Morgunblaðið - 10.09.2002, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
KÆRU Íslendingar.
Í dag gefst okkur enn eitt tæki-
færið til að láta gott af okkur leiða.
Nokkur hundruð umkomulaus börn
á Indlandi mæna til okkar eftir hjálp.
Heimili litlu ljósanna er von þeirra,
en samt ekki nema með okkar hjálp.
Þetta heimili er stórkostlegur far-
vegur fyrir okkur, tækifæri til að
hjálpa hundruðum, jafnvel þúsund-
um munaðarlausra, heimilislausra
og fátækra barna. Þeir sem hafa orð-
ið þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga
mannslífum þekkja vellíðanina sem
fylgir því að hafa orðið öðrum til
bjargar. Að gefa barni tækifæri á að
lifa mannsæmandi lífi er á vissan
hátt hliðstæða þess að bjarga
mannslífi. Það mun hafa ómældar
blessanir í för með sér bæði fyrir
barnið sem fær að njóta og vel-
gjörðamann þess. Þakklæti, hlýjar
hugsanir og fyrirbænir barnsins fyr-
ir styrktaraðila sínum eru ómetan-
legt innlegg í tilveruna og sú tilfinn-
ing að skipta sköpum fyrir líf
einhvers gefur lífinu allt annað vægi
og tilgang. Margir Íslendingar glíma
við tilgangsleysi. Eitt besta ráðið við
því er að taka augun af sjálfum sér
og byrja að hugsa um aðra. Hvar er
hægt að verða að liði? Hvernig get
ég skipt sköpum fyrir líf annarra? Að
taka að sér að styrkja barn t.d. á Ind-
landi er upplagt tækifæri til að verða
að liði.
Þeir sem sjá fyrir börnum á Ís-
landi vita að það kostar sitt. Lág-
marks meðlag með barni er rúmar
15 þúsund krónur á mánuði sem er
hugsað sem hálf framfærsla barns
fyrir