Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 14
AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMAR HLJÓMAR HLJÓMAR LAUGARDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD Á GRÆNA HATTINUM AÐSÓKN að Listasafninu á Akur- eyri hefur verið geysilega góð síð- ustu daga, frá því sýningin Milli goðsagnar og veruleika – nútíma- list frá arabaheiminum, var opnuð þar á laugardaginn. „Aðsóknin er eiginlega alveg með ólíkindum. Það er varla að við getum lokað safninu því hing- að er stöðugur straumur fólks,“ sagði Hanns Sigurðsson safnstjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. Hannes vildi ekki skjóta á hve margir hefðu séð sýninguna í gær, því „þegar svo margir eru við opnun eins og á laugardaginn er ekki víst að allir skrifi í gesta- bókina. Það er ljóst að hér voru fleiri hundruð manns þá. Menn hafa varla séð annað eins og þá - jafnvel ekki þegar safnið opnaði fyrir tíu árum.“ Hátalara hefur verið komið fyr- ir á þaki safnsins og þaðan er út- varpað arabísku bænaákalli, Al- hazan sem svo er nefnt, á tveggja tíma fresti, frá klukkan átta morguns til átta að kvöldi. Aðeins er varpað í tvær og hálfa mínútu í hvert skipti. „Þetta hefur kannski vakið athygli,“ sagði Hannes. Það var Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra sem lýsti sýn- inguna opna en meðal annarra gesta var hennar konunglega há- tign Wijdan Ali prinsessa frá Jórdaníu, sem er doktor í íslamsk- ri myndlist frá Lundúnaháskóla og formaður Konunglega list- félags Jórdaníu í Amman. Hún er sjálf listamaður og á tvö verk á sýningunni. „Á þessari sýningu valdi ég þrjá flokka sem skapa arabískri nú- tímalist mikla sérstöðu. Þeir eru: málefni sem snerta stjórnmál, stöðu kynjanna og mannúðar- mál og virðast hafa áhrif á daglegt líf okkar í arabaheiminum; skraut- ritunarskóli nútímans sem á sér rætur í ísl- amskri menningu en beit- ir samtímalegum stílteg- undum og miðlum; og loks óhlutbundin myndlist sem arabískir myndlist- armenn hafa iðkað frá fornu fari og er einn vin- sælasti framsetningar- mátinn í þessum heims- hluta,“ segir Ali m.a. í sýningarskrá. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Litadýrð er mikil í mörgum verkanna frá Arabíu en verkin taka einkum til þriggja umfjöllunarefna. „Góðan dag, má bjóða ykkur kaffi?“ spurðu „arab- ískir“ þjónar á lýtalausri íslensku - og Jakob Björns- son, formaður bæjarráðs Akureyrar, þáði tíu dropa. Gestum, sem voru fjölmargir, var boðið upp á arabískt kaffi í tilefni dagsins sem upplagt var að dreypa á um leið og gengið var um salinn og verkin skoðuð af athygli. Mikill áhugi á arabískri nútímalist á Akureyri Wijdan Ali prinsessa frá Jórdaníu leiðir Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra, Sigurjónu Sigurðardóttur, eiginkonu hans, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóra á Akureyri, um sýningarsalinn. AÐALSTJÓRN Íþróttafélagsins Þórs kom saman til fundar í gær- kvöldi þar sem farið var yfir tillögur frá deildum félagsins um á hvern hátt bregðast ætti við taprekstri Þórs á fyrsta fjórðungi þessa árs. Tillögurn- ar verða sendar bæjaryfirvöldum og í framhaldi af skoðun þar kemur í ljós hver viðbrögð bæjarins verða, en við blasir að rekstrarstyrkur sem