Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 24
ERLENT 24 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, styrkti stöðu flokks síns, Jafnaðarmannaflokksins, í kosningabaráttunni í Þýskalandi með góðri frammistöðu í sjónvarps- kappræðum við helsta keppinaut sinn, Edmund Stoiber, kanslaraefni kosningabandalags kristilegu flokk- anna, CDU og CSU, á sunnudaginn. Samkvæmt niðurstöðum skoðana- kannana er gerðar voru eftir kapp- ræðurnar þótti Schröder meira sannfærandi, viðkunnanlegri og hæfari en Stoiber. Rúmlega 15 millj- ónir áhorfenda fylgdust með útsend- ingunni. Samkvæmt einni skoðanakönnun studdu 49% áhorfenda Schröder og 26% Stoiber, og samkvæmt annarri könnun studdu 50% Schröder og 29% Stoiber. „Kanslarinn hefur áunnið sér traust fólks,“ sagði Franz Müntefering, framkvæmdastjóri Jafnaðarmannaflokksins. Að minnsta kosti 16% kjósenda hafa enn ekki gert upp hug sinn. Thomas Goppel, framkvæmda- stjóri flokks Stoibers, Kristilega sósíalsambandsins (CSU) sem er systurflokkur Kristilegra demó- krata (CDU) í Bæjaralandi, sagði að Stoiber hefði talað um fleiri málefni og kvaðst sannfærður um að banda- lag kristilegu flokkanna myndi sigra í kosningunum, er fram fara 22. september. Um þær tölur sem sýni að Schröder sé vinsælli en Stoiber sagði Goppel: „Við þurfum ekki vin- sælan kanslara, við þurfum hæfan kanslara.“ Fylgi flokkanna jafnt Þótt Schröder njóti mun meiri vinsælda í skoðanakönnunum en Stoiber er fylgi Jafnaðarmanna- flokksins um það bil jafn mikið og fylgi bandalags kristilegu flokk- anna, CDU og CSU, eða um 38%. Schröder hefur undanfarið tekist að saxa á umtalsvert forskot sem bandalagið hafði haft í nokkra mán- uði. Kappræðurnar á sunnudag voru þær síðustu sem Schröder og Stoib- er heyja fyrir kosningarnar. Þeir deildu um atvinnumál og Írak, en fréttaskýrendur sögðu að hvorugum hefði tekist að koma af- gerandi höggi á hinn. Þeir voru næstum eins klæddir, báðir í dökk- um jakkafötum og með rauðröndótt bindi, og tóku fljótlega völdin af stjórnendum kappræðnanna og skutu föstum skotum hvor að öðr- um. Stoiber átti fyrstu sóknina og saumaði að Schröder fyrir að hafa brotið loforð sem hann gaf er hann var kjörinn, 1998, um að sjá til þess að atvinnuleysi minnkaði úr fjórum milljónum í 3,5 milljónir. Schröder svaraði því til, að síðustu atvinnu- leysistölur sýndu að atvinnuleysi hefði í rauninni minnkað aðeins í ágúst, þótt það væri enn dálítið yfir fjórum milljónum, sem er pólitískt viðkvæm tala. Schröder sagði ennfremur að það væri vegna versnandi efnahags í heiminum öllum sem sér hefði ekki tekist að standa við loforðið. Þá bætti Schröder því glottandi við, að Bæjaraland, þar sem Stoiber er for- sætisráðherra, væri eina sam- bandslandið þar sem atvinnuleysi hefði aukist verulega síðan í fyrra. Deildu um Íraksmálið Schröder varði þá afstöðu sína að Þjóðverjar ættu afdráttarlaust að hafna þátttöku í herför gegn Írak undir forystu Bandaríkjanna, ef til kæmi, jafnvel þótt Sameinuðu þjóð- irnar veittu umboð til slíkra að- gerða. Neitaði Schröder þeim ásök- unum Stoibers, að þessi eindregna andstaða hefði skaðað samskipti þýskra og bandarískra stjórnvalda og væri fyrst og fremst til þess ætl- uð að vinna stuðning meðal þýskra kjósenda, sem væri meinilla við hernaðaraðgerðir. Stoiber sakaði Schröder um að hafa einangrað Þýskaland með þess- ari afdráttarlausu afstöðu og kvaðst sjálfur myndu aðeins taka afstöðu til Íraksmálsins eftir að