Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. ÉG VAR að hlusta á Út- varp Sögu einn morguninn. Í þáttinn hringdi kona sem sagði farir sínar ekki slétt- ar varðandi heilbrigðis- kerfið. Hún þurfti að láta skipta um mjaðmarlið og þegar hún loks komst í að- gerðina, eftir nokkurra ára bið, hafði hin mjöðmin gefið sig vegna langvarandi auk- ins álags. Í dag er konan öryrki, en hún sagðist í þættinum alltaf hafa unnið mikið og vera mjög ósátt við það hvernig komið er fyrir henni. Biðlistar eftir læknis- þjónustu eru samfélaginu mjög dýrir, fyrir utan ómældar þjáningar sem fólk þarf að líða. Kona ein sem ég þekki, sem á aldr- aðan og mjög veikan föður, sagðist ekki hafa komist í vinnu í lengri tíma vegna þess að hún þarf að sitja sólarhringsvakt í hlutverki hjúkrunarfræðings og sjúkraliða til að hugsa um föður sinn. Hún sagði að ekki hefði verið nokkur leið að koma honum á sjúkra- hús, og að ansi hart væri í þessu ríka landi að ekki væri hægt að halda opnu sjúkrahúsi svo vel færi. Hún er aldeilis ekki ein um að þurfa að huga um veika ættingja heima fyrir, jafnvel eru dæmi þess að sjúklingar verða að hugsa um aðra sjúklinga sem eru enn veikari. Fólk er sent heim, slasað eða veikt, til að vera eitt heima þótt það sé ekki fært um það. Kona sem slasaðist illa á öxl kvartaði yfir því að hún hefði farið aftur á sjúkra- húsið þar sem hún sagðist hvorki geta lagst út af eða risið upp hjálparlaust því hún finndi svo til. Henni var þá svarað að bragði að hún ætti einfaldlega að sofa í stól! Það er með ólíkindum hvað fólki er á stundum sýnt mikil lítilsvirðing. Þó eitthvað komi fyrir eigum við ekki að þurfa að upplifa okkur sem félagslegt vandamál. Það eru kosningar næsta vor. – Hugsum okkur vel um áður en við greiðum at- kvæði. Sigrún Á. Reynisdóttir. Munir á hlutaveltu KONA í Hafnarfirði vill koma því á framfæri að hún á til dót á tombólu fyrir duglega krakka. Munina má nálgast í síma 555 4215. Tapað/fundið Armband týndist GULL-LITAÐ armband týndist, líklegast í Smáran- um eða á Selfossi. Úr arm- bandinu standa litlar kúlur með nk. snúningi á milli. Finnandi hringi e.kl. 17 í síma 557 8807. Fundarlaun. Dýrahald Sérstaklega góður köttur ÞRIGGJA ára kisa óskar eftir nýju heimili. Hún er svört með hvítan blett á bringunni, góð við alla og kattþrifin. Hún heitir Evíta og er með eindæm- um góður köttur. Áhuga- samir hafi samband í síma 565 5935 eða 565 1826. Krúttlegir kettlingar NÍU vikna kassavanir kett- lingar, ljúfir og sætir, fást gefins. Kettlingarnir eru barnvanir og óttaleg yndi. Áhugasamir hringi í 565 3076 eða 862 8670. Ástríkt heimili óskast TVEIR fallegir 10 vikna högnar eru að leita sér að nýju heimili. Þeir eru báðir kassavanir og miklar keli- rófur. Dýravinir sem vilja veita þeim gott heimili hafi samband í síma 696 9979. Dokka er týnd HÚN Dokka týndist frá Húsdýragarðinum fyrir verslunarmannahelgi. Hún er fimm ára, smávaxin, grá- bröndótt og sérlega loðin og sæt. Hennar er sárt saknað og eru þeir sem kunna að vita af ferðum hennar beðnir að hafa sam- band í síma 575 7800 eða 822 7811. Hvar er kisa? ÞESSI kisa týndist frá Krummahólum fyrir um tveimur vikum. Hún er tví- lit, svört og hvít og ákaf- lega sárt saknað. Þeir sem vita til ferða hennar eru beðnir að láta vita í síma 555 3480 eða 894 1567. Marglitur kettlingur ÞRIGGJA mánaða gamall, marglitur kettlingur er að leita sér að góðu heimili. Hann er marglitur og af- skaplega fallegur köttur. Hjartagóðir dýravinir mega nálgast kisa í síma 820 2658. Hringdu aftur vegna páfagauks KONA sem hringdi til að spyrjast fyrir um gulan páfagauk í Breiðholtinu 9. ágúst er beðin að hafa sam- band aftur í síma 587 4281. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Þrek og tár Víkverji skrifar... ÍSLANDSKORT Máls og menning-ar voru gerð að umtalsefni hér í dálkinum fyrir nokkru og var þá fundið að ónákvæmni. Því hefur verið komið á framfæri við Víkverja að gagnrýni hans eigi ekki lengur við rök að styðjast því að þau atriði, sem farið var rangt með í þeirri útgáfu kortabókar Máls og menningar, sem Víkverji hafði undir höndum, hafa verið leiðrétt í nýrri útgáfu kortabók- arinnar. Þar er um að ræða nöfn bæja á Reykjanesi í Dalasýslu. Annars vegar höfðu nöfn bæjanna Staðar og Árbæjar víxlast og hins vegar var rangt farið með nafn bæjarins Barma. Nú hefur þetta verið leiðrétt og