Morgunblaðið - 31.07.2002, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 19
Nú er 50% afsláttur
á útsölunni - Allt á hálfvirði
við Laugalæk
AÐ minnsta kosti 700.000 manns
sóttu messu sem Jóhannes Páll II
páfi hélt úti undir berum himni í
Gvatemalaborg í Gvatemala í gær.
Páfi, sem er 82 ára, hafði komið til
Gvatemala á mánudagskvöld frá
Toronto í Kanada og þótti hann
nokkuð þreytulegur í útliti er hann
lenti á flugvellinum. Hann gaf sér
þó tíma til að hitta þennan unga
dreng, sem sjá má á myndinni.
Við messuna í Gvatemalaborg í
gær tók Jóhannes Páll í dýr-
lingatölu Pedro de San Jose Bet-
ancourt, sem fæddist á Kanarí-
eyjum á Spáni árið 1626 og helgaði
líf sitt líknarstörfum í Gvatemala.
Er hann fyrsti dýrlingur Mið-
Ameríku.
Jóhannes Páll páfi skoraði á
landsmenn að virða réttindi frum-
byggja, sem eru um 60% af tólf
milljónum íbúa Gvatemala og hafa
lengi mátt þola misrétti og búið við
fátækt.
Páfi lagði einnig áherslu á nauð-
syn sátta og þjóðareiningar í land-
inu eftir 36 ára borgarastyrjöld
sem lauk fyrir sex árum.
Í gærkvöldi hélt páfi síðan áleiðis
til Mexíkó, næstfjölmennasta kaþ-
ólska lands í heiminum á eftir Bras-
ilíu. Búist er við að hann leggi þar
einnig áherslu á að virða beri rétt-
indi indíána.
Reuters
Páfi í
heimsókn í
Gvatemala
TVÆR nýjar rannsóknir hafa
orðið til að blása lífi í glæður
deilunnar um Vínlandskortið
sem staðið hefur yfir áratugum
saman. Deilt er um hvort kortið
sé frá 15. öld og sanni ferðir
víkinga til vesturheims fyrir
daga Kristófers Kólumbusar
eða hvort það sé afar snjöll föls-
un frá 20. öld.
Tvær rannsóknir á kortinu
voru birtar í byrjun vikunnar og
eru niðurstöður þeirra með öllu
ósamhljóða.
Aðra rannsóknina gerðu vís-
indamenn við Smithsonian
stofnunina, háskólann í Arizona
og Brookhaven rannsóknarmið-
stöðina. Þeir telja að kortið hafi
verið gert árið 1434, tæpum 50
árum áður en Kólumbus fann
Ameríku, og sanni það því að
hann hafi ekki verið fyrsti Evr-
ópumaðurinn sem náði strönd-
um álfunnar.
Hin rannsóknin var unnin af
vísindamönnum við University
College í Lundúnum. Niður-
staða þeirra er sú að kortið hafi
verið gert eftir árið 1923, það
sanni efni í blekinu. Eldri rann-
sóknir hafa bent til sömu nið-
urstöðu en deilt hefur verið um
umrætt efni í blekinu þar sem
það finnst einnig í náttúrunni.
Báðar þessar rannsóknir voru
birtar á mánudag, sú fyrrnefnda
í júlíhefti tímaritsins Radio-
carbon en sú síðarnefnda í tíma-
ritinu Analytical Chemistry sem
dagsett er 31. júlí.
Deilt hefur verið um Vín-
landskorið frá því á sjöunda
áratug síðustu aldar. Paul nokk-
ur Mellon gaf þá Yale-háskóla í
Bandaríkjunum kortið. Það
hafði Mellon keypt á sjötta ára-
tugnum af manni í Connecticut í
Bandaríkjunum. Sá upplýsti
aldrei hvernig kortið komst í
hendur hans. Rannsókn var
gerð á kortinu á áttunda ára-
tugnum og var niðurstaðan sú
að það væri falsað.
Kortið sýnir heiminn eins og
víkingar þekktu hann. Á því er
að finna teikningu af Atlants-
hafsströnd Norður-Ameríku og
segir í texta sem þar er að finna
á miðaldalatínu að Leifur Ei-
ríksson hafi fundið Vínland um
árið 1000.
Kortið er geymt í bókasafni
Yale-háskóla en stofnunin hefur
ekki tekið afstöðu til þess hvort
það er fölsun eða ekki.
Enn deilt um
Vínlandskortið
New Haven. AP.
HAIM Ramon, formaður utanríkis-
og varnarmálanefndar Ísraelsþings,
sagði á mánudag að hugsanlegt væri
að loftárás ísraelskrar herflugvélar á
Gaza-borg í liðinni viku hefði spillt
fyrir yfirlýsingu um vopnahlé, sem
Palestínumenn hefðu unnið að.
Ramon lagði texta yfirlýsingar
fyrir þingnefndina og kvað herskáa
hópa innan Fatah-hreyfingar Yass-
ers Arafats hafa ráðgert að birta
hana þegar Ísraelsher gerði loftárás
á heimili leiðtoga Hamas-hreyfing-
arinnar í Gaza-borg með þeim afleið-
ingum að hann og 14 aðrir týndu lífi.
Palestínumenn hafa haldið því
fram að árásin hafi spillt fyrir við-
leitni þeirra til að knýja fram vopna-
hlésyfirlýsingu af hálfu herskárra
palestínskra hópa, þ. á m. Hamas-
hreyfingarinnar, sem staðið hefur
fyrir hryðjuverkum gegn Ísraelum
og neitar að viðurkenna tilverurétt
ríkis þeirra. Andlegur leiðtogi Ha-
mas-hreyfingarinnar, Sheikh Ah-
med Yassin, hefur sagt að viðræður
um vopnahlé hafi verið hafnar er
sprengjan féll. Hafa ýmsir talsmenn
Palestínumanna fullyrt að Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
hafi fyrirskipað árásina beinlínis í
þeim tilgangi að spilla fyrir slíkri yf-
irlýsingu.
Skjalið sem Ramon lagði fram er
óundirritað en í því eru allir vopnaðir
hópar Palestínumanna hvattir til að
hætta árásum sem beinist gegn
óbreyttum ísraelskum borgurum.
Segir þar ennfremur að vopnaðir
hópar innan Fatah-hreyfingarinnar
og Hamas lýsi yfir því að þeir áskilji
sér rétt til að berjast áfram gegn
ísralesku hernámsliði á svæðum Pal-
estínumanna þótt óbreyttum borg-
urum skuli hlíft við frekari árásum.
Ramon sagði eftir þingnefndar-
fundinn að hann teldi það mikið
undrunarefni hefði leyniþjónustu
ísraelska hersins ekki verið kunnugt
um skjal þetta áður en árásin var
gerð. Kvaðst hann undrandi á því að
ráðamenn leyniþjónustunnar hefðu
ekki gert pólitískum yfirboðurum
sínum grein fyrir tilvist þessarar yf-
irlýsingar.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagði á mánudag að áfram
væri unnið að gerð áætlunar um
vopnahlé þrátt fyrir loftárásina.
Ítrekaði hann þá fullyrðingu Palest-
ínumanna að samkomulag vopnaðra
hópa um vopnahlé hefði legið fyrir
þegar árásin var gerð.
Mannskæð árás ísraelskrar herflugvélar á Gaza-borg
Ráðgerðu Palest-
ínumenn vopnahlé?
Jerúsalem. AFP