Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 32
MINNINGAR
32 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ólafur Guð-mundsson fædd-
ist á Þingeyri við
Dýrafjörð 1. nóvem-
ber 1927. Hann lést á
heimili sínu í Hafn-
arfirði 21. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Guðmund-
ur Jóhannes Jó-
hannsson frá Saur-
um í Keldudal, f. 20.
apríl 1887, d. 2. maí
1960, og Júlíana Sig-
urborg Guðmunds-
dóttir frá Vaðstakks-
heiði á Snæfellsnesi,
f. 16. júlí 1889, d. 3. febrúar 1978.
Guðmundur og Júlíana áttu tólf
börn og komust níu upp, en þau
misstu þrjá drengi á unga aldri.
Þeir voru: Ottó Jörgen, f. 6.10.
1909, d. 15.12. 1909, Bjarni, f.
15.1. 1914, d. 12.12. 1915, og Árni
Baldur, f. 8.10. 1923, d. 24.4.
1924. Þau börn sem upp komust
voru: Ottó Hannes, f. 25.8. 1910,
Jóhann Samson, f. 26.10. 1912,
Hansína Guðrún, f. 14.11. 1913,
Ingi, f. 1.10. 1916, Una Huld, f.
21.3. 1918, Bragi, f. 5.5. 1919,
Kristján Thorberg, f. 25.7. 1920,
og Sigríður, f. 9.6. 1921, en þau
eru öll látin. Einn dreng ólu þau
Guðmundur og Júlíana upp, Guð-
mund T. Magnússon, f. 7.9. 1938,
en hann er kvæntur Petrínu
Ágústsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Hinn 16.9. 1950 kvæntist Ólaf-
ur Petreu G. Finn-
bogadóttur frá Hell-
issandi, f. 10.6. 1931.
Foreldrar hennar
voru Finnbogi
Kristjánsson og Sig-
ríður Kristinsdóttir.
Börn Ólafs og Petr-
eu eru: 1) Sigríður,
f. 25.5. 1951, maki
Pálmi Bernhard
Larsen, f. 27.8.
1952, og eiga þau
tvö börn og þrjú
barnabörn. 2) Sæ-
björg, f. 24.4. 1952,
maki Gunnar Pétur
Pétursson, f. 7.6. 1947, og eiga
þau tvö börn. 3) Kristján Finn-
bogi, f. 6.8. 1953, maki Jóna Hjör-
dís Sigurðardóttir, f. 14.7. 1953,
og eiga þau fjögur börn og tvö
barnabörn. 4) Júlíana, f. 27.12.
1955, maki Ríkharður Óskarsson,
f. 17.11. 1955, og eiga þau þrjú
börn og eitt barnabarn. 5) Alda, f.
4.5. 1959, d. 26.7. 1960. 6) Ólafur
Fjalar, f. 7.6. 1962, maki Frigg
Þorvaldsdóttir, f. 14.12. 1966, og
á hann þrjú börn og tvö uppeld-
isbörn. 7) Guðmundur Jóhannes,
f. 1.3. 1965, maki Eyrún Gísla-
dóttir, f. 24.2. 1968, og eiga þau
fjögur börn.
Ólafur vann lengst af sem bíl-
stjóri hjá Steypustöðinni Verk og
hjá Sjólastöðinni í Hafnarfirði.
Útför Ólafs fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ég kveð ástkæran eiginmann
minn með þessum línum:
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Með trega í hjarta.
Petrea.
Elsku pabbi og tengdapabbi
við kveðjum þig með þessu ljóði:
Hér er svo dapurt inni,
ó elsku pabbi minn,
ég kem að kistu þinni
og kveð þig í hinsta sinn,
mér falla tár af trega
en treginn ljúfsár er
svo undur innilega
þau einmitt fróa mér.
Ég þakka fræðslu þína
um það sem dugar best
er hjálpráð heimsins dvína
og huggað getur mest,
þú gekkst með Guði einum
og Guði vannst þitt starf,
hið sama að huga hreinum
ég hljóta vil í arf.
Nú ertu farinn frá mér,
en föðurráðin þín,
þau eru ávallt hjá mér
og óma blítt til mín,
Guðsorðum áttu að trúa
og ávallt hlýða þeim,
það mun blessun búa
og bera þig öruggt heim.
(B.J.)
Kveðja
Sæbjörg og Pétur.
Þig lofar, faðir, líf og önd,
þín líkn oss alla styður.
Þú réttir þína helgu hönd
af himni til vor niður.
Og föðurelska, þóknan þín,
í þínum syni til vor skín,
þitt frelsi, náð og friður.
(S.E.)
Júlíana.
