Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 4/8 – 10/8
ERLENT
INNLENT
UMBOÐSMAÐUR Al-
þingis hefur í nýlegu áliti
gagnrýnt stjórnsýslu sam-
gönguráðuneytisins. Átel-
ur umboðsmaður ráðu-
neytið fyrir drátt sem
varð á svari við fyr-
irspurnum hans, en svar-
bréf frá ráðuneytinu
barst umboðsmanni rúmu
ári eftir að fyrirspurn var
send ráðherra. Ítrekar
umboðsmaður tilmæli úr
fyrri álitum sem vörðuðu
ráðuneytið og hyggst
vekja athygli Alþingis á
þessu. Í frétt frá ráðu-
neytinu segir að gerðar
hafi verið ráðstafanir til
þess að tryggja skjótari
afgreiðslu en orðið hefur
í þeim tveimur málum
tengdum samgöngu-
ráðuneytinu sem umboðs-
maður hefur fjallað um
nýverið.
LÖGREGLAN í Vest-
mannaeyjum hefur aldrei
lagt hald á jafnmikið
magn af fíkniefnum og
um liðna verslunar-
mannahelgi. Lagði hún
m.a. hald á um 120
grömm af amfetamíni, 40
grömm af kókaíni og 30
e-töflur.
RÁÐAST á í haust í
bólusetningu á um 70 þús-
und börnum og ungling-
um fyrir heilahimnubólgu
af C-stofni. Bólusetja á
ungbörn á fyrsta ári og
allt upp í 18 ára unglinga.
Á RÚMUM mánuði í
sumar hafa sautján konur
leitað til Neyðarmóttök-
unnar vegna kynferð-
islegs ofbeldis. Fimm
komu fram eftir versl-
unarmannahelgi.
Alvarlegt flugatvik
yfir Grænlandi
FLUGVÉL Flugfélags Jórvíkur,
Cessna 404, lenti í byrjun ágúst í alvar-
legu flugatviki yfir Grænlandi er hún
var þar í leiguflugi. Um borð voru níu
farþegar auk flugmanna. Atvikið er til
rannsóknar hjá flugmálayfirvöldum í
Danmörku. Talið er að flugvélin hafi
lent í mikilli ísingu yfir austurströnd
Grænlands. Við það hafi hún fallið úr
þrettán þúsund fetum í tvö þúsund fet.
Stórtjón í eldsvoða
ALLT slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út um kl. þrjú sl. mið-
vikudag eftir að eldur kviknaði í lager í
kjallara húss númer níu við Fákafen í
Reykjavík. Fljótlega varð mikið reyk-
haf í kringum húsið og nágrenni þess.
Á annan tug verslana hefur ýmist
verslunar- eða lageraðstöðu í húsinu,
auk þess sem Reykjavíkurborg hefur
þar geymsluhúsnæði undir listaverk í
eigu Listasafns Reykjavíkur. Talið er
að tjón vegna brunans nemi mörg
hundruð milljónum króna. Meira en
sólarhring tók að slökkva eldinn. Í
fyrstu var óttast að listaverkin hefðu
eyðilagst í eldinum en í ljós kom að
ástand þeirra var betra en búist var
við. Þau virðast að mestu heil.
Aðgerðir vegna
gjaldþrots Nanoq
FORSVARSMENN hóps birgja sem
eiga tugmilljónakröfur í þrotabú Ís-
lenskrar útivistar ehf. (Nanoq) hafa
ákveðið að stefna stjórnarmönnum Ís-
lenskrar útivistar fyrir dóm í þeim til-
gangi að láta reyna á ábyrgð þeirra. Þá
hyggjast þeir óska eftir rannsókn á því
hvort skilasvik hafi átt sér stað.
Skiptastjóri þrotabús Nanoq og
Rekstrarfélag Nanoq hafa komist að
samkomulagi um að kaupverð óveð-
settra lausafjármuna og verðmæta
sem féllu undir kaupsamning þessara
aðila skuli vera 24 milljónir kr.
