Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss og Vistamar
koma og fara í dag. Sat-
úrnus, Sava Hill, Árni
Friðriksson, og Lómur
koma í dag. Goðafoss og
Capella Endeavour fara
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Novospasski og Af-
anasayev komu í gær.
Sissimiut kemur í dag.
Brúarfoss fer frá
Straumsvík í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Sum-
arlokun frá 1. júlí til 1.
september.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta kl. 13 spil-
að, kl. 13.30 keila og
frjáls spilamennska.
Púttvöllurinn er opinn
kl. 10–16 alla daga.
Bingó verður næst spil-
að 9. ágúst kl. 13.30. All-
ar upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
banki, kl. 13–16.30 spil-
að. Þriðjudaginn 20.
ágúst kl. 8 verður farin
skoðunarferð um Vík og
nágrenni. Ekið upp í
Heiðardal og um Reyn-
ishverfið. Kvöldverður í
Drangshlíð austur undir
Eyjafjöllum. Leið-
sögumaður Hólmfríður
Gísladóttir. Hafið með
ykkur nesti og góðan
fatnað. Skráning og
greiðsla í síðasta lagið
þriðjudaginn 13. ágúst.
Allir velkomnir. Uppl.
og skráning í síma
568 5052.
Hraunbær Miðvikudag-
inn 7. ágúst verður farið
í Þórsmörk. Lagt af stað
frá Hraunbæ kl. 10:30.
Súpa og brauð á Hlíð-
arenda á Hvolsvelli. Í
Þórsmörk verður farið í
stuttar eða langar
gönguferðir. Hafa þarf
með með gönguskó og
nesti. Leiðsögumaður:
Hólmfríður Gísladóttir.
Skráning á skrifstofu
eða í síma: 587 2888.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 14.30 bankaþjónusta,
kl. 14.40 ferð í Bónus.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
lokuð til 7. ágúst.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fótaaðgerð-
arstofa, tímapantanir
eftir samkomulagi s.
899 4223
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel verð-
ur lokað vegna sum-
arleyfis starfsfólks til
11. ágúst. Orlofsferðir
að Hrafnagili við Eyja-
fjörð 19.–23. ágúst,
munið að greiða gíró-
seðla sem fyrst. Orlofs-
ferð að Höfðabrekku
10.–13. sept. Skráning
og upplýsingar kl. 19 og
21. Sími 555 1703,
555 2484 eða 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu
www.feb.is. Göngu-
Hrólfar fara frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. mið-
vikudagsmorgun Hring-
ferð um Norðausturland
17. – 24. ágúst. Uppselt.
Farið verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst
nk. Ekið inn Dómadal
niður hjá Sigöldu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Sækja
þarf miðana fyrir
fimmtudaginn 1. ágúst.
Fræðslu- og menning-
arferð í Skálholt 9.
ágúst. Leiðsögumaður
Pálína Jónsdóttir.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Fyrirhug-
aðar eru ferðir til Portú-
gals 10. september í 3
vikur og til Tyrklands 1.
október í 10 daga fyrir
félagsmenn FEB, tak-
markaður fjöldi, skrán-
ing hafin á skrifstofunni
í síma. Silfurlínan er op-
in á mánu– og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
f.h. Skrifstofa félagsins
er flutt í Faxafen 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB, í s.
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru
sund- og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug kl. 9.30
mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson .
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 13 félagsvist FEBK,
kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 17 bobb.
Hárgreiðslustofan er
lokuð til 6. ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 11–
11.30 banki, kl. 13–14
pútt, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. .
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 13
banki, kl. 14. félagsvist.
Fótaaðgerðarstofan op-
in.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
13–14 spurt og spjall-
að.Verslunarferð í Bón-
us kl. 13.30.
Vitatorg. Kl. 10 morg-
unstund, kl. 12.30 versl-
unarferð Bónus. Banka-
þjónusta 2 fyrstu
miðvikudaga í mánuði.
Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerð.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Á Suðureyri: hjá Gesti
Kristinssyni, Hlíðavegi
4, s. 456-6143. Á Ísafirði:
hjá Jóni Jóhanni Jónss.,
Hlíf II, s. 456-3380, hjá
Jónínu Högnad., Esso-
versluninni, s. 456-3990
og hjá Jóhanni Káras.,
Engjavegi 8, s. 456-
3538. Í Bolungarvík: hjá
Kristínu Karvelsd., Mið-
stræti 14, s. 456-7358.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu L.H.S. Suð-
urgötu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegs Apóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bón-
ushúsinu, Suðurströnd
2, Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Á Seyðisfirði: hjá Birgi
Hallvarðssyni, Botna-
hlíð 14, s. 472-1173. Á
Neskaupstað: í blóma-
búðinni Laufskálinn,
Kristín Brynjarsdóttir,
Nesgötu 5, s. 477-1212.
Á Egilsstöðum: í
Blómabæ, Miðvangi, s.
471-2230. Á Reyðarfirði:
hjá Grétu Friðriksd.,
Brekkugötu 13, s. 474-
1177. Á Eskifirði: hjá
Aðalheiði Ingimundard.,
Bleiksárhlíð 57, s. 476-
1223. Á Fáskrúðsfirði:
hjá Maríu Óskarsd.,
Hlíðargötu 26, s. 475-
1273. Á Hornafirði: hjá
Sigurgeir Helgasyni,
Hólabraut 1a, s. 478-
1653.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103
Rvk.Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10–15.
Sími 568–8620.
Bréfs. 568-8621.
Tölvupóstur ms@msfe-
lag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga.
Minningarkort eru af-
greidd alla daga í s. 533-
1088 eða í bréfs. 533-
1086.
Í dag er miðvikudagur 31. júlí, 212.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Þolgæðis hafið þér þörf, til þess
að þér gjörið Guðs vilja og
öðlist fyrirheitið.
(Hebr. 10, 36.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sparisjóður, 4 segja frá,
7 skýjahulan, 8 aldur-
hnigin, 9 blett, 11 tók
ófrjálsri hendi, 13 hluti,
14 lítinn bát, 15 listi, 17
vinds, 20 bókstafur, 22
eyja, 23 viðurkennir, 24
rugga, 25 víðan.
LÓÐRÉTT:
1 stóls, 2 rák, 3 nálægð, 4
blýkúla, 5 getur tekið, 6
kærleikshót, 10 trúar-
brögð, 12 lána, 13 sonur,
15 spónamatur, 16 kletta-
snös, 18 mjólkurafurðum,
19 undirnar, 20 gloppa,
21grannur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 réttsælis, 8 stinn, 9 tolla, 10 níu, 11 renni, 13
rengi, 15 hregg, 18 snáði, 21 örn, 22 starf, 23 æruna, 24
ringlaðar.
Lóðrétt: 2 étinn, 3 tonni, 4 æstur, 5 iglan, 6 ósar, 7 gati,
12 nag, 14 ein, 15 hest, 16 efaði, 17 göfug, 18 snæða, 19
ámuna, 20 iðan.
Veiðileyfi á kanínur
MARGSINNIS hef ég lent
í því að búið er að plokka og
éta af blómum sem ég hef
gróðursett við leiði í Foss-
vogskirkjugarði. Nú síðast
var búið að grafa upp og éta
laukana sem ég hafði gróð-
ursett. Í hvert skipti sem
ég kem í garðinn sé ég ekki
færri en þrjár eða fjórar
kanínur og er ekkert voða-
lega hrifin af þessu. Ég
hugsa að Vilhjálmur Sig-
urðsson sem skrifaði í blað-
ið nýverið mætti gjarna
smala kanínunum saman
og helst fara með þær upp á
heiði þar sem selja mætti
rjúpnaskyttum skotleyfi á
þær, eða jafnvel fengið
borgað fyrir að veiða þær.
Kanínur hafa verið plága í
Ástralíu og mega ekki
verða plága hér á landi líkt
og minkurinn er orðinn.
Ásta.