Með þessum fáu línum langar
mig til þess að kveðja hann Ólaf
tengdaföður minn. Það var fyrir
tuttugu og sex árum sem ég sá hann
fyrst. Mín fyrsta hugsun var hve
mikill og stór þessi maður væri, og
eins gott að fá hann ekki upp á móti
sér.
Það var alveg óþörf hugsun, ann-
að eins góðmenni og höfðingja hef
ég ekki hitt, hvorki fyrr né síðar.
Hann tók mér strax vel, eins og ég
væri einn af hans strákum, enda
eru þeir allir stoltir synir og elsk-
uðu hann mjög heitt.
Fastur liður í hversdags amstri
var að koma við í Bröttukinn 27 og
fá kaffisopa hjá Óla og Petu og
ræða um daginn og veginn. Oft voru
umræður fjörugar og ekki allir
sammála, en málin voru þá bara
rædd uns flestir voru sáttir. Að
koma til þeirra hjóna var alveg sér-
stakt, svo mikil hlýja og góðsemi
umvafði mann.
Óli var mikill áhugamaður um
bíla, og þá sérstaklega umhirðu
þeirra og viðhald. Maður þorði ekki
fyrir sitt litla líf að koma á drull-
ugum bíl í heimsókn til Óla, enda
kenndi hann mér að skítugur bíll
væri merki um slóðaskap eigand-
ans. Fyrstu árin eftir að við Júlla
fórum að búa vorum við yfirleitt á
gömlum bílum sem þurfti endalaust
að gera við. Þá var bara talað við
Óla, hann kunni ráð við flestu, hvert
best væri að fara með bílinn og þess
háttar.
Óli hafði gaman af enska boltan-
um og oft sátum við saman yfir im-
banum og rifumst góðlátlega enda
studdum við sitt liðið hvor, hann
Liverpool og ég Man. Utd. Það
verður ekki eins gaman að hafa
engan dómara við hlið sér á laugar-
dögum í vetur!
Ég veit samt að þú heldur áfram
að styðja þína menn, Óli minn, þú
varst hvers manns hugljúfi, alltaf
brosandi, já, margir mættu taka þig
til fyrirmyndar, elsku karlinn minn.
Dagur líður, fagur, fríður,
flýgur tíðin í aldaskaut.
Daggeislar hníga, stjörnurnar stíga
stillt nú og milt upp á himinbraut.
Streymir niður náð og fríður,
nú er búin öll dagsins þraut.
Eyðist dagur, fríður, fagur,
fagur dagur þó aftur rís:
Eilífðardagur ununarfagur,
eilíf skín sólin í Paradís.
Ó, hve fegri’ og yndislegri
unun mun sú, er þar er vís.
(V. Briem)
Elsku Peta mín, megi góður Guð
styrkja þig og hugga í sárri sorg og
miklum missi
Guð blessi þig.
Ríkarður Óskarsson.
Í dag kveð ég minn ástkæra
tengdaföður, Ólaf Guðmundsson.
Jæja, Óli minn, eins og þú varst
ávallt kallaður, nú ert þú farinn frá
okkur til æðri heimkynna og laus
við allar þínar þjáningar. Margs er
að minnast frá þeim rúmu 30 árum
sem ég hef þekkt þig og geymi ég
þær minningar í hjarta mínu. Ég
kom inn á heimili ykkar Petreu
fyrst aðeins 16 ára gömul, þá með
elsta syni ykkar Kristjáni og æ síð-
an hafið þið tekið mér sem einni af
ykkar dætrum. Þið Peta hafið ekki
farið í gegnum lífið án sorgar, sem
þið urðuð fyrir þegar þið misstuð
ykkar ástkæru dóttur Öldu 14 mán-
aða gamla af slysförum og djúpt sár
var rist í hjarta ykkar sem þið hafið
ætíð borið síðan.
Óli var heiðarlegur maður og við-
kvæmur og mátti ekkert aumt sjá,
vel liðinn og duglegur var hann svo
af bar, og dáður af sínum yfirmönn-
um og vinnufélögum. Óli vann
lengst af sem bifreiðastjóri, bæði á
vörubílum og steypubílum, enda
var það hans áhugamál að hugsa vel
um sína eigin bíla og vinnubíla. Það
var ekki ósjaldan sem hann fékk
orð fyrir það hvað hann var iðinn
við að þvo og bóna þá, meira að
segja steypubíla þá sem hann
keyrði. Þá var steyputunnan einnig
bónuð. Óli var vinur vina sinna.
Aldrei heyrði ég Óla tala illa um
nokkurn mann.
Óli átti yndislega eiginkonu sem
hefur staðið eins og klettur við hlið
hans í veikindum hans og er sökn-
uður hennar sár.