Innrás í Írak
yfirvofandi?
MARGT bendir til að innrás Banda-
ríkjamanna sé yfirvofandi, ef ekki á
þessu ári þá á því næsta. Saddam Huss-
ein, forseti Íraks, varaði Bandaríkja-
stjórn hins vegar við því á fimmtudag
að innrás í Írak myndi mistakast og
leiða til mikils mannfalls meðal banda-
rískra hermanna.
Fullyrt var í bandarískum fjölmiðl-
um að Hussein hefði nýlega sagt írösk-
um embættismönnum að hann hygðist
verjast hugsanlegri innrás Bandaríkja-
hers með því að safna hersveitum sín-
um saman í stærstu borgum Íraks til að
mannfallið meðal óbreyttra borgara og
bandarískra hermanna yrði sem mest.
Ekki er hins vegar vitað hversu reiðu-
búnir óbreyttir borgarar í Írak eru
reiðubúnir til að deyja fyrir Saddam og
í Washington var haft eftir Sharif Ali
bin Al-Hussein, einum helsta leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Írak, að bæði
hermenn og óbreyttir borgarar biðu
þess eins, að Saddam væri steypt af
stóli.
Á Vesturlöndum eru alls ekki allir á
eitt sáttir um fyrirætlan Bandaríkja-
stjórnar og m.a. sagði Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, á mánudag að það væri „óráð-
legt“ að gera árás á Írak í ljósi „núver-
andi aðstæðna“ í Mið-Austurlöndum.
21 fórst í Kólumbíu
TUTTUGU og einn maður fórst og sjö-
tíu særðust er sprengjur sprungu við
forsetahöllina í Bogota, höfuðborg Kól-
umbíu, á miðvikudag einmitt er Alvaro
Uribe var þar innandyra að sverja emb-
ættiseið sem næsti forseti landsins. Tal-
ið er öruggt að skæruliðar úr marxíska
byltingarhernum (FARC) hafi staðið
fyrir ódæðinu en Uribe hefur heitið því
að taka harkalega á skæruliðunum, sem
berjast gegn stjórnvöldum í Kólumbíu.
Það mun reynast þrautin þyngri en
borgarastríðið í landinu hefur mjög
færst í aukana undanfarnar vikur.
TILKYNNT hefur verið
að Brasilía fái aukna
lánsábyrgð frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, IMF,
er nemur 30 milljörðum
dollara, eða rúmlega
2.500 milljörðum króna.
IMF hefur aldrei fyrr veitt
svo stórt lán.
GONZALO Sanchez de
Losada, auðugur kaup-
sýslumaður sem ólst upp í
Bandaríkjunum, var kjör-
inn forseti Bólivíu öðru
sinni.
SKURÐLÆKNUM í
Bandaríkjunum tókst á
þriðjudag að aðskilja eins
árs tvíburasystur sem
voru með samvaxin höfuð.
Aðgerðin, sem var mjög
áhættusöm, tók 20
klukkustundir.
ÞRÍR biðu bana á föstu-
dag þegar þrír menn köst-
uðu handsprengjum að
spítalakapellu kristinna
manna í bænum Taxila,
ekki langt frá Islamabad,
höfuðborg Pakistans. Einn
árásarmanna féll einnig.
MIKIL spenna hljóp í
samskipti Kína og Taívans
eftir að Chen Shui-bian,
forseti Taívans, gaf til
kynna að hann vildi boða
þjóðaratkvæðagreiðslu
um sjálfstæði landsins.
Kínverjar brugðust
ókvæða við og varð það til
þess að Taívanar drógu í
land.
TALA atvinnulausra í
Þýskalandi fór aftur yfir
fjórar milljónir í júlí og
þykir það draga mjög úr
möguleikum Gerhards
Schröders kanslara á að
ná endurkjöri í þingkosn-
ingunum í haust.
