Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 21
AP
PERVEZ Musharraf, forseti Pak-
istans, hvatti í gær til aukins sam-
starfs nágrannaríkjanna Pakistans
og Bangladesh á sviði verslunar og
viðskipta en Musharraf er í opin-
berri heimsókn í Bangladesh. Mus-
harraf átti í gær fund með Khaleda
Zia, forsætisráðherra Bangladesh,
en deilur um yfirlýsingu Mushar-
rafs á mánudag, þar sem hann
kvaðst harma stríðsglæpi Pakistana
í Bangladesh, hafa varpað skugga á
heimsóknina. Þykir mörgum heima-
mönnum sem Musharraf hafi engan
veginn tekið nógu sterkt til orða.
Bangladesh hét áður Austur-Pak-
istan en hlaut sjálfstæði frá Pak-
istan árið 1971 eftir harða baráttu.
Giska íbúar Bangladesh á að a.m.k.
þrjár milljónir manna hafi beðið
bana í átökunum og þá er talið að
pakistanskir hermenn, eða banda-
menn þeirra í Bangladesh, hafi
nauðgað meira en 250 þúsund kon-
um á meðan á átökunum stóð.
Það fyrsta sem Musharraf gerði
er hann kom til Bangladesh á
mánudag var að heimsækja minn-
ingargrafreit um látnar sjálfstæð-
ishetjur. Ritaði hann þar í gestabók
að Pakistanar „deildu sársauka
[heimamanna] vegna atburðanna
1971“.
„Ég vil segja við íbúa Bangla-
desh að við hörmum þá hræðilegu
atburði, sem áttu sér stað og sem
hafa skilið eftir djúp sár í hjörtum
þjóðanna beggja,“ sagði Musharraf
síðar yfir kvöldverði, sem haldinn
var honum til heiðurs.
Fórnarlömb ættu
að fá bætur
Utanríkisráðherra Bangladesh,
Morshed Khan, fagnaði yfirlýsing-
unni og gaf til kynna, að stjórnvöld
landsins myndu ekki
fara fram á meira af
hálfu pakistanska for-
setans. Stjórnarand-
stæðingar sögðu Mus-
harraf hins vegar
þurfa að taka mun
dýpra í árinni, ef hann
vildi gera yfirbót
vegna stríðsglæpa
pakistanskra her-
manna.
„Orð hans geta eng-
an veginn talist afsök-
unarbeiðni og þau
voru einungis tilraun
til að blekkja íbúa
Bangladesh,“ sagði
Abdul Jalil, þingmað-
ur Awami-stjórnar-
andstöðuflokksins. Þá fór annar
stjórnarandstæðingur, Shahriar
Kabir, fram á það að Musharraf
greiddi fórnarlömbum nauðgana og
ýmsum öðrum, sem um sárt eiga að
binda, bætur.
Ungliðahreyfing Awami stóð fyr-
ir eins dags verkfalli til að mót-
mæla heimsókn Musharrafs. Voru
skólar í höfuðborginni Dhaka lok-
aðir í gær, sem og ýmis fyrirtæki,
en verkfallið fór mestanpart frið-
samlega fram.
Forseti Pakistans harmar stríðsglæpi í Bangladesh
Þykir ekki hafa tekið
nógu sterkt til orða
Dhaka. AFP.
Khaleda Zia, forsætisráðherra Bangladesh,
tekur á móti Pervez Musharraf, forseta Pak-
istans, á flugvellinum í Dhaka.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 21R
ým
ingarsalan heldur áfram
!
80%
Allt að
afsláttur
Sími 510 8000 • Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík • www.husgagnahollin.is
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Allt á að seljast!
f
a
s
t
la
n
d
-
8
2
0
5
ÁFENGISKAUP Norðmanna í
Svíþjóð hafa aukist um 83% frá
því í fyrra og á norska þinginu er
nú meirihluti fyrir því að verð á
áfengi verði lækkað til að stemma
stigu við þessari þróun, að því er
fram kom á fréttavef norska
blaðsins Dagbladet í gær.
Norska stjórnin lækkaði áfeng-
isverð í byrjun ársins en ljóst er
að verðlækkunin hefur ekki haft
tilætluð áhrif. Dagbladet segir að
Hægri flokkurinn, Framfara-
flokkurinn og Verkamannaflokk-
urinn séu nú hlynntir því að opin-
ber gjöld á áfengi verði lækkuð
þannig að þau verði svipuð og í
Svíþjóð. Sósíalíski vinstriflokkur-
inn er einnig sagður vilja að verð
á áfengi verði lækkað en ekki eins
mikið og fyrrnefndu flokkarnir.
„Nýju tölurnar um áfengiskaup
Norðmanna handan landamær-
anna sýna að brýnt er orðið að
lækka norsku gjöldin svo um
munar,“ sagði Svein Roald Han-
sen, talsmaður Verkamanna-
flokksins í skattamálum. „Verka-
mannaflokkurinn telur að gjöldin
á vín og bjór eigi að vera svipuð
og í Svíþjóð. Þetta þýðir að þau
þurfa að lækka um helming og
lækkunin þarf að hefjast eins
fljótt og mögulegt er.“
Vilja að áfengisverð lækki
Áfengiskaup
Norðmanna í
Svíþjóð hafa
aukist um 83%