Morgunblaðið - 10.09.2002, Síða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 47
RÚMAR sex milljónir króna söfn-
uðust í árlegu söfnunarátaki ABC-
hjálparstarfs sem fram fór fyrr á
þessu ári. Þetta er fimmta árið sem
söfnunin fer fram og segir í frétta-
tilkynningu að samtals hafi 115
grunnskólar, tónlistarskólar og
kirkjur tekið þátt í söfnuninni, með
þátttöku yfir 3.000 barna. Ásamt
vaxtatekjum nam söfnunarféð 6,17
milljónum króna og var sú upphæð
send óskert til Indlands.
Segir að framlag Vopnfirðinga,
150 þúsund, hafi verið sent til
byggingar skólastofu á Heimili
litlu ljósanna og rúmar 6 milljónir
til byggingar El Shaddai-barna-
heimilisins. „Þetta fjármagn nægir
til að ljúka að mestu leyti nauðsyn-
legustu byggingarframkvæmdum
fyrir El Shaddai-barnaheimilið, en
mjög brýnt var fyrir heimilið að fá
úrbætur í húsnæðismálum. Um 140
börn búa á heimilinu sem eru alfar-
ið á framfæri Íslendinga.“
Kemur fram að 43% aukning
hafi orðið á heildartekjum ABC-
hjálparstarfs árið 2001 frá árinu
áður. Alls námu tekjurnar árið
2001 75 milljónum króna, þar af
voru gjafir, áheit og safnanir 70,6
milljónir. Voru 70,7 milljónir króna
sendar til hjálparstarfs erlendis,
eða 94% af heildartekjum starfsins.
Fóru þeir fjármunir til framfærslu
og menntunar 3.500 barna auk
þess að kosta byggingarfram-
kvæmdir við El Shaddai-barna-
heimilið og Heimili litlu ljósanna á
Indlandi.
Í dag verður árlegur ABC-dagur
á útvarpsstöðinni Lindinni. Verður
dagurinn helgaður því að fá stuðn-
ingsaðila fyrir börn á Heimili litlu
ljósanna. Er markmiðið að öll þau
börn sem vantar stuðningsaðila fái
stuðning, en þau eru 143 talsins.
Mánaðarlegt stuðningsframlag,
sem nægir fyrir öllum þörfum
barnsins mun vera 3.250 krónur.
Tekið verður á móti nýjum stuðn-
ingsaðilum frá kl. 9–18 á útvarps-
stöðinni Lindinni og á skrifstofu
ABC-hjálparstarfs.
ABC-dagur á útvarpsstöðinni Lindinni í dag
Rúmar 6 milljónir söfnuðust í ár-
legri söfnun ABC-hjálparstarfs
Börnin á Heimili litlu ljósanna fá að stunda tónlistarnám.
NÍUNDA norræna steinefnaráð-
stefnan verður haldin á Hótel Loft-
leiðum í Reykjavík 12. og 13. sept-
ember á vegum NSG (Nordiska
Sten och Grusindustriförbundet). Á
ráðstefnunni verður fjallað um
steinefnaiðnað í víðum skilningi, s.s.
kortlagningu hagnýtra jarðefna,
vinnslu jarðefna, tæknilega eigin-
leika steinefna o.fl. Gestafyrirlesar-
ar verða David Fowler, fram-
kvæmdastjóri International Centre
for Aggregate Research í Banda-
ríkjunum, og Philip Nixon frá
bresku byggingarannsóknastofnun-
inni Building Research Establish-
ment í Bretlandi.
Um það bil annaðhvert ár halda
samtökin norræna ráðstefnu (með
alþjóðlegu ívafi) og nú var óskað eft-
ir því að næsta ráðstefna yrði á Ís-
landi árið 2002. Ákveðið var að hún
yrði 12.-13. september 2002 í
Reykjavík, með dagsferð 14. sept-
ember. Nánari upplýsingar má finna
á vefsíðunni www.iii.is/aggeregate/.
Norræn ráðstefna
um steinefnaiðnað
HINN 10. september hefst fyrsti
hluti náms í verðbréfaviðskiptum
hjá Endurmenntun HÍ. Kennt er á
þriðjudögum kl. 16–20 og laugar-
dögum kl. 9–13. Þetta er í ellefta
sinn að boðið er upp á nám í verð-
bréfaviðskiptum hjá Endurmenntun
HÍ, segir í fréttatilkynningu.
Námið er kennt í þremur hlutum
og fjallar sá fyrsti um grunnatriði
lögfræðinnar og réttarreglur um
störf á fjármagnsmarkaði. Í síðari
hlutunum er farið í viðskiptafræði
og fjármagnsmarkað. Hverjum
hluta námsins lýkur með prófum.
