Morgunblaðið - 11.07.2002, Síða 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM 90 manns tóku þátt í sumar- og
fjölskylduferð kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi til Grímseyjar á dög-
unum.
Farið var með Grímseyjar-
ferjunni Sæfara frá Dalvík um há-
degisbil. Þoka var á leiðinni en
spegilsléttur sjór. Þegar komið var
á áfangastað fögnuðu eyjaskeggjar
með glymjandi tónlist og ljúfum
veitingum.
Síðan var farið í skoðunarferð um
eyjuna undir leiðsögn Bjarna Magn-
ússonar. Frábær stemning var
ríkjandi í ferðinni og margt til gam-
ans gert. Geir H. Haarde, fjár-
málaráðherra og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, og Inga Jóna
Þórðardóttir, eiginkona hans, voru
sérstakir gestir ásamt þingmönn-
unum Tómasi Inga Olrich mennta-
málaráðherra, Sigríði Ingv-
arsdóttur, Arnbjörgu Sveinsdóttur
og Halldóri Blöndal, forseta Alþing-
is. Á heimleiðinni var slegið upp
balli á þilfari ferjunnar og dansað
fram á nótt í dásamlegu veðri.
Góður rómur var gerður að allri
skipulagningu ferðarinnar, sem var
í höndum Gunnars Ragnars, for-
manns kjördæmisráðsins, Alfreðs
Almarssonar og Arnljóts Bjarka
Bergssonar. Góðar móttökur Gríms-
eyinga munu seint gleymast, segir í
fréttatilkynningu kjördæmisráðs.
Þátttakendur í sumarferð kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í Grímsey.
Vel heppnuð sumarferð til Grímseyjar
KAUPFÉLAG Eyfirðinga er að láta
kanna hagkvæmni þess að hefja
rekstur dagblaðs á Akureyri og er sú
vinna í höndum Birgis Guðmunds-
sonar, fyrrverandi fréttastjóra DV.
Birgir hefur starfað á Akureyri und-
anfarin ár, sem aðstoðarritstjóri
Dags og fréttastjóri DV, en hann var
einn þeirra sem misstu vinnuna í vor
þegar DV dró úr starfsemi sinni í
bænum.
Benedikt Sigurðarson, stjórnar-
formaður KEA, sagði í samtali við
Morgunblaðið að aðilar í fjölmiðla-
geiranum í bænum hefðu leitað eftir
því að KEA legði fram fjármagn „í
einhvers konar fjölmiðlapakka. Við
fengum Birgi Guðmundsson til að
fara í ákveðna vinnu fyrir okkur en sú
vinna hefur ekki skilað niðurstöðu.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar er
að kanna málið í samstarfi við aðila
og félagið er einnig í samstarfi við
okkur.“
Benedikt sagði að verið væri að
skoða útgáfu á staðarblaði, sem
kæmi út þrisvar sinnum í viku og
jafnvel oftar. Hann sagði að ekki
hefði verið tekin afstaða til þess hvort
eingöngu yrði horft til dreifingar á
Akureyri, í Eyjafirði eða á norðaust-
ursvæðinu. „Einnig hafa menn velt
upp þeim möguleika að búa til víð-
tækara samstarf við aðra tegund fjöl-
miðlunar.“ Benedikt sagði að niður-
stöðu þessarar athugunar væri að
vænta eftir um tvo mánuði og að
ákvörðun um framhaldið yrði tekin í
kjölfarið.
KEA fer ekki í samkeppni við
þá sem fyrir eru á markaði
Hann sagði þó ljóst, miðað við fyr-
irliggjandi stefnumótun KEA, að fé-
lagið færi ekki í beina samkeppni við
aðila sem fyrir eru á markaði.
„Hins vegar horfir það allt öðruvísi
við ef hægt er að ná mönnum til sam-
starfs um eitthvert verkefni. En stað-
bundnir aðilar sem fyrir eru á mark-
aði verða ekki fyrir svona innrás af
hálfu KEA, alla vega ekki án stefnu-
breytingar. Í mínum huga liggur það
alveg ljóst fyrir að ef menn ætla sér
að keppa við þá sem eru fyrir, eru
menn jafnframt tilbúnir að tapa ein-
hverjum slatta af peningum. Og það
getur ekki verið markmið í sjálfu
sér,“ sagði Benedikt.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið rætt við fulltrúa
frá sjónvarpsstöðinni Aksjón, viku-
blaðinu Vikudegi, Ásprenti, Athygli
og JP-fjölmiðlun vegna málsins.
Nýtt dagblað á
Akureyri?
FYRIRTÆKIÐ SS Byggir hefur
tekið upp vaktavinnu á bygginga-
svæðinu við Skálateig. Þar vinna
starfsmenn fyrirtækisins á tvískipt-
um vöktum virka daga, annars veg-
ar frá kl. 6–14 og frá 14–22. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem unnið
er á vöktum hjá fyrirtækinu en nú-
verandi fyrirkomulag hefur verið
við lýði í á þriðju viku. Að sögn
Ingva Óðinssonar verkstjóra eru
starfsmenn mjög sáttir við vakta-
fyrirkomulagið. „Sjálfum finnst mér
sérstaklega gott að vera á morg-
unvaktinnni, enda vanur því að
vakna snemma.“ Gert er ráð fyrir
að unnð verði á vöktum fram á
haust.
Ingvi sagði að um 10–12 starfs-
menn væru á hvorri vakt. Hann
sagði að með þessu fengist mun
betri nýting t.d. á krönum og mót-
um. Þá eru 10–15 undirverktakar
að vinna á svæðinu. Við Skálateig
er SS Byggir að byggja 44 sölu-
íbúðir og 47 leiguíbúðir og verða
fyrstu 16 leiguíbúðirnar tilbúnar í
haust. Mikill áhugi er fyrir hendi á
þessum íbúðum og er þegar rúm-
lega helmingur þeirra frátekinn.
