Morgunblaðið - 10.09.2002, Page 4

Morgunblaðið - 10.09.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opnunartímar: Mánud.-föstud. frá kl. 10-18. Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is Audi A6 2.4 V6, f.skr.d. 05.01. 2001, ek. 19.000 km, 4 dyra, sjálfskiptur. Aukahlutir 16" álfelgur, leðurinnrétting, sóllúga o.fl. Verð 3.990.000 Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu NÝ íslensk hugtakaorðabók er vænt- anleg á markað í lok mánaðarins. Ber hún heitið Orðaheimur og er eftir Jón Hilmar Jónsson en JPV-útgáfa gefur bókina út. Höfundurinn er ekki óvan- ur orðabókasmíð því að fyrra verk hans, Orðastaður, kom út fyrir fáum árum. „Orðaheimur er yfirgripsmikið en mjög aðgengilegt verk og er fyrst og fremst ætlað að greiða notendum leið að viðeigandi orðalagi við hin ýmsu tækifæri, bæði í ræðu og riti,“ segir m.a. í frétt frá útgefanda. Bókin hefur að nokkru leyti sama notkunargildi og samheitaorðabók, þó að framsetn- ing og efnisskipan sé gjörólík. Kjarni bókarinnar inniheldur 840 hugtaka- heiti sem vísa til óhlutstæðra fyrir- bæra og snerta aðallega eiginleika, skynjun og framferði mannsins, af- stöðu hans og viðbrögð við umhverfi sínu og mannleg samskipti. Hverju hugtaki fylgir síðan fjöldi orðasam- banda sem tengjast því á mismun- andi vegu og jafnframt er vísað til skyldra hugtaka til frekari glöggvun- ar og fróðleiks. Alls er lýst um 33.000 orðasam- böndum sem flestir kannast við en hafa ef til vill ekki komið fyrir sig í dagsins önn og er bókin um þúsund blaðsíður. Heildarskrá yfir leitarorð „Annar meginhluti bókarinnar er heildarskrá yfir leitarorð sem tryggir beinan aðgang að öllum orðasam- böndum og hugtökum. Hún er stór í sniðum enda er þar gert ráð fyrir að nýta megi hvaða meginorð og orða- samband sem er sem aðgangslykil að því orðafari sem leitað er eftir. Sjálf- stætt gildi þessarar skráar kemur einnig víða í ljós, ekki síst þar sem fjölbreytileg mynd af notkun ein- stakra orða blasir við. Aftast í bókinni er síðan ensk lykilorðaskrá en með henni er gerð tilraun til að byggja brú til þeirra erlendu notenda sem eiga óhægt með að nýta sér aðrar að- gangsleiðir að hugtakalýsingunni. Höfundur hefur unnið að smíði verksins um árabil og hlaut til þess styrki úr Rannsóknasjóði Háskóla Ís- lands, Lýðveldissjóði og Málræktar- sjóði. Hann hóf þegar að leggja drög að efnisöflun árið 1994, eftir útgáfu Orðastaðar, og eins og nærri má geta var víða leitað fanga, söfn Orðabókar Háskólans vógu þar þyngst,“ segir einnig og að leitað hafi verið víða út fyrir þau. Hugtakaorðabók væntan- leg í lok mánaðarins LÖGREGLAN í Reykjavík hefur nú fengið niðurstöður úr DNA-sam- anburðarrannsókn, sem gerð var í Noregi á blóðsýnum úr fórnarlambi árásarinnar á Eiðistorgi um versl- unarmannahelgina og feðgunum þremur sem grunaðir eru um verknaðinn. Frekari úrvinnsla á þessum gögnum stendur yfir. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir feðgunum en stytti það jafnframt um fimm daga. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði framlengt gæsluvarðhaldið til 18. september en Hæstiréttur stytti það til 13. september. Rannsóknin mun vera á lokastigi og féllst Hæstiréttur á að fullnægt væri skil- yrðum til áframhaldandi gæslu- varðhalds. Árásin á Eiðistorgi Niðurstaða DNA-rann- sóknar komin Á HEIMASÍÐU Dagbladet í Noregi kemur fram að að í tvígang hafi flug- menn SAS-véla ekki fylgt skipunum um að hætta við flugtak þar sem þeir væru í árekstrarstefnu við aðrar flugvélar en í fyrra tilvikinu var það Boeing 757-þota Flugleiða sem í hlut átti. Í bæði skiptin, segir í grein Dagbladet, hefði þetta getað endað með ósköpum. Fyrra tilvikið varð á Arlanda-flug- vellinum í nóvember árið 2000 en hið síðara á Gardermoen-flugvellinum í Noregi í janúar á þessu ári. Heyrðu ekki endurteknar skip- anir um að hætta við flugtak Á Arlanda-vellinum átti SAS-vél af gerðinni MD-80 að fara í loftið af norður-suður braut vallarins en á sama tíma var Flugleiðaþotan að undirbúa flugtak af austur-vestur brautinni. Flugumferðarstjórinn sá að þetta gæti skapað mikla hættu og gaf SAS-vélinni skipun um að hætta við flugtak tvisvar sinnum en