fá kviðdóma, sem hafa litla þekkingu á fjármálalífinu, til að komast að einróma niðurstöðu um að forstjórar hafi gerst sekir um svik við hluthafa af ásettu ráði, einkum þegar endurskoðendur hafa lagt blessun sína yfir bókhaldið. „Reynslan sannar að mjög erfitt er að afhjúpa svik í fyrirtækjum og lögsóknin er jafnvel enn erfiðari,“ sagði Ted Sonde, fyrrverandi emb- ættismaður í fjármálaeftirlitinu. „Gelti hátt en beit ekki“ Demókratar sögðu að tillögur Bush væru ófullnægjandi. „Mér fannst forsetinn tala hátt, en mjög, mjög lítið fór fyrir lurkinum,“ sagði demókratinn Tom Daschle, leiðtogi meirihlutans í öldungadeildinni. Nokkrir þingmenn repúblikana tóku undir gagnrýnina. „Hann gelti hátt en beit ekki,“ sagði einn þeirra, John Conyers. Bandarísk stórfyrirtæki fögnuðu hins vegar ræðu Bush. „Forsetinn gerði öllum ljóst að spilling og svik frammámanna í viðskiptalífinu verða ekki liðin,“ sagði Thomas Donohue, forseti bandaríska verslunarráðsins. Bush, sem naut mikils stuðnings bandarískra stórfyrirtækja í kosn- ingabaráttunni, hefur lengi verið andvígur því að afskipti ríkisvaldsins af viðskiptalífinu verði aukin. Að sögn Ronalds Brownsteins, blaða- manns Los Angeles Times, endur- speglaði ræða forsetans miklar efa- semdir hans um að hægt sé að leysa þjóðfélagsvandamál með reglugerð- um í Washington. Nokkrir þeirra sem gagnrýndu Bush kvörtuðu aðallega yfir því sem hann sagði ekki. Þeir bentu á að for- setinn minntist ekkert á frumvarp demókratans Pauls Sarbanes sem líklegt er að öldungadeildin sam- þykki síðar í vikunni. Samkvæmt frumvarpinu á að stofna nýtt og óháð ráð sem á að setja reglur um reikn- ingsskil og takmarka þá ráðgjafar- þjónustu sem endurskoðendur geta veitt fyrirtækjum sem þeir endur- skoða. Umbótatillögur Bush sagðar rýrar í roðinu Washington. Los Angeles Times, Washington Post, AP, AFP. MIKIL umræða spannst um líðan Desmonds Boylans, ljósmyndara Reuters, eftir að mynd sem hann tók af bálreiðum tudda í spænsku borginni Pamplona á sunnudag birtist í nokkrum dagblöðum í vik- unni. Myndin, sem var tekin í nautahlaupinu sem haldið er ár hvert þar í borg, þótti svo ógnvekj- andi að menn veltu líðan ljósmynd- arans fyrir sér. „Hvernig líður ljós- myndaranum?“ hljóðaði fyrirsögn eins þýsks dagblaðs og fréttastofa á Norðurlöndunum hringdi í höf- uðstöðvar Reuters til að spyrjast fyrir um hvort Boylan væri enn á lífi. Yfirmenn hans á fréttastofunni gátu sem betur fer fullvissað menn um að Boylan hefði ekki orðið meint af og væri hann við hesta- heilsu, eins og sést á myndinni sem tekin var af honum í gær. Reuters Reuters Ljósmyndarinn Desmond Boylan er enn á lífi þótt ótrúleg mynd hans af bálreiðu nauti í Pamplona hafi gefið tilefni til að ætla annað. „Hvernig líður ljós- myndar- anum?“ BANDARÍSKUR þrýstihópur, sem berst gegn spillingu, Judicial Watch, höfðaði í gær mál á hendur Dick Cheney, varaforseta Banda- ríkjanna, og Halliburton, fyrirtæki sem hann rak í fimm ár, fyrir bók- haldssvik. Judicial Watch rekur málið fyrir hönd tveggja hluthafa í Halliburton sem segjast hafa tapað miklu fé á meintum svikum fyrirtækisins. Þrýstihópurinn heldur því fram að Halliburton hafi ýkt tekjur sínar um 445 milljónir dala, andvirði 38 millj- arða króna, á árunum 1999–2001. Halliburton sérhæfir sig í þjón- ustu við olíufyrirtæki. Cheney var stjórnarformaður og aðalfram- kvæmdastjóri fyrirtækisins á árun- um 1995–2000. Halliburton skýrði frá því 28. maí að bandaríska