Blessuð kanínugrey
MÉR þykir yndisauki að
kanínunum í Öskjuhlíðinni
og þætti notalegt að vita til
þess, þegar ég verð lagður
undir græna torfu, að þessi
fallegu og hlýlegu dýr væru
skoppandi í kringum leiðið.
Nóg er nú eftir af gróðri í
Fossvogskirkjugarði þó að
kanínugreyin leggist á
blómin. Þessi blóm endast
hvort eð er ekki lengur en
að næstu lægð. Kanínurnar
gætu jafnvel orðið til þess
að laða fjölskyldur í Öskju-
hlíð, og um leið í kirkju-
garðinn, þar sem börnin
gætu gefið kanínunum að
éta eins og gert er við end-
urnar á tjörninni, – sem
hafa vart undan að skíta á
gangstéttarnar í miðbæn-
um og eru í alla staði minna
skemmtilegar skepnur.
Kanínurnar gera hlíðina,
en þó ekki síst kirkjugarð-
inn, að hlýlegri og meira
aðlaðandi stað.
Dýravinur.
Í leit að plötu ung-
lingsáranna
KONA hringdi til að leita
upplýsinga um plötu sem
gefin var út milli 1974 og
’76. Hana minnir að platan
hafi heitið Diamonds in
Her Eyes og innihélt lagið
„She’s Leaving“. Þeir sem
gætu lumað á frekari upp-
lýsingum um plötuna, og
jafnvel hvar finna megi ein-
tak, mega gjarna hafa sam-
band í síma 866 6496.
Nafnaruglingur
FYRIR misskilning var
nafn Egils Egilssonar ritað
undir greinarkornið „Góðir
og fróðlegir þættir“ í Vel-
vakanda í gær. Réttur höf-
undur greinarinnar er dótt-
ir hans Hildur Egilsdóttir.
Tapað/fundið
Grænnar
íþróttatösku saknað
SÍÐUSTU helgi var
grænni íþróttatösku með
brúnum ólum stolið úr bíl í
Norðurmýri. Í töskunni var
Aikido (Judo) galli og
tvennar svartar Aikido
buxur auk ýmissa smá-
hluta. Sá sem veit af tösk-
unni eða innihaldinu er
beðinn að hringja í síma
897 4675. Fundarlaun.
Geturðu ekki lesið
þessa grein?
ÞÁ ertu líklega eigandi
gleraugna með blárri um-
gjörð sem fundust í verslun
Dressmann á Laugavegi
fyrir viku síðan. Eigandi
getur vitjað gleraugnanna
á verslunartíma.
Glataður
Gameboy
LEIKJATÖLVA af Game-
boy Colour gerð tapaðist í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
12. júlí s.l. Í tölvunni var
Pókémon leikur. Finnandi
er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 438 1197.
Horfið hjól
SVART Trek-strákahjól
með rauðum stöfum hvarf
um miðjan dag fyrir utan
Flyðrugranda 14 síðastlið-
inn laugardag.
Ef einhver veit hvar hjól-
ið er niður komið er sá hinn
sami beðinn að hringja í
síma 561 1259 eða 699 2880.
Fundarlaun.
Einar Helgi, 11 ára.
Dýrahald
Kelikettlinga
vantar heimili
EINSTÆÐ móðir vill
gjarnan láta frá sér fjóra
yndislega tveggja mánaða
kettlinga. Þó það reyni
nokkuð á geðheilsuna að
halda fjóra kettlinga vill
móðirin taka fram að þeir
eru allir kassavanir, of-
boðslega gáfaðir, sætir og
kelnir úr hófi. Þeir eru hin-
ir heimilislegustu kettir og
eru að leita sér að góðum
fjölskyldum til að búa hjá.
Upplýsingar í síma
564 2545.
