Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gasol®
Heimsendingarþjónusta ÍSAGA
nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Heimsendingargjald er kr. 500,-
Afgreiðslan Breiðhöfða 11
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
800 5555
Hluti af Linde Gas Group
ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11
Sími 577 3000 • Fax 577 3001
www.aga.is
IS
A
-2
43
.1
–
ÍD
E
A
Útsalan
í fullum
gangi
Nú er 50%
afsláttur
af öllum vörum á
útsölu
... nýjar spennandi
haustvörur komnar
KRINGLUNNI - 533 1720
KRINGLUNNI - 588 0079
Meiriháttar
útsala
Enn meiri afsláttur á
útsölunni
Allt að
60% afsláttur
Erum að taka upp
haustvörur ...
LEIKSTJÓRINN Baz Luhrman er
einn þeirra leikstjóra sem eru þessa
dagana að vinna að mynd um
Makedóníukonunginn Alexander
mikla. Luhrman, sem þekktastur er
fyrir myndir sínar Rómeó og Júlía
og Moulin Rouge, er að sögn mikill
aðdáandi kappans og hefur kynnt
sér sögu hans vel.
„Vestræn menning væri ekki eins
og hún er í dag ef Alexanders hefði
ekki notið við,“ sagði Luhrman
meðal annars. Hann bætti við að
hann hefði hug á að gera myndina í
svipuðum stíl og hina margfrægu
Lawrence of Arabia sem gerð var
árið 1962.
Þótt ævi Alexanders mikla hafi
verið stutt spannar hún mikla
bardaga og hatrömm átök, sem
þykir alls ekkert verra þegar gera
á bandarískar stórmyndir.
Alexander var uppi á fjórðu öld
fyrir Krist og tók við konungdómi
af föður sínum, Filippusi II, aðeins
tvítugur að aldri. Hann taldi það
köllun sína að sameina alla Grikki í
eitt ríki og til þess þurfti hann að
sigra hvert stórveldið á fætur öðru,
þ. á m. Persaveldi.
Alexander lést úr hitasótt í heim-
ferð sinni frá Indlandi þar sem
hann hafði lokið ætlunarverki sínu.
Myndin verður byggð á ævisögu
Alexanders sem Ítalinn Valerio
Manfredi skrifaði en áætlað er að
tökur muni hefjast á næsta ári í
Marokkó. Handritið verður ritað af
Ted nokkrum Tally en hann hlaut
Óskarsverðlaunin fyrir handritið
að Lömbin þagna árið 1992.
Kollegar Luhrmans, þeir Martin
Scorsese og Oliver Stone, eru einn-
ig sagðir vera með myndir um Al-
exander mikla í burðarliðnum.
Leikstjórinn Baz Luhrman gerir
mynd um Alexander mikla
Reuters
Baz Luhrmann
Skepnuverksmiðjan
(Animal Factory)
Drama
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS. (94 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Steve
Buscemi. Aðalhlutverk: Edward Furlong,
Willem Dafoe og Mickey Rourke.
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Edward Bunker hefur í bókum sín-
um brugðið upp raunsæislegri en um
leið óhugnanlegri mynd af lífi innan
fangelsisveggja, en óhætt er að segja
að þar ríki vægðarlaust frumskóg-
arlögmálið. Þeir sem eru minni mátt-
ar verða undir og einvörðungu þeir
harðgerðustu og samviskulausustu
lifa af. Skepnu-
verksmiðjan er að-
lögun á einni af
frægari skáldsög-
um Bunkers og
segir hér frá yfir-
stéttarpiltinum
Ron (Furlong) sem
handtekinn er fyrir
minniháttar fíkni-
efnaafbrot en dóm-
stólar ákveða að láta hann verða öðr-
um víti til varnaðar og senda hann í
fangelsi fyrir harðsvíraða stór-
glæpamenn. Þar er hann eins og
lamb meðal úlfa og ef ekki væri fyrir
þá staðreynd að Earl (Defoe), lang-
tímavistmaður sem þekkir lögmál
fangelsisins, tekur hann undir sinn
verndarvæng hefði vist drengsins
þar eflaust orðið stutt og hroðaleg.
Myndin lýsir sambandi þessara
tveggja manna og lífinu í fangelsinu
af stöku raunsæi, ekkert er dregið
undan hvað varðar mannskemmandi
áhrif slíkrar vistar en nafnið er það-
an dregið: Fangelsi er verksmiðja
sem framleiðir skepnur í manns-
mynd. Hugtakið „betrunarvist“ er
brandari í þessu samhengi og skýrt
sést hvernig sakleysi Rons hverfur
og í staðinn verður til ískaldur
glæpamaður og morðingi. Þetta er
annað leikstjórnarverkefni Steves
Buscemis sem stendur sig með álíka
prýði og í Trees Lounge þótt um
gjörólíkt verk sé hér að ræða. Mis-
kunnarlaus mynd sem óhætt er að
mæla með. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Á bak við
lás og slá
SÖNGVARINN Geir Ólafsson
bregður sér í ögn breytt hlutverk í
dag sem og átta næstu miðvikudaga
þegar í loftið fer útvarpsþátturinn
Og heimurinn hlustaði. Þar mun
Geir fjalla um ævi og störf nokkurra
þekktra tónlistarmanna á borð við
Frank Sinatra, Tony Bennett og
Judy Garland.
„Hver þáttur er helgaður einum
listamanni nema tveir verða um Gar-
land og fimm um Frank Sinatra. Ég
legg í raun mest upp úr ævi hans og
störfum,“ segir Geir og segist grafa
mjög djúpt í sögu hins bandaríska
söngvara og kvikmyndaleikara.
„Fólk fær að heyra ýmsa hluti um
þetta fólk sem það ekki vissi áður. Til
dæmis greini ég frá því að Frank
Sinatra var í mafíunni.“
Geir segist sækja fróðleik hingað
og þangað auk þess að fá til sín góða
gesti í þættina.
„Þeir Árni Scheving og Reynir
Sigurðsson koma í heimsókn og
Vernharður Linnet mun aðstoða mig
við þáttinn um Tony Bennett því ég
vissi minna um hann. Þættina um
Frank Sinatra sé ég svo algjörlega
um sjálfur því þar er ég náttúrulega
á heimavelli,“ segir Geir.
Geir segist ánægður með hið nýja
starf sitt og segir það mikinn heiður
að fá að vinna að þessu verkefni.
„Ég hefði þó seint getað gert þetta
einn og á þeim Önnu Kristine og
Óskari Ingólfssyni mikið að þakka,“
segir Geir og hvetur að lokum alla til
að fylgjast með á Rás 1 komandi
miðvikudaga.
Og heimurinn hlustaði er á dag-
skrá klukkan 10.15 og endurtekinn
samdægurs klukkan 20.20.
Geir Ólafsson með nýjan útvarpsþátt á Rás 1
Morgunblaðið/Kristinn
Geir Ólafsson
Og heim-
urinn
hlustaði
á Geir
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739