Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ gladdi mig ósegj- anlega í gær að prestur skyldi sjá sig knúinn til að stinga niður penna til að gagnrýna Hollývúdstílinn í ís- lenskum brúðkaupum nú til dags. Ég skal alveg viðurkenna að það kemur fyrir að ég horfi á Brúð- kaupsþáttinn Já á Skjá einum (ég myndi aldrei viðurkenna það fyr- ir skoðanakönnuðum Gallup), - það getur jú verið bráð- skemmtilegt að sjá ungt fólk og velta því fyrir sér í hverju það er að pæla með líf sitt. Prestinum þótti undarlegt hvað brúðhjón þáttanna eru ung, í ljósi þess hve margir eru að draga það að drattast upp að altarinu langt fram eftir aldri, - og sumir láta jafnvel aldrei af því verða og gangast með gleði myrkraöflunum á hönd og kjósa að lifa lífi sínu í lukkulegri synd. En það er ásýnd brúðkaupsins í fyrrnefndum sjónvarpsþætti sem hefur vakið undrun mína eins og prestsins. Ég játa að spenningur minn eftir næsta þætti snýst oft- ar en ekki um það hvort nú komi ekki eitthvað öðru vísi; - öðru vísi fólk, - öðru vísi undirbúningur, - öðru vísi siðvenjur, - öðru vísi veisla. Það bólar ekkert á því ennþá, fyrir utan eitt brúðkaup að heiðnum sið, sem var eina til- brigðið við þetta annars eintóna stef. Það sem mér þykir merki- legast að sjá, er það hvað margir geta gengið í hjónaband á ná- kvæmlega sama hátt. Undir- búningnum er líkt háttað; - gestalistinn, - boðskortin með mynd af hjónaleysunum á að giska fimm ára; - svo þarf að skoða í búðir; - og athuga hvar maður ætlar að hafa brúð- argjafalista og velja tilvonandi brúðargjafir. Núnú, þau velja sér kjóla og föt úr brúðkaupsfataleig- unum, - fara síðan í andlitssnyrt- ingu, hand- og fótsnyrtingu; - nudd bætist við ef hugmynda- auðgin er veruleg og jafnvel brúðkaupstertusmakk. „Gæsun“ og „steggjun“ eru auðvitað bráð- nauðsynlegir liðir í undirbún- ingnum, og einnig hárgreiðslan og klippingin og svo þarf að velja sjetteringarnar í brúðarvöndinn. Þá kemur að salnum sem er skreyttur með blómum. Svo er það athöfnin sjálf; - pabbi skilar stelpunni sinni inn kirkjugólfið og til næsta karlmannsins í lífi hennar; brúðarmeyjar og -svein- ar, hringapúðarnir og púðaber- arnir, - slörið, kossinn, hrís- grjónin, limman og ekki má gleyma sokkabandinu! Og svo er það veislan; - fyrst af öllu eru það útskornu glösin fyrir brúðarskál- ina sem pabbi og mamma hafa gefið brúðhjónunum ungu, - en þessara glasa er þörf fyrir þá at- höfn þegar brúðhjónin skála í kross! Þá kemur atriðið þegar brúðurin sker sér af brúðartert- unni og brúðguminn hjálpar til með því að styðja hönd sinni mjúklega yfir hönd hennar með- an hnífsblaðið afmeyjar gúmmel- aðið. Annað hvort eru þessar kökur svona ólseigar eða stúlk- urnar svo uppgefnar eftir undir- búninginn að þær ráða ekki við þetta án hjálpar „sterkara“ kyns- ins. Brúðarvals er nauðsynlegur, - jafnvel þótt brúðhjónin hafi hvorki takt né tilfinningu fyrir þessari samhæfðu hreyfingu, - og svo eru það leikirnir. Er einhver eftir sem giftir sig án þess að fara í Barbí og Ken leikinn? ...eða gera lyklabrandarann? Svo er blómvendinum kastað og loks sokkabandinu. Maður