Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 16

Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 16
LANDIÐ 16 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Dvalarheimila á Suður- nesjum (DS) felldi með jöfnum at- kvæðum á síðasta fundi sínum að falla frá andstöðu við deiliskipulag lóðar hjúkrunarheimilisins Garð- vangs í Garði. Gerðahreppur mun eigi að síður óska eftir leyfi til að byggja íbúðir fyrir aldraða á lóð- inni. Gerðahreppur áformar að byggja tíu íbúðir fyrir aldraða á eignarlóð Garðvangs og skipulagði mikla framtíðarbyggð þar sem mætti andstöðu stjórnar Dvalar- heimilanna og annarra sveitarfé- laga. Hreppsnefndin hefur nú breytt fyrri deiliskipulagstillögum til þess að koma til móts við gagn- rýnendur. Þegar hið breytta skipu- lag kom til afgreiðslu stjórnar DS greiddu fulltrúar Sandgerðisbæjar og Vatnsleysustrandarhrepps at- kvæði á móti deiliskipulaginu en einn af þremur fulltrúum Reykja- nesbæjar greiddi atkvæði með því, ásamt fulltrúa Gerðahrepps. Annar fulltrúi Reykjanesbæjar sat hjá en sá þriðji komst ekki á fundinn þar sem hann forfallaðist á síðustu stundu. Sigurbjörg Eiríksdóttir, formað- ur stjórnarinnar, segir breyting- arnar á skipulaginu jákvæðar en að þær hefðu ekki gengið nógu lagt til að hún breytti afstöðu sinni. Fyrirhuguð hús væru fullná- lægt hjúkrunarheimilinu og enn væri gert ráð fyrir byggingum al- veg upp að því í framtíðinni. Sig- urbjörg tekur fram að fundargerð stjórnarinnar fari nú til umfjöll- unar hjá sveitarstjórnunum sem skipa stjórnina og þær gætu allt eins tekið aðra afstöðu en stjórnin. Þá segir hún ekki ólíklegt að fundað verði aftur, komi fram ósk um það, vegna forfalla stjórnar- mannsins. Þess má geta að nýr meirihluti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hefur breytt fyrri af- stöðu og leggst ekki lengur gegn byggingunum. Óskað eftir byggingaleyfi Sigurður Jónsson, sveitarstjóri Gerðahrepps, segir að deiliskipu- lagið sem hreppsnefnd hefur sam- þykkt verði nú sent skipulags- stjóra, ásamt samþykktum stjórnar DS, bæjarráðs Reykja- nesbæjar og öðrum gögnum. Von sé á umsögn skipulagsstjóra innan hálfs mánaðar og þá komi hrepps- nefnd saman til að fjalla um hana. Síðan verði óskað eftir bygginga- leyfi fyrir íbúðunum. Þá komi mál- ið að nýju fyrir stjórn DS. Telur hann að afstaða manna sé að breytast enda hafi verið komið verulega til móts við gagnrýnis- raddir eins og breytt afstaða Reykjanesbæjar sýni. Segist hann ekki trúa öðru en að hægt verði að hefja framkvæmdir á lóðinni um næstu mánaðamót. Byggingarnefnd samdi við Húsagerðina í Keflavík um bygg- ingu íbúðanna að loknu útboði. Verktakinn hefst handa við fram- kvæmdir strax og leyfi fæst. Stjórn DS samþykkir ekki deiliskipulag Fellt með jöfn- um atkvæðum Reykjanesbær HJÓNIN Þorsteinn Njálsson heim- ilislæknir og Ólöf Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur og listmálari, fluttu nýlega að Lambafelli, sem þau höfðu keypt fyrir rúmlega ári með fjölskyldu sinni. Þau fluttu með sér í heilu lagi frá Hafn- arfirði gamalt verslunarhús, 48 tonn að þyngd, sem var byggt 1903 og hét Edinborg. Síðar varð það skátaheimili með fleiri hlut- verkum. Þau settu húsið niður austan við íbúðarhúsið á Lamba- felli, þar sem það þjónar nú því hlutverki að vera orðið hótel Ed- inborg með 6 herbergjum, eins, tveggja og þriggja manna, með aðstöðu á lofti til ráðstefnuhalds eða svefnpokagistingar. Ólöf Pétursdóttir hótelstýra sagði að hótelið yrði rekið á árs- grundvelli þar sem lögð verður áhersla á góða þjónustu