Týndur kettlingur
í Grafarvogi
ÞRIGGJA og hálfs mánað-
argamall kettlingur týndist
frá Borgarhverfi í Grafar-
vogi fyrir tæpri viku. Hann
er hvítur með svörtum
blettum, ólarlaus og ótta-
legur bjáni. Hann er mjög
mannelskur og kelinn og
sárt saknað. Þeir sem vita
af ferðum hans vinsamlega
hafi samband í síma
557 2902.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
NÝVERIÐ var Víkverji á ferð áAusturlandi og kom þá í Atla-
vík. Reyndar er það ekki í frásögur
færandi enda hefur Víkverji iðulega
komið að Hallormsstað, gengið um
skóginn og baðströndina Atlavík við
Lagarfljótið. Hann vissi líka að Atla-
vík er vinsæll áningarstaður ferða-
manna á sumrin. Þeir hópast þangað
hundruðum saman þegar vel viðrar.
En það sem kom á óvart í Atlavík
að þessu sinni var einmitt sá mikli
mannfjöldi sem þarna var saman
kominn. Varla bara nokkur hundruð
manna heldur nokkur þúsund. Á öll-
um tjaldstæðum var tjald við tjald,
eða öllu heldur tjaldvagn við tjald-
vagn eða fellihýsi og hvað þessi
mannvirki heita nú orðið. Einn og
einn var með gamaldags tjald. Það
hljóta að hafa verið einhverjir sér-
vitringar – eða útlendingar.
Það var hins vegar gaman að sjá
þessa þéttu byggð. Greinilega voru
oft margir saman og tjölduðu þá á
sama blettinum og tóku fram grill-
tækin. Það er kapítuli út af fyrir sig
að sjá hversu vel menn eru búnir.
Fyrir utan eldunartækin eru hin
ýmsu húsgögn meðferðis, þ.e. sér-
hönnuð fyrir útilegur, léttir tjaldstól-
ar, borð sem lítið fer fyrir, sóltjöld og
grindur sem klæða má með dúk til að
skýla sér fyrir gjólunni. Víkverji
horfði með aðdáun á allt þetta fólk og
allt þetta stúss. Hann ákvað síðan að
laumast í svefnpokagistingu.
x x x
NÚ MÁ enginn skilja Víkverjasvo að hann hafi skammast sín
fyrir búnaðinn sem hann hafði með-
ferðis: Gamla góða tjaldið, svefnpoka
og nesti í kæliboxi. Ekkert grill,
enga tjaldstóla eða skýli. Bara stoltið
sitt, tjaldið sem einu sinni var app-
elsínugult en er nú orðið mjög föl-
leitt. Enda ekkert skrýtið eftir ára-
tuga langa notkun hér og þar um
landið. Til að hressa það við var
keyptur á það himinn fyrir nokkrum
árum og þá er það sem nýtt. Sómir
sér á hvaða tjaldstæði sem er.
En svefnpokagistingin og morg-
unmaturinn í Hússtjórnarskólanum í
Hallormsstað freistaði. Því var hald-
ið þangað eftir að hafa virt fyrir sér
mannlífið á tjaldstæðunum. Þar var
heldur ekki í kot vísað. Virðulegt og
fallegt hús og nafngiftir salarkynna
eftir því og anddyrið nefnt höll. Þessi
skóli er einn af fáum sem enn kenna
hússtjórn og eru umsóknir um vist
þar í vetur nú fleiri en pláss er fyrir.
Það finnst Víkverja vita á gott að
einhverjir skuli enn vilja læra hús-
stjórn og hann hefur fyrir satt að
þarna hafi piltar sótt nám ekki síður
en stúlkur.
Víkverji getur því hiklaust mælt
með svefnpokagistingu í Hússtjórn-
arskólanum ef menn eru þarna á ferð
og eru ekki með réttu græjurnar fyr-
ir tjaldstæðið. Þarna snæða menn
morgunmat í hlýlegri borðstofu og
þjónustan er með ágætum.
x x x
Á FERÐ sinni lagði Víkverji fyrirsig þá nýlundu að koma við á
golfvöllum. Hann er algjör byrjandi
á þessu sviði (reyndar búinn með eitt
námskeið) og fannst því tilvalið að
líta á velli í fámenninu þar sem hann
væri ekki að flækjast fyrir þeim sem
eitthvað kunna. Fannst honum þjóð-
ráð að geta skellt sér einn hring á níu
holu velli – en mun ekki fara nánar út
í höggafjölda eða hvernig honum
hélst á kúlunum.