spyr sig hvað þetta allt saman eigi að fyrirstilla. Eru það virkilega dætur rauðsokkakyn- slóðarinnar sem vilja gifta sig á þennan hátt? Undirlægjuháttur þeirrar kvenþjóðar sem tekur þátt í þessu virðist algjör. Þannig brúðkaup er sjónarspil, þar sem gert er út á hégóma sem á ekkert skylt við þá ást og tryggð sem parið er að heita hvort öðru; - það er aukaatriði. Veglegt! ...er lykil- orð, - ekkert má til spara til að dagurinn verði eftirminnilegur. Mér hefur stundum dottið í hug að samband sé á milli þess að allir vilja gera eins og þess að við erum jú, ennþá að minnsta kosti, sauðfjárræktarþjóð. Hjarðareðlið leynir sér í það minnsta ekki í téðum brúðkaupsþætti. Forystu- sauðurinn er búinn að hanna her- legheitin og hjörðin hermir eftir. Það er einkennilegt hvað þetta er ríkt í íslensku þjóðinni, - þótt hún rembist við að telja sjálfri sér trú um að hún sé svo afskaplega sjálfstæð. Hún trúir því að hér sé einstaklingurin stærð númer eitt og að hver og einn hafi sín sér- kenni, sitt lundarfar, sína sér- visku; - og leyfi sér að bera sjálf- an sig á torg eins og hann er klæddur. En það er öðru nær. Ég tók eftir því að presturinn sem vitnað var í hér í upphafi tal- aði um Hollývúdstíl, en ekki am- erískan stíl. Ég held að þar hafi hann átt kollgátuna, því hinn al- menni Bandaríkjamaður er langt frá því að vera fastur í hugarfari hjarðarinnar. Hollývúdstíllinn er hins vegar eftiröpun af evrópskri aðalstísku, það er nú einmitt eitt- hvað sem Íslendingar geta orðið ginnkeyptir fyrir. Hvers vegna dettur engum í hug að gera brúðkaupsdaginn eftirminnilegan með því að hafa hann persónulegan og einstakan á þann hátt sem fólk ræður við, - bæði andlega og fjárhagslega. Ég vona heitt og innilega að Brúð- kaupsþátturinn Já sé að sýna okkur fáar undantekningar, en ekki hið almenna mynstur í hjónavígslum ungs fólks í dag. Ég vil trúa því að Íslendingar eigi þrátt fyrir allt þann snefil af sjálfstæði sem þeir þrá svo heitt, að þeir geti fundið gleðina í því að gera tímamót í lífi sínu að per- sónulegum viðburði á skapandi og raunverulega eftirminnilegn hátt. En ég komst að því í Ráðlegg- ingahorninu um daginn, að grjón- um skal ekki kastað á brúð- hjónin, heldur upp í loft svo þeim rigni yfir þau. Ekki vill maður eiga það á hættu að blinda brúð- ina eftir allan þann undirbúning sem hún hefur þurft að ganga í gegnum. JÁ! í litlum kössum „Þá kemur atriðið þegar brúðurin sker sér af brúðartertunni og brúðguminn hjálpar til með því að styðja hönd sinni mjúklega yfir hönd hennar meðan hnífs- blaðið afmeyjar gúmmelaðið.“ VIÐHORF Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Í VIÐTALI við Morgunblaðið nú ný- verið lýsti forsætis- ráðherra þeim vilja sínum að taka sér- staklega til skoðunar kjör aldraðra. Með þessum ummælum undirstrikar forsætis- ráðherra þá stefnu ríkisstjórnarinnar að haldið verði áfram að bæta kjör ellilífeyris- þega. Nauðsynlegt er að gott samstarf sé á milli forsvarsmanna eldri borgara og rík- isstjórnarinnar í þess- um mikilvæga mála- flokki og benda öll viðbrögð forystumanna ellilífeyrisþega við ummælum