Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 22
LISTIR 22 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR sem lifa og hrærast í listunum erukannski ekki alltaf best til þess fallnirað taka saman einhvers konar yfirlitum starfsemina eða veita öðrum yf- irsýn. Þó er ávallt gagn að því að taka saman staðreyndir um starfsemina og geta þá þeir sem vilja dregið sínar ályktanir af þeim. Leik- listarsamband Íslands hefur um árabil, í góðu samstarfi við menntamálaráðuneytið, gefið út á tveggja ára fresti upplýsingarit á ensku er heit- ir Theatre in Iceland og jafnhlálegt og það get- ur talist þá hefur þetta reynst ein aðgengileg- asta heimildin um íslenskt leikhússtarf á umliðnum þremur áratugum. Tilgangurinn með ritinu er að vekja athygli á þeim nýju íslensku leikverkum sem samin hafa verið á undangengnum tveimur árum; nýút- komið heftið neær yfir leikárin 2000–2001 og 2001–2002 og eru þar tíundaðar allar frumsýn- ingar á íslenskum leik- ritum í leikhúsum lands- ins, hvort heldur stóru stofnanaleikhúsunum, leikhópum eða áhuga- leikfélögum. Einnig eru þar yfirlit yfir ný út- varps- og sjónvarps- leikrit auk tæmandi lista um allar sýningar at- vinnuleikhúsanna þau tvö leikár sem um ræðir. Hefur þetta rit reynst góð viðbót við aðrar upplýsingar þegar íslenskt leikhúsfólk leggur land undir fót og heimsækir erlendar leiklist- arhátíðir en þar eru gjarnan samankomnir leik- hússtjórar og dramatúrgar sem eru sífellt á höttunum eftir nýjum og spennandi leikritum. Á seinni árum hefur áhugi fyrir listsköpun smá- þjóða aukist til muna og helst það í hendur við áherslur sem lagðar eru á frumsköpun lítilla málsvæða og eru ýmsir möguleikar í boði þegar leitað er eftir stuðningi til þýðinga og kynn- ingar. Einhver sagði einhvern tíma að þeir sem stæðu á jaðrinum horfðu gjarnan inn til miðj- unnar fremur en til annarra á jaðrinum og má það til sanns vegar færa ef horft er til baka um nokkur ár. Með þessu er átt við að íslenskir leikhússtjórnendur eru ekki einir um að leita helst fanga í stórborgum leikhúsheimsins, London, New York, Berlín og París, heldur hafa kollegar þeirra um alla Evrópu horft til þessara kjarna þegar finna á verk sem líkleg eru til vinsælda. Þetta hefur sannanlega verið að breytast og ástæðurnar eru margvíslegar en fyrst og fremst fyrir mjög meðvitaða stefnu- mótun þar sem mikilvægi lítilla menningar- og málsvæða er sett í brennidepil. Allt hefur þetta skilað sér út í umræðuna og það sem mikilvæg- ast er til stjórnvalda sem ráða stefnumótun í menningarmálum hverrar þjóðar með því að ákveða hvert fjármunirnir renna og í hvaða hlutföllum. Viðar Eggertsson leikstjóri ritar athyglis- verðan inngang í nýjasta hefti Theatre in Ice- land 2000–2002 þar sem hann lítur yfir sviðið undanfarin tvö ár og dregur sínar ályktanir af því sem við blasir. Hann telur markverðast við- burða í leikhúslífinu að hið framsækna og stór- huga fyrirtæki Leikfélag Íslands skuli hafa orð- ið gjaldþrota og dregur þá ályktun að með því hafi hugmyndir manna um rekstur einkarekins markaðsleikhúss á Íslandi beðið endanlegt skipbrot. Hann segir: „Það reyndist Leikfélagi Íslands dýrara en áætlað var að halda úti þeirri leikstarfsemi sem auglýst hafði verið í upphafi leikársins (2000–2001) og var staðfesting þess að leikhús á Íslandi geta ekki starfað án op- inbers stuðnings. Leikfélag Íslands sótti reynd- ar um stuðning til bæði Reykjavíkurborgar og menntamálaráðuneytisins samtímis því að kæra Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið fyrir Samkeppnisstofnun fyrir að halda niðri miða- verði í krafti opinbers stuðnings.