ber að hrósa útgáfunni fyrir þann metnað að vera vakandi fyrir mistök- um og leiðrétta þau um leið og færi gefst. x x x VÍKVERJI skoðaði á dögunumheimasíðu Flugleiða í Dan- mörku, icelandair.dk, sem honum skilst að sé verðlaunuð síða. Vissu- lega er heimasíðan hin aðgengileg- asta, með upplýsingum um komur, brottfarir, verð og allt annað sem vænta mátti á heimasíðu flugfélags. Það kom Víkverja hins vegar afar spánskt fyrir sjónir að finna einnig á síðunni tölvuleik, sem kynntur er sem fyrsti tölvuleikur Flugleiða á Netinu. Tölvuleikur þessi snýst um hinn teiknaða Halldór, sem hægt er að stjórna þannig að hann hlaupi um í Bláa lóninu og reyni að næla í stúlkur sem skjóta þar upp kollinum. Þegar það tekst, þá missa þær brjóstahöld- in, sem færast Halldóri til tekna sem stig í leiknum. Keppikeflið er auðvit- að að ná sem flestum brjóstahöldum, án þess að álpast ofan í heita pytti í lóninu. Víkverji ætti kannski að vera sjó- aðri en svo að hann furðaði sig á uppátækjum fyrirtækisins, sem not- aði stúlkurnar í lopapeysunni til að auglýsa ferðir til Íslands hér um árið, eða tældi Breta til landsins með því að lofa „dirty weekend“. Nú er það Halldór, sem „gets lucky in the Blue Lagoon“, eins og segir í tölvuleikn- um. Orðasambandið „to get lucky“ er notað af enskumælandi karlrembum þegar þær detta í þann lukkupott að komast yfir konur, og er þá átt við annað og meira en að safna brjósta- höldum. Er ekki kominn tími til að Flugleiðir hætti að gefa í skyn að ís- lenskar konur séu erlendum karl- rembum auðveld bráð? x x x ÞAÐ ER eins og grípi um sig æði áÍslandi þegar verslunarmanna- helgin gengur í garð. Þá tæmist höf- uðborgin og yfir hana færist notaleg ró. Víkverji gekk niður Laugaveginn um kvöldmatarleytið föstudaginn fyrir verslunarmannahelgina og var engu líkara en hann væri kominn til útlanda. Ekki vegna veðurblíðunnar, heldur þess að fyrir utan Víkverja voru þar aðeins útlendingar á ferð. Þannig mátti heyra mælt á frönsku, ítölsku, þýsku og ensku og voru flest- ir sennilega að velta fyrir sér hvað hefði orðið um hina innfæddu. x x x EITT kom Víkverja á óvart umverslunarmannahelgina. Hann hugðist fara á Borgarbókasafnið og skila vænum bókastafla, en kom þá að luktum dyrum. Safnið var lokað alla helgina og má spyrja hvort það sé ekki of langt gengið. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 glæsilegt á velli, 8 and- varp, 9 heilbrigð, 10 lengdareining, 11 hindra, 13 aulann, 15 karldýr, 18 eignarjarðar, 21 álít, 22 vöggu, 23 erfið, 24 fyrir- staðan. LÓÐRÉTT: 2 öndvert, 3 jarða, 4 hefja, 5 henda á lofti, 6 æviskeið, 7 ljómi, 12 blóm, 14 erfiði, 15 hraði, 16 reiki, 17 tími, 18 vilj- ugu, 19 tómri, 20 sagn- orð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 flesk, 4 bitur, 7 gersk, 8 gjótu, 9 lag, 11 töng, 13 græt, 14 æfður, 15 skúr, 17 álma, 20 fat, 22 lydda, 23 rit- að, 24 rindi, 25 rónar. Lóðrétt: 1 fágæt, 2 eyrun, 3 kukl, 4 bygg, 5 tjóar, 6 rautt, 10 auðna, 12 gær, 13 grá, 15 selur, 16 úldin, 18 lát- in, 19 arður, 20 fagi, 21 trúr. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Örfir- isey, Libra Bitland og Ingar Iversen koma á morgun. Hafnarfjarðarhöfn: Örvar kemur í dag, Eld- borg og Bitland koma á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 9 og kl. 13 vinnu- stofa, kl. 14 spilavist. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 myndlist. Púttvöllurinn er opinn kl. 10–16 alla daga. All- ar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–11.30 samverustund. Hjúkr- unarfræðingur á staðnum kl. 11–13. Þriðjudaginn 20. ágúst kl. 8 verður farin skoð- unarferð um Vík og ná- grenni. Uppselt í ferð- ina. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 13 frjáls spilamennska (brids), hárgreiðslu- stofan opin kl. 9–17 alla daga nema mánudaga. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félaags- heimilið Hraunsel verð- ur opnað aftur eftir sumarfrí á morgun mánudaginn 12. ágúst með félagsvist kl. 13.30. Alltaf kaffi könnunni, opið frá 13–17. Á þriðju- dag verður frjáls spila- mennska kl. 13.30 og púttað á Hrafnistuvelli kl 14–16. Orlofsferð að Hrafnagili við Eyjafjörð 19.–23. ágúst. Orlofsferð að Höfðabrekku 10.–13. sept. Skráning og upp- lýsingar í Hraunseli kl. 13–17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Sunnudag- ur: Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids, kl. 13. Hringferð um Norðausturland 17.