Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 37

Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 37
að skotveiðarnar hafa mikil áhrif og einhver ástæða er fyrir því að hinar ýmsu tegundir dýraríkisins eru frið- aðar tímabundið eða alveg vegna of- veiði. Skipulag rjúpnaveiða hér á landi hefur ekkert verið. Það hefur mátt fara víða um heiðar og fjöll og taka allt sem fyrir er. Friðun nokkurra svæða hefur ekki skilað árangri fyrir stofninn í heild en það vill svo til að mikilvægt er að setja vel á til næsta árs til þess að viðkoma verði góð. Nú er rjúpan að fara á válista hjá Náttúrufræðistofnun Íslands sem fugl í hættu og því er það umhugs- unarefni hvort ekki eigi að gefa henni grið. Einkennisfugl lyngheiðanna skiptir okkur öll máli og því er ástæða til þess að hvetja alla til þess að stuðla að friðun íslensku rjúpunnar og fimm ára friðun hennar væri mikilvægur áfangi í náttúruvernd hér á landi. Skotveiðar Skipulag rjúpnaveiða hér á landi, segir Atli Vigfússon, hefur ekkert verið. Höfundur er formaður Rjúpnaverndarfélagsins. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 37 FYRIR nokkru bárust þær fréttir út að loka ætti annarri af tveim deildum fyrir minnissjúka á Landa- koti. Útskrifa ætti sem flesta en dreifa hinum á aðrar deildir sjúkra- hússins. Ættingjar fengu tvo daga til að undirbúa heimkomu útskrifaðra. Fréttin olli slíkri undrun og reiði þeirra er nálægt málum minnis- sjúkra hafa komið að ég man engin dæmi um slíkt. Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúkra og annarra minnissjúkra, sem unnið hefur um árabil að málefnum þessa hóps, sendi frá sér harðorða frétta- tilkynningu og óskaði þegar eftir fundi með heilbrigðisráðherra. Sér til fulltingis fékk félagið Öryrkja- bandalagið. Málalyktir urðu þær að ákvörðuninni um lokun deildarinnar var ekki breytt en hætt var við út- skriftir í bili a.m.k. Þeim, sem fyrir voru á deildinni sem lokað var, var dreift inn á aðrar deildir spítalans. Engar nýjar innlagnir verða fyrr en ef til vill á næsta ári. Öllum sem til þekkja er ljóst að framkvæmdin er eins grautvitlaus og hægt er að hugsa sér. Alzheimersjúklingar þurfa um fram allt festu og öryggi í sitt um- hverfi og atlæti. Allar breytingar, hvort sem varðar umhverfi eða hjúkrunarlið, eru afar slæmar. Að dreifa þeim innan um aðra sjúka er vægast sagt afar varasamt gagnvart þeim og öðrum sjúklingum nema sérhæft hjúkrunarlið sé til staðar. En hvers vegna getur svona vitleysa gerst? Hver ber ábyrgðina? Ekki benda á mig Á Landakoti hefur minnissjúkum verið ætluð grunnþjónusta af heil- brigðiskerfinu. Þar hefur verið unnið afar gott og nauðsynlegt uppbygg- ingarstarf á undanförnum árum, sannkallað brautryðjendastarf. Þar er þekkingin mest á málefnum og þörfum þeirra minnissjúku. Þegar þeir sem þarna stjórna eru spurðir „hvers vegna svona rugl“ er svarið einfalt „ekki benda á mig það eru aðrir sem taka ákvörðunina“. Þegar yfirstjórn Landspítalans – há- skólasjúkrahúss er spurð er svarið „ekki benda á mig talið við þing- mennina“. Og þegar gengið er á fund ráðherra er svarið „ekki benda á mig ég ræð engu“. Sannleikurinn er sá að þegar gengið er á fund ráðamanna og kall- að eftir viðbrögðum við augljósum vanda mætum við miklum skilningi og velvilja. Síðan dragast mál úr hömlu. Aftur er farið á fund þeirra og enn er mikill skilningur og vel- vilji og enn dragast úr- lausnir. Fátt eða ekkert gerist. Í umræðunni undanfarin ár hafa ráðamenn stöðugt rætt um að alvarlegur skort- ur sé á hjúkrunarrými fyrir aldraða og sjúka. Eftir hverju er beðið? Hver á að byggja? Hvað má höndin ein og ein? Mér er minnistæður atburður úr æsku þeg- ar gamall þulur var að ræða við okk- ur krakkana um að vinna saman og standa saman. Hann tók spýtu, fékk einum sterkum strák hana og sagði honum að brjóta hana á hné sér. Strákurinn gerði það með leik. Síðan tók sá gamli nokkrar álíka spýtur batt þær saman og sagði strák að brjóta á sama hátt. Að sjálfsögðu gekk það ekki. Sameiginlegur styrkleiki kom í veg fyrir það. Lærdómur- inn var augljós. Styrk- ur félags okkar felst í félögunum. Þess vegna er brýnt að sem flestir aðstandenda minnis- sjúkra og áhugafólk um velferð þeirra komi til liðs við félagið og ger- ist félagar. Það er líka brýnt að önn- ur þau félög sem vinna að tengdum málum taki höndum saman um þau hagsmunamál sem tengjast félögum þeirra allra. Má þar nefna m.a. félög eldri borgara, Öryrkjabandalagið og fleiri félög. Með öflugri samstöðu má koma í veg fyrir hryðjuverk eins og áttu sér stað síðustu vikuna í ágúst- mánuði 2002. Með öflugri samstöðu má knýja fram að eitthvað verði framkvæmt í uppbyggingu hjúkrun- arrýmis fyrir aldraða og sjúka. Með öflugri samstöðu má kveða í kútinn kórinn sem stöðugt syngur „ekki benda á mig“ þegar þörf er á úrbót- um. Til varnar Alz- heimersjúkum María Th. Jónsdóttir Landakot En hvers vegna, spyr María Th. Jónsdóttir, getur svona vitleysa gerst? Höfundur er formaður Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra minnissjúkra (FAAS).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.