Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 36
UMRÆÐAN 36 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Innritun stendur nú yfir í síma 588-3730, eða í skólan- um að Síðumúla 17. Fjölbreytt nám fyrir alla aldurs- flokka er í boði, bæði fyrir byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér. Innritun er dag- lega kl. 14-17. Sendum vandaðan upplýsingabækling INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 588-3730 HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA HEIMAGÍTARA KR. 2500 Á ÖNN www.clix.to/gitarskoli HIN mikla fækkun íslensku rjúpunnar eru alvarleg tíðindi fyrir náttúru landsins og alla sem í landinu búa. Það er staðreynd að ekki hefur verið minna af rjúpu í hundrað ár og er því aðkallandi nauðsyn að friða hana. Aðaltil- gangur friðunar er auð- vitað sá að skapa fugl- inum skilyrði til vaxtar og viðgangs í þeirri von að stofninn nái sér upp úr þeirri gríðarlegu nið- ursveiflu sem hann er í. Það er margt sem mæðir á rjúpunni og er hún fæða margra. Minkum og refum hefur fjölgað mjög í mörgum héruðum og fjöldi sveitarfélaga sparar við sig vargeyðingu sem þýðir að uppeldis- stöðvar rándýranna blómstra víða. Þar ríkir ófremdarástand. Þá er rjúp- an aðalfæða fálkans sem er friðaður og sílamávar fljúga víða um heiðar og tína upp rjúpuunga fyrri hluta sum- ars sem og aðra mófugla. Víða er ekk- ert hugsað um að halda sílamávum í skefjum. Skotveiðar á rjúpu hafa verið stundaðar með miklum yfirburð- um tækninnar um langt árabil. Fjallabílar og vélsleðar færa menn fljótt á milli staða ólíkt því þegar menn gengu til rjúpna og höfðu ekki annað en sína eigin fæt- ur. Þá var rjúpan bjarg- ræði margra enda mikið til af henni en í dag er það viðburður að sjá rjúpnafjölskyldu og svokallaðar rjúpna- breiður eru löngu horfnar. Þá er nýjung í rjúpnaveiðum hér á landi að nota mikið erlenda veiði- hunda sem með lyktarskyni sínu geta vísað á felustaði fuglanna og allt er þetta gert í því skyni að ná meiri veiði. Þegar Rjúpnaverndarfélagið var stofnað fyrir 11 árum og fór fram á friðun rjúpunnar var því víða haldið fram að veiðar hefðu engin áhrif á stofninn. Nú hefur verið sýnt fram á Mikilvægt að friða rjúpuna Atli Vigfússon HÁLENDI Íslands og raunar allt landið er eitt sérstæðasta land í heimi varðandi jarð- fræði og einstakt sem jarðsöguleg heimild. Land í sköpun, tigið og ósnertanlegt. Því er það fyrsta skylda þeirrar þjóðar sem byggir landið að halda víðernum og náttúrufurðum ósnortnum, sem fram- ast er unnt, og þá fyrst og fremst sérstæðustu svæðum landsins og þeim vatnsföllum sem eru eðlilega samofin heildarmynd landsins með fossum og flaumum. Hálendi landsins ætti allt að vera friðlýst sem þjóðgarður, ekki aðeins fyrir íbúa þessa lands, heldur einnig sem þjóðgarður Evr- ópu. Tilraun var gerð til þess snemma á 20. öld að nýta vatnsföll landsins og voldugustu fossa þeirra, þar á meðal Gullfoss og Dettifoss, en kom- ið var í veg fyrir þann „barbarisma“ á sínum tíma. Þegar leið á öldina var hafist handa við það ætlunarverk að skrumskæla ákveðin svæði, þar á meðal Mývatn. Sú fyrirætlun var stöðvuð með afdráttarlausri sam- stöðu. Stíflugarður í Laxá ofan- verðri var sprengdur upp. Mývetn- ingar stóðu að þeim aðgerðum og hirtu ekki um japl, jaml og fuður. Tilfinningar virkjanagengisins brut- ust út í gráti og gnístran tanna, þeir grétu stífluna sína. Þegar lengra leið á öldina hófst „stóriðju-sýkósan“ – stóriðju geð- villa eða sálsýki. Sú „sýkósa“ átti sér rætur og kveikju í hugarheimi sov- éskra „ofurverkfræðinga og stíflu- gerðarhugsuða“. Fyrirmyndin að stórvirkjunum var sótt í kommún- íska ídeológíu – hugmyndafræði sovéskra kommúnista. Full þörf er á að rekja þá sögu nánar. Komið var upp