“ Hér finnur Viðar greinilega einhverja mótsögn í málflutn- ingi hins ráðþrota leikhúss sem vildi greinilega annað af tvennu; að leggja af allan opinberan stuðning við leikhúsrekstur á Íslandi eða njóta hliðstæðs stuðnings og þær stofnanir sem fá föst fjárframlög frá ríki og sveitarfélögum. Hér er átt við Þjóðleikhúsið, Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar, Íslensku óperuna og Hafnarfjarðarleikhúsið. Allt um það virðist kaflanum um frjálsteinkarekið markaðsleikhús í íslenskuleikhúslífi lokið í bili og spurning hvortsú listræna blanda af gömlum og nýj- um miðjusæknum heimsleikbókmenntum sem boðist hefur í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhús- inu nægir okkur ekki hér eftir sem hingað til. Kannski er meiri þörf fyrir sókn inn á önnur og minna könnuð svæði leiklistarinnar en þau sem Leikfélag Íslands plægði svo dyggilega í kjölfar sinna ríkisstyrktu fyrirmynda. Upp í hugann kemur hið nýja leikhúsVesturport sem hefur í þrígang ráðistá garðinn þar sem hann er hvaðókleifastur; fyrst fyrir ári með sýn- ingu á írska leikritinu Diskópakki, sem var gagnmerk tilraun til að kynna framsækinn höf- und af litlu menningarsvæði, algjörlega án um- hugsunar um hvort sýningin myndi njóta að- sóknar hér heima eða ekki. Þeir sem sáu gátu ekki annað en fyllst aðdáun yfir áræði þess unga fólks sem stofnaði Vesturport. Þessu var síðan fylgt eftir með frumsýningu á fyrsta leik- riti ungs höfundar úr leikarastétt, Agnari Jóni, sem sýndi að hann á fullt erindi sem höfundur og þrátt fyrir ákveðna vankanta sem markviss- ari dramatúrgía hefði getað sniðið af er þetta hiklaust eitt forvitnilegasta leikritið sem kom fram á liðnu leikári. Vesturportarar lögðu ekki árar í bát því leikarinn og nú leikstjórinn Hlyn- ur Björn Haraldsson sviðsetti fyrir skemmstu æskuverk Shakespeares, Titus Andronicus, með slíkum sprengikrafti að þeir sem sáu voru dolfallnir, þeir sem misstu af (undirritaður í þeim hópi) verða að naga sig í handarbökin. Allt er þetta tíundað þar sem hugmyndafræðin að baki sýningum Vesturports virðist giska einföld. Þau láta sér í léttu rúmi liggja hvort einhver hefur áhuga á því sem þau eru að gera. Aðalatriðið er að þau hafi ánægju af því og geti dregið af því lærdóm. Komist lengra í list- sköpun sinni. Þetta eru algild sjónarmið sem flestir listamenn myndu sjálfsagt vera tilbúnir að taka undir að einhverju leyti. Hafa verður í huga að Vesturport er ekki rekið eins og þau leikhús sem að ofan voru nefnd og þarfir þess fyrir jafnt og stöðugt streymi fjármagns eru því ekki jafnbrýnar. Þó er ljóst að ekkert leik- hús verður rekið án peninga og sjálfsagt að sköpunargleðin í Vesturporti verði virt að verð- leikum. Það kemur vafalaust fleirum en undirrit-uðum á óvart að á síðustu tveimur leik-árum voru frumsýnd 36 ný íslensk leik-verk. Í þeirri tölu er að finna öll ný leikverk, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna, stutt brúðuleikrit jafnt sem dramatískar heil- skvölds sýningar. Þegar nánar er að gætt kem- ur í ljós að Þjóðleikhúsið frumsýndi 4 ný verk á tveimur árum, auk þess að sviðsetja að nýju Strompleik Halldórs Laxness og eiga þátt í sýningu leikhópsins Bandamanna Edda.ris. Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi 5 ný verk og sviðsetti Kristnihaldið að nýju. Leikfélag Ak- ureyrar frumsýndi þrjú ný leikrit, eitt þeirra (Sniglaveislan) í samvinnu við Leikfélag Ís- lands, og sviðsetti Gullbrúðkaup Jökuls Jak- obssonar og einnig leikritið Ball í Gúttó eftir kanadísku leikhúskonuna Maju Árdal. Leik- félag Hafnarfjarðar frumsýndi 5 ný leikrit og heldur þannig ótrautt við stefnu sína að sýna eingöngu ný íslensk leikverk. Möguleikhúsið bætti fjórum nýjum verkum í sitt stóra safn frumsaminna leikverka fyrir börn og unglinga. Þar hefur nýting lítilla fjármuna verið með ólík- indum útsjónarsöm og til sannkallaðrar hneisu að hið óeigingjarna starf sem þar hefur verið unnið samfellt um 11 ára skeið skuli ekki hafa notið meiri opinberrar viðurkenningar en raun ber vitni. Leikfélag Íslands frumsýndi tvö ný leikverk og átti hlut að því þriðja í samvinnu við LA. Leikhópurinn sem kallar sig The Ice-landic Takeaway Theatre lagði til þrjúný verk og þar eiga þær Ágústa Skúla-dóttir leikstjóri og Vala Þórsdóttir leik- ari og leikskáld mestan heiður af öflugu starfi með létta pyngju. Stoppleikhópurinn lagði til tvö ný leikrit fyrir börn og unglinga og þá má ekki gleyma að minnast á starf þeirra mæðgnanna Hallveigar Thorlacius og Helgu Arnalds sem hafa rekið hvor sitt brúðuleikhúsið við góðan orðstír víða um lönd á undanförnum árum. Strengjaleikhús Messíönu Tómasdóttur hefur lyft grettistaki með því að sviðsetja með stuttu millibili tvær nýjar barnaóperur. Hin síðasta var Skuggaleik- hús Ófelíu eftir Lárus H. Grímsson en þar áður var það Sónata eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Ef halda ætti áfram að telja upp það sem vel hefur verið gert þá má nefna Útvarpsleikhúsið sem hefur verið íslenskum höfundum traustur bakhjarl í frumflutningi nýrra verka og er mið- ur að ekki skuli ríkja fullkominn skilningur á mikilvægi þessa innan stofnunarinnar sjálfrar. Lesendur geta síðan sjálfir dregið sínar ályktanir af þeim tölum sem birtast hér að ofan, en greinilegt er að ekki er beint samhengi á milli þess að njóta stærstu fjárveitinganna og eiga stærstan þátt í framgangi íslenskrar leik- ritunar. Þrjátíu og sex ný leikverk Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Strengjaleikhúsið hefur lyft grettistaki með frumflutningi tveggja barnaópera. Myndin er úr Skuggaleikhúsi Ófelíu. AF LISTUM Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is ÞEGAR maður fær sérað borða setur maðurmatinn upp í munn.Þegar maður fer að sofa þá lokar maður augunum. Þegar maður fer í sturtu þá fer maður úr fötunum. Eða hvað? Ég hef komist að því á ferð- um mínum til Bandaríkjanna, að það eru ekki allir sem fara naktir í sturtu. Réttara sagt fer enginn úr öllu í kvenna- klefanum í sundlaugum (mér er sagt að reyndar gildi annað í karlaklefanum). Bandarískar konur fækka ekki fötum fyrir framan hverja aðra, nekt þyk- ir af einhverjum ástæðum ósæmileg. Þrátt fyrir að ég hafi vitað þetta, en ég bjó í Bandaríkjunum sem barn, þá var ég eiginlega búin að gleyma þessu þegar ég fór fyrst í sund í Kaliforníu í vet- ur. Þá var ég með sundbolinn í poka hjá handklæðinu, sjamp- óinu og því, og klæddi mig úr fötunum eins og maður gerir áður en maður fer í sturtu til að þvo sér áður en maður fer ofan í sundlaug með fullt af öðru fólki. Ég gekk af stað í átt að sturtunni og allt í einu fór mér að líða heldur óþægi- lega. Ég fann hvernig horft var á mig, eða réttara sagt – ekki horft á mig, og gerði mér allt í einu grein fyrir því hvað ég hafði gert. Mér leið eins og ég stæði allsber á miðjum Laugaveginum og hljóp inn á klósett þar sem ég fór í sund- bolinn. Beið aðeins áður en ég fór inn í sturtuklefann. Þvoði mér eins vel og aðstæður buðu upp á og fór svo ofan í laugina. Ég hætti fljótlega að fara í sund. Það gerðist þegar ég áttaði mig á því að auk