Styrkir úr
Minningarsjóði
Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða
Kristjánssonar
Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum. Markmið sjóðsins er stuðningur við nýj-
ungar í læknisfræði, einkum á sviði heila- og tauga-
sjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma
og öldrunarsjúkdóma. Með umsóknunum skulu
fylgja greinargerðir um vísindastörf umsækjenda, ít-
arlegar kostnaðaráætlanir og upplýsingar um það,
hvernig þeir hyggjast verja styrknum.
Umsóknarfrestur er til 31. október nk. og ber að
senda umsóknir í pósthólf 931, 121 Reykjavík,
merktar: „Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar.“ Stefnt er að því að til-
kynna um úthlutun í lok nóvember nk.
ÁGÚST Benediktsson frá Hvalsá í
Kirkjubólshreppi á 102 ára afmæli í
dag. Hann er fæddur 11. ágúst 1900
og býr á Hrafnistu í Hafnarfirði.
„Ég er nú ekki fréttafróður þótt ég
sé gamall. Ég er farinn að gleyma.
Það sagði ein hjúkrunarkonan við
mig að ég væri elsti maðurinn á
heimilinu og ég ferðaðist mest. Ég
fer þegar strákarnir bjóða mér út í
bæ,“ segir Ágúst en strákarnir eru
fimm synir hans.
Ágúst er fæddur í Steinadal á
Ströndum og ólst þar upp til níu ára
aldurs. Þá var hann lánaður yfir í
Barðastrandarsýslu, eins og hann
orðar það sjálfur. „Það var ekki
verið að spyrja börnin hvort þau
vildu fara eins og núna. Ég átti
bara að fara til að vinna fyrir mér,“
lýsir hann.
Árið 1929 flutti hann að Hvalsá í
Steingrímsfirði, þar sem hann bjó í
43 ár, ásamt konu sinni, Guðrúnu
Einarsdóttur frá Þórustöðum í
Bitrufirði. Guðrún dó fyrir rúmu
ári, 93 ára að aldri.
Heilsuhraustur alla tíð
Þau hjón áttu sjö syni og eru
fimm þeirra á lífi. Afkomendurnir
eru vel yfir sjötíu talsins.
Ágúst var bóndi en stundaði
einnig sjóinn. Hann átti trillu en bú-
ið var lítið, að sögn hans, rúmar
hundrað kindur. Einnig vann hann
hjá bændum á vorin eftir sauðburð
við smíðar. „Búið fór í eyði eftir að
ég lauk búskap, það hefur gengið
manna á milli sem sumarbústaður
síðan,“ bendir hann á.
Ágúst og Guðrún brugðu búi
1972 og fluttu þá til Reykjavíkur,
en flestir synir hans voru þegar
fluttir í bæinn.
Ágúst segist hafa verið heilsu-
hraustur alla tíð, en heilsan hafi þó
versnað töluvert síðastliðin tvö ár.
Hann hefur verið slæmur í maga og
segist ónýtur að ganga því jafn-
vægið sé slæmt. Einnig fær hann
móðu fyrir augun. „Það er voðalega
lítið sem ég geri hér á daginn. Mér
finnst svo slæmt að fá fólk til við-
ræðna hérna, það vill vera sér,“
undirstrikar hann.
