Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                !    "!" #$  %&                                           !  "!  #$    #$$% &                                                     !" # "$%                !""    &    '($ ' &   ) '*+ !  ,& - )   !   '%%  &    ) '.   !    !   !&   ) ' !  - - '& '- - - /                             !  ! "# $ %&# "# '#  $ ()*  '                                                 "#  $#    % $ &    !  !"#$ %  & '!! ()##*! $$  !"#$ %   !"#&) % + !#*! ! + '!!#$ %  , !, !* ##%!% -%!# )! ✝ Helga Jónsdóttir húsfreyja aðGoðabyggð 13 á Akureyri fæddist á Hrappsstöðum í Bárðar- dal hinn 15. júní 1942. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri hinn 4. ágúst síðastliðinn. Helga var næstyngst sjö barna hjónanna Jóns Sigurjónssonar, f. 15. apríl 1894, d. 16. maí 1968 á Arndísarstöðum í Bárðardal, og Aðalbjargar Guðnadóttur, f. 2. október 1903, d. 16. desember 1981, frá Hvarfi í Bárðardal. Þau bjuggu í Fjósatungu í Fnjóskadal frá 1948 til 1968 er sonur þeirra Ragnar tók þar við búskap. Helga kenndi sig alla tíð við Fjósatungu þótt hún væri fædd á Hrappsstöð- um í Bárðardal og verið þar til sex ára aldurs. Systkini Helgu eru. 1) Baldur, f. 23. september 1928, verkamaður, búsettur á Akureyri. 2) Herdís, f. 27. nóvember 1931, húsfreyja í Lundi í Fnjóskadal, maki Þórólfur Guðnason, f. 15. júní 1919, þau eiga fimm börn. 3) Ragnar, f. 13. janúar 1934, maki Hrefna Indriðadóttir, f. 21. októ- ber 1942, Ragnar á eina dóttur, þau eru búsett í Reykjavík. 4) Reynir, f. 7. apríl 1936, verkamað- ur búsettur á Akureyri. 5) Krist- björg, f. 12. júlí 1937, verkakona, búsett í Reykjavík. 7) Sigríður, f. 30. desember 1943, húsmóðir á Ak- ureyri, maki Pálmi Sigurðsson, f. 24. september 1945, verkamaður á Akureyri, þau eiga sex syni. Hinn 21. desember 1968 giftist Helga Inga Kristjáni Péturssyni, f. 22. júlí 1943, afgreiðslumanni á Akureyri. Ingi er sonur hjónanna Péturs Björgvins Jónssonar skó- smiðs, f. 26. nóvember 1891, d. 8. nóvember 1966, og Sigurbjargar Pétursdóttur, f. 14. febrúar 1902, d. 22. mars 1996 en þau bjuggu lengi á Gleráreyrum 2 á Akureyri. Börn Helgu og Inga eru: 1) Pétur Björgvin, f. 25. janúar 1970, kranamaður búsettur á Akureyri, sambýliskona Dagný Ósk Ingólfs- dóttir, f. 29. ágúst 1973. 2) Jón Að- albjörn, f. 25. janúar 1970, bifreið- arstjóri, búsettur á Akureyri, sambýliskona Jóhanna María Baldursdóttir, f. 30. janúar 1970. Börn þeirra eru, Berglind Sif, f. 9. júní 1991, Helga Kristín, f. 3. ágúst 1995, og Baldur Ingi, f. 3. janúar 1999. 3) Ingi Rafn, f. 24. febrúar 1973, bifreiðarstjóri, búsettur á Akureyri, eiginkona Þorgerður Helga Árnadóttir viðskiptafræð- ingur, f. 10. desember 1974. 4) Val- geir, f. 6. júlí 1978, verkamaður á Akureyri. 5) Birgir, f. 11. október 1982, nemi, búsettur á Akureyri. Útför Helgu verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju á morgun, mánu- daginn 12. ágúst, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er komið að kveðjustund og því langar mig að minnast tengda- móður minnar í nokkrum orðum. Þegar ég kynntist núverandi eig- inmanni mínum, Inga Rafni, bauðstu mig strax velkomna á heimili ykkar Inga. Ég fann alltaf fyrir hlýju þeg- ar ég kom til ykkar og þú sást til þess að maður færi aldrei svangur út af heimilinu enda þyngdist ég tölu- vert þegar við Ingi hófum samband okkar. Þú varst alltaf tilbúin með bakkelsi ýmiss konar. Það þýddi ekkert annað en að eiga kleinur eða soðið brauð eða eitthvað gott handa þér og þínum. Þó svo að Ingi flytti að heiman til að búa með mér bakað- irðu samt líka handa okkur og færðir okkur að auki kartöflur, sultur, slát- ur og svið. Þú varst mikil handavinnukona og prjónaðir margar fallegar peysur og föt. Það er tvennt sem er mér efst í huga hvað handavinnuna varðar. Í fyrsta lagi trúðarnir þínir sem þú hafðir mikið fyrir en þú gafst svo af þér þegar þú prjónaðir þá. Í öðru lagi sófasettið sem þú saumaðir út. Það tók nokkurn tíma, en þú hafðir svo gaman af því. Ég man líka vel eftir því þegar við Ingi Rafn gáfum þér mynd til að sauma út og þú saumaðir hana, lést ramma hana inn og gafst okkur hana