Akur- eyrarbær greiðir nokkrum íþrótta- félögum verði ekki greiddur út til Þórs nú um mánaðamótin vegna tap- rekstrarins. Sú ákvörðun er í sam- ræmi við samning milli bæjarins og íþróttafélaganna, en skv. honum skuldbinda félögin sig til að reka starf sitt með hagnaði. Bærinn leggur fé- lögunum, sem eru auk Þórs KA, Golf- klúbbur Akureyrar og Skautafélag Akureyrar, til fjármagn til að reka mannvirki, íþróttavelli og skrifstofur. Á móti er sett það skilyrði í samning- inn að félögin lúti ábyrgri fjármála- stjórn og bænum sé heimilt að hafa eftirlit með bókhaldi þeirra. Samkvæmt fyrsta uppgjörinu sem birt var fyrr í þessum mánuði varð tap á rekstri Þórs, en um er að ræða tap af rekstri hand- og körfuknatt- leiksdeilda félagsins. Gert ráð fyrir hagnaði Jón Heiðar Árnason, formaður Þórs, sagði að deildir félagsins hefðu skilað inn fjárhagsáætlunum þar sem gert væri ráð fyrir niðurskurði. „Við munum fara vandlega yfir þessar áætlanir, ræða við forsvarsmenn deildanna og leita svara við spurning- um til að skýra málin nánar,“ sagði Jón Heiðar. Hann kvaðst bjartsýnn á að tækist að rétta reksturinn við. Áætlanir handknattleiksdeildar gerðu þannig ráð fyrir 1,5 milljóna kr. hagnaði, 2,3 milljónum hjá körfu- knattleiksdeild og að hagnaður knatt- spyrnudeildar verði 4–5 milljónir kr. Hann sagði erfitt að eiga við ferða- kostnað félagsins en hann nemur um 25 milljónum kr. á ári, enda væri fé- lagið með meistaraflokka í þremur greinum. Niðurskurður myndi því helst bitna á launagreiðslum. Aðalstjórn Þórs fjallar um tillögur vegna taprekstrar Bjartsýni á að takist að rétta reksturinn við ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hóf nýlega tilraun til áframeldis á ýsu. Óttar Már Ingvarsson, verkefn- isstjóri fiskeldis hjá ÚA, sagði að nú í sumar hefðu bátar á vegum félagsins verið við veiðar á ýsu í Eyjafirði og töluvert magn verið sett í sjókvíar. Hann sagði að slíkar tilraunir hefðu verið gerðar í Kanada og Skotlandi með ágætis árangri, en þar er byrjað frá grunni, eða strax frá klaki. Til- raun ÚA byggist aftur á móti á því að veiða villta ýsu. „Þetta er fyrsta skrefið, við ætlum að sjá hvernig þetta gengur. Þetta er í sjálfu sér auðvelt yfir sumarið en gæti orðið erfitt yfir vetrarmánuðina,“ sagði Óttar Már. Þótt eldið sé skammt á veg komið hefur þegar komið í ljós nokkur munur á áframeldi þorsks og ýsu, því ýsan tekur við þurrfóðrinu en þorsk- urinn ekki. Ýsan er þó talin við- kvæmari í eldi en þorskurinn að mörgu leyti. Nýlega var gefin út reglugerð um úthlutun þorskkvóta til veiða vegna áframeldis. Alls var úthlutað 395 tonnum og fékk ÚA þar af 90 tonn. Úthlutunin er bundin þeim skilyrð- um að fiskurinn sé notaður til þorsk- eldistilrauna hér við land og rann- sókna á því sviði. Starfsmenn ÚA hafa verið að veiða þorsk í Eyjafirði að undanförnu og er hann fluttur í eldiskvíar við Þórsnes, skammt norðan Krossaness. Áætlað er að fyrsta slátrun verði seint í haust. Í janúar síðastliðnum voru flutt um 6.000 seiði úr útibúi Hafrann- sóknastofnunar í Grindavík norður á Hauganes. Þar hafa þau verið í eld- iskerjum og sagði Óttar Már að ætl- unin væri að færa þau þaðan í sjókví- ar um miðjan ágúst. „Þetta hefur gengið vel, seiðin voru um 