Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 6

Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 6
Við undirritun verksamnings, talið frá vinstri: Ómar Bjarki Smárason frá Jarðfræðistofunni Stapa ehf., Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Bent S. Einarsson, framkvæmdastjóri Jarðborana hf., og Þór Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Jarðborana. ÁKVEÐIÐ hefur verið að bora 1.000-1.200 metra djúpa vinnsluholu eftir heitu vatni á Eskifirði og hefur verið undirritaður samningur þar að lútandi milli Fjarðabyggðar og Jarð- borana. Þetta er fyrsta djúpa vinnsluholan sem boruð er á þessu svæði, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Forsaga málsins er sú að 1999 hófst jarðhitaleit í Fjarðabyggð í átakinu „jarðhitaleit á köldum svæð- um,“ sem styrkt er af Orkusjóði, iðn- aðarráðuneytinu og Byggðastofnun. Boraðar voru 25 grunnar rannsókn- arholur í Fjarðabyggð, þar af 7 á Eskifirði. Fengust jákvæðar niður- stöður í holu við Þverárnar í Eski- firði, á milli Byggðarholts og Eski- fjarðarsels. Haldið var áfram árið 2001 og boraðar tíu holur til viðbótar þeim fyrri, þar af ein 405 metra djúp. Hiti í þeirri holu var 56,5°C og hitastigull í neðri hluta holunnar 90°C/km. Í maí á þessu ári var var þessi hola dýpkuð í 635 metra. Þar var komið í 72°C heitt vatnskerfi, sem er nægilega heitt fyrir hitaveitu til húshitunar. Kostnaður áætlaður 60 milljónir Í framhaldi af þessum árangri ákvað bæjarstjórn Fjarðabyggðar að ráðast í borun vinnsluholu til að láta á það reyna hvort nægilegt magn af heitu vatni sé til staðar í jarðhitakerfinu á Eskifirði til að hita bæinn. Til þess þarf um 25 l/s af 70°C heitu vatni. Gert er ráð fyrir að Orkusjóður láni allt að 60% af fram- kvæmdakostnaði. Kostnaður við borun og rannsóknir á vinnsluhol- unni er áætlaður um 60 milljónir króna. Kostnaður við verkefnið er til þessa tæpar 20 milljónir króna. Jarðborinn Sleipnir verður notað- ur til verksins og er flutningur á bor og búnaði að hefjast frá Þeistareykj- um. Leitað eftir vinnsluhæfu heitu vatni á Eskifirði 1.000–1.200 metra djúp vinnsluhola boruð FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR R. Bjarna- son, yfirleikmynda- teiknari Þjóðleikhúss- ins, er látinn á sjö- tugasta aldursári. Gunnar fæddist 15. nóvember 1932 í Álfa- dal í Mýrarhreppi í Vestur-Ísafjarðarsýslu, sonur Bjarna Ívarsson- ar og Jónu Guðmunds- dóttur. Að loknu gagnfræða- prófi frá Gagnfræða- skóla Austurbæjar nam Gunnar leikmynda- teiknun við Þjóðleik- húsið 1953–56 undir handleiðslu Lár- usar Ingólfssonar og sótti jafnframt námskeið í Handíða- og myndalistar- skóla Íslands. Á árunum 1957–58 stundaði hann nám við Konstfack- skólann í Stokkhólmi. Gunnar lagði stund á íþróttir á sín- um yngri árum og varð m.a. Íslands- meistari í hástökki drengja árið 1951 og Íslandsmeistari í körfuknattleik með ÍR árin 1954 og 1955. Þá lék hann handknattleik með ÍR árin 1950–60 og var tvisvar valinn í Reykjavíkurúrval í þeirir íþrótta- grein. Gunnar starfaði við Þjóðleikhúsið allt frá árinu 1954 sem sviðsmaður og ljósamaður samhliða náminu en að- allega við leikmyndagerð. Hann var fastráðinn leikmyndateiknari við leikhúsið í tvo áratugi en starfaði síðan sjálf- stætt á eigin vinnustofu um árabil. Hann var hönnuður fjölda vöru- sýninga svo sem iðn- sýninga, búvörusýn- inga, matvælasýninga og margskonar sérsýn- inga. Þá hélt hann fjölda einkasýninga á málverkum sínum og tók þátt í samsýning- um. Hann kom aftur til starfa sem yfirleik- myndateiknari Þjóð- leikhússins 1989 og starfaði þar til dauðadags. Gunnar vann á ferli sínum leik- myndir og búninga við hartnær fimmtíu leiksýningar í Þjóðleikhús- inu. Meðal þeirra má nefna Mann og konu, Pilt og stúlku, Skugga-Svein, Á ystu nöf, Eftir syndafallið, Stromp- leikinn, Prjónastofuna Sólina, Galdra-Loft, Fiðlarann á þakinu, Maríu Stúart, Gísl, Ödipus konung og óperuna Tosca. Gunnar starfaði mikið að fé- lagsmálum í gegnum tíðina og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á þeim vett- vangi. Hann var sæmdur margvísleg- um viðurkenningum fyrir störf sín. Gunnar var kvæntur Hrönn Aðal- steinsdóttur og eignuðust þau tvö börn. Andlát GUNNAR R. BJARNASON GRUNSAMLEGUR bakpoki, sem fannst í strætisvagnaskýli á varn- arsvæðinu í Keflavík, var skotinn í sundur með vélmenni Landhelg- isgæslunnar í gær. Töluverður viðbúnaður var við- hafður þegar bakpokinn fannst og var talið að sprengja gæti verið í honum. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir út um klukkan 14 og fóru þrír á stað- inn, en herlögregla Varnarliðsins sá um að loka svæðinu í a.m.k. 200 metra radíus frá strætisvagnaskýl- inu. Auk þess voru nærliggjandi hús rýmd. Þegar bakpokanum hafði ver- ið eytt var svæðið opnað á ný. Öryggiskröfur hafa verið hertar mjög á varnarsvæðinu en á morgun, miðvikudag, er liðið ár frá hryðju- verkaárásunum á Bandaríkin. Ljósmynd/Hilmar Bragi Hús voru rýmd af öryggisástæðum og lokað fyrir umferð um svæðið í kjölfar þess að bakpokinn fannst. Grunsam- legur bak- poki skot- inn í sundur SVEINN Skorri Höskuldsson prófessor lést í Reykjavík 7. september síðastlið- inn. Hann var 72 ára að aldri. Sveinn fædd- ist á Sigríðarstöðum í Hálshreppi í Suður- Þingeyjarsýslu 19. apríl árið 1930. For- eldrar hans voru Sól- veig Bjarnadóttir hús- freyja og Höskuldur Einarsson bóndi og hreppstjóri. Sveinn lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1950 og MA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands árið 1958. Þá var hann við nám í dönskum bókmennt- um við Kaupmannahafnarháskóla árið 1958–1959, nám í enskum bók- menntum við Manitoba-háskóla í Winnipeg árið 1960–1961 og nám í almennri bókmenntasögu og poetik við Háskólann í Uppsölum árin 1964–1967. Þá má nefna rannsókn- arstörf við Kaupmannahafnarhá- skóla, við Manitoba- háskóla og í Þýska- landi. Sveinn starfaði sem kennari í íslensku við Iðnskólann á Akureyri 1949–1950, bókari hjá fjármálaráðuneytinu 1952–1956, kennari í íslensku við Haga- skóla, kennari í ís- lensku og Íslandssögu við MR 1959–1960 og 1961–1962 og lektor í íslensku máli og bók- menntum við háskól- ann í Uppsölum árin 1962–1968. Hann var lektor í ís- lenskum bókmenntum við Háskóla Íslands 1968–1970 og prófessor við sama skóla frá árinu 1970. Sveinn gegndi fjölda trúnaðar- starfa tengdra starfi sínu. Eftir hann liggja nokkrar fræðibækur auk þess sem hann stjórnaði útgáfu fjölmargra rita. Eftirlifandi eiginkona Sveins er Vigdís Þormóðsdóttir og áttu þau fjögur uppkomin börn. SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON AÐGÆTNIR skipverjar á Skógar- fossi, skipi Eimskipafélagsins, fundu laumufarþega í lest skipsins nokkru áður en skipið lagði af stað frá Reykjavík áleiðis til Kanada á föstudagskvöld. Um er að ræða albanskan karlmann sem hefur verið í hælismeðferð hér á landi, skv. upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Haukur Már Stefánsson, for- stöðumaður skiparekstrardeildar Eimskipa, segir talsverð brögð að því að menn reyni að lauma sér um borð í skip félagsins og því er leitað mjög vandlega í skipinum áður en lagt er úr höfn og eftirlit hefur ver- ið hert með hafnarsvæðinu. Á síð- ustu 5 árum hafa fundist fjórum sinnum um borð og fleirum hefur verið vísað frá við skipshlið. Þá hafa nokkrir verið stöðvaðir á at- hafnasvæði skipafélagsins með ferðatöskur meðferðis. Nokkrir hafa þó sloppið í gegnum eftirlit Eimskipafélagsmanna og hefur fé- lagið þurft að greiða kostnað við að flytja menn til baka, til þess lands þar sem þeir komu um borð. Kom- ist laumufarþegar vestur um hafi, til Bandaríkjanna eða Kanada, get- ur skipafélagið auk þess þurft að greiða háar fjársektir en þessi lönd eru áfangastaður flestra þeirra sem lauma sér óséðir um borð í skip. Þó eru dæmi þess að Íslend- ingar gerist laumufarþegar til að komast til föðurlandsins og fyrir nokkru reyndi danskur maður að komast frá Kanada til Danmerkur. Fundu laumufarþega í lest Skógarfoss Leitað er vandlega í skipunum áður en þau leggja úr höfn SAMKVÆMT nýjum tölum frá Hagstofunni voru jafnmargar gisti- nætur til erlendra ferðamanna seld- ar á höfuðborgarsvæðinu fyrstu sex mánuði þessa árs og á sama tíma í fyrra. Á landsbyggðinni fjölgaði þessum gistinóttum um 3% fyrstu sex mánuðina og var fjölgunin öll í maí og júní. Gjaldeyristekjur fyrstu sex mánuðina jukust einnig milli ára, eða úr 14,3 í 14,7 milljarða króna. Bandarískum ferða- mönnum fjölgar að nýju Í tilkynningu frá Samtökum ferða- þjónustunnar, SAF, segir að það veki athygli að eftir mikla fækkun Bandaríkjamanna í hópi erlendra ferðamanna hér á landi frá því í sept- ember 2001 hafi þeim byrjað að fjölga á ný í maí á þessu ári. Miðað við maí og júní sl. fjölgaði þeim um 12% í samanburði við sömu mánuði árið áður. Samkvæmt tekjukönnun samtak- anna var herbergjanýting í Reykja- vík 90% í nýliðnum ágústmánuði, jókst úr 88,8% frá fyrra ári. Með- alverð hækkaði um 2%. Meðalher- bergjanýting á landsbyggðinni var 78,5%, jókst um 1 prósentustig milli ára. Meðalverð hækkaði þar aftur á móti um 10%. Samtök ferðaþjónustunnar segja herbergjanýtingu á landinu öllu fyrstu átta mánuði ársins hafa að meðaltali verið þá sömu og á síðasta ári. Auknar tekjur af ferðamönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.