kontór í Reykja- vík, Orkumálastofnun, og Lands- virkjun. Þar með hófst „Hernaður- inn gegn landinu“ (Halldór Lax- ness). Virkjanaáætlanir Landsvirkjunar voru studdar af stjórnvöldum og skipaður var starfshópur á tíunda áratug 20. aldar til að vinna að „Rammaáætlun um virkjanakosti“. Bráðabirgðaskýrsla frá þeim starfs- hópi var birt fyrir tæpu misseri eða svo. Í þeim úrskurði segir að Kárahnjúkavirkjun sé næstsísti virkjanakost- urinn og virkjun Mark- arfljóts sé sísti kostur- inn. En hernaðurinn gegn landinu gengur vel – virkjana „sýkós- an“ er ekki aðeins tengd virkjanagengi Landsvirkjunar og pólitískum áldrauma- mönnum og verktaka- genginu. Sérstæðasta háhita- svæði landsins, Há- göngusvæðið, var kaffært með lóni Guðmundar Bjarnasonar umhverf- isráðherra og forstjóra Landsvirkj- unar. Nú hefur verið hafist handa um undirbúning að endanlegri eyði- leggingu Þjórsárvera og vegalagn- ing er hafin vegna Kárahnjúkavirkj- unar með fjárhagsstuðningi Alcoa. Friðland heiðagæsa og hreindýra verður þar með eyðilagt og vansköp- un víðernanna norðan Vatnajökuls fullkomnuð. Spyrja má hvað verður um Þórs- mörk og Fljótshlíðina ef draumar virkjanagengisins ganga eftir. Hvað verður um Jökuldal, Hérað og Úthérað, Hallormsstaðarskóg og Lagarfljót ef áætlanir umhverfis- níðinga Alcoa og áldraumamann- anna um selstöðuálver Alcoa á Reyðarfirði ná fram að ganga? Þá rætist ef til vill kenning Frið- riks Sophussonar um að hann muni „skila náttúrunni betri en hún var.“ Vansköpun hálendis og byggða Siglaugur Brynleifsson Friðlýsing Hálendi landsins ætti allt að vera friðlýst sem þjóðgarður, segir Siglaugur Brynleifsson, ekki aðeins fyrir íbúa þessa lands, heldur einnig sem þjóðgarður Evrópu. Höfundur er rithöfundur. Í TILEFNI af Viku símenntunar, sem nú stendur yfir, ætla ég í stuttu máli að gera grein fyrir símenntun og gerð símenntunar- áætlana hjá Reykja- víkurborg. Margir velta því ef- laust fyrir sér hvað sí- menntun er og hvað sí- menntunaráætlun. Þessi orð eru nýfarin að skjóta upp kollinum því áður var talað um endurmenntun. Ágæt skilgreining á símennt- un hljóðar svo: Öll menntun sem starfsmenn afla sér eftir að grunnmenntun lýkur. Símenntun er fyrst og fremst starfstengd en ávallt þarf að hafa í huga jafnt markmið vinnustaðarins og starfsmanna. Símenntun, án beinna tengsla við starfið, getur þó stuðlað að því að auka starfsánægju. Símenntunaráætlun er áætlun sem yfirmaður og starfsmaður vinna saman. Hún tekur til allrar fræðslu og þekkingar sem starfsmaður þarf að afla sér. Með því getur hann betur uppfyllt þær kröfur sem til starfsins eru gerðar og bæði hann sjálfur og fyrirtækið/stofnunin njóta góðs af. Mönnum hættir oft til að telja að símenntun felist einkum í námskeið- um en hún nær yfir miklu fleira. Hún felst að sjálfsögðu í hefðbundum að- ferðum t.d. námskeiðum, fjarnámi starfsnámi, viðbótar- og framhalds- námi, en hún felst ekki síður í öðru eins og t.d. handleiðslu, lestri, vinnu- hópum, sjálfsnámi (t.d. á Netinu), ráðgjöf, kennslu, ráðstefnum, fund- um o.fl. Reykjavíkurborg ber að sinna sí- menntun starfsmanna samkvæmt kjarasamningum og samkvæmt starfsmannastefnu borgarinnar. Starfsmönnum sjálfum ber einnig að fylgja eigin símenntun eftir. Markmiðið er að Reykjavíkurborg hafi ætíð á að skipa hinum hæfustu starfsmönnum sem geta veitt góða þjónustu og brugðist við síbreytileg- um þörfum borgarinnar. Reykjavík- urborg hefur markað sér starfs- mannastefnu, sem á að tryggja starfsmönnum möguleika á því að vaxa og dafna í starfi, þeim sjálfum, borginni og borgarbúum til hags- bóta. Í starfsmannastefnunni segir: „Reykjavíkurborg beitir sér fyrir því að starfsmenn eigi kost á sí- menntun innan sem utan stofnunar til að auka þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist í starfi. Það er jafnt á ábyrgð starfs- manns sem yfirmanns að viðhalda og bæta fagþekkingu og aðra sérþekkingu sem nauð- synleg er í starfi. Viðleitni starfs- manna til að auka þann- ig hæfni sína er liður í starfsöryggi þeirra.