Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
#
$
% BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SÚ ÓTRÚLEGA gjörð (misgjörð)
var samþykkt í borgarráði hinn 12.
júlí sl. að heimila byggingu 4 húsa á
Alaskalóðinni í Breiðholti. Þetta eru
engin einbýlishús, öðru nær. Það er
um að ræða tvö tveggja hæða raðhús
og tvær fjögurra hæða blokkir. Að
lesa um þetta er reiðarslag fyrir
hvern mann sem lætur sér annt um
umhverfi sitt. Fyrir Breiðhyltinga
eru þetta helber svik af hálfu meiri-
hluta borgarstjórnar. Svikin felast í
því að þetta svæði er búið að vera
skilgreint sem útivistarsvæði eða
grænt svæði til sérstakra nota í 40 ár.
Við héldum að við gætum treyst þeim
aðilum sem þykjast láta sér annt um
umhverfið, a.m.k. voru einhverjir úr
núverandi meirihluta borgarstjórnar
að þykjast hafa áhyggjur af fram-
kvæmdum norðan Vatnajökuls. En
„maður, líttu þér nær“ og sýnið ykkar
eigin borgurum virðingu og gangið
ekki á bak orða ykkar.
Möguleikar
Alaskakvosarinnar
Alaskakvosin er eitthvert fegursta
svæði Reykjavíkur. Þar er skjólsælt,
þar er þegar mikil trjárækt og mögu-
leikar til að gera kvosina að enn betra
útivistarsvæði en hún er í dag eru
miklir. Það þarf ekki að kosta miklu
til, því að kvosin er ekki stór og er
hreint sköpuð til að verða að útivist-
arsvæði í úrvalsflokki. Trjágróðurinn
er með því fegursta sem sést. Þetta
svæði á að vera óbyggt alveg frá
kirkjunni okkar og að ÍR íþrótta-
svæðinu eins og það er í dag. Gerum
Alaskakvosina að útivistar sælureit
fyrir unga sem aldna, jafnt sumar
sem vetur. Stór kostur er að börn af
mjög stóru svæði þurfa ekki að fara
yfir neina umferðargötu til að komast
á svæðið.
Forsjárhyggja enn við völd?
Miðað við þær ákvarðanir sem að
meirihlutinn tekur þvert á vilja borg-
arbúa er augljóst að forsjárhyggjan
er ennþá við völd á nýrri öld. Hrokinn
er algjör og álit og vilji borgaranna
skiptir engu máli. Það er ekki einu
sinni látið svo lítið að kanna vilja
borgaranna. Nei, aldeilis ekki. Hlut-
unum (skipulaginu) er breytt í ein-
hverjum bakherbergjum og seinna
kynnt þröngum hópi manna. En við
íbúar í nánasta umhverfi Alaskakvos-
arinnar erum ekkert upplýstir. Síðan
verður það notað gegn okkur að við
fylgdumst ekki með þegar skipulag-
inu var breytt og við okkur sagt: „Þið
höfðuð tíma til að gera athugasemdir,
en nýttuð hann ekki.“ Eitthvað á
þessa leið verður röksemdafærslan
til að berja okkur til hlýðni við hin
svikulu áform. Allt snyrtilega sett
upp og skipulagt út í ystu æsar.
Hvar er lýðræðið?
Er ekki tími til kominn að við borg-
ararnir séum hafðir með í ráðum og
þið hættið að gera það sem ykkur
sýnist sjálfum? Hafið okkur með í
ákvörðun um byggingu rándýrs tón-
listarhúss á gamla hafnarsvæðinu.
Það er engan veginn víst að við út-
svarsgreiðendur viljum setja okkar
útsvar í það. Kannið vilja borgaranna
og farið eftir honum. Því ætlið þið að
eyðileggja Alaskakvosina, en við
horfum uppá að eldgamalt og hálf-
ónýtt kaffihús við slippinn sem nefnt
er Skeifan er friðað? Það er að auki
fyrir allri umferð og skapar hættu og
blint svæði. Hvernig á nokkur að
skilja þennan hugsanagang?
Grenndarkynning
sem nær til fólksins
Þessari aðgerð fylgja engir kostir
fyrir íbúa nágrennisins. Aðeins gallar
bæði umhverfislegir og umferðarleg-
ir. Framkvæmið nú almennilega
grenndarkynningu á gerræðisað-
gerðinni í Alaskakvosinni og látið
okkur sjá, að ykkur er annt um okk-
ur. Látum svo lýðræðið ráða eftir þá
kynningu. Vinsamlega spyrjið okkur
líka hvort að viljum þessa svokölluðu
„þéttingu byggðar“. Við útsvars-
greiðendur borgum þetta allt og flest
okkar taka manneskjulegt umhverfi
fram yfir nokkrar krónur sem þið
þykist spara á þessari „þéttingu
byggðar“. Þétting byggðar á vafa-
laust vel við þar sem að landrými er
lítið, s.s. í Tókýó, en hér á það varla
við og helst mætti ætla að þetta sé
þráhyggja í meirihluta borgarstjórn-
ar.
DAGÞÓR HARALDSSON,
Stapaseli 11, Reykjavík.
Alaskakvosin
eyðilögð
Frá Dagþóri Haraldssyni:
VESTFIRSKA forlagið á Hrafns-
eyri hefur nú byrjað undirbúning að
nýrri ritröð sem hefur hlotið vinnu-
heitið Vestfirðingaþættir – minnis-
stæðir Vestfirðingar. Fyrirhugað er
að 1. hefti í þessum bókaflokki komi
út fyrir næstu jól.
Eins og nafnið bendir til verður
hér fjallað um vestfirskt fólk fyrr og
síðar, bæði karla og konur. Verður
ekki síst leitast við að fjalla um það
fólk sem bar hitann og þungann af
mannlífi á Vestfjörðum á ýmsum
tímum – sjómenn, útvegsmenn, iðn-
aðarmenn, bændur, verkamenn og
verkakonur, svo dæmi séu nefnd, að
ógleymdum húsfreyjunum sem
stjórnuðu sumar hverjar bæði innan
stokks sem utan.
Ritstjóri hinnar nýju ritraðar
verður Hlynur Þór Magnússon
sagnfræðingur á Ísafirði sem þekkt-
ur er fyrir margvísleg ritstörf, m. a.
við ritstjórn á Vestfirska frétta-
blaðinu í mörg ár.
Vestfirska forlagið leyfir sér að
koma því á framfæri hér í Morg-
unblaðinu við áhugafólk um ofan-
greind efni, sem hefur undir hönd-
um vitneskju og heimildir um
minnisstæða Vestfirðinga og mynd-
ir af þeim og vill koma slíku á fram-
færi, að snúa sér til Hlyns í síma
892 2240 eða senda honum tölvu-
póst, en netfang hans er hlynur-
@snerpa.is. Allar ábendingar eru
vel þegnar.
F.h. Vestfirska forlagsins,
HALLGRÍMUR SVEINSSON.
Minnisstæðir Vestfirðingar
Frá Hallgrími Sveinssyni: