Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 43
DAGBÓK
Tveir
fyrir
einn
(greiðir fyrir dýrara parið)
Smáralind - Kringlunni
www.bianco.com
Skólavörðustíg 7, RVÍK,
Sími 551-5814
Verð kr:
6.900.-
Ný sending af innkaupatöskum á hjólum
10% staðgreiðslu-
afsláttur fyrir eldri borgara
Verið velkomin -
aðgengi er orðið mjög gott að búðinni
Verð kr:
6.900.-
Verð kr:
6.900.-
Verð frá kr: 5.200.-
Í BIKARLEIK fyrr í sumar
kom upp áhugavert þriggja
granda spil, þar sem besta
spilamennskan fór fram hjá
báðum sagnhöfum:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 1096
♥ ÁK
♦ 87652
♣1062
Suður
♠ ÁK83
♥ G4
♦ KD4
♣ÁKG9
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspil vesturs er smátt
hjarta. Hvernig myndi les-
andinn spila?
Það lítur út fyrir að lauf-
svíningin verði alltaf að
heppnast. Vörnin hefur hitt
á veikleikann og það tak-
markar þann tíma sem
sagnhafi hefur til að byggja
upp níu slagi með því að
nýta sér tígulinn og/eða
spaðann. En þetta er pirr-
andi niðurstaða og spurn-
ingin er hvort hægt sé með
einhverju móti að auka vinn-
ingslíkurnar.
Fyrsta hugdettan er að
spila tígli í öðrum slag, en
það þjónar þó litlum til-
gangi. Í besta falli fær suður
slaginn á kónginn, en hann
þarf enn á laufsvíningunni
að halda. Ekki dugir að
sækja einn slag á spaða (eða
tígul) til viðbótar, því það
telur aðeins upp í átta með
tveimur á lauf.
En hvað með spaðann? Ef
austur á DGx(x) má fá fjóra
slagi á litinn ÁN ÞESS að
vörnin komist að og þá má
gefa slag á lauf. Hins vegar
væri ógætilegt að spila strax
spaðatíu og svína, því ekki
er víst að spaðinn skili alltaf
einum aukaslag. Það gerðist
á öðru borðinu:
Norður
♠ 1096
♥ ÁK
♦ 87652
♣1062
Vestur Austur
♠ G7 ♠ D542
♥ D109732 ♥ 865
♦ 109 ♦ ÁG3
♣543 ♣D87
Suður
♠ ÁK83
♥ G4
♦ KD4
♣ÁKG9
Vestur fékk á spaðagosa
og braut hjartað. Sagnhafi
fór af stað með lauftíu og
fékk vissulega fjóra slagi á
lauf, en aðeins tvo á spaða,
þar eð drottningin var fjórða
í austur – einn niður.
Besta leiðin er að spila
strax laufi á GOSA í öðrum
slag. Heppnist svíningin má
sækja níunda slaginn á tígul,
en ef vestur á laufdrottningu
er enn samgangur til að
reyna við fjóra spaðaslagi,
því blindur á tvær innkomur
– eina á hjarta og aðra á
lauftíu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú tekur vel eftir smáat-
riðum. Þú horfir heimspeki-
legum augum á lífið og tjáir
þig á skapandi hátt. Á árinu
framundan eiga nánustu
sambönd þín eftir að batna.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vertu í góðu skapi. Komandi
ár færir rómantík, daður, frí
og fleiri skemmtilega hluti til
þín frá og með deginum í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Breytingar á stöðu plánet-
anna færa þér heppni heima
við á næstkomandi ári. Þetta
er góður tími fyrir fasteigna-
viðskipti, fjölskyldulíf og
hversdagslega hluti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Bjartsýnin tekur völdin hjá
þér og verður viðloðandi allt
komandi ár. Þetta hvetur þig
til að reyna við stærri verk-
efni og læra eins mikið og þú
getur um heiminn í kringum
þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Loksins fara fjármunir að
streyma til þín. Þú skalt bú-
ast við auknum tekjum á
árinu sem framundan er auk
stærri viðskipta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Lukkuplánetan Júpíter kem-
ur inn í ljónsmerkið í fyrsta
sinn í 12 ár.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú verður að gefa þér tíma
fyrir einveru og hugleiðslu.
Eyddu tíma með sjálfum þér
til að rækta sjálfsmyndina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er í eðli sínu mikil fé-
lagsvera og kann að meta fé-
lagsskap. Árið framundan
færir þér aukna samveru með
nánum vinum sem stærri
hópum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er mikilvægt að þú trúir
á sjálfan þig því horfur þínar
á vinnumarkaði hafa aldrei
verið eins góðar eins og þær
verða næsta árið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tækifæri til ferðalaga og
frekari menntunar verða næg
næstu 13 mánuðina. Þessi
tækifæri verða ekki oft á vegi
þínum og nýttu þau því vel í
þetta sinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú skalt búast við því að
hagnast á auði annarra á
komandi ári.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Alvarleg sambönd verða
ánægjuleg fyrir þig í alla
staði á næsta árinu. Vertu í
samvinnu með öðrum því
núna er ekki rétti tíminn til
að vinna einn að hugðarefn-
um þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Staða þín á vinnumarkaði á
eftir að batna á komandi ári.
Vertu því jákvæður og von-
aðu aðeins það besta og þú
verður ekki svikinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
SJÖTTA FERÐ SINDBAÐS
Ygldan skolaðist Sindbað um sjá,
unz síðasta skipbrotið leið hann.
Hann molaði fleyið sitt Feigsbjargi á,
og fádæma hörmungar beið hann.
Svo lagði hann inn í ægileg göng,
er af tók að draga þróttinn;
þar drjúptu gljúfrin svo dauðans þröng
og dimm eins og svartasta nóttin.
Þá förlaðist kraftur og féll á hann dá
í ferlegum dauðans helli.
– En hinum megin var himin að sjá
og hlæjandi blómskrýdda velli.
– Svo brýt eg og sjálfur bátinn
minn og berst inn í gljúfra-veginn. –
Við förum þar loksins allir inn. –
En er nokkuð hinum megin?
Einar H. Kvaran
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4.
cxd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6. g3
Rf6 7. Bg2 Be7 8. 0–0 0–0 9.
Bg5 c4 10. Re5 Be6 11. f4
Rg4 12. Rxg4 Bxg4 13. Bxd5
Bxg5 14. fxg5 Dxg5 15. Hf4
Had8 16. Dd2 h6 17. Hd1
Be6 18. Bg2 Bc8 19.
De3 Re7 20. d5 Rf5
21. Dxa7 Hfe8 22.
Re4 De7 23. Db6 Rd6
24. Hdf1 f5 25. Rxd6
Hxd6 26. Db4 Hdd8
27. Dxe7 Hxe7 28.
Hxc4 Hxe2 29. Hfc1
Bd7 30. H4c2 Hxc2
31. Hxc2 Kf8 32. He2
b5 33. Kf2 b4 34. Hd2
Ke7 35. d6+ Ke6 36.
Ke3 Hc8 37. Bd5+
Ke5 38. Bb3 Hc1 39.
Hd5+ Kf6 40. Kd4
Hb1 41. He5 f4 42.
He7 fxg3 43. hxg3
Bg4 44. Hf7+ Kg6 45. Hf4
Kg5
Staðan kom upp á öðru
bikarmóti FIDE sem lauk
fyrir skömmu í Moskvu.
Vassily Ivansjúk (2711) hafði
hvítt gegn Alexander Grisch-
uk (2702). 46. Hxg4+! Kxg4
47. d7 Hxb2 og svartur gafst
upp um leið enda rennur frí-
peð upp í borð eftir 48. Ke3
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 31.
júlí, er sextugur Sigurbjörn
Pálsson, trésmiður hjá
Skeljungi. Bjössi og Sigrún
taka á móti gestum í dag
milli kl. 18 og 22 í Shellhús-
inu, Tjarnargötu 14, Siglu-
firði.
50 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 3. ágúst
verður fimmtugur Ólafur F.
Magnússon, læknir og
borgarfulltrúi, Vogalandi
5, Reykjavík. Eiginkona
hans er Guðrún Kjartans-
dóttir. Ólafur fagnar fimm-
tugsafmælinu með fjöl-
skyldu og vinum
fimmtudaginn 1. ágúst kl.
17–19 í félagsheimili Orku-
veitu Reykjavíkur í Elliða-
árdal.
Ljósmynd/UMA
BRÚÐKAUP. Gefin
voru saman 15. júní
sl. í Lágafellskirkju
af sr. Guðnýju Hall-
grímsdóttur þau
Anna Guðrún Auð-
unsdóttir og Friðrik
Gunnarsson. Heimili
þeirra er í Byggðar-
holti 31, Mosfellsbæ.
TÓLF tilboð bárust í hringveginn á
milli Melrakkaness og Blábjargar á
Austurlandi en tilboðin voru opnuð
hjá Vegagerðinni á dögunum. Rása-
berg ehf. á Hornafirði bauð lægst
eða 59,3 milljónir króna. Jarðverk
ehf. á Hornafirði átti hæsta tilboðið í
verkið, það hljóðaði upp á tæpar
129,3 milljónir króna og er munurinn
því um 70 milljónir króna.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar eru tæpar 81,8 milljónir króna.
Framkvæmdin er ný- og endurbygg-
ing á 4,5 kílómetra löngum kafla.
Önnur fyrirtæki sem buðu voru Þ.S.
verktakar ehf. á Egilsstöðum sem
buðu 66,8 milljónir, Dalbjörg ehf. á
Breiðdalsvík bauð 67,8 millj., tilboð
SG-véla ehf. á Djúpavogi hljóðaði
upp á 71 milljón, Ólafur Halldórsson
á Hornafirði bauð 72 m. kr. og Hag-
verk ehf. í Fellabæ 74,4 m. kr. Tilboð
vélaleigu Sigga Þór ehf. var 79,8
milljónir og Jón Hlíðdal ehf. og Ein-
ar Björnsson á Egilsstöðum buðu
svipað. Þá hljóðaði tilboð Klæðning-
ar ehf. í Kópavogi upp á 89,7 millj-
ónir, Norðurtaks ehf. á Sauðárkróki
bauð tæpar 94 milljónir og Nóntind-
ur ehf. í Búðardal 111,6 milljónir.
Tólf tilboð í vegarkafla
á hringveginum
FRÉTTIR