Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ saman, þar sem hann lék jafnframt aðalhlutverkið, sem vann þriðju verðlaun á fyrstu Stuttmyndadög- um í Reykjavík. Þá fengum við smá trú á okkur, enda var Hrafn Gunn- laugsson í dómnefnd. Myndin hét Gaddavír í gelgjunni. Árni Óli lagði hana fram með umsókn sinni um kvikmyndaskóla í Póllandi og komst inn. Okkur hefur alltaf þótt mjög gott að vinna saman, sérstak- lega að kasta á milli okkar hug- myndum.“ Því raunverulegri, þeim mun fyndnari Ákvaðstu að skrifa þetta handrit með öðrum vegna þess að meira var í húfi núna en í Íslenska draumnum. „Það gæti verið. En almennt finnst mér betra að vinna handrit með öðrum. Ég hreinlega fann eng- an til að skrifa Íslenska drauminn með. Ég er að skrifa handrit núna og er ekki einn við það verk. Í sam- vinnu gengur allt hraðar; hug- myndirnar njóta þess að tveir eru að vinna með þær. Grunnhugmynd- in að Maður eins og ég breyttist töluvert á ferlinu. Við skrifuðum handritið þrisvar-fjórum sinnum og gerðum miklar breytingar í hverri umferð. Til dæmis er utanlands- ferðin í fyrstu útgáfunni til Man- chester og í annarri vorum við komnir til Flórída með senum í Disneylandi og þátttöku Franks Stallone!“ Á endanum er það svo Sylvester bróðir hans sem fer með hlutverk í myndinni? „Einmitt. Þannig fór sagan gegnum ýmsar kúvendingar.“ Íslenski draumurinn spratt út úr kunnuglegum íslenskum kringum- stæðum og hversdagsfólki rétt eins og Maður eins og ég, en tók þann raunveruleika lengra en þið gerið í nýju myndinni. Maður eins og ég er á vissan hátt ekki eins ýkt; það eru til dæmis engar búlgarskar heilsusígarettur í spilinu. Var það sérstök glíma að halda sögunni inn- an marka trúverðugleikans? „Já, við vorum alltaf meðvitaðir um það. Allt fram undir það síðasta vorum við að henda út hugmyndum sem voru úti að aka. Við lögðum mikla áherslu á að halda okkur á jörðinni og tónuðum niður brand- ara í ætt við Heimskur, heimskari. Í staðinn fyrir búlgarskar heilsu- sígarettur eru í þessari mynd heilsuvörur sem eru algengar hér á markaðnum. Oft þegar maður er að skrifa handrit snúast áhyggjurnar um að vera ekki nógu fyndinn. Þá setur maður kannski inn dverg sem yfirmann á póstinum eða eitthvert slíkt grín sem þjónar engum til- gangi. Niðurstaðan er sú að því nær raunveruleikanum sem sagan er þeim mun fyndnari er hún.“ Sagan sem ég hef að segja Í báðum bíómyndunum þínum ertu að fjalla um svipað efni, kreppu íslenskra karlmanna af yngri kynslóð. Þú heldur áfram að skoða drauma þeirra og öryggis- leysi gagnvart umhverfinu, ekki síst konum, sem þeir reyna að losna undan eða deyfa með því að rotta sig saman, fara í golf eða fót- bolta eða horfa saman á Sylvester Stallone. Af hverju hvílir þetta efni svona þungt á þér? „Þetta er bara sú saga sem ég hef að segja,“ svarar Róbert bros- andi. „Ég held að í rauninni hafi menn ekkert svo margar sögur að segja, en þeir geta sagt þær með síbreytilegum hætti. Woody Allen hefur gert þrjátíu góðar myndir sem meira eða minna segja svip- aðar sögur en með ólíkum aðferð- um og frá ólíkum sjónarhornum. Meirihluti allra leikstjóra í heim- inum gerir tvær bíómyndir á ferl- inum; þeir hafa kannski sagt sínar tvær sögur en ekki fundið leið til að endurnýja þær. Ég er ekki hrædd- ur við að sækja efni í sömu þemu ef ég get sett það fram á nýjan eða frumlegri hátt en síðast. Leikstjór- ar á borð við Mike Leigh og Ken Loach fiska jafnan á svipuðum mið- um en beita nýjum veiðiaðferðum og gera tilraunir með stíl.“ En af hverju þetta efni? „Mér finnst þetta vera ansi stór hluti af þjóðlífinu, ekki síst lífi minnar kynslóðar. Tvisvar sinnum í viku fer ég að hitta félaga mína til að spila fótbolta við þá. Við kunn- um ekkert í fótbolta og samræður okkar úti á vellinum eru sjálfsagt enn hálfvitalegri en hjá þremenn- ingunum í Íslenska draumnum. Nógu marga aðra þekki ég sem fara í golf. Ég þekki hins vegar ekki einn einasta mann sem hefur verið með sinni konu lengur en í fimm ár. Svo til allir hafa skilið oft- ar en einu sinni.