þessa sérstaka siðs að baða sig í sundfötum, þá baða konurnar sig hreint alls ekki áður en þær fara ofan í laugina (mér er sagt að þetta sé líka svona í karlaklefanum). Þær mæta í sund í sundbolnum innan und- ir fötunum, fara úr fötunum og beint ofan í laug. Þetta ger- ist líka síðdegis eftir langan og sveittan vinnudag – þá vippa þær sér úr dröktunum, í ljós kemur sundbolurinn og þær skella sér beint ofan í laug. Svo koma þær upp úr og þá fara þær í sturtu, í sundbol- unum að sjálfsögðu, en ég hef ekki alveg náð að átta mig á því hvernig þær koma sér úr honum og í fötin þannig að enginn sjái. Ég var mjög reið út í þetta fyrirkomulag þarna í vetur. Ég elska sund, vil helst fara daglega, en mér var fyr- irmunað að svamla um þegar ég hugsaði um allan óþrifn- aðinn. Ég hugsaði með mér að þetta væri enn ein birting- armynd einstaklingshyggj- unnar í Bandaríkjunum. Mað- ur fer nefnilega í sturtu áður en maður fer ofan í af tillits- semi við aðra, maður fer í sturtu eftir að maður kemur upp úr af tillitssemi við sjálfan sig. En svo er spéhræðslan allt önnur saga. Hvað var málið með hana? Nekt er af ein- hverjum ástæðum alveg gríð- arlega viðkvæmt mál í Banda- ríkjunum. Börn sjá foreldra sína ekki nakta (hvorki móður né föður) eftir að þau fá vit og foreldrar sjá börn sín ekki ber eftir að þau fara að klæða sig sjálf. Þannig alast Banda- ríkjamenn ekki upp við að sjá annað fólk bert. Aftur á móti brýst strípalings-hneigðin fram í ýktri mynd öðru hvoru þegar einn og einn ,,brjálæð- ingur“ hleypur allsber yfir íþróttavöll og þegar hópar ,,öfga-frjálslyndra“ (ekki óal- gengir í Kaliforníu) fara svo- kallaðar ,,nektargöngur“ þar sem þeir spranga berir um götur og ,,hneyksla“ með- borgara sína. Mér skilst að Bretar séu líka ansi viðkvæmir fyrir nekt. Þegar ég var í menntaskóla og fór með kór skólans á kóramót í Danmörku, þar sem gist var í stórri ráðstefnumiðstöð og notast við sameiginlegar (kynjaskiptar) sturtur, kynnt- umst við breskum kór. Þar voru krakkar á svipuðum aldri og við og af einhverjum ástæðum líkaði stelpunum í þeim kór ekki alls kostar við stelpurnar í okkar kór. Á ein- hverju stigi málsins heyrðist til nokkurra þeirra þar sem þær voru að baktala okkur við stelpur í enn öðrum kór: ,,Þær eru algjörar hórur! Þær fara allsberar í sturtu!“ Það þarf kannski ekki að taka fram að þær bresku klæddust sund- bolum í sturtu, þó að næsta sundlaug væri í margra kíló- metra fjarlægð. Þá er ótalin sú staðreynd að bandaríska kvikmyndaeft- irlitið fer mun vægari höndum um gróft og viðbjóðslegt of- beldi en ber brjóst, rass eða kynfæri, jafnvel þótt ekkert kynferðislegt komi við sögu. Ég sá 101 Reykjavík á kvik- myndahátíð í Fíladelfíu í fyrravor. Það var ansi gaman að sjá myndina með banda- rískum áhorfendum því þeir hlógu á allt öðrum stöðum en íslenskir áhorfendur. Þá var athyglisvert að verða vitni að viðbrögðum áhorfenda við at- riði þar sem aðalpersónan, Hlynur Björn, stígur upp úr baðkari heima hjá sér. Áhorf- endum til mikillar furðu hafði maðurinn verið allsber í baðinu og þessar einar til tvær sekúndur sem liðu áður en nekt hans var hulin fór taugaveiklunarhlátur/vein um salinn, fólk vissi hreinlega ekki hvernig það átti að vera og ég er ekki frá því að hita- stigið í húsinu hafi hækkað um eins og eina gráðu svona rétt á meðan. Sjálf kippti ég mér ekkert upp við þetta. En það er ekkert að marka, ég er svo mikill dóni – ég fer jú allsber í sturtu. Birna Anna á sunnudegi Morgunblaðið/Jóra Allsber í sturtu bab@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.