Morgunblaðið - 10.09.2002, Síða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 15
www.islandia.is/~heilsuhorn
Jurtaestrógen
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Jurtaestrógen úr rauðsmára
fyrir konur á breytingaskeiði
(ath. aðeins einn belgur á dag)
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
AKUREYRIN EA 110 kom til hafn-
ar á Akureyri sl. laugardag úr sinni
síðustu veiðiferð fyrir Samherja hf.
Skipið var á veiðum suður af Græn-
landi og kom til hafnar með full-
fermi af úthafskarfa og er aflaverð-
mætið rúmar 60 milljónir króna.
Akureyrin var fyrsta skipið sem
Samherji eignaðist en það hét áður
Guðsteinn GK.
Akureyrin skipar því sérstakan
sess í sögu Samherja og brotthvarf
hennar úr skipastólnum markar
ákveðin tímamót í útgerðarsögu fé-
lagsins. Akureyrin verður þó áfram
tengd Samherja en skipið hefur
verið selt Onward Fishing Comp-
any, dótturfélagi Samherja í Bret-
landi.
Akureyrin EA 110 hefur fram á
þennan dag verið afar farsælt skip
og hefur ár eftir ár verið meðal
þeirra íslensku skipa sem skilað
hafa hæstu aflaverðmæti. Kristján
Vilhelmsson útgerðarstjóri Sam-
herja sagði skipið hafa reynst mjög
vel alveg frá upphafi. Skipið er
meðal þeirra fyrstu hér á landi sem
útbúið var til að fullvinna og frysta
aflann um borð.
Skipið var smíðað í Póllandi 1974
og hefur verið gert út sem frysti-
togari frá árinu 1983. Það var lengt
og hækkað 1995 og er nú tæpir 72
metrar að lengd og 1.318 brúttó-
tonn. Stefán Ingvason skipstjóri á
Akureyrinni EA mun taka við skip-
stjórn á Víði EA 910.
Samherji keypti í sumar Sléttbak
EA, sem áður var í eigu Útgerð-
arfélags Akureyringa og hefur
skipið fengið nafnið Akureyrin EA
110. Unnið hefur verið að end-
urbótum á skipinu, auk þess sem
það hefur verið málað í litum Sam-
herja. Að sögn Kristjáns útgerð-
arstjóra er ráðgert að „nýja“ Ak-
ureyrin haldi til veiða í lok þessarar
viku. Skipstjóri verður Guðmundur
Freyr Guðmundsson en hann var
áður með Hjalteyrina EA.
Akureyrin EA komin úr sinni síðustu veiðiferð á vegum Samherja
Skipið
ávallt
reynst
mjög vel
Morgunblaðið/Kristján
Unnið við löndun úr Akureyrinni EA í Akureyrarhöfn.
ELSA B. Friðfinnsdóttir, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra, segir að
nú fari í ráðuneytinu fram skoðun á
því hvernig hinar ýmsu heilbrigðis-
stofnanir hafi gert svonefnda stofn-
anasamninga og eins hvað kostnaður
hefur aukist mikið þeim samfara.
Eins verður athugað hvort umrædd-
ar stofnanir hafi átt fyrir þessum
samningum eða hvort þeir skýri að
hluta til hallarekstur þeirra.
Ekki hefur verið gengið frá stofn-
anasamningi við starfsfólk á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri, ein-
faldlega vegna þess að peningar
fyrir þeim eru ekki til, að því er fram
kom í samtali við Halldór Jónsson,
forstjóra FSA, í Morgunblaðinu í lið-
inni viku. FSA er ein af fáum ef ekki
eina heilbrigðisstofnunin sem ekki
hefur gengið frá stofnanasamningi
við sitt starfsfólk. Vaxandi óróa gæti
meðal þess enda búa starfsmenn
Landspítala – háskólasjúkrahús við
betri kjör af þessum sökum. Áætlað
er að FSA vanti um 60 milljónir
króna til að geta staðið undir sam-
bærilegum stofnanasamningi og í
gildi er syðra.
Elsa sagði að stefnt væri að því að
ljúka athuguninni í lok þessarar
viku. Þá kæmi væntanlega í ljós
hvernig stofnanir hefðu fjármagnað
þessa samninga. Ef niðurstaðan yrði
sú að þeir væru innifaldir í halla-
rekstri þeirra sem hugsanlega yrði
bættur síðar væri líklegt að FSA
fengi sambærilega leiðréttingu.
Aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra
Stofnana-
samningar
í athugun
VESTNORRÆNA ferðakaupstefn-
an, Vest-Norden, hefst í Íþróttahöll-
inni á Akureyri á morgun, 11. sept-
ember, og lýkur á fimmtudag. Þetta
er í 17. sinn sem kaupstefnan er
haldin en hún er sérstaklega ætluð
aðilum í ferðaþjónustu. Löndin þrjú
sem mynda Vest-Norden, Ísland,
Færeyjar og Grænland, skiptast á að
halda ráðstefnuna. Um 500 manns
frá rúmlega 20 þjóðlöndum sækja
kaupstefnuna. Markmiðið er að
kynna þeim sem selja ferðir til þess-
ara landa það helsta sem í boði er í
löndunum þremur.
Ferðamálaráð Íslands sér um
skipulagningu ferðakaupstefnunnar.
Þetta er í þriðja sinn sem hún er
haldin á Akureyri, en stefna ráðsins
er að dreifa viðburðum á þess vegum
um landið þannig að gestum gefist
kostur á að kynnast af eigin raun
þjónustunni sem víðast.
Í fyrstu voru gististaðir og fyrir-
tæki á samgöngusviðinu nánast ein-
ráð í hópi sýnenda, en kaupstefnan
hefur stækkað með árunum og nú
tekur mun breiðari hópur þátt. Nýir
kaupendur hafa boðað komu sína nú,
m.a. frá Bandaríkjunum og löndum
sem ekki hafa áður selt ferðir til
landanna þriggja.
Tímasetning kaupstefnunnar, en
hún hefst 11. september sem fyrr
segir er tilviljun, en frá henni var
gengið á síðasta ári, áður en hinar
stórfellu árásir voru gerðar á Banda-
ríkin.
Vest-Norden haldin í Íþróttahöllinni
Um 500 gestir
sækja ferða-
kaupstefnuna
ÞORVALDUR Ingvarsson lækn-
ingaforstjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri sagði það
mjög sjaldgæft að upp kæmi sýk-
ing vegna hnéspeglana. „Sýking-
ar eftir svona skurðaðgerðir eru
því miður vel þekktar og við
vörum við því en það er í einni af
hverri 1.000 aðgerðum sem slíkt
kemur upp hér,“ sagði Þorvaldur.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu fyrir helgina fengu tveir
knattspyrnumenn í KA, þeir Júl-
íus Tryggvason og Hlynur Jó-
hannsson, sýkingu eftir hnéað-
gerðir í sumar og þurftu í
kjölfarið að liggja sjúkrahúsi í
rúma 40 daga, Júlíus í 25 daga og
Hlynur í 16 daga. Að auki þurfti
Júlíus í fjórar aðgerðir til viðbót-
ar og Hlynur í þrjár aðgerðir.
Þorvaldur sagði að menn hefðu
ekki neinar skýringar á því hvers
vegna þessir tveir knattspyrnu-
menn fengu báðir sýkingu eftir
aðgerðirnar. „Sem betur er þetta
sjaldgæft en það er engu að síður
skelfilegt fyrir hvern þann sem
lendir í slíku.“
Þorvaldur sagði að árlega
væru gerðar 300–400 svona hné-
aðgerðir á FSA og hann sagðist
aðeins muna eftir tveimur tilfell-
um þar sem sýkingar komu upp,
frá árinu 1982, fyrir utan þessi
tvö tilfelli nú í sumar.
Hnéaðgerðir á FSA
Sýking kemur upp
í einni af hverjum
1.000 aðgerðum