Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 31 margir urftarbú- um hvort f hvíta andið til einhvern em hafa m sínum ? einfalt. ármunum m sínum. anna sem um tíðina. ri en einn vel. Mað- er mikill m.a. hef- þess að aður arð- tu bænd- „Margir fara til Bretlands og S-Afríku. Um 50 bændur hafa far- ið til Mósambík, en stjórnvöld í Mósambík töldu að það væri ávinningur af því fyrir landið að fá bændur sem kynnu til verka og gætu þannig stuðlað að endurbót- um í landbúnaði í Mósambík. Landbúnaður í Mósambík er vanþróaður auk þess sem borg- arastyrjöld er tiltölulega nýlokið í landinu. Zambía hefur líka boðið bændum frá Zimbabwe að koma til landsins og það eru allmargir sem eru að íhuga það. Bændurnir setja hins vegar skilyrði fyrir því að koma. Þeir sem ég hef talað við segja að jafnvel þó að gengið verði að skilyrðum þeirra ríki mikil óvissa um framtíðina því að stefna stjórnvalda geti breyst í garð bændanna. Það eru hins vegar fjölmargir bændur í Zimbabwe sem trúa því hreinlega ekki að þessari stefnu gagnvart hvítu bændunum verði haldið til streitu um alla framtíð. Þeir vilja hvergi annars staðar vera því að þetta er þeirra heima- land.“ 44% íbúa á aldrinum 15–49 ára smitaðir af HIV – Er alnæmi mikið vandamál í Zimbabwe? „Samkvæmt nýjustu tölum stjórnvalda í Zimbabwe eru 44% landsmanna á aldrinum 15–49 ára smitaðir af HIV-veirunni. Sumir telja að ástandið sé enn verra og hlutfallið sé jafnvel komið upp í 50%. Ef litið er á þjóðina alla er hlutfallið nálægt 33%. Það er ekki ein einasta fjölskylda í landinu sem er ekki snortin af þessum sjúkdómi á einn eða annan hátt. Þetta setur gífurlegt mark á alla framleiðslu og allan flutning þekkingar milli kynslóða. Börn standa fyrir mörgum heimilum vegna þess að foreldrarnir eru fallnir frá. Skólaganga er orðin miklu minni en hún var fyrir nokkrum árum. Alnæmið hefur því áhrif á allt þjóðfélagið.“ – Alnæmið hlýtur þá að hafa mjög neikvæð áhrif á efna- hagsþróunina? „Já, tvímælalaust. Þurrkarnir og þessi landtökustefna bæta síð- an ekki ástandið. Sem dæmi um hvaða afleiðingar alnæmið hefur get ég nefnt að jarðarfarir í Zimb- abwe mega ekki taka nema 15 mínútur á virkum dögum. Ástæð- an er ekki bara sú að útfararstof- ur hafi tæpast undan heldur stendur efnahagslífið hreinlega ekki undir því ef allir sem sækja jarðarfarir taka sér lengri tíma í að kveðja ættingja og vini. Þá færi svo mikill tími í þetta og stór hluti vinnuaflsins væri of lengi frá vinnu.“ – Hvernig reyna stjórnvöld að verjast þessum sjúkdómi? „Stjórnvöld hafa mikið gert til að berjast gegn þessum vágesti. Mugabe lýsti því yfir í maí á þessu ári að þetta væru hamfarir og það yrði að takast á við þetta í samræmi við það. Það eru margs konar hjálparsamtök sem vinna að forvörnum og vinna með þeim sem eru sýktir. Alþjóða Rauði krossinn og Rauði krossinn í Zimbabwe eru með stórt alnæm- isverkefni þar sem alnæmissjúk- um er veitt heimahlynning. Rauði krossinn hefur tekið þá stefnu í Zimbabwe að dreifa matvælum til þeirra sem eru alnæmissjúkir og aðstandenda þeirra vegna þess að þegar matarskortur er kominn á alvarlegt stig kemur hann verst niður á þeim sem minnst mega sín. Það eru óskaplega miklir for- dómar í garð þessa sjúkdóms. Þetta leiðir til þess að fólk við- urkennir ekki að það sé smitað af alnæmi. Það er endalaus feluleik- ur með sjúkdóminn og það fólk sem er smitað og er að deyja deyr úr malaríu, berklum, kóleru eða einhverju slíku. Núna er mjög mikil herferð í gangi þar sem fólk er hvatt til þess að fara í alnæm- ispróf. Það er hægt að fara með nafnleynd í það og prófið tekur aðeins 20 