“ Hvað um sjálfan þig? „Ég er ánægður með minni konu, en við höfum aðeins verið saman í eitt ár.“ Tilgangsleysi karlmennskunnar Í báðum myndunum eru karlarn- ir frekar veikir og ringlaðir; kon- urnar eru sterkari, konurnar stjórna. Er raunveruleikinn þannig í þínum augum? „Já, ég held að svo sé. Mín kyn- slóð af karlmönnum er í smá vanda með sjálfsmyndina.“ Er það vegna þess að jafnrétt- isbaráttan hefur borið þann ávöxt að konurnar eru orðnar sterkari og karlarnir vita ekki hvernig þeir eiga að vera? „Já. Fljótlega verður enginn til- gangur með karlmönnum. Konur geta eignast börn án þess að karl- maður sé nálægt. Og þær eru löngu búnar að sanna að þær geta unnið úti og alið upp barn á sama tíma. Við verðum því að finna okkur nýj- ar leiðir, nýjan tilgang. Auðvitað er þessi staða tengd tíðarandanum og allt getur breyst á ný. En það er gaman að fjalla um þetta í sögu.“ Myndirðu treysta þér til að segja sögu sterkrar ungrar konu og glímu hennar við sjálfa sig og karl- ana? „Já, ég held það. Í Íslenska draumnum eru konurnar meiri aukapersónur en í Maður eins og ég, þar sem er a.m.k. ein sterk kvenpersóna sem Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikur. Að vísu er kannski ekki mikil dýpt í þeirri persónu og ekki tími til að segja hennar sögu í þessari mynd, en hún er mjög sterk. Núna er eitt af handritunum sem ég er að vinna að einmitt með kvenpersónu í miðj- unni. Ég veit reyndar ekki hvort ég geti gert eins mikið grín að kven- persónum og ég geri að karlmönn- unum; það gæti orðið erfiðara.“ Rasismi og prédikanir Eitt sem slær mann varðandi Maður eins og ég er að samband Júlíusar og kínversku konunnar mætir ekki verulegri andstöðu um- hverfisins; þvert á móti samgleðj- ast flestir. Þú veltir þér þannig ekki mikið upp úr íslenskum kyn- þáttafordómum. En þú hefur vænt- anlega velt þeim fyrir þér? „Já, en ég kaus að prédika ekki. Það eru þarna karakterar sem end- urspegla fordóma og fáfræði og einn sem er allharður rasisti. En flestir eru mjög kurteisir. Þeir hafa fyrirframhugmyndir um konuna og Kínverja almennt, sem ekki byggj- ast á þekkingu, en fyrir þá eru þessar hugmyndir ekki slæmar, hugmyndir um hvað þetta fólk sé nægjusamt og krúttaralegt; þetta er auðvitað ein tegund af fordóm- um og jaðrar við fyrirlitningu. Við vorum í handriti með tvær senur, og önnur þeirra var tekin upp, sem sýna gallharðan rasisma, en okkur fannst þegar til kastanna kom að myndin þyrfti ekki á slíkum senum að halda. Þjóðarhrokinn og þessi eyjakúltúr okkar kemst yfir í litlum athugasemdum frekar en prédikunum.“ Hong Kong leikkonan Stephanie Che kom hingað til að leika annað aðalhlutverkið. Varð hún vör við rasisma? „Nei. En hún varð auðvitað vör við fáfræði, eins og að Japanir og Kínverjar séu sama fólkið og þess háttar. Sjálfur heiti ég erlendu nafni því pabbi minn er Íri; hann hefur búið hér í þrjátíu ár og ég hef aldrei litið á hann sem nýbúa eða útlending. En báðir höfum við orð- ið varir við hvernig sumir Íslend- ingar taka mið af slíku í afstöðu sinni og framkomu, einkum auðvit- að þó í litlum aukaatriðum, ekki síst í fyndni. Ég hef til dæmis heyrt óendanlegt magn af þræla- bröndurum. Við gerum mikið af því, Íslendingar, að stimpla fólk og koma því fyrir í hólfum. Þessi eyja- kúltúr er víða, til dæmis á Írlandi.“ Tökustíll í átt að Bráðavaktinni Hversu kostnaðarmeiri var framleiðslan á Maður eins og ég miðað við Íslenska drauminn? „Kostnaðurinn er helmingi meiri eða á bilinu 50–60 milljónir króna. Það var mjög dýrt að fara til Kína og taka þar og leikkonan þaðan kostaði sitt. Hún leit þó frekar á þátttöku sína sem ævintýraferð til Íslands; hún var ekki svo dýr. Ef mér byðist að fara til Grænhöfða- eyja og gera mynd þar hefði æv- intýrið meira vægi en peningarn- ir.“ Myndin er, eins og Íslenski draumurinn, tekin á stafrænt myndband en þú réðir pólskan tökumann, Pawel Gula. Hvað kom til? „Árni Óli hafði bent mér á hann og ég séð tvær stuttmyndir sem hann hafði skotið. Ég hitti hann svo í Póllandi hálfu ári áður og hann fékk hin bestu meðmæli, enda reyndist hann mjög vel. Ég myndi hiklaust vinna með honum aftur.