– 24. ágúst ath. þarf að ganga frá farseðli fyrir 13. ágúst. Fundur verð- ur með leiðsögumanni 15. ágúst kl. 14 í Ás- garði, Glæsibæ. Ath. nokkur sæti laus vegna forfalla. Þjórsárdalur, Veiðivötn Fjallabaks- leið nyðri, 27.–30. ágúst. Staðfesting- argjald þarf að greiða fyrir 14. ágúst. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals 10. sept- ember í 3 vikur og til Tyrklands 30. septem- ber í 12 daga fyrir fé- lagsmenn FEB, skrán- ing er hafin, takmark- aður fjöldi. Skráning hafin á skrifstofunni. Silfurlínan er opin á mánu- og miðviku- dögum kl. 10–12. Skrif- stofa félagsins er flutt í Faxafen 12, s. 588 2111. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Farið verður á Snæfellsnes 15. ágúst. Ekið verður að Helln- um og að Arnarstapa. Á Snjófelli verður súpa og brauð um hádegisbilið. Leiðsögumaður Tómas Einarsson. Lagt af stað frá Norðurbrún kl. 8.30 og teknir farþegar í Furugerði. Upplýsingar í Norðurbrún, sími 568 6960 og Furugerði, sími 553 6040. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á morgunkl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 14 félagsvist. Gerðuberg, félagsstarf. Þriðjudaginn 13. ágúst verður opnað að af- loknu sumarleyfi, fjöl- breytt sumardagskrá, vinnustofur opnar frá 9–16.30 m.a. perlu- saumur, umsjón Kristín Hjaltadóttir. Frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13 boccia, umsjón Óla Stína. Veitingar í Kaffi Bergi. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum kl. 9.30–12. Miðvikudaginn 14. ágúst kl. 15.15 verð- ur myndastund til kynningar á alpa- fjallaferð 1. til 8. sept. á vegum Teits Jón- assonar. Gullsmári, opið alla virka daga kl. 9–17 há- degismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Spiluð félagsvist á mánudögum kl. 20.30. Prjónanámskeið verður 20. ágúst til 17. sept. kl. 13, leiðbeinandi Dóra Sigfúsdóttir. Uppl. og skráning í Gullsmára, sími 564 5260. Hraunbær 105. Á morgun kl. 10 bæna- stund, kl. 13 hár- greiðsla. Postulíns- málun hefst mánudaginn 12. ágúst kl. 9, skráning á skrif- stofu eða í síma 587 2888. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 10 boccia, kl. 13 frjáls spila- mennska, kl. 13.30 gönguferð. Fótaaðgerð- ir. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Vinnu- stofur lokaðar fram í ágúst. Ganga kl. 10. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, handa- vinnustofan opin án leið- beinanda fram í miðjan ágúst. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bók- band, morgunstund kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids frjálst. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerðir. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Félag kennara á eftir- launum. Sumarferð FKE verður farin þriðjudaginn 20. ágúst. Veitingar á Kirkjubæj- arklaustri og í Básnum. Tilkynnið þátttöku í síð- asta lagi 16. ágúst til skrifstofu Kennara- sambands Íslands, Kennarahúsinu við Laufásveg, s. 595 1111. Minningarkort Minningarkort ABC hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561- 6117. Minningargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálp- ar nauðstöddum börn- um. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Barnaspítali Hringsins. Upplýsingar um minn- ingarkort Barnaspítala- sjóðs Hringsins fást hjá Kvenfélagi Hringsins í síma 551-4080. Kortin fást í flestum apótekum á höfuðborgarsvæðinu. Bergmál, líknar og vinafélag. Minning- arkort til stuðnings or- lofsvikna fyrir krabba- meinssjúka og langveika fást í síma 587-5566, alla daga fyrir hádegi. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Samúðar- og heilla- óskakort Gídeonfélags- ins er að finna í anddyr- um eða safnaðar- heimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhús- inu, á skrifstofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeon- félagsins, Vesturgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testa- mentum sem gefin verða 10 ára skólabörn- um eða komið fyrir á sjúkrahúsum, hjúkr- unarheimilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins frást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gengt Langholtsskóla) sími 588-8899. Í dag er sunnudagur 11. ágúst, 223. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir. (Orðskv. 17, 17.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.