til baka. Þú varst svo gjafmild og góð. Elsku Helga mín, við urðum öll fyrir miklu áfalli þegar þú greindist með krabbamein fyrir tæpum átta árum. En þú gafst aldrei upp og kvartaðir aldrei. Þú varst að hugga okkur hin út af smávægilegum árekstrum í dagsins önn. Það var stutt í brosið hjá þér og ég held að ég hafi aldrei séð þig reiða. Það gladdi okkur hjónin mikið að þú gast tekið þátt í brúðkaupsdeg- inum okkar og ég veit að það gladdi þig mikið að við tókum upp pakkana heima hjá þér og Inga. Hetjuleg barátta við sjúkdóminn endaði því miður þannig að þú þurft- ir að láta í minni pokann fyrir honum og nú hefurðu fengið hvíldina. Ég þakka þér fyrir tímann sem við átt- um saman. Tíu ár eru langur tími, en hann var of stuttur í þessu tilfelli. Ég mun alltaf minnast þín með prjónana eða útsaumsmyndirnar. Engin komu börnin hjá okkur Inga meðan þú lifðir, en ég veit að þú munt vaka yfir þeim þegar þau koma. Elsku Ingi, Jón, Pétur, Ingi Rafn, Valgeir og Birgir, þið hafið staðið ykkur eins og hetjur og ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ég bið góðan Guð um að blessa ykkur. Kveðja, Þorgerður Helga Árnadóttir. Látin er mágkona okkar Helga Jónsdóttir frá Fjósatungu í Fnjóskadal. Helga sem sjálf var stolt af því vera sveitakona var alin upp við sveitastörf og vinnu. Það var henni kappsmál og dyggð að vinna störf sín af vandvirkni og alúð. Helga hlaut venjubundna menntun eins og önnur börn, barnaskóla- menntun á Skógum í Fnjóskadal en að auki lauk hún námi frá Kvenna- skólanum á Laugum 1962. Eftir að Helga fluttist til Akureyrar vann hún verkakvennastörf. Hinn 21. des- ember 1968. giftist Helga Inga Kristjáni Péturssyni bifreiðarstjóra, sjómanni og nú afgreiðslumanni og áttu þau ætíð heimili sitt á Akureyri, nú síðustu ár í Goðabyggð 13. Þegar Helga kom til móts við fjölskyldu okkar sannaðist það að ókunnugir eru vinir sem maður hefur ekki enn eignast. Hjá Helgu eignuðumst við nýjan og traustan vin. Unun var að fylgjast með uppbyggingu þeirra hjóna á heimili þeirra sem fljótt stækkaði, tvíburastrákar fyrst en alls urðu strákarnir fimm. Sam- heldni þeirra hjóna var einstök, gengið var í öll verk af kappi og elju- semi þar sem hagur og umhyggja fyrir heimilinu var í fyrirrúmi. Helgu var einstaklega lagið að vinna heimilisverk sín og aldrei kom mað- ur til hennar að ekki væri boðið upp á kaffi og heimabakað brauð. Helga var sérstaklega lagin við prjónaskap og ófáar flíkurnar eru komnar frá henni. Þá tók Helga sér fyrir hendur nú í seinni tíð að prjóna smáfólk og mátti oft sjá hjá henni heilu fjöl- skyldurnar. Ljóst var að í verkið lagði hún alúð og ætlunin var að gleðja unga fólkið sem dáðist að þessu prjónafólki. Manni varð það fljótt ljóst að það var ekki aðeins af skyldurækni að Helga annaðist heimili sitt, það var líf hennar og hugsjón. Hún leitaði ekki gæfunnar langt yfir skammt, Helga vissi alla tíð að hennar hamingja var ham- ingja fjölskyldunnar, lífið var ekki flóknara en það. Sagt er að hamingj- una eignist maður aðeins á einn veg í lífinu, með því að elska og vera elsk- aður. Helga elskaði fjölskyldu sína og naut í staðinn ómældrar aðdáun- ar og elsku til baka. Nú síðustu miss- eri þegar veikindin ágerðust og ljóst var hvert stefndi var Helga óbuguð og ótrúlega sterk. Við sem komum með uppörvunarorð máttum okkar oft lítils gegn glaðværð og bjartsýni hennar. Öllum kom á óvart eftir að hún hafði verið lögð inn og talið var að mjög stutt væri eftir að henni gafst styrkur á ný til að koma nokkr- ar vikur heim. Þar naut hún ástar og umhyggju eiginmanns og fjölskyldu sem með dyggri aðstoð frá heima- hlynningu sjúkrahússins gerði henni kleift að fá að dvelja nokkurn tíma til viðbótar á heimili sínu. Minningin um Helgu verður okk- ur öllum kær, við eignuðumst traust- an vin sem ekki brást fjölskyldu sinni og setti velferð og væntingar sinna nánustu ofar sínum. Inga Kristjáni og fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og biðjum algóðan Guð sem öllu ræður að veita ykkur styrk í sorg- inni. Bogi Pétursson, Þorsteinn Pétursson og fjölskyldur. HELGA JÓNSDÓTTIR ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.