mínútur. Það er því ekki verið að hylma yfir vandamálið heldur er verið að reyna að takast á við það. Fordómarnir eru hins vegar gífurlegir. Eitt af mikilvægustu verkefnum í sambandi við þennan sjúkdóm er að bjarga næstu kynslóð og þess vegna er lögð gífurleg áhersla á að ná til barnanna. Fræðsla um alnæmi er hluti af námsefni í skól- um. Það er dálítið sérstakt að tala við innfædda í sunnanverðri Afr- íku. Það er sama um hvað maður er að tala, eftir stutta stund leið- ist umræðan að alnæminu. Þetta vandamál hvílir svo djúpt á hverj- um einasta manni. Það virðist því vera að eiga sér stað vakning, sem er forsenda þess að það sé hægt takast á við sjúkdóminn.“ – Hver er meðalaldur íbúa Zimbabwe? „Meðalaldurinn í Zimbabwe er um 40 ár en var fyrir nokkrum ár- um í kringum 56 ár. Í Malaví er hann 39 ár og 40–42 ár í Mosamb- ík. Ég hef stundum verið að furða mig á því þegar fólk í kringum mig er að halda upp á þrítugs- afmælið með miklum fögnuði, en svo áttar maður sig á því að fyrir þetta fólk er þetta svipaður áfangi og fyrir þá sem fagna áttræð- isafmæli sínu heima á Íslandi. Það er ekki sjálfsagt fyrir fólk í þess- um heimshluta að ná þrítugu.“ dtökustefnu Mugabes, þurrka og alnæmis menn ænda rgangi ð í Zimbabwe á vegum Rauða nu versni stöðugt og hjálpar- yrir alvarlega hungursneyð. Í á afleiðingum landtökustefnu g alnæmi í landinu. tir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins. egol@mbl.is Reuters var mótmælt við upphaf hinnar fjölmennu ráð- óðanna í Jóhannesarborg í síðasta mánuði. æði frá hét þá reytt í ékk sjálf- rá 1980 be. Íbúar jónir. dinu er í heim- yfir 50%. we DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra átti fund með Silvio Berl- usconi, forsætisráðherra Ítalíu, í Róm á Ítalíu fyrir helgi en dvaldi síðan í einkaheimsókn um helgina hjá Berlusconi á eynni Sardiníu. „Þetta er í raun endurgjald á heimsókn hans til Íslands síðast- liðið vor,“ sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið í gær. Fróðlegar kvöld- verðarumræður „Á Sardiníu hitti ég raunar fleiri menn og á sunnudags- kvöldið snæddu þar til að mynda með okkur forsætisráðherra Portúgals, Schäuble, fyrrverandi formaður kristilega demókrata- flokksins og Wilfred Martens, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu. Þannig að þar fóru fram fróðlegar umræður um þau mál sem efst eru á baugi hér í Evr- ópu og reyndar á heimsvísu. En áður höfðum við Berlusconi haft tækifæri til þess að ræða saman okkar á milli.“ Hafa þekkst í átta ár Davíð segir vissulega óvenju- legt að fara í heimsókn í sum- arhús forsætisráðherra Ítalíu. „En hann bauð mér að dvelja þar með sér um helgi og ég þáði það. Ég hitti Berlusconi reyndar fyrst árið 1994, að ég hygg, þegar hann var forsætisráðherra í fyrra skiptið þannig að ég hef þekkt til hans í allmörg ár. Við sitjum yfirleitt annaðhvort saman eða mjög nálægt hvor öðrum vegna stafrófsröðunar á alþjóðlegum fundum. Við þekkj- umst því orðið ágætlega og það er gott á milli okkar.“ Davíð segir Berlusconi vera af- ar kraftmikinn og áhugaverðan mann í alla staði. „Hann er auð- vitað ólíkur mörgum öðrum stjórnmálamönnum hvað það varðar að hann er talinn með efnaðri mönnum í veröldinni og efnaðasti maður Ítalíu. Fæstir stjórnmálamenn sem ég kannast við eru efnum búnir þannig að Berlusconi er á marga lund ólík- ur öðrum stjórnmálamönnum sem ég hef kynnst. Hann byrjaði auðvitað á því að verða forystumaður og helsti framkvæmdamaður og atvinnu- rekandi á Ítalíu áður en hann fór í stjórnmál. Hann er nú forsætis- ráðherra í annað sinn og hefur setið í fimmtán mánuði en það telst vera alllangur tími á Ítalíu.