Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 23
STARFSMENN bresku versl-
unarkeðjunnar Marks & Spencer
vinna nú að framleiðslu á flíkum
sem verða þeim eiginleikum
gæddar að geta varað við yfirvof-
andi tískuslysi. Viðvörunin verður
gefin af tölvukubbi sem koma á
fyrir í fötunum og ætlað er að
skanna allar flíkur viðkomandi til
þess að ganga úr skugga um að
þær eigi saman. Viðvörun við
óæskilegri litasamsetningu væri
gefin með hljóðmerki, svo dæmi sé
tekið.
Hugsanlegt er að hægt verði að
nota tölvukubb til þess að vara við
fleiri óhöppum, til dæmis ef flíkur
eru settar í þvottavél og stillt er á
of háan hita. Einnig er hermt að
forsvarsmenn M&S séu að athuga
hvort koma megi tölvukubbum
fyrir í matvælum sem vari neyt-
endur við sé varan komin fram yf-
ir síðasta söludag.
Tæknibylting í
stað íhaldssemi
Netmiðillinn thisislondon.co.uk
vitnar í viðtal í dagblaðinu The
Times við nýjan aðalfram-
kvæmdastjóra M&S, Roger Holm-
es. Kveðst hann ætla taka tæknina
í þjónustu verslunarinnar, sem
hingað til hefur verið þekktari
fyrir íhaldssemi. „Ég hef fullan
hug á að nýta tækninýjungar og
eftir því sem tölvukubbar verða
ódýrari er auðveldara að koma
þeim fyrir í matvælaumbúðum og
fatnaði,“ er haft eftir Holmes í
Times.
„Til skamms tíma var það við-
horf manna að tæknin myndi ekki
leyfa slíkar hugmyndir fyrr en
eftir fjöldamörg ár, en nú er hins
vegar svo komið að við verðum að
framkvæma og láta reyna á þessa
möguleika,“ segir hann.
Reuters
Marks & Spencer hefur skotist fram úr keppinautum sínum, sam-
kvæmt fréttum. Nú hyggst nýr aðalframkvæmdastjóri láta þróa
tölvukubba í matarumbúðir og föt til hægðarauka fyrir neytendur.
Flíkur sem vara við
yfirvofandi tískuslysi
Í VERSLUNUM Húsasmiðjunnar
hefur undanfarið staðið yfir átak
gegn hnupli, ránum og tjóni af völd-
um þeirra sem reyna með öðrum
hætti að svíkja út verðmæti. Allir
starfsmenn hafa tekið þátt í fræðslu
um forvarnir í þessu skyni og nauð-
synlegum búnaði hefur verið komið
fyrir í verslunum. Forvarnarverk-
efnið nefnist Varnir gegn vágestum
og er rekið í samstarfi SVÞ, Samtaka
verslunar og þjónustu, og lögregl-
unnar í Reykjavík, að því er segir í
fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur að um 50
verslanir í Reykjavík og nágrenni
hafi tekið þátt í verkefninu og það
verið vottað af lögreglunni.
Auk þess að fyrirbyggja hnupl
hafa starfsmenn tekið þátt í ránsæf-
ingum, lært á varnir gegn peninga-
fölsunum, kortasvindli og ýmsu öðru
sem vágestir verslana stunda í hagn-
aðarskyni.
Í sumar fengu fjórar af verslunum
Húsasmiðjunnar á höfuðborgar-
svæðinu vottun. Þetta eru verslan-
irnar í Grafarvogi, Ármúla, á Dalvegi
og verslunin vestur í bæ. Þessar
verslanir eru allt svokallaðar
klukkubúðir en þær hafa lengri opn-
unartíma en aðrar Húsasmiðjuversl-
anir. Vottunin felst í því að fest er
merki verkefnisins við dyr verslun-
arinnar til varnar því að vágestir
reyni að stela eða svíkja út verðmæti
á annan hátt.
Varnir
gegn
vágestum
VERSLUNIN Polarn & Pyret í
Kringlunni hefur hafið sölu á sér-
sniðnum fatnaði fyrir konur sem eru
með barn á brjósti. Um er að ræða
flíkur þar sem búið er að sníða stykki
yfir brjóstið og hægt að lyfta því auð-
veldlega upp. Flíkin er þannig hönn-
uð að hún er engu að síður venjuleg
útlits. Í haustlínunni eru kjólar, bolir
og peysur, bæði úr bómull og flís svo
og náttföt.
Fatnaður fyr-
ir konur með
barn á brjósti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
18
40
1
0
9/
20
02
Klakalaust alla leið
heim að húsi
Verð áður 65 kr./m
Verð nú 46 kr./m
Snjóbræðslurör
FISKBÚÐIN VÖR
Höfðabakka 1, sími 587 5070
—-Sjáumst hress—-
Ýsuflök
790kr. kg
Stór og falleg