Óli var mikill húmoristi og alltaf
gat hann komið manni til að hlæja
og þessum eiginleika hélt hann
fram á síðasta dag.
Að lokum vil ég þakka honum
þann tíma sem við höfum þekkst, og
þakka honum fyrir að hafa verið
góður afi barnanna minna og bið ég
að guðsblessun veri með hans nán-
ustu ættingjum í þeirra sorg og öll-
um þeim sem syrgja hann.
Þín tengdadóttir,
Jóna Hjördís.
Elsku Óli minn. Aðeins nokkur
kveðjuorð að leiðarlokum. Við Már
höfum búið í nálægð við ykkur hjón-
in í rúm tuttugu ár. Við vissum hver
þið voruð, en lítið meira. Það var
ekki fyrr en Gummi, sonur ykkar
hjóna, fór að bakka bílnum sínum
frá 27 niður að 18 í Bröttukinn til að
bjóða Eyrúnu dóttur okkar í bíltúr
að við fórum að kynnast. Ástæðan
fyrir þessu stöðuga bakki var ein-
stefna í Bröttukinn. Allt þetta
„bakk“ hjá Guðmundi endaði með
því að þau gengu í hjónaband árið
1988. Í dag vitum við að þú gafst
okkur tengdason með hjarta úr
gulli.
Kæri vinur, við viljum þakka þér
fyrir hvað þú varst alltaf góður við
Eyrúnu, ekki síst þegar veikindi og
erfiðleikar steðjuðu að. Þú hafðir
góðan húmor og alltaf varst þú
brosandi og kátur, þótt við vissum
að þér liði ekki alltaf vel vegna veik-
inda þinna. Við vitum einnig að þú
áttir þér heita trú, sem nú fylgir þér
yfir móðuna miklu á fagran stað.
Elsku Óli, hafðu þökk fyrir allt
og allt. Elsku Peta mín, við biðjum
algóðan Guð að styrkja þig og
styðja, og fjölskyldu þína alla, um
ókomin ár.
Sonja og Már.
Elsku afi, þá er komið að kveðju-
stund. Ég trúi ekki að þú sért far-
inn frá okkur. Þótt þú værir ekki
alltaf heilsuhraustur á seinni árun-
um þá varstu alltaf svo kátur og
með bros á vör. Það var alltaf gam-
an að koma í Kinnarnar og heim-
sækja þig og ömmu, þið tókuð alltaf
vel á móti mér og hjá ykkur var allt-
af ró og friður. Elsku afi, ég sakna
þín sárt, það verður tómlegt án þín.
Ég þakka guði fyrir að hafa átt
svona yndislegan afa eins og þig. Í
hjarta mínu eru margar góðar
minningar um þig og ég get alltaf
litið til baka og hugsað um þær.
Takk fyrir alla þá ást og hlýju sem
þú hefur veitt mér, elsku afi minn.
Ég veit þér líður vel hjá Guði og ég
bið Guð og alla englana að vernda
þig.
Lát opnast augu mín,
minn ástvin himnum á,
svo ástarundur þín
mér auðnist skýrt að sjá:
hið fríða foldarskraut,
hinn fagra stjarnaher
á loftsins ljómabraut
og ljóssins dýrð hjá þér.
Lát opnast himins hlið,
þá héðan burt ég fer,
mitt andlát vertu við
og veit mér frið hjá þér.
Þá augun ekkert sjá
og eyrun heyra’ei meir
og tungan mæla’ei má,
þá mitt þú andvarp heyr.
(V. Briem.)
Hafdís Ríkarðsdóttir.
Hjartkæri afi okkar, okkur lang-
ar að kveðja þig með þessu ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þótt svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minnig er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Góði guð, gefðu ömmu okkar
styrk á þessum erfiðu tímum.
Pétur Ingi og Ásmundur.
Elsku afi minn. Mikið hefur þú
verið góður. Þú og amma fóruð með
mig oft út að ganga. Ég á eftir að
sakna þín svo mikið.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson)
Guð blessi þig.
Þitt barnabarn,
Þórdís Eva Ríkarðsdóttir.
Að morgni sunnudagsins 21. júlí
bárust mér þær sorgarfréttir að afi
minn væri látinn.