forsætisráðherra að svo muni verða. Það er nauðsynlegt í umræðu um kjör aldraðra að gæta vel að því að dregið sé upp rétt mynd af ástandi mála. Deildar meiningar hafa verið um hver þróun ellilíf- eyrisgreiðslna hefur verið undan- farin ár og hefur því verið haldið fram í opinberri umræðu að kjör aldraðra hafi rýrnað á undanförn- um árum. Kaupmáttartrygging Hækkanir á greiðslum til ellilíf- eyrisþega voru áður miðaðar við hækkun lægstu launa. Þetta fyr- irkomulag bauð þeirri hættu heim að þegar verðbólga var meiri en kauphækkanir þá lækkaði kaup- máttur ellilífeyrisþega til samræm- is. Þessi skipan mála leiddi meðal annars til þess að á tíma síðustu vinstri stjórnar lækkaði kaupmátt- ur ellilífeyris umtalsvert. Með bráðabirgðaákvæði við lög um al- mannatryggingar 1995 og síðar með lögum árið 1997 var ellilífeyr- isþegum tryggð, umfram launþega, vernd fyrir kaupmáttarrýrnun. Greiðslur til þeirra skyldu fylgja umsömdum launahækkunum á al- mennum vinnumarkaði, en ef verð- bólgan hækkaði meira en launin þá skyldu greiðslurnar hækka í sam- ræmi við verðbólguna. Þær hækk- anir sem urðu á lífeyrisgreiðslum nú um síðustu áramót eru mjög gott dæmi um hvernig þessi til- högun mála tryggir afkomu eldri borgara. Vegna verðbólguskotsins á árinu 2001 lækkaði kaupmáttur ellilífeyr- isins lítið eitt. Þess vegna hækkaði ellilíf- eyririnn sem ríkið greiðir um 8,5% nú í janúar, en ekki um 4,5% eins og hann hefði átt að gera sam- kvæmt umsömdum kauphækkunum á al- mennum markaði. Hækkunin vinnur til baka þann kaupmátt sem tapaðist á árinu á undan. Núverandi kerfi var gæfuspor fyrir aldraða því þeir geta illa sótt sér aðrar tekjur þegar kreppir að eins og margir þeir sem yngri eru. Við hvað á að miða? Deilur hafa staðið um við hvað eigi að miða þegar rætt er um launaþróun. Ljóst er af athuga- semdum þeim sem fylgdu frum- varpinu um breytingar á lögunum um almannatryggingar að það var vilji löggjafans að miðað yrði við umsamdar hækkanir í almennum kjarasamningum. Í athugasemdun- um segir svo um ákvörðun um hækkun ellilífeyris á þeim tíma er lögin voru sett: „Er sú ákvörðun byggð á almennum kjarasamning- um og áætlun um þróun verðlags á tímabilinu.“ Ljóst er af þessu að ekki á að miða við almenna launa- vísitölu sem mælir allt launaskrið í samfélaginu, heldur við þær hækk- anir sem launþegar semja um í al- mennum kjarasamningum. Launa- vísitalan grípur enda allar hækkanir á launum í samfélaginu, þar á meðal þær sem ekki er samið um. Hún inniheldur m.a. launa- hækkanir tölvunarfræðinga á þeim árum sem netbólan fór sem hæst og starfsfólks sjúkrahúsa sem nutu launahækkana umfram almenna kjarasamninga svo einhver dæmi séu nefnd. Af þessu sést að það er fyllilega eðlilegt viðmið og í sam- ræmi við gildandi lög að horfa til umsamdra launahækkana þegar hækkanir á ellilífeyrisgreiðslum ríkisins eru ákvarðaðar, en ekki til launaskriðs á öllum vinnumarkað- inum. Kaupmáttur aldraðra hefur vaxið Því hefur verið haldið fram að þar sem kaupmáttur ellilífeyris- þega hafi ekki hækkað jafn mikið eins og t.d. lægstu laun hafi kjör eldri borgara rýrnað sem nemur mismuninum. Þetta eru alvarlegar rangfærslur. Með sömu röksemda- færslu mætti halda því fram að þar sem kaupmáttur launatekna hefur hækkað minna á undanförnum ár- um en kaupmáttur lægstu launa hafi kjör þjóðarinnar rýrnað sem því nemur! Hið rétta er að kaup- máttur launatekna hefur hækkað umtalsvert en þó ekki eins mikið og hinna lægst launuðustu sem hafa bætt sinn hag meira en aðrir. Sama á við um kjör aldraðra, þau hafa fylgt umsömdum kauphækk- unum en ekki hækkað jafn mikið og til dæmis launaskriðið í þjóð- félaginu eða lægstu laun. Allt tal í þessu sambandi um að kjör aldr- aðra hafi rýrnað er misvísandi. Enginn telur að aldraðir hafi of mikið á milli handanna, í þeirra hópi eru vissulega þeir sem búa við rýr kjör. Það er því mikilvægt að kaupmáttur þeirra haldi áfram að vaxa eins og hann hefur gert undanfarin ár og með sameigin- legu átaki verði hægt að búa öldr- uðum þau kjör sem góð sátt ríkir um. Það er kaupmáttur- inn sem gildir Illugi Gunnarsson Kaupmáttur Af þessu sést að það er fyllilega eðlilegt viðmið og í samræmi við gild- andi lög, segir Illugi Gunnarsson, að horfa til umsamdra launahækk- ana þegar hækkanir á ellilífeyrisgreiðslum rík- isins eru ákvarðaðar, en ekki til launaskriðs á öll- um vinnumarkaðinum. Höfundur er hagfræðingur og aðstoðarmaður forsætisráðherra. ÞAÐ hefur verið sagt að eitt helsta ein- kenni lágrar sjálfsvirð- ingar væri hömlulaus persónudýrkun. Mann- kynið hefur mjög slæma reynslu af slíku frá síðustu öld og reyndar frá öllum tím- um. Í hinni pólitísku um- ræðu er oft fjallað um formenn flokkanna. Það er í tísku í dag að ræða um nauðsyn sterkra leiðtoga. Því miður hafa hinir vænstu menn og konur hér á landi fallið í þá gryfju að leggja ofuráherslu á hinn sterka og afgerandi foringja. For- ingjadýrkun kann ekki góðri lukku að stýra í lýðræðisþjóðfélagi. Hún er í rauninni andhverfa lýðræðishugs- unarinnar. Þeir sem eru fyrir sterka leið- toga og lúta þeim í und- irgefni hætta smám saman að hafa frjálsa og sjálfstæða hugsun og telja að lokum for- ingjann vera helsta ágæti flokks síns, en ekki þær lífsskoðanir og sjónarmið sem flokkurinn stendur fyr- ir. Það er mjög alvar- legt ef fólk lætur at- hugasemdir and- stæðinganna rugla sig í ríminu og titrar allt á taugum ef formaðurinn í flokki þeirra gerist mannlegur og verður eitthvað á í hita dagsins. Til eru dæmi um leiðtoga sem í upphafi voru mjög alþýðlegir og auð- mjúkir en urðu hrokafullir og drambsamir og hættu að taka tillit til náunga sinna af því að þeir voru orðnir svo ofsalega miklir foringjar. Það má aldrei henda lýðræðissinn- aðan stjórnmálaflokk eða félaga sem í honum eru að leiðast út í gryfju for- ingjadýrkunar á kostnað málefn- anna. Hugsjónir verða að veruleika vegna fjöldans sem á þær en það tek- ur oft tíma að láta þær rætast. Sterki leiðtoginn Karl V. Matthiasson Foringjar Foringjadýrkun kann ekki góðri lukku að stýra í lýðræðisþjóð- félagi. Karl V. Matthíasson telur að hún sé í raun andhverfa lýðræðis- hugsunarinnar. Höfundur er 2. þingmaður Vest- fjarða. mbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.