Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 45
Kringlunni, sími 553 2888
Útsalan byrjuð
Mikil verðlækkun
Dömu-, herra-
og barnaskór
kr. 7.900
ÚTSALA
20-50%
afsláttur
Ullarkápur
Leðurkápur
Regnkápur
Vínilkápur
Sumarúlpur
Vindjakkar
Háttar og húfur
Mörkinni 6, sími 588 5518,
Opnum kl. 9 virka daga
laugard. kl. 10—15
Klapparstíg, sími 552 2522.
Kíktu á!
Í júlí
Borgar sig að kaupa vagn á fimmtudögum
eða föstudögum.
Valdir vagnar á rífandi tilboði.
lokað á
laugardögum
(13., 20. og 27. JÚLÍ 0G 3. ÁGÚST)
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Hreini Óskarssyni, skógarverði á
Suðurlandi, vegna tjaldsvæðis í
Þjórsárdal:
„Eins og flestum er kunnugt safn-
aðist hópur unglinga í tjaldútilegu á
tjaldsvæði Skógræktar ríkisins í
Þjórsárdal um síðastliðna helgi.
Ekki hafði verið boðað til neinnar
skipulegrar hátíðar á staðnum og
kom þessi mannsöfnuður umsjónar-
manni tjaldsvæðisins, sem og öðrum,
algerlega í opna skjöldu. Skógrækt
ríkisins harmar að svona skyldi fara
og mun allra leiða verða leitað til
þess að slíkt endurtaki sig ekki.
Skógrækt ríkisins og umsjónarmað-
ur tjaldsvæðisins vilja þakka lög-
reglunni fyrir skjót viðbrögð og
gæslu á svæðinu. Mikil vinna hefur
farið í að þrífa svæðið svo að það sé
boðlegt tjaldgestum og er því verki
lokið. Vill Skógræktin sérstaklega
þakka sumarfólki Landsvirkjunar
fyrir aðstoð við þrifin.
Á síðustu árum hefur verið unnið
að því að bæta aðstöðu fyrir ferða-
menn í Þjórsárdal. Vatnssalerni var
sett upp fyrir nokkrum árum og á
næstu dögum verður öðru salerni,
nokkru stærra, bætt við. Aðgengi
fyrir fatlaða verður að nýja salern-
inu. Skógrækt ríkisins rak tjald-
stæðið í Þjórsárdal allt fram á síð-
asta sumar, en í sumar hefur
reksturinn verið leigður út.
Tjaldsvæðið í Þjórsárdal er stað-
sett í Sandártungu austan Sandár.
Tjaldsvæðið er vel gróið og eru flat-
irnar aðskildar með trjágróðri sem
gerir það sérstakt. Gönguleiðir eru
frá tjaldsvæðinu inn í skóga Þjórsár-
dals og er göngubrú yfir Sandá. Það
er von Skógræktarinnar og umsjón-
armanns tjaldsvæðisins að „SMS-
hátíð“ síðustu helgar skaði ekki
ímynd tjaldsvæðisins sem fjöl-
skyldusvæðis. Velkomin í Þjóðskóg-
ana.“
Harmar
mannsöfnuð
í Þjórsárdal
SJÖUNDA skógarganga sumarsins
í röð gangna á vegum skógræktar-
félaganna í fræðslusamstarfi þeirra
við Búnaðarbanka Íslands verður í
kvöld, fimmtudagskvöldið 11. júlí.
Skógargöngurnar eru skipulagðar
í samvinnu við Ferðafélag Íslands og
eru ókeypis og öllum opnar. Þessi
skógarganga er í umsjá Skógrækt-
arfélags Mosfellsbæjar.
Mæting er kl. 20 í skóginum í
Hamrahlíð utan í Úlfarsfelli. Aðkom-
an er frá Vesturlandsvegi og er
skógurinn á móts við Korpúlfsstaði.
Gengið verður eftir nýju göngustíg-
unum um skógræktarsvæðin í Lága-
felli. Gengið verður eftir Skarhóla-
braut og landnemasvæðin utan í
Úlfarsfelli skoðuð. Endað verður aft-
ur í skóginum í Hamrahlíð. Þar verð-
ur boðið upp á ketilkaffi og léttar
veitingar. Göngustjóri er Einar
Gunnarsson skógræktarfræðingur
hjá Skógræktarfélagi Íslands.
Skógarganga í
Mosfellsbæ
Hjörleifur Björnsson
lék á bassa
Í niðurlagi umsagnar um djass-
tónleika í Neskirkju í blaðinu sl.
föstudag var rangt farið með nafn
Hjörleifs Björnssonar bassaleikara.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTUNGMENNASAMBAND Borgar-
fjarðar stendur fyrir kvöldgöngu
fyrir alla fjölskylduna annað hvert
fimmtudagskvöld í sumar. Hinn 11.
júlí verður farið að Stallaskógi við
Efri Hrepp og sund í Hreppslaug á
eftir. Takið með 300 krónur og nesti.
Leiðsögumenn eru Guðmundur Þor-
steinsson og Gyða Bergþórsdóttir.
Gangan hefst við Efri Hrepp, að
sunnanverðu í mynni Skorradals, kl.
20.
Kvöldganga
FJÖLSKYLDUFERÐ verður farin
helgina 12.–14. júlí nk. í Galtalæk á
vegum ofangreindra aðila og mun
aðgangseyrir, 1.500 kr. yfir helgina
fyrir fellihýsi/tjaldvagna, renna
óskertur til Geðhjálpar og Neistans.
Aðgangsmiði gildir sem happdrætt-
ismiði. Aðgöngumiðar eru seldir við
innganginn.
Dagskrá laugardaginn 13. júlí
2002: Kl. 13 Ratleikur fyrir börnin.
Ýmis verðlaun veitt. Trúðar á svæð-
inu. Kl. 15 Leikir með börnunum.
Grillaðar pylsur fyrir börn 12 ára og
yngri. Kl. 20.30 Línudans, sýning og
kennsla. Kl. 21 Dregið í happdrætti,
góðir vinningar. Kl. 22 Kvöldvaka við
brennu. Óvæntar uppákomur.
Sumarhátíð
Geðhjálpar, Neist-
ans og Ægis-
klúbbsins 2002
JÓN Egill Egilsson sendiherra af-
henti í gær, miðvikudaginn 10. júlí
2002, Aleksander Kwasniewski, for-
seta Póllands, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Íslands í Póllandi með
aðsetur í Berlín.
Afhenti
trúnaðarbréf
Alltaf á þriðjudögum