30 grömm þegar við fengum þau í janúar en eru nú um 300 grömm. Við erum ánægð með árangurinn, hann er í samræmi við væntingar okkar,“ sagði Óttar Már. Þorskeldi ÚA samkvæmt væntingum Tilraun hafin til áframeldis á ýsu TRÍÓ Andrésar Þórs Gunnlaugs- sonar leikur á heitum fimmtudegi í Deiglunni á fimmtudagskvöld, 1. ágúst, kl. 21.30. Tónlistardagskrá verður í Deiglunni kl. 21 á föstudags- kvöld og einnig á laugardagskvöld 3. ágúst. Flytj- endur eru Kristján Pétur Sigurðs- son gítar, Birgir Karlsson gítar og mandólín, Garðar Már Birgisson gít- ar og slagverk, Hjálmar Brynjólfs- son bassi, harmónika og slagverk og Sigurður Jónsson sögumaður. Söguganga um Fjöruna og Innbæinn kl. 14 á laugardag, 3. ágúst. Lagt af stað frá Laxdalshúsi. Sumartónleikar í Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 17. Susan Landale, orgelleikari frá París, leikur. Í Ketilhúsinu standa yfir sýning- arnar „Samspil/Interplay“ og í litla sal á jarðhæð sýnir Joris Rademaker innsetningarverkið „Munstur til- finninganna“. Í Deiglunni er síðasta vika sýningarinnar MEGAS – marg- miðlunarsýning. Sýningar eru opnar alla daga nema mánudaga frá 14 til 18. Dagskrá Listasumars LEIT að fornminjum neðansjávar fer nú fram á hafnarsvæðinu við Gásir í Hörgárbyggð í Eyjafirði. Þetta er í fyrsta skipti sem neðan- sjávarfornleifaleit fer fram á fornu hafnarsvæði á Íslandi. Það eru tveir neðansjávarfornleifafræðingar frá danska Þjóðminjasafninu sem sjá um leitina, þeir Flemming Rieck og Jörgen Dencker. Þeir verða við vinnu sína að Gásum fram til 7. ágúst næstkomandi. Tilgangur leit- arinnar er að kanna hvort neðan- sjávar leynist einhvers konar forn- leifar, t.d. af bryggjum eða skipum. Fólki býðst að ganga um upp- graftarsvæðið með leiðsögn alla daga og eru fimm ferðir í boði á dag, kl. 11, 12, 13, 14.30 og 15.30 fram til 9. ágúst. Einnig verður boð- ið upp á leiðsagða kvöldgöngu 7. ágúst næstkomandi kl. 19.30. Þeir Flemming og Jörgen kváð- ust í gær enn ekki hafa fundið neitt sem bendir til að höfn hafi verið á svæðinu. Þeir hafa útilokað ákveðin svæði, en eiga eftir að fara yfir mun stærra svæði áður en yfir lýkur og vona að eitthvað muni koma í ljós er á líði og þá helst leifar af bryggju eða skipsskrokkum. Enn er ekki ljóst hvort þeir Flemming og Jörg- en munu kafa um lónið við Gásir að þessu sinni. Væntanlega munu þeir einbeita sér að því að bora niður í sjóinn til að ná upp sýnum. Við fornleifauppgröftinn hefur m.a. fundist brennisteinn, sem væntanlega hefur komið austan úr Mývatnssveit. Þaðan var brenni- steinn sendur til útlanda á 13. öld. Þessi fundur bendir eindregið til þess að Gásir hafi ekki einungis ver- ið verslunarstaður fyrir Eyjafjörð heldur Norðurland allt. Talið er að verslunarstaðurinn hafi lagst af í kringum árið 1400. Hluti hans er undir vatni og sem fyrr segir verða dönsku neðansjávarfornleifafræð- ingarnir að störfum á Gásum næstu tvær viku við leit að bryggjum eða skipum. Neðansjávarfornleifaleit á fornu hafnarstæði á Gásum Danirnir vonast til að finna bryggjur eða skip Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kafararnir dönsku Flemming Rieck og Jörgen Dencker að störfum á Gásum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.