Dráttarhestarnir hurfu
fyrir vélunum
Ágúst segir fjölmargt hafa
breyst á þessum árum. „Framfar-
irnar hafa verið gífurlegar. Það var
notuð skófla í staðinn fyrir vél-
arnar,“ nefnir hann og segir að bú-
skaparhættirnir hafi verið að
breytast um það leyti sem hann
hætti búskap. „Dráttarhestarnir
hurfu fyrir vélunum, þær voru að
koma þegar ég var að hætta. Ég
var með orf og ljá mína búskapar-
tíð.“
Ágúst var snemma látinn vinna
og var ekki nema sex ára þegar
hann fór að sitja hjá. Þá trítlaði
hann með nestispokann á bakinu og
sat hjá rollunum þegar lömbin voru
rekin í aðra átt. Níu ára sat hann
einn hjá. „Ég sat alla dagana einn
og mér leiddist svo fyrst eftir að
strákurinn fór sem átti að vera með
mér að ég hafði ekki lyst á að
borða. Ég skildi matinn eftir til að
láta ekki fólkið vita af því, mér þótti
skömm að því að borða ekki. En svo
smálagaðist þetta. Ég sat hjá allt
sumarið og ég man ekki eftir að ég
týndi neinni af rollunum,“ lýsir
hann.
Að sögn hans var skólagangan
lítil og léleg. Hann segir að lítill
tími hafi gefist til lærdóms þar sem
ávallt þurfti að vinna. „Ég hef verið
hluta úr þremur vetrum, þrjá fjóra
mánuði til samans, það er öll skóla-
gangan. Við lærðum að lesa og
skrifa og reikna svolítið. Það var
kennari sem fór á bæina,“ bætir
hann við og segist hafa iðrast þess
oft á fullorðinsárunum að hafa ekki
hlotið meiri menntun. Hann segist
helst hefði viljað læra meiri reikn-
ing.
„Ég veit ekki hverju ég á að
þakka þetta langlífi, bæði vinnu og
góðu fæði, íslenskum mat. Það var
ekki verið að hlaupa í búðirnar til
að kaupa mat þá. Ég borðaði líka
mikið af harðfiski,“ segir Ágúst.
Ágúst Benediktsson er 102 ára í dag
Elstur en
ferðast
mest
Morgunblaðið/Þorkell
Ágúst Benediktsson þakkar vinnu og íslenskum mat langlífi.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að selja
Akureyrina EA 110 til Onward
Fishing Company, dóttur-
félags Samherja hf. í Bret-
landi, og verður skipið afhent í
byrjun september. Sléttbakur
EA, sem Samherji keypti ný-
lega af Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, fer í slipp áður en
hann heldur til veiða á vegum
félagsins og fær nafnið Akur-
eyrin EA 110.
Akureyrin EA, sem er 882
brúttólesta skip, var smíðuð í
Póllandi á árinu 1974. Það var
fyrsta skip í eigu Samherja hf.
og hefur verið gert út sem
frystitogari frá árinu 1983. Í
tilkynningu frá fyrirtækinu
segir, að Akureyrin hafi verið
afar farsælt skip og ávallt verið
meðal aflahæstu skipa lands-
ins. Ekki sé reiknað með að til
uppsagna komi við söluna og
verði sjómönnum boðið pláss á
öðrum skipum félagsins.
Söluverð skipsins er 275
milljónir króna en salan hefur
ekki áhrif á rekstur og efnahag
samstæðu Samherja. Samhliða
því að Onward fær Akureyrina
verður skipinu Normu Mary
skilað til Síldarvinnslunnar en
Onward hefur haft skipið á
leigu frá þeim undanfarin ár.
Akureyrin seld
dótturfélagi
Samherja
í Bretlandi
♦ ♦ ♦
TVEIR menn voru fluttir á slysa-
deild eftir áflog í miðbænum undir
morgun aðfaranótt laugardagsins,
að sögn lögreglunnar í Reykjavík.
Um tvö tilfelli var að ræða og í
því fyrra var maður bitinn í andlit-
ið á bar í miðborginni um fimm-
leytið um morguninn. Hinn mað-
urinn sem þurfti að leita á
slysadeild eftir nóttina var laminn í
andlitið á Lækjartorgi í áflogum
sem þar áttu sér stað um sjöleytið
á laugardagsmorgun og var annar
maður tekinn í vörslu lögreglu eftir
þann atburð.
Áflog
í miðbænum