“ Fimm stéttarfélög sömdu um gerð sí- menntunaráætlana fyr- ir félagsmenn sína í síð- ustu kjarasamningum við Reykjavíkurborg. Um 90% starfsmanna borgarinnar eru í ein- hverju þessara félaga. Samkvæmt ákvæði í kjarasamningi Reykjavík- urborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, sem tekur gildi 1. desember nk., á starfsmaður, sem fylgir símenntunaráætlun, rétt á hærri launum en ella. Svipað ákvæði er að finna í samningum annarra fé- laga sem hafa símenntunarákvæði í samningum sínum. Stofnanir borgarinnar eru vita- skuld mjög mislangt á veg komnar hvað varðar sí- og endurmenntun starfsmanna. Rík hefð er fyrir end- urmenntun grunnskóla- og leik- skólakennara og hefur sú endur- menntun aðallega falist í nám- skeiðum. Minna hefur verið um endurmenntun annars starfsfólks. Hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækj- um borgarinnar hefur árum saman verið lögð mikil rækt við endur- menntun starfsmanna en hjá öðrum hefum þessum málum minna verið sinnt. Nú ber hins vegar hverri stofnun borgarinnar að vinna sí- menntunaráætlun fyrir alla starfs- menn sína. Samkvæmt starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar eiga starfsmenn stofnana og fyrirtækja borgarinnar rétt á starfsmannasamtölum að minnsta kosti einu sinni á ári. Starfs- mannasamtölin eru kjörinn vett- vangur til að undirbúa símenntunar- áætlanir. Í samtalinu fara yfirmaður og starfsmaður í sameiningu yfir stöðu starfsmanns með markmið og þarfir stofnunarinnar og starfsmannsins í huga.Yfirmaður gerir síðan símennt- unaráætlun starfsmannsins og nýtir sér til þess upplýsingar úr starfs- mannasamtalinu. Nauðsynlegt er að hafa símenntunaráætlun opna og endurskoða hana ef þörf þykir. Stjórnandi og starfsmaður bera jafna ábyrgð á símenntun og starfsþróun starfsmanns. Stjórn- anda ber að meta þörf stofnunar fyr- ir þekkingu og þjálfun starfsmanna. Hann þarf að kanna að hve miklu leyti starfsmenn búa yfir nauðsyn- legri þekkingu til að mæta þeim kröfum sem starfið gerir til þeirra og hvað beri að bæta. Þá þarf hann að fylgja því eftir að starfsmenn sinni símenntunaráætlun sinni. Starfs- manni ber að fylgjast með tækifær- um til að bæta kunnáttu sína, taka virkan þátt í gerð eigin símenntunar- áætlunar og fylgja henni eftir. Um þessar mundir er verið að inn- leiða nýtt starfsmanna- og launa- kerfi hjá Reykjavíkurborg. Í kerfið er m.a. hægt að skrá starfsmanna- samtöl, bera saman hæfni starfs- manns og kröfur til starfs og vinna símenntunaráætlun. Kerfið auðveld- ar til muna umsjón með símenntun- ar- og fræðslumálum starfsmanna borgarinnar og tryggir vonandi að þau skili árangri. Kjaraþróunardeild Reykjavíkur- borgar hefur m.a. það hlutverk að fylgjast með að símenntunarákvæði kjarasamninganna sé fylgt og að veita stofnunum aðstoð og ráðlegg- ingar um þessi efni. Að lokum er vert að hafa í huga að símenntunaráætlanir eru ekki mark- mið í sjálfu sér. Þær eru leið til að bæta hæfni allra starfsmanna og auka þar með sjálfstraust þeirra og um leið starfsánægju. Þetta auðveld- ar þeim að takast á við ný verkefni og að aðlagast breyttum aðstæðum og gerir þá jafnframt færari um að veita borgarbúum enn betri þjónustu. Símenntun hjá Reykjavíkurborg Soffía Kjaran Nám Stjórnandi og starfs- maður, segir Soffía Kjaran, bera jafna ábyrgð á símenntun og starfsþróun starfsmanns. Höfundur er skrifstofustjóri kjaraþróunardeildar Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.