öryggisráð Sameinuð þjóðanna hefði kveðið upp sinn úrskurð og eftir að hafa rætt við bandamenn Þjóðverja í Evrópu og Ameríku. „Enginn ætti að fara þetta einn síns liðs, hvorki hér né í Ameríku,“ sagði Stoiber. Þá hvatti hann til þess að sett yrðu í Þýskalandi strangari lög um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi. Nefndi hann sem dæmi um þörfina fyrir harðari reglur um vísun úr landi, að sl. föstudag hefði verið handtekinn tyrkneskur maður og bandarísk unnusta hans sem talin eru hafa verið að leggja á ráðin um voðaverk í Þýskalandi 11. septem- ber nk., er ár verður liðið frá hryðju- verkunum í Bandaríkjunum. Sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönn- unar er birtar voru á sunnudaginn óttast 62% Þjóðverja að hryðjuverk verði unnin í landinu. Síðustu sjónvarpskappræðurnar fyrir kosningarnar í Þýskalandi Schröder þótti vera meira sannfærandi Berlín. AFP. Reuters Edmund Stoiber og Gerhard Schröder í sjónvarpskappræðunum á sunnudaginn. UM 65 her- og lögreglumenn féllu í stórárás maóískra skæruliða á varðstöð í Nepal í gær en daginn áður höfðu þeir tekið af lífi um 50 lögreglumenn eftir árás á aðra stöð. Um fjög- ur þúsund skæruliðar tóku þátt í árásinni í gær en um 1.000 í fyrradag. Mannfallið meðal her- og lögreglumanna er því um 165 manns á tveimur dög- um en talið er, að yfir 70 skæru- liðar hafi fallið. Eru stjórnvöld að hugleiða að lýsa aftur yfir neyðarástandi í landinu en það var sett á í nóvember í fyrra og stóð út nýliðinn ágúst. Eftir að neyðarástandslögin féllu úr gildi hafa sprengjur sprungið næstum daglega í höfuðborg- inni, Katmandú. Líklega ein að verki YFIRVÖLD í Þýskalandi telja, að tyrkneskur maður og banda- rísk vinkona hans, sem virðast hafa ráðgert hryðjuverk í Þýskalandi, hafi líklega verið ein að verki og tengist ekki skipulögðum hryðjuverkahóp- um. Fundust í íbúð þeirra um 130 kíló af efnum, sem nota má til sprengjugerðar, og bendir flest til, að hryðjuverkið hafi átt að fremja á morgun, 11. sept- ember, í bandarískri herstöð í Heidelberg. Í íbúðinni var einn- ig kveikibúnaður fyrir sprengj- ur og mynd af Osama bin Lad- en. Upp um þau komst er konan, sem vann í verslun í her- stöðinni, varaði vinkonu sína þar við að mæta til vinnu 11. september. Höfundur Uzi-byss- unnar látinn UZI Gal, höfundur hinnar víð- frægu Uzi-hríðskotabyssu, lést síðastliðinn laugardag 79 ára að aldri eftir langvinn veikindi. Var byssan hans fyrst fram- leidd á sjötta áratug síðustu aldar og vó hún fljótlega þungt í útflutningi Ísraela. Komst hún næst Kalashníkov-rifflinum rússneska sem eftirsóttasta vopnið. „Uzi-byssan var ódýr, auðveld í notkun, áreiðanleg og öflug með um 200 metra drægni. Á sínum tíma var hún sú besta,“ segir Raphael Eitan hershöfðingi og fyrrverandi yf- irmaður ísraelska hersins. Þinghúsið var skotmark ÞINGHÚSIÐ var fjórða skot- markið í hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin fyrir ári og til greina kom að ráðast á kjarn- orkuver. Kemur þetta fram í viðtali, sem blaðamaður á Al- Jazeera-sjónvarpsstöðinni í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum átti við tvo liðsmenn al-Qaeda í Pakistan. Blaðamað- urinn hefur það eftir mönnun- um, að þinghúsið hafi verið fjórða skotmarkið en hætt hafi verið við að ráðast á kjarnorku- ver af ótta við, að það gæti „far- ið úr böndunum“. Nefndu mennirnir Osama bin Laden en töluðu um hann í þátíð. Geti það bent til, að hann sé látinn. STUTT Mikið mannfall í Nepal BRESKA orkufyrirtækið British Energy skýrði frá því í gær að það hefði fengið 410 milljóna punda, u.