Frekari upplýsingar um þetta nám
og annað réttindanám hjá Endur-
menntun eru á Netinu www.endur-
menntun.is og þar er jafnframt
hægt að skrá sig.
Nám að hefjast
í verðbréfa-
viðskiptum
VARÐBERG og Samtök um vest-
ræna samvinnu halda sameiginlegan
hádegisverðarfund í Skála á Hótel
Sögu miðvikudaginn 11. september
2002 og hefst fundurinn kl. 12.00.
Fundarefnið er hryðjuverk og áhrif
þeirra á Ísland.
Framsögumenn verða: Albert
Jónsson stjórnmálafræðingur, Stef-
án Eiríksson, skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu, og Steingrímur
Sigurgeirsson stjórnsýslufræðingur.
Fundarstjóri verður Magnús Þór
Gylfason, formaður Varðbergs. Allir
eru velkomnir á þennan hádegis-
verðarfund Varðbergs, segir í frétta-
tilkynningu.
Hryðjuverk
rædd á há-
degisfundi
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
hefur opið hús í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík í kvöld, þriðjudagskvöld,
10. september klukkan 20.30.
Gestur fundarins verður Guðrún
Bergmann, útgefandi bókanna
Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk,
Rétt matreiðsla fyrir þinn blóð-
flokk og Rétt líferni fyrir þinn
blóðflokk. Allir velunnarar félags-
ins eru velkomnir, segir í frétt frá
félaginu.
Rætt um heilsu-
far og mataræði
ÁFORM átaksverkefni efnir til ráð-
stefnu um sjálfbæra matvælafram-
leiðslu á Hótel Sögu, Súlnasal, kl. 10
f.h. miðvikudaginn 11. september
næstkomandi. Ráðstefnan er haldin í
tilefni komu innkaupastjóra verslun-
arkeðjunnar Whole Foods í Banda-
ríkjunum svo og fulltrúa veitingahús-
anna Tavern on The Green í New
York, Legal Sea Foods og DC Coast
og matreiðslumeistara þeirra.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
stöðu og stefnu Íslands í sjálfbærri
þróun og stöðu markaða og breyttar
kröfur neytenda í Bandaríkjunum til
matvæla.
Frummælendur á ráðstefnunni
verða Árni Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, Siv Friðleifsdóttir, um-
hverfisráðherra, Sigurgeir Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri Bænda-
samtakanna, Berglind Viktorsdóttir,
fulltrúi Ferðaþjónustu bænda, Roger
Berkowich, eigandi og forstjóri veit-
ingahúsakeðjunnar Legal Sea Foods,
Mel Coleman, forstjóri Coleman Nat-
ural, Dennis ÓDonnell, verslunar-
stjóri í kjötdeild Whole Foods í Wash-
ington, Laurie Rocke, markaðsstjóri
Whole Foods í New York og Jeff
Tunks, matreiðslumeistari DC Coast
í Washington.
Haukur Halldórsson, bóndi og for-
maður Áforms, setur ráðstefnuna.
Magnús Stephensen, markaðsstjóri
Flugleiða í Ameríku, verður ráð-
stefnustjóri.
Í hádeginu verður boðið uppá há-
degisverð á bandaríska vísu frá Norð-
lenska og Mjólkursamsölunni. Ráð-
stefnugjald, kaffi og hádegisverður
innifalið, er kr. 3.900.
Ráðstefnan er öllu áhugafólki opin
og er fólk hvatt til að skrá sig tím-
anlega þar sem um takmarkað hús-
rými er að ræða, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Rætt um sjálfbæra
matvælaframleiðslu
„STÖÐUGLEIKI og stóriðjufram-
kvæmdir – er hætta á ofþenslu?“ er
yfirskrift morgunverðarfundar Sam-
taka atvinnulífsins miðvikudaginn 11.
september nk. Frummælendur verða
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, Bolli Þór Bolla-
son, skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu, og Þórarinn G. Pétursson,
deildarstjóri hjá Seðlabanka Íslands.
Fundarstjóri verður Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Íslandsbanka.
Fundurinn verður í Sunnusal Hót-
els Sögu kl. 8:00–9:30. Hann er öllum
opinn en æskilegt er að þátttakendur
tilkynni þátttöku með tölvupósti til
sa@sa.is. Þátttökugjald er kr. 2.000
og er morgunverður innifalinn.
Rætt um stöðugleika
og stóriðjuframkvæmdir