flug- mennirnir heyrðu ekki skipunina og héldu áfram. Til allrar lukku fór árekstrarvarinn af stað og SAS-flug- mennirnir sáu íslensku þotuna um svipað leyti. Dagbladet segir að SAS-flug- mennirnir hafi því ekki tekið vélina eins skarpt upp og til stóð og verið um 330 metrum fyrir neðan íslensku vélin þegar þær voru næst hvor ann- arri. Ekki liggur fyrir hvers vegna flugmennirnir heyrðu ekki fyrirskip- anir úr flugturni en í SAS-vélinni eru hátalarar og flugmenn því ekki með heyrnartól. Líklegra er þó talið að ástæðan hafi verið sú að bæði flugvélin og flugturninn hafi sent með VHF-útvarpsbylgjum á sama tíma og því ekki heyrt hver til ann- ars. Rannsóknarnefnd flugslysa á Ís- landi hefur fengið bréf vegna atviks- ins í Svíþjóð og mun fylgjast með rannsókn sænskra starfsbræðra sinna. Boeing-vél Flugleiða lenti í flugatviki á Arlanda-vellinum í Svíþjóð Flugmenn SAS- véla heyrðu ekki fyrirskipanir ÞEGAR nokkur hundruð kílóum af 1.600°C heitri málmblöndu var hellt ofan í blauta skál í Járnblendiverk- smiðjunni á Grundartanga á laugar- dagskvöld varð sprenging sem olli nokkru tjóni á verksmiðjuhúsinu og kveikti eld í málmryki sem þyrlaðist upp við hvellinn. Nágranni kallaði til slökkvilið en starfsmenn verksmiðj- unnar þurftu ekki aðstoð við að ráða niðurlögum eldsins. Ingimundur Birnir, framkvæmda- stjóri framleiðslusviðs Íslenska járn- blendifélagsins, segir að hvorki hafi orðið slys á mönnum né tjón á fram- leiðslubúnaði svo nokkru nemi. Þak- plötur skemmdust og hurð brotnaði af völdum sprengingarinnar en Ingi- mundur segir tjónið óverulegt og ekki verði truflun á starfsemi verk- smiðjunnar af hennar völdum. Margreyndur búnaður Sprengingin varð í svonefndri hringekju en á henni eru alls 19 stór- ar skálar. Bræddur málmur er látinn fljóta út í skálarnar og málmurinn er síðan kældur niður með vatni áður en þær eru tæmdar og gerðar klárar til að taka við nýjum skammti. Ingi- mundur segir að svo virðist sem vatn hafi leynst í einni skálinni þegar málmblöndu var hellt í hana og við það hafi orðið öflug gufusprenging. Við sprenginguna þyrlaðist upp ryk sem eldur læsti sig í og höggbylgjan frá sprengingunni braut öryggisgler í stjórnstöð hringekjunnar. Starfs- mann þar sakaði þó ekki og mætti hann til vinnu strax kvöldið eftir. Alls voru 10 manns að störfum í verksmiðjunni þegar sprengingin varð en Ingimundur segir að aðrir hafi ekki verið í bráðri hættu. „Við erum búnir að nota þennan búnað í fjölda ára og það hefur einu sinni orðið gufusprenging en það gerðist með öðrum hætti og annars staðar í húsinu,“ segir hann. Um 15 ár séu liðin frá þeirri sprengingu sem var öflugri en sú sem varð á laugardagskvöld. Ingimundur segir að verið sé að kanna hvað hafi valdið því að raki leyndist í skálinni og at- hugað verði hvort herða þurfi örygg- isreglur. Ljósmynd/Ólafur Ólafsson Þykkur reykur steig upp frá Járnblendiverksmiðjunni og ekki undarlegt að nágranna hafi þótt ástæða til að hringja á slökkvilið. Öflug sprenging kveikti eld í JárnblendiverksmiðjunniELÍN Magnúsdóttir, sem dvelur áDvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,er elsti núlifandi Íslendingurinn að því er næst verður komist en ekki Málfríður Jónsdóttir eins og fram kom í Morgunblaðinu, en Málfríður varð 106 ára á dögunum. Elín verð- ur 107 ára eftir tæpa tvo mánuði en hún er fædd 4. nóvember árið 1895. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni munu aðeins sjö Ís- lendingar sem skráðir eru hér á landi vera fæddir á nítjándu öld en kunna þó væntanlega að vera eitt- hvað fleiri að teknu tilliti elstu Ís- lendinganna sem búsettir eru er- lendis, en upplýsingar um þá liggja ekki alltaf fyrir. Elsti Íslend- ingurinn að verða 107 ára HETTUKLÆDDUR maður réðst inn í verslunina Péturs- búð við Ránargötu rétt fyrir lokunartíma á laugardagskvöld og ógnaði afgreiðslukonu með kúbeini. Hann komast síðan undan með einhverja fjármuni. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík var konan ein við afgreiðslustörf þegar maðurinn réðst þar inn og hafði í hótunum. Lögreglan leitar nú mannsins. Ógnaði afgreiðslu- stúlku ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.