fjármálaeftirlitið, SEC, hefði tilkynnt að það hygðist rannsaka þær aðferðir sem fyrir- tækið hefur notað við reikningsskil frá 1998. Fjármálaeftirlitið hefur ekki ákært fyrirtækið. Judicial Watch segir að þessar aðferðir hafi orðið til þess að gengi hlutabréfa í Halliburton hafi verið skráð of hátt. Fjárfestar hafi því verið blekktir. Ari Fleischer, talsmaður Banda- ríkjaforseta, kvaðst hafa rætt málið við aðstoðarmenn varaforsetans og þeir teldu að ekki væri fótur fyrir þessum ásökunum. Hældi Andersen í kynningarmynd Bandarískir fjölmiðlar skýrðu ennfremur frá því í gær að Cheney hefði komið fram á kynningarmynd- bandi fyrir Andersen, endurskoð- unarfyrirtæki orkurisans Enron sem varð gjaldþrota eftir að hann varð uppvís að bókhaldssvikum. Endurskoðunarfyrirtækið hefur verið sakfellt fyrir að leggja stein í götu réttvísinnar með því að eyða gögnum um Enron. Á myndbandinu, sem er frá 1996, hælir Cheney Andersen og segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi veitt Halliburton ráðgjöf sem hafi verið „umfram“ það sem venjulega sé ætlast til af endurskoðendum. Cheney sakaður um bók- haldssvik Miami. AP. ÖLDUNGADEILD Bandaríkja- þings samþykkti á þriðjudag til- lögu um að mörg þúsund tonnum af geislavirkum úrgangi yrði kom- ið fyrir í gryfjum í Yucca-eyði- mörkinni í sambandsríkinu Ne- vada. Úrgangurinn er nú í 43 af alls 50 sambandsríkjum, hann verður fluttur á staðinn og heita alríkisstjórnvöld að gerðar verði miklar ráðstafanir til að hindra að hermdarverkamenn geti notað tækifærið og klófest eitthvað af efninu á leiðinni. Ráðamenn í Nevada andmæltu kröftuglega tillögunni. Harry Reid öldungadeildarþingmaður réðst harkalega á talsmenn kjarnorku- iðnaðarins, þeir hefðu ávallt nóga peninga handa milli og þeir klifuðu stöðugt á „lyginni miklu“ um að brýnt væri að koma geislavirku efnunum fyrir í Nevada. Reid full- yrti að hægðarleikur væri að tryggja öryggi efnanna þar sem þau væru nú geymd. Geislavirknin í úrgangsefnunum kemur fyrst og fremst úr kjarn- orkuverum, geislavirknin eyðist á löngum tíma í náttúrunni en fyrir sum efnin getur það tekið tugþús- undir ára. Deilur um geymslustað- inn í Yucca hafa staðið yfir í tvo áratugi en ætlunin er að grafa efn- in í jörð um 145 kílómetra frá borginni Las Vegas. Samþykktin í þinginu gerir stjórn George W. Bush forseta kleift að halda áfram með áætl- unina en baráttan er þó ekki á enda. Nevadaríki hefur höfðað nokkur mál til að fá áætlunina stöðvaða og orkumálaráðuneytið í Washington á enn eftir að fá heim- ild fyrir losunarstaðnum hjá eft- irlitsnefnd kjarnorkumála. Síðast- nefnda málið gæti tekið allt að fimm ár. Geislavirk efni verða grafin í Nevada Washington. AP. LÖGREGLAN í Nígeríu hefur drepið 225 vopnaða ræningja síðan í marsmánuði síðastliðn- um, þegar átaki gegn vopn- uðum ránum var hleypt af stokkunum, en 23 lögreglu- menn hafa týnt lífi. Meira en 800 meintir ræningjar voru handteknir á tímabilinu, en á sama tíma týndi 41 almennur borgari lífi og 80 særðust í 113 vopnuðum ránum. Fæstir Nígeríumenn bera mikið traust til lögregluyfir- valda, en ríkislögreglustjórinn, Tafa Balogun, sem tók við embætti í mars, hefur heitið því að bæta aðbúnað lögreglu- manna, draga úr spillingu og taka harðar á glæpum í land- inu. Frá því í mars hefur 60 lögreglumönnum verið sagt upp fyrir agaleysi og fjárkúg- un. Hart tek- ið á vopn- uðum ránum Lagos. AFP. Nígería
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.