og að- stöðu til námskeiða og fyrirlestra. Hótelið mun tengjast heimili þeirra og fjölskyldunni, en þau hjónin eiga 6 börn frá þriggja ára til tuttugu og fjögurra ára. Eldri börnin taka þátt í þessu uppbygg- ingarstarfi, þar sem stefnt er að mannrækt og heilsurækt með t.d. lífrænni ræktun á jörðinni. Ólöf segir þetta spennandi viðfangs- efni í sérstaklega fallegu um- hverfi, sem bjóði upp á marga möguleika. Hótelið var opnað ný- lega. Fyrstu gestirnir voru frá Ísrael og segir Ólöf þá hafa verið mjög ánægða. Það ásamt góðum móttökum í sveitinni með þeirri stefnumörkun, sem unnið sé að sem langtímaverkefni, sé gleði og hamingja fjölskyldunnar í dag. Þorsteinn Njálsson sagði að hann hefði ákveðið með fjölskyldu sinni að flytja úr stærsta þéttbýli landsins út í sveit, frá hraðanum og tímaleysinu, sem ógnaði heilsu fólks, út til náttúrunnar, sem með réttu hugarfari gæti veitt lækn- ingu og gefið ný verðmæti. Sveit- in undir Eyjafjöllum væri einhver sú veðursælasta á landinu, þar sem voraði um mánuði fyrr en annars staðar, haustið milt og vet- urinn væri sérstaklega mildur. Jörðin byggi yfir heitu vatni, en það ásamt veðrinu gæfi tækifæri til lífrænnar ræktunar, sem í framtíðinni hlyti að verða kallað eftir í stórauknum mæli. Þorsteinn sagði, að hann hefði um langan tíma unnið að áætlun um að koma upp heilsurækt- araðstöðu, þar sem væri unnið samhliða að aðhlynningu líkama, huga og sálar. Þeir sem kæmu myndu hjálpa til við að finna sig sjálfa, finna tilgang lífsins og þau tækifæri sem lífið hefur upp á að bjóða. Fegurð Eyjafjalla og Eyja- fjallajökuls bæri við himin á Lambafelli og væri sem málverk í glugga hótelsins. Hugsjónafólk nemur land Hótel Edin- borg opnað Austur-Eyjafjöll Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson Þorsteinn Njálsson og Ólöf Pétursdóttir ásamt yngsta barni sínu. REYKJANESBÆR hefur fallist á að greiða að fullu biðlaunakröfu fyrrverandi forstöðumanns Skóla- sels í Reykjanesbæ, ásamt drátt- arvöxtum og málskostnaði, samtals um 836.000 krónur. Kemur þetta fram á heimasíðu Kennarasam- bands Íslands. Rekstur Skólasels Reykjanes- bæjar var lagður niður 1. septem- ber 2000. Þar með missti forstöðu- maðurinn starf sitt en öðlaðist rétt til biðlauna í tólf mánuði, kemur fram á heimasíðunni. Hann réð sig í nýtt og lægra launað starf hjá Reykjanesbæ og var óumdeilt að honun bæru biðlaun í eitt ár sem næmi mismun á föstum launum í forstöðumannsstarfinu í Skólaseli og föstum launum í hinu nýja starfi. Hins vegar vildi Reykjanesbær ekki fallast á að fastir 25 eftirvinnu- tímar á mánuði í fyrra starfinu hefðu verið hluti af föstum launum. Fyrir milligöngu Félags leik- skólakennara stefndi forstöðumað- urinn fyrrverandi Reykjanesbæ til greiðslu á þessari „föstu yfirvinnu“ að fjárhæð rúmlega 480 þúsund krónur, auk áfallinna dráttarvaxta og málskostnaðar, og hefur Reykja- nesbær nú fallist á að greiða kröf- una að fullu, að því er fram kemur á heimasíðunni. Greiða biðlauna- kröfu fyrrverandi forstöðumanns Reykjanesbær VÍÐA eru í gangi vegaframkvæmdir á landinu á þessum árstíma og þar af leiðandi truflun á umferð. Á kaflan- um frá Klifandi í Mýrdal austur að vegamótum Dyrhólahverfis á þjóð- vegi 1 er verið að endurnýja klæðn- ingu og skipta um rörhólka. Vegur- inn verður að hluta endurbyggður og hækkaður um 30–40 cm. Í kringum 9.000 rúmmetrar af efni fara í veg- inn, og er áætlað er að verkinu ljúki fyrir verslunarmannahelgi. Þegar fréttaritari Morgunblaðsins var á ferðinni þarna var búið að moka veg- inn í sundur og voru starfsmenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða að koma fyrir rörum í skurðinum. Á meðan höfðu þeir útbúið bráða- birgðaveg fyrir sunnan veginn sem umferðinni var beint inn á. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Starfsmenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða skipta um ræsi í þjóðvegi 1 við bæinn Skeiðflöt í Mýrdal. Skipt um ræsi við Skeiðflöt Fagradal ÖLL tilboð í framkvæmdir við frá- gang lóðar Saltfiskseturs Íslands í Grindavík voru vel yfir kostnaðar- áætlun og miklu hærri en forráða- menn setursins höfðu upphaflega áætlað. Boðinn var út frágangur lóðar Saltfisksetursins svo sem frágangur aðkeyrslu, bílastæða og gangstéttar að húsinu, einnig grjóthleðsla, pall- ur og frágangur á lóð sunnan húss- ins. Þrjú tilboð bárust. Það lægsta var frá Litlafelli ehf., 13,8 milljónir kr. sem er 3 milljónum kr. yfir kostn- aðaráætlun ráðgjafa verkkaupa. Hin tilboðin voru enn hærri eða á bilinu 22 til 26 milljónir kr. Einar Njálsson bæjarstjóri, for- maður stjórnar Saltfiskseturs Ís- lands, segir að tilboðin séu mun hærri en stjórnin hafi vonast til að verkið kostaði. Gerir hann ráð fyrir að reynt verði að semja við verktaka um að vinna hluta verksins nú í sumar en fresta hluta. Áformað er að opna sýningu Salt- fisksetursins í byrjun september. Lóð Saltfiskseturs Tilboð vel yfir áætlanir Grindavík SUMARHÁTÍÐ Byrgisins verður í Rockville við Sandgerði um helgina. Samkoman er til styrktar átaki gegn vímuefnanotkun, að því er fram kemur á heimasíðu Byrgisins. Svæðið er opnað almenningi klukkan 16 á föstudag og sett klukk- an 20 um kvöldið. Á hátíðinni verða síðan bænastundir, fyrirlestrar, kynning á starfi Byrgisins og sam- komur, auk ýmissa leikja, útimark- aðar, dansleiks og fleiri atriða. Byrgið heldur sumarhátíð Rockville SUMARHÁTÍÐ Ungmenna- og íþróttasambands Austur- lands hefst á föstudag. Að þessu sinni fer hátíðin fram á Egilsstöðum og mótshaldarar segja hana glæsilegri og fjöl- breyttari en nokkru sinni fyrr. Meðal þess sem íþrótta- kempur spreyta sig á er Aust- urlandsmót í frjálsum íþrótt- um á Vilhjálmsvelli, sem bæjarbúar nefna margir orðið „Villa Park“. Sundmót fyrir 9–17 ára verður í sundlaug- inni á Egilsstöðum, golfmót 16 ára og yngri á Ekkjufells- velli, sem þykir einn sá falleg- asti á landinu, og Austur- landsknattspyrnumót verður fyrir 6. flokk. Aðrar keppn- isgreinar eru svo dæmi sé tekið strandblak, íþróttir fatl- aðra og boccia, hjólreiða- keppni og víðavangshlaup fyr- ir alla fjölskylduna. Skráðir keppendur koma af Austur- landi öllu og auk þess frá ná- grannasamböndum. Á laugardag verður hátíð- ardagskrá í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Þar fara fram verðlaunaafhendingar og íþróttamaður ÚÍA 2002 verð- ur útnefndur. Hljómsveitin Castor stígur á pall og djass- menn af 15. djasshátíð Egils- staða verða með atriði á dag- skránni. Kertafleyting verður á Lómatjörninni og fjöllista- hópur frá Fáskrúðsfirði setur svip á samkomuna. Hátíðar- gestur dagsins er Einar Már Sigurðsson alþingismaður. Um kvöldið verður haldinn dansleikur í Selskógi við Eg- ilsstaði að gömlum sið, en sjálfstæðismenn stóðu þar fyrir skemmuböllum á árum áður. Hljómsveitirnar KRÓM og Remus leika þar fyrir dansi fram á nótt. Tjaldstæði verða gjaldfrjáls í Selskógi og aðgangur að há- tíðinni er ókeypis. Henni lýk- ur á sunnudag. Hristingur af íþróttum og ærsl- um alla helgina Sumar- hátíð ÚÍA á Egils- stöðum Egilsstaðir ♦ ♦ ♦ SUÐURNES

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.