Framkvæmdir í fullum gangi hjá SS Byggi við Skálateig
Morgunblaðið/Kristján
Byggingaframkvæmdir eru í fullum gangi við Skálateig, þar sem fyrstu
leiguíbúðirnar verða tilbúnar í haust.
Starfs-
menn
vinna á
vöktum
ATVINNUÁSTANDIÐ í Dalvíkur-
byggð er og hefur verið nokkuð gott
og mun betra en í nágrannasveitar-
félögunum, t.d. Ólafsfirði og Akur-
eyri. Þó er eitthvað um að fólk sé á
atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu.
Sæplast auglýsti á dögunum eftir
iðnverkafólki og sagði Daði Valdi-
marsson verksmiðjustjóri að alls
hefðu borist um 15 umsóknir, sem
eru heldur færri umsóknir en hann
átti von á. Umsóknirnar komu frá
utanbæjarfólki, enda lítið um lausar
hendur heimamanna um þessar
mundir. Daði sagði að ráðnir yrðu
3–5 nýir starfsmenn.
„Ég bjóst við fleiri umsóknum víðs
vegar af landinu en það er kannski af
því að ég hélt að það væru svo marg-
ir sem vildu flytja til Dalvíkur,“ sagði
Daði. Hluti starfsfólks verksmiðj-
unnar á Dalvík kemur frá Ólafsfirði
og Árskógsströnd. Daði sagði ólík-
legt að hægt yrði fá atvinnuleyfi fyr-
ir erlenda starfsmenn, þar sem væri
atvinnuleysi á svæðinu. „Það er ef-
laust rétt en það hjálpar mér voða
lítið að það sé atvinnuleysi á Akur-
eyri, því ég fæ ekki fólk þaðan.“
Þegar hann var spurður um hús-
næðismál í sveitarfélaginu sagði
Daði að skortur væri á húsnæði.
„Hér vantar gott leiguhúsnæði.“
Vinnslustopp hjá Samherja
Gunnar Aðalbjörnsson, frystihús-
stjóri Samherja á Dalvík, sagði að
nokkuð vel hefði gengið að fá fólk til
starfa í frystihúsið. „Við byrjuðum
með næturvaktir fyrir einu og hálfu
ári og þurftum þá að bæta við fólki
og það gekk nokkuð vel. En við erum
líka með fólk í vinnu úr Hrísey, frá
Árskógssandi og Ólafsfirði.“
Hjá fyrirtækinu á Dalvík starfa
um 150 manns í um 100 stöðugildum.
Í gær var síðasti vinnudagurinn
fyrir sumarlokum frystihússins en
vinna hefst að nýju 7. ágúst. „Við
ætlum að nota tímann fram undan til
þess að slaka á og búa okkur undir
vinnulotuna í haust.“
Gott atvinnuástand
í Dalvíkurbyggð
ÞAÐ er jafnan mikið um að vera
á bryggjunni flesta daga ársins.
Skip að koma og fara, lesta og
landa og í viðhaldi. Ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á þessa
starfsmenn Vélsmiðju Steindórs í
gærmorgun, sem voru að spá í
spilin á Togarabryggjunni á Ak-
ureyri. Þeir voru að færa flök-
unarvél frá nýja Sléttbak EA yfir
í gamla Sléttbak EA. Sá gamli
hefur þó lokið hlutverki sínu hjá
ÚA og verður afhentur nýjum
eigendum á næstunni.
Morgunblaðið/Kristján
Spáð í spilin
Nýr staður
fyrir sorpurðun
Gásir og
Hjalteyr-
arás til
skoðunar
SORPEYÐING Eyjafjarðar
er með tvo staði til skoðunar
fyrir sorpurðun, annars vegar
Gásir í Hörgárbyggð og hins
vegar Hjalteyrarás í Arnar-
neshreppi. Allt sorp á Eyja-
fjarðarsvæðinu er nú urðað á
Glerárdal en starfsleyfi fyrir
núverandi urðunarstað rennur
út árið 2003. Því er stefnt að
því að finna nýjan urðunarstað
á þessu ári.
Unnið er að rannsóknum á
áðurnefndum svæðum, sem
m.a. snúa að jarðfræði, gróðri
og dýralífi. Einnig þarf að fara
fram mat á umhverfisáhrifum
og þá þarf staðfestingu frá
sveitarstjórnum Hörgárbyggð-
ar og Arnarneshrepps. Hér er
um mjög viðkvæmt mál að
ræða, sem erfiðlega hefur
gengið að ná samstöðu um.
Í TENGSLUM við tóbaks-
fræðslu til barna í Vinnuskól-
anum á Akureyri og Dalvík
verður Guðjón Bergmann
með erindi í húsnæði Krabba-
meinsfélagsins á Glerárgötu
24 í kvöld (fimmtudag) kl.
20.30.
Hann mun m.a. fjalla um
hvað foreldrar geta gert til að
draga úr líkum á því að börn
þeirra byrji að reykja, hvort
sem foreldrarnir reykja eða
ekki, og hvað það er sem gef-
ur til kynna að börn séu byrj-
uð að reykja. Það hefur komið
í ljós að árangur tóbaks- og
vímuefnafræðslu er hvað
bestur þegar foreldrar fá
fræðslu um svipað efni á sama
tíma og börnin þeirra. Þessi
fræðsla er samvinnuverkefni
Krabbameinsfélagsins á Ak-
ureyri og forvarnafulltrúa
Akureyrarbæjar.
Reykingar barna
Geta for-
eldrar haft
áhrif?
Trúlofunar- og giftingahringir
20% afsláttur
www.gunnimagg.is