þ.b. 53 milljarða króna, fjárhags- aðstoð frá stjórnvöldum til að hægt yrði að reka stærsta kjarnorkuver landsins næstu þrjár vikurnar. Í tilkynningu frá stjórn fyrirtæk- isins, sem er einkarekið en var í rík- iseigu til 1996, kom fram að stefnt væri að endurskipulagningu þess en ef hún tækist ekki myndi verða beðið um greiðslustöðvun. Viðskipti með hlutabréf í fyrirtækinu höfðu verið stöðvuð á fimmtudag en hófust aftur er skýrt hafði verið frá láninu og féll verð bréfanna um 60% á mörkuðum. Um 5.200 manns starfa hjá British Energy. Það á átta kjarnorkuver og framleiðir um 20% af öllu rafmagni sem notað er í Bretlandi. Talsmenn fyrirtækisins segja að lágt heildsölu- verð og tæknileg vandamál hafi vald- ið því að það lenti í erfiðleikum. Bretland Orkufyrir- tæki í erfið- leikum London. AFP. FRÉTTASTOFAN Fena skýrði frá því í gær, að forseti Póllands hefði sæmt réttar- meinafræðinginn Ewu Klon- owska verðlaunum fyrir fram- úrskarandi störf í þágu Alþjóðakennslanefndarinnar í Bosníu. „Ég lít á verðlaunin sem við- urkenningu fyrir störf mín í Bosníu, störf, sem eru vissu- lega ákaflega mikilvæg og erf- ið,“ sagði Klonowska en hún hefur unnið við það frá árinu 1999 að bera kennsl á líkams- leifar, til dæmis þær, sem fund- ist hafa í fjöldagröfum í land- inu. „Hér er fyrst og fremst um mannúðarstarf að ræða og í þágu þess vil ég nota reynslu mína og þekkingu.“ Ewa Klonowska er íslenskur ríkisborgari af pólsku bergi brotin. Segist hún munu taka hún við verðlaununum úr hendi Póllandsforseta 13. þessa mán- aðar. Klonowska verðlaunuð í Póllandi ÞÝZKUR kafbátur, með skipstjór- anum Wilhelm Freiherr von Fircks og 37 manna áhöfn um borð, er nú aftur kominn í leitirnar eftir að hafa verið týndur í 85 ár. Kafbáturinn, sem bar einkenn- isstafina U59, hélt upp í síðasta leiðangur sinn hinn 7. september 1916 og fórst hinn 14. maí 1917. Danskir kafarar fundu hann á hafs- botni undan Hornsrifi (Horns Rev) á Jótlandi í síðustu viku, eftir því sem frá er greint í Berlingske Tid- ende. Fundur bátsins mun ekki vera hrein tilviljun. Köfunarfyrirtækið Jydsk Dykkerfirma ApS hafði gert samning við Skipsstrandasafnið St. George í Thorsminde á Jótlandi um leit að minjum um sjóhernað í fyrri heimsstyrjöld. Með hjálp búnaðar um borð í leitarskipi var í vor búið að finna út staðsetningu U59, en það var ekki fyrr en nú sem kafarar komust alveg að bátnum og gátu gægzt inn í hann. „Í danskri lögsögu er bara tvo kafbáta frá fyrri heimsstyrjöld að finna - það er annars vegar U20, en leifarnar af honum eru mjög illa farnar. Þessi er hins vegar ótrúlega vel varðveittur,“ hefur Berlingske Tidende eftir Gert Normann And- ersen, forstjóra Jydsk Dykker- firma. „Þetta er greftrunarstaður, svo að við umgöngumst hann af fyllstu virðingu. Í bátnum er allt á sínum stað. Aðvörunarbjöllur, talsam- bandsrör, stjórntæki, salerni, vask- ar og vikublöð. Kojurnar, sem áhöfnin lá í, eru uppétnar af bakt- eríum,“ segir Andersen. U59 sökk eftir að hafa siglt á þýzkt tundurdufl, sem gerði gat á bátinn á aftasta hluta vélarrým- isins. Sagt er að allir um borð hafi farizt, en einnig eru til frásagnir af því að fjórum úr áhöfninni hefði verið bjargað, þar á meðal skip- stjóranum, en hann hafi dáið áður en í land kom. Kafbátur fund- inn eftir 85 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.