Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 27
ELIANE Karp, forsetafrú í Perú,
sagðist í gær hafa látið af ráðgjaf-
arstörfum hjá einkabanka í landinu
en fyrir þau hefur hún þegið næstum
eina milljón íslenskra króna í laun á
mánuði. Tengsl Karp við bankann
hafa vakið hneykslan í Perú, m.a.
vegna þess, að bankinn er grunaður
um að tengjast spillingunni í kring-
um fyrrverandi ráðamenn í landinu.
Karp, sem er eiginkona Alejandr-
os Toledos forseta, sagði ekkert
ólöglegt hafa verið við háar launa-
greiðslur til sín og hún neitaði því
jafnframt að um hagsmunaárekstra
hefði verði að ræða; þ.e. að bankinn
hefði getað notað hana til að hafa
áhrif á ákvarðanir forsetans.
Sagði Karp í yfirlýsingu sinni að
ávirðingar á hendur henni um sið-
leysi hefðu verið liður í „pólitískum
hráskinnaleik sem hafði það mark-
mið að skaða forsetahjónin“. Kvaðst
hún leið yfir því að þurfa að segja sig
frá störfum fyrir Wiese Sudameris-
bankann og lýsti sjálfri sér sem fórn-
arlambi „pólitískra ofsókna“.
Fréttaskýrendur segja yfirlýs-
ingu Karps tilraun til að slá striki yf-
ir það uppnám sem varð þegar dag-
blað í Perú greindi frá því í síðustu
viku að Karp hefði starfað fyrir
bankann síðan í janúar 2001.
Töldu margir að laun forsetafrú-
arinnar, sem er mannfræðingur og
hagfræðingur að mennt, væru sví-
virðilega há miðað við þá fátækt sem
allur almenningur í Perú býr við.
Eiginkona
Toledos
hætt í
bankanum
Líma. AFP.
AP
Eliane Karp, forsetafrú í Perú.
SÆNSKIR jafnaðarmenn hafa
gott forskot á borgaraflokkana
samkvæmt síðustu skoðanakönnun
en þingkosningar verða í Svíþjóð
15. september næstkomandi.
Í könnun Temo-stofnunarinnar
fengu jafnaðarmenn stuðning
41,2% kjósenda eða 2,3 prósentu-
stigum meira en í sams konar
könnun í júní. Stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Hægriflokk-
urinn, fékk nú 19,4% en 22,2% í
júní.
Vinstriflokkurinn, kommúnista-
flokkurinn gamli, sem styður
stjórn jafnaðarmanna, fékk 10,1%
og er það svipað og í júní. Kristi-
legi flokkurinn fékk 10,2%, Frjáls-
lyndi flokkurinn 6,8% og Miðflokk-
urinn 6%. Jafnaðarmenn og stuðn-
ingsflokkar þeirra hafa samkvæmt
þessu 8,9 prósentustig umfram
borgaraflokkana.
Fréttaskýrendur segja, að ljóst
virðist af þessu, að Svíar vilji
standa vörð um núverandi velferð-
arkerfi, og hafi ekki látið hrífast
með í hægribylgjunni í Evrópu.
Sænskir jafnaðar-
menn með forystu
Stokkhólmi. AP.
ÁHUGI er á því í nokkrum Afr-
íkuríkjum að fá þangað hvítu
bændurna, sem Robert Mugabe,
forseti Zimbabwe, er að reka af
jörðum sínum. Með því fengju rík-
in ómetanlega þekkingu á nú-
tímabúskap og það gæti auðveld-
að þeim að bægja burt hungur-
vofunni, sem nú ógnar milljónum
manna víða í álfunni.
„Við eigum mikið af vannýttu
landi,“ sagði Andrew Chioza,
þingmaður í Malaví, í gær og
bætti við, að hann hefði fært það í
tal við forseta landsins, að hvítir
bændur yrðu fengnir til að setjast
að í Malaví. Þekking þeirra yrði til
að treysta matvælaframleiðslu í
landinu og auka atvinnu.
Stjórnvöld í Botswana, Zambíu,
Úganda og Mósambík hafa einnig
sýnt málinu áhuga. Mugabe
hyggst reka 2.900 hvíta bændur af
jörðum sínum.
Vilja fá til sín
hvítu bændurna
Blantyre. AFP.
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.