Morgunblaðið - 31.07.2002, Side 2
VERULEGRAR lækkunar á bensíni
er vart að vænta um mánaðamótin ef
marka má þau svör sem Morgun-
blaðið fékk hjá olíufélögunum. Við-
miðunarverð á hráolíu hækkaði upp
úr síðustu mánaðamótum en hefur
farið lækkandi síðari helming júlí og
var komið í 25 dali tunnan.
Gengi dalsins gagnvart krónunni
fór lægst í um 83,50 kr. rétt eftir miðj-
an mánuðinn en er nú komið í 85,30
krónur sem þó er nokkru lægra en í
byrjun júlí; þá var gengið 86,90 kr.
Bjarni Bjarnason, yfirmaður fjár-
málasviðs hjá Essó/Olíufélaginu, seg-
ir enga ákvörðun hafa verið tekna og
því ekkert hægt að segja að svo
stöddu en að farið verði yfir málin í
dag, miðvikudag.
Gunnar Karl Guðmundsson, að-
stoðarforstjóri Skeljungs, segist telja
að ef einhverjar breytingar verði
gerðar á verði um mánaðamótin verði
þær ekki miklar.
„Krónan hefur aðeins gefið eftir
aftur gagnvart Bandaríkjadal þannig
að munurinn frá stöðunni um síðustu
mánaðamót hefur verið að minnka.
Aftur á móti er kominn meiri stöð-
ugleiki á verðið á olíumarkaðinum,“
segir Gunnar Karl.
Gunnar Skaptason, framkvæmda-
stjóri Bensínorkunnar, segir að vænt-
anlega verði einhverjar breytingar á
verði. Gunnar segir að Bensínorkan
breyti verði aldrei nákvæmlega um
mánaðamót en oft einhverjum dögum
síðar. Menn skoði stöðuna aftur á
móti reglulega og stundum séu gerð-
ar breytingar á verði oft í mánuði.
Útlit er fyrir litlar
breytingar á
eldsneytisverði
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isNicklaus og Tiger orðnir
samherjar / B2
Þróttarar að komast á
siglingu í 1. deild / B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
FERÐAMENN við Ingólfs-
höfða munduðu myndavél-
arnar af kappi til þess að
ná lundanum á filmu á
dögunum. Lundinn er al-
gengastur íslenskra fugla,
og er talið að við Íslands-
strendur megi finna allt að
10 milljónir fugla. Sér-
stakt útlit hans, svart bak-
ið, hvít bringan og marg-
litt nefið, hefur heillað
jafnt Íslendinga sem er-
lenda ferðamenn um lang-
an aldur, þótt ferðamenn-
irnir séu líklega í
meirihluta meðal þeirra
sem festa hann á filmu. Ís-
lendingunum þykir hins
vegar ágætt að hafa hann
á borðum, eða þá upp-
stoppaðan í stofu.
Ljósmynd/Vilhelm
Lundinn
heillar
FRAMKVÆMDANEFND
um einkavæðingu hefur
fundað með öllum þeim er
sendu inn erindi varðandi
kaup á hlut ríkisins í Lands-
banka og Búnaðarbanka.
Ólafur Davíðsson, formaður
nefndarinnar, segir að nú taki
við hjá nefndinni að ákveða
næstu skref í málinu. Hann
vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um málið þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gær.
Fimm hafa áhuga
á bönkunum
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu hafa fimm að-
ilar sent inn tilkynningu til
framkvæmdanefndar um
einkavæðingu vegna áhuga á
mögulegum kaupum á a.m.k.
fjórðungshlut ríkisins í
Landsbankanum og Búnaðar-
bankanum.
Þar er í fyrsta lagi um að
ræða Íslandsbanka og í öðru
lagi Björgólf Guðmundsson
ásamt Björgólfi Thor Björg-
ólfssyni og Magnúsi Þor-
steinssyni. Þá sendi Þórður
Magnússon fyrir hönd ýmissa
fjárfesta erindi til einkavæð-
ingarnefndar. Fjórði aðilinn
er Eignarhaldsfélagið And-
vaki, Eignarhaldsfélagið
Samvinnutryggingar, Fiskiðj-
an Skagfirðingur, Ker hf.,
Kaupfélag Skagfirðinga svf.,
Samskip hf. og Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn. Í fimmta lagi
er Fjárfestingarfélagið Kald-
bakur, sem er m.a. í eigu
Samherja, KEA og Lífeyris-
sjóðs Norðurlands.
Einkavæðingar-
nefnd
Búin að
funda með
öllum
verið er að skoða hvort fleiri kýr séu
smitaðar og einnig eru smitleiðir
skoðaðar. Leiða má að því líkur að
kýrin hafi smitast úti í haga, þar
sem annaðhvort haginn eða
drykkjarvatnið hafi verið smitað.
Vatnið í fjósi og í bænum hefur þeg-
ar verið skoðað, og taldist það gott.“
Smitið getur borist eftir ýmsum
leiðum, til dæmis með smituðum
dýrum eða fuglum en einnig með
mengun úr rotþróm. Enn er í rann-
sókn með hvaða hætti smitið barst í
Hegranes.
Hestar einnig smitaðir
Tveir hestar hafa einnig smitast
af salmonellu á bænum.
Íbúar á Ási I og II eru nú í far-
banni, en banninu hefur verið létt af
nágrannabæjunum Ríp I og II.
