Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 16
SUÐURNES
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁÆTLAÐ er að á milli 25 og 30
þúsund manns hafi fylgst með há-
punkti Ljósanætur í Reykjanesbæ,
þegar ljósin voru tendruð á Berg-
inu og víkingaskipið Íslendingur
sigldi inn í smábátahöfnina undir
neistum flugeldanna. Dagskrá
Ljósanætur stóð að þessu sinni yfir
í fjóra daga, frá fimmtudegi til
sunnudags, og tókst með eindæm-
um vel, að sögn forráðamanna.
Aðaldagur Ljósanætur var á
laugardaginn og þann dag var
bærinn baðaður sólskini. Bæj-
arbúar voru líka fljótir að taka við
sér og strax upp úr hádegi þusti
fólk niður í bæ til að taka þátt í
dagskránni. Börnin voru fljót að
fylla leiktækin sem komið hafði
verið fyrir víðsvegar um miðbæ-
inn, tónlistin ómaði og hægt var að
njóta menningar og lista í nær
hverju húsi. Allskyns furðuverur
léku lausum hala og víkingarnir
létu sig ekki vanta, enda hátíð-
arhöldin í ár að stórum hluta helg-
uð víkingaskipinu Íslendingi og
komu þess í höfnina.
Um kvöldið söfnuðust gestir
saman í gamla bænum í Keflavík
til þess að fylgjast með hápunkti
dagskrárinnar og taka undir í
bryggjusöng. Það var elsti núlif-
andi Bergbúinn, Matthildur Magn-
úsdóttir, sem tendraði ljósin á
Berginu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósanótt náði hámarki þegar kveikt var á lýsingu Bergsins og víkingaskipið Íslendingur sigldi að landi. Sést
það upplýst lengst til hægri. Glæsileg flugeldasýning björgunarsveitarmanna vakti hrifningu Ljósanæturgesta.
20–25 þúsund á Ljósanótt
Unga fólkið skemmti sér vel á Ljósanótt, eins og sjá má. Mannfjöldi var í bænum fram á nótt.
Reykjanesbær Ljósanótt tókst með
eindæmum vel.
Svanhildur Eiríks-
dóttir upplifði
stemmninguna.
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra var á yfirreið um Suður-
nesin í gær. Hann segir viðurkennt
að Fjölbrautaskóli Suðurnesja í
Keflavík eigi við húsnæðisvanda að
etja en hann komi síðar í skólann til
að athuga það mál betur.
Menntamálaráðherra skoðaði
grunnskóla, fjölbrautaskólann og
söfn í bæjunum á Suðurnesjum, auk
Rannsóknastöðvarinnar í Sand-
gerði, og sat ráðstefnu Miðstöðvar
símenntunar í Eldborg.
Tómas Ingi sagði að það vekti sér-
staka athygli hvað vel væri búið að
grunnskólunum á þessum stöðum.
Varðandi Fjölbrautaskóla Suður-
nesja sagði ráðherra að skólinn ætti
við húsnæðisvanda að etja en hann
myndi koma síðar í mánuðinum til
að fjalla frekar um það mál. Bygg-
ingarnefnd skólans og sveitarstjórn-
armenn hafa verið að þrýsta á rík-
isvaldið að heimila þeim að hefja
framkvæmdir við stækkun skólans
en ráðuneytið og heimamenn eru
sammála um hversu stór sú bygging
skuli vera. Tómas Ingi kvaðst von-
ast til að línur skýrðust í þessu máli
þegar hann kæmi í skólann aftur.
Hann gat þess einnig að fjölbrauta-
skólinn ætti eins og fleiri framhalds-
skólar í erfiðleikum vegna takmark-
aðrar aðsóknar í ákveðnar grunn-
greinar verknáms sem þó væru
mikilvægar fyrir atvinnulífið. Þörf
væri á að glíma við það mál á lands-
vísu.