Elsku afi minn, það er erfitt að
sjá eftir svona góðum og indælum
afa eins og þér. Söknuðurinn er
mikill og fráfall þitt bar svo snöggt
og óvænt að, ég er varla búin að
átta mig á að þú ert farinn frá okk-
ur. En ég veit að nú ert þú kominn á
stað þar sem þér líður vel og ég veit
einnig að þú munt alltaf vera hjá
mér og við eigum eftir að hittast
aftur. Þú munt lifa sterkt í minning-
unni. Þegar ég lít til baka koma upp
margar hlýjar minningar um þig,
elsku afi minn. Þú varst alltaf svo
hress og lífsglaður maður. Ég
minnist þess þegar ég var lítil
stelpa og ég var oft í pössun hjá þér
og ömmu á meðan mamma og pabbi
voru að vinna, þá fórum við oft út að
keyra út á bryggju að skoða fiskana
og stóru skipin. Ég minnist þess
einnig þegar ég kom alltaf til þín og
ömmu rétt fyrir jólin að pakka inn
jólagjöfum og skrifa á jólakort fyrir
ykkur. Svo á aðfangadagskvöldi
hittist alltaf fjölskyldan heima hjá
ykkur og við snæddum kræsingar
sem amma hafði bakað. Ég á eftir
að sakna þess, elsku afi minn.
Elsku afi minn, ég ætla að enda
minningarnar um þig hér, en þær
eru miklu fleiri en ég kem fyrir í
þessari minningargrein. Guð blessi
þig og varðveiti, elsku afi minn. Ég
elska þig.
Þá andlátstíminn að fer minn,
send ástvin kæran minn og þinn
að banabeði mínum,
er um þinn sigur segir mér
og samfundanna fögnuð er
mun veitast þjónum þínum
En kom og sjálfur, kom til mín,
minn kærsti vin, er ævin dvín,
og seg það sálu minni,
að dauði þinn er dauðabót,
svo dauða rór ég taki mót
og ei til ótta finni.
(Þýð. Helgi Hálfdánarson)
Þitt barnabarn
Petrea Dögg.
Elsku besti afi, nú ertu kominn
til Öldu, litlu telpunnar þinnar sem
þú saknaðir svo sárt en eftir sitjum
við og hugsum um yndislegan og
hjartahlýjan mann sem við höfum
misst frá okkur og minningarnar
streyma fram, t.d. sá fasti liður sem
alltaf var að fara til ömmu og afa í
Bröttukinn á aðfangadagskvöld, þá
var amma búin að baka kökur og öll
börnin, barnabörnin og barna-
barnabörnin hittust í litla húsinu
ykkar sem maður hélt að myndi
springa utan af okkur en þetta voru
notalegar stundir sem við getum
huggað okkur við að hafa átt með
þér.
Elsku afi, það er gaman að hugsa
til þeirra stunda sem þú varst að
leika og gantast í litlu krökkunum
sem fannst þú alveg svakalega
fyndinn. Eins þegar ég fékk að búa
hjá þér og ömmu einn vetur þegar
ég var að klára grunnskólann. Þá
hugsuðuð þið svo vel um mig, amma
smurði brauð með appelsínu ofan á
(sem ég lærði að borða hjá ykkur og
fannst mér mjög fyndið en gott) og
þú, elsku afi, settir pening í skóinn
minn svo ég gæti keypt mér eitt-
hvað gott seinna um daginn. Það
eru margar góðar minningar sem
við getum hugsað um og reynt að
hugga okkur við en verður þó aldrei
eins. Elsku afi, við kveðjum þig með
sorg í hjarta og vonum að þér líði
vel. Við biðjum góðan Guð að
styrkja ömmu okkar í sorginni.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta.
Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta
vegu
fyrir sakir nafns þíns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast
ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum
mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga
mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Guð geymi þig og varðveiti, elsku
besti afi.
Gunnar Páll og Alda Björk.
Elsku afi Óli. Nú ert þú kominn
til Guðs. Ég vil þakka þér fyrir þá
umhyggju og hlýju sem þú sýndir
mér og mömmu og pabba þegar ég
veiktist í fyrra. Alltaf varstu svo
góður við mig. Þá varst þú líka oft
mikið veikur sjálfur. Afi minn, Guð
geymi þig.
Þinn afastrákur,
Anton Ívar.
Elsku afi minn, nú er runnin upp
kveðjustundin sem ég er búinn að
kvíða svo lengi, eða frá því að þú
veiktist fyrst fyrir u.þ.b. 18 árum.
Mig langar að fá að þakka fyrir
að hafa fengið að njóta þín svona
lengi.
Þær eru ófáar minningarnar sem
sækja á hugann á þessari stundu.
Mér verður títt hugsað til allra
góðu stundanna sem ég átti með
ykkur ömmu í Bröttukinninni og
ferðanna sem ég fékk að fara með
þér í vörubílnum. Í seinni tíð sá ég
ykkur minna. Eftir að ég byrjaði á
sjónum reyndi ég þó að koma reglu-
lega og spjalla við þig um sjó-
ÓLAFUR
GUÐMUNDSSON