“ Töku- og klippistíllinn er ekki eins hrár og í Íslenska draumnum en samt lífrænn og hreyfanlegur? „Mér fannst ég geta afsakað hrá- leikann í Íslenska draumnum með því að þar voru viðtöl við persón- urnar og formið var heimildar- mynd. Með Maður eins og ég lang- aði mig til að gera fagurfræðilega betri mynd. Ég vildi samt veita leikurum sveigjanlegt rými til að hreyfa sig í, gefa þeim frelsi í hreyfingum; ef leikara dytti í hug að standa upp og fara í ísskápinn þá gæti hann það án þess að við þyrftum að stilla upp á nýjan leik. Ég vildi samræma fallegri mynd- vinnslu og hreyfanleika. Stafræna formið takmarkar að vísu það fyrr- nefnda nokkuð en við gátum samt tekið á löngum fókus og haft stílinn í frekar þröngum römmum. Stíl- munur þessara tveggja mynda er kannski sá að þótt báðar séu tekn- ar „handheld“ er Íslenski draum- urinn nálægt dogmamyndunum en Maður eins og ég í átt að Bráða- vaktinni.“ Tónlistina gerir Jóhann Jó- hannsson, sem einnig vann með þér að Íslenska draumnum. Hvernig var hún hugsuð? „Ég var mjög ánægður með það sem Jóhann gerði fyrir Íslenska drauminn. En fyrir þessa mynd lögðum við upp með að tónlistin keyrði atburðarásina áfram, án þess að vera truflandi, væri nógu melódísk til að hjálpa stemmning- unni; hún átti að auka hraðann í at- riðunum en einnig dýpka þau og gefa þeim angurværari áferð. Ég vildi ekki húmoríska tónlist, frekar undirstrika sorgina í vissum senum án þess að þyngja myndina. Þetta er svona í anda Ennio Morricone.“ Epíkin og húmanisminn Er þá Maður eins og ég eins og höfundurinn vildi hafa hana, eins og hann sá hana fyrir sér? „Já, hún er mjög nálægt því,“ svarar Róbert og bætir við hlæj- andi: „Betri ef eitthvað er.“ Þegar þú ferð sjálfur í bíó hvern- ig viltu hafa myndirnar? Hverjar eru hæstskrifaðar? „Þær myndir sem ég fæ mest út úr að horfa á eiga mjög lítið skylt við þær myndir sem ég hef gaman af að búa til, a.m.k. í fljótu bragði. Þetta eru myndir eins og Arabíu- Lawrence eftir David Lean, Síðasti keisarinn eftir Bertolucci og Once Upon a Time in America eftir Sergio Leone, epískar stórmyndir, sem segja samt sögu eins manns og kjarninn er mjög húmanískur.“ Ýmsir myndu nú tengja þig við Woody Allen? „Ég hef mjög gaman af myndum hans og ekki séð neina slæma. Það má vissulega sjá eitthvert sam- hengi milli okkar. En sá leikstjóri sem er í mestu uppáhaldi hjá mér núna er Svíinn Lukas Moodysson, ekki síst önnur myndin hans Till- sammans. Moodysson skapar sós- íalrealisma og þjóðfélagsádeilu án þess að prédika yfir nokkrum manni og honum tekst að tengja mikinn húmor, drama og sorg með yfirlætislausum en áhrifamiklum hætti. Myndir hans hafa djúpa undirliggjandi sorg og vonleysi en búa jafnframt yfir miklum húmor og lífskrafti. Hann hefur aðdáun- arvert vald á þessu flókna jafn- vægi. Ég met myndir hans þannig að ég yrði ánægður ef ég næði í mínum myndum helmingnum af því sem hann nær fram. Og hann er aðeins nokkrum árum eldri en ég, rúmlega þrítugur.“ En sjálfur ertu kominn með nýj- an pirring – ert að vinna að nokkr- um handritum. Hvað næst? „Það sem ég átti við með pirr- ingnum var að maður þarf ekki að vera reiður til að gera þjóðfélags- ádeilu; það er nóg að vera pirraður. En næst geri ég líklegast mynd eftir handriti annarra höfunda. Mig hefur lengi langað til að prófa að leikstýra mynd sem ég skrifa ekki sjálfur. En ég vil ekki segja meira fyrr en samningur hefur verið und- irritaður og allt veltur þetta auðvit- að á fjármögnun. Ég get þó sagt að höfundarnir eru í ekki ósvipuðum pælingum og ég; þess vegna leit- uðu þeir til mín. Þeir eru jafnhrifn- ir af Tillsammans og ég.“ Morgunblaðið/Jim Smart Þegar á bjátar: Júlíus leitar stuðnings hjá pabba (Sigurður Sigurjónsson). Róbert Douglas: Þjóðfélagsádeila án prédikana …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.