“ Davíð segir stjórn Berlusconis njóta mikilla vinsælda núna og hann sjálfur mælist vinsælli en þekkist á Ítalíu. Hann njóti nú stuðingins yfir 65% ítölsku þjóð- arinnar. Veglegt sumarhús „Nei, sumarhús Berlusconis líkist ekki mínu sem er 22 fer- metrar og ekki með rafmagni. Á okkar mælikvarða er þetta lík- lega lítil höll. Hann á mikið land- svæði á Sardiníu og ein fimm hús þarna í nágrenninu. Þetta er afskaplega falleg eyja og þegar hann bauð mér að dvelja þarna vildi ég ekki slá hendinni á móti því. Aðalhús hans er þó í ná- grenni Mílanó og ég las að það væru 70 herbergi í því húsi. En þar hef ég þó ekki komið.“ Davíð Oddsson í einkaheimsókn hjá Berlusconi á Sardiníu Kraftmikill og áhugaverður maður Morgunblaðið/RAX Silvio Berlusconi og Davíð Oddsson við Gullfoss í vor. KLUKKAN 9.40 í dag verða sex- tíu ár liðin frá því að skotið var úr þýskri herflugvél á íbúðarhúsið Hamar á Breiðdalsvík. Birgir Ein- arsson sem þá var fjórtán ára og bjó í húsinu hefur látið útbúa minningarskjöld um atburðinn sem hann mun afhjúpa í dag, ein- mitt klukkan 9.40. „Ég man þetta eins og gerst hafi í gær, þetta var eiginlega hálfhryllilegt ef maður hugsar út það,“ segir Birgir. Hann segir að norskar flugvélar hafi flogið nán- ast daglega þarna yfir á stríðs- árunum og mörgum í þorpinu hafi þótt gaman að fylgjast með þeim, því hafi enginn átt sér nokkurs ills von. „Þessi vél kom af hafi, ég horfði á eftir henni þar sem hún fór inn dalinn og þegar hún kom inn að prestsetrinu að Eydölum sneri hún við og þá byrjuðu þessi ósköp.“ Birgir segir að hann hafi tekið til fótanna og hlaupið inn í húsið. „Þegar ég kem fyrir hornið á hús- inu mætir mér bara logandi jörðin. Það var möl í kringum húsið og jörðin bókstaflega logaði. Svo hljóp ég inn í húsið og og reyndi að hnipra mig niður meðan á þessu stóð.“ Ein kúlan fór í gegnum tvöfaldan steinvegg Birgir segir að sprengikúlum hafi rignt niður, bunan hafi verið eins og úr vatnsbyssu. Kúlurnar voru um 7 cm langar og 4,5 cm í ummál. Eftir árásina voru 9 göt á húsinu, ein þeirra fór í gegnum tvöfaldan steinvegg, sem var um 40 cm þykkur og hlaðinn úr blá- grýti. „Hún stoppaði í brún á veggnum og ég plokkaði hana út, það sér ekki á henni, hún er eins og hún sé nýkomin úr verskmiðj- unni,“ segir Birgir. Hann segir að sumar kúlurnar hafi verið sprengikúlur og nálar úr þeim hafi dreifst út um allt. Báru- járnsklæðning á húsi, sem stóð í 40–50 metra fjarlægð frá Hamri, hafi verið eins og gatasigti eftir sprengiflísar. „Systir mín var á gangi þarna í miðju eldhafinu og fékk eina flís í öxlina, en sem bet- ur fer var það ekki alvarlegt,“ seg- ir Birgir. Hann segir að á leiðinni á haf út hafi verið skotið úr vélinni á vitann á Kambanesi og einnig hafi vélin skotið á nokkra trillu- báta sem voru við veiðar úti fyrir nesinu. „Ég veit ekkert hvað þeim gekk til,“ segir Birgir. Hann segir að hann hafi verið mjög skelkaður eftir árásina, lengi á eftir hafi hann alltaf falið sig þegar hann heyrði í flugvél. Birgir hefur nú látið útbúa minningarskjöld sem hann hefur fest á íbúðahúsið á Hamri og ætl- ar hann að afhjúpa skjöldinn klukkan 9.40 í dag, en þá verða nákvæmlega 60 ár frá árásinni. Hann segir að hann sé einnig að hugsa um að merkja hvar kúl- urnar lentu á húsinu með máln- ingu. Hann telur að Hamar sé eina íbúðarhúsið sem ráðist hafi verið á úr flugvél á Íslandi í síðari heimsstyrjöld. 60 ár frá því þýsk flugvél gerði árás á Breiðdalsvík „Jörðin bókstaflega logaði“ Íbúðarhúsið Hamar um 1950. Á myndinni má sjá för eftir kúlnaregnið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.