Þeim kindum, sem úrskurðaðar voru
heilbrigðar, var hleypt á fjall. Öll
mjólkursala hefur einnig verið
stöðvuð, auk annarra ráðstafana til
þess að stöðva frekara smit. Salmon-
ella kæmist þó aldrei til neytenda
með kúamjólk þar sem mjólkin er öll
gerilsneydd. Atburðirnir eru mjög
bagalegir fyrir bændurna, að sögn
Halldórs. Þar sem talið er að smitið
hafi komið upp í úthaga eða vatni
getur reynst mjög erfitt að sótt-
hreinsa svæðið. Reynt er eftir megni
að bíða af sér smitið í dýrunum og
vonast til að þau nái sér að fullu.
Margar skepnur verða mjög veikar
af salmonellu og þarf að lóga þeim.
SALMONELLA greindist í
mjólkurkú á bænum Ási I í Hegra-
nesi í Skagafirði og þurfti að lóga
kúnni vegna veikindanna. Bóndinn á
bænum, Magnús Jónsson, vildi enga
áhættu taka og lógaði kúnni áður en
salmonellusmit hafði verið greint.
Smit greindist í sauðfé á nágranna-
bænum Ríp I fyrir um mánuði. Þar
þurfti bóndinn að lóga yfir 200 kind-
um og 300 lömbum vegna salmon-
ellu, og áður höfðu tæplega þrjátíu
kindur fundist dauðar í beitarhólfi.
Sýnataka þá sýndi salmonellusmit í
vatni.
Að sögn Halldórs Runólfssonar
yfirdýralæknis er óalgengt að kýr
og sauðfé smitist af salmonellu.
„Rannsókn stendur yfir á bænum,
Yfirdýralæknir rannsakar smitleiðir í úthaga
Salmonella í mjólkur-
kú í Skagafirði
hefði sent neyðarkallið en rödd hans
var róleg og bar ekki með sér að um
mikla neyð væri að ræða eins og oft
gerist þegar bátar senda út neyðar-
kall. Ítrekað var reynt að ná sam-
bandi við þann sem sendi skilaboðin
en án árangurs.
Frá fyrstu stundu þótti ljóst að
neyðarkallið kæmi frá höfuðborgar-
svæðinu eða nágrenni og voru lög-
reglubílar sendir í eftirlitsferðir að
höfnum á höfuðborgarsvæðinu en sú
leit skilaði engum vísbendingum um
hvaðan neyðarkallið barst. Björgun-
arsveitin Ársæll í Reykjavík var köll-
uð út um tvöleytið í fyrrinótt og sendi
björgunarskipið Ásgrím S. Björns-
son, ásamt einum hraðbjörgunarbáti,
til leitar. Einnig tók þyrla Landhelg-
LJÓST þykir að neyðarkall sem
barst skömmu eftir miðnætti í gær á
neyðarrás skipa hafi verið gabb.
Lögregla, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, hafnsögumenn, björgunarskip og
hraðbjörgunarbátur leituðu að báti í
neyð fram undir morgun.
Í fréttatilkynningu frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu kemur
fram að Reykjavíkurradíó, stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar og hafn-
sögumenn í Reykjavíkurhöfn heyrðu
neyðarkall á rás 16, sem er neyðarrás
skipa, þar sem sagt var: „Erum að
sökkva, sendum út neyðarkall.“ Gef-
ið var upp skráningarnúmer á báti
sem búið var að afskrifa. Samkvæmt
upplýsingum frá Landsbjörgu var
talið víst að fullorðinn karlmaður
isgæslunnar ásamt hafnsögubátnum
Jötni þátt í leitinni. Leitað var eftir
strandlengjunni frá Reykjavíkur-
höfn inn Elliðavog ásamt því að leitað
var við strandlengjur Viðeyjar og
nærliggjandi eyja. Þyrlan flaug einn-
ig yfir hafsvæðið frá Reykjavík að
Akranesi og leitað var eftir strand-
lengjum Kópavogs og Hafnarfjarðar.
Jón Gunnarsson, formaður Lands-
bjargar, segir að atvikið sé litið alvar-
legum augum en sem betur fer sé
sjaldgæft að neyðarköll séu notuð til
að gabba björgunarsveitir og opin-
bera björgunaraðila. Komið hafi fyrir
að börn hafi í óvitaskap sent fölsk
neyðarköll en það sé öllu alvarlegra
þegar fullorðnir menn leiki þennan
leik.
Margir tóku þátt í umfangsmikilli leit að sökkvandi báti
Neyðarkall reyndist gabb
Festi jeppa í
500 m hæð í
Esjuhlíðum
PILTUR um tvítugt festi jeppabif-
reið í Esjuhlíðum í fyrrakvöld og urðu
af því lítilsháttar skemmdir á gróðri.
Varla þarf að taka það fram að pilt-
urinn ók utan vega en jeppinn sat
fastur í mýri í um 500 metra hæð.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Mosfellsbæ ók pilturinn
upp vegarslóða sem björgunarsveit-
armenn nota við björgunarstörf í Esj-
unni og með í för voru tveir félagar
hans. Vegarslóðinn er talsvert austan
við algengustu gönguleiðir upp á Esj-
una. Ók pilturinn slóðann á enda, hélt
síðan í vestur og ofar en festi jeppann
í mýri. Lögregla fór á vettvang ásamt
félögum í björgunarsveitinni Kyndli.
Ökumaðurinn kvaðst ætla að bæta
fyrir skemmdirnar.