Húsnæðisþörf
fjölbrautaskól-
ans viðurkennd
Suðurnes
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Menntamálaráðherra, alþingismenn og fulltrúar bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar á tali við Ólaf Jón Arnbjörnsson, skólameistara Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, f.v.: Árni Sigfússon, Böðvar Jónsson, Árni Ragnar
Árnason, Kristján Pálsson og Tómas Ingi Olrich.
LAXNESS-FJÖÐRIN, listaverk
Erlings Jónssonar, var afhjúpuð við
hátíðlega athöfn í Keflavík sl. laug-
ardag, á Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Listaverkið er gjöf til Bókasafns
Reykjanesbæjar frá stuðningshópi
að listasafni Erlings Jónssonar.
Stuðningshópurinn færði bóka-
safninu verkið að gjöf á aldarafmæli
Halldórs Laxness sl. vor til heiðurs
skáldinu. Í sumar var fjöðrin steypt í
brons og sett á stöpul úr Bohus-
graníti. Verkinu var komið fyrir á lóð
Miðstöðvar símenntunar á Suður-
nesjum, þar sem það nýtur sín
einkar vel. Fjölmargir aðilar, bæði
félagasamtök og fyrirtæki, hafa lagt
fé í verkið.
Erlingur Jónsson hefur lengi ver-
ið mikill aðdáandi Halldórs Laxness
og eiga mörg verka Erlings rætur í
verkum Halldórs. Líta má á „Lax-
ness-fjöðrina“ sem tákn fyrir þau
áhrif sem skáldið hafði með skrifum
sínum, ekki bara á Erling sjálfan
heldur þjóðlífið allt.
Erlingur sagði frá kynnum sínum
af skrifum Nóbelskálds Íslendinga,
Halldórs Laxness og tilurð lista-
verksins. Fyrirmyndin er arnarfjöð-
ur sem Erlingur fann í Þorskafirði
enda gat hann þess að haförn sem
flaug yfir um það leyti hafi minnt sig
mjög á skáldið.
Fram kom við athöfnina að Bóka-
safn Reykjanesbæjar mun í framtíð-
inni tileinka Erlingi eitt kvöld á ári
og kynna listaverk hans.
Sigríður dóttir skáldsins afhjúpaði
listaverkið og var móðir hennar,
Auður Laxness, viðstödd ásamt
listamanninum, Erlingi Jónssyni,
bæjarfulltrúum og fjölda annarra
gesta.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Laxness-fjöðrin
afhjúpuð
Keflavík
LJÓSANÓTT fór ágætlega fram, að
mati lögreglunnar í Keflavík, miðað
við þann mikla mannfjölda sem sótti
hátíðina. Lögreglan telur að fleiri
hafi verið á Ljósanótt nú en á síðasta
ári þegar talið var að hátt í 20 þús-
und manns hafi komið saman í Gróf-
inni í Keflavík. Samkvæmt því megi
búast við að gestafjöldinn hafi verið
20-25 þúsund að þessu sinni.
Fjórar líkamsárásir voru kærðar
til lögreglu aðfaranótt sunnudags.
Þrjár voru í eða við veitingastaðinn
H-38 við Hafnargötu í Keflavík og
ein í Stapanum í Njarðvík. Talið var
að einn maður hafi nefbrotnað í þess-
um árásum og var hann fluttur á
Heilbrigðistofnun Suðurnesja.
Aðstandendur Ljósanætur ráku
upplýsinga- og öryggismiðstöð.
Þangað færði lögreglan níu fjórtán
til sextán ára unglinga sem brutu
útivistarreglur og létu foreldrana
sækja þá. Fleira var um að vera en
Karl Hermannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn segir að ekki hafi fleiri
atvik komið til kasta lögreglunnar en
oft gerðist um venjulega helgi. Sé
það vel sloppið miðað við þann mikla
mannfjölda sem kom saman á Ljósa-
nótt. Þannig hafi verið troðfullt á öll-
um veitingastöðum um nóttina og
margir á ferli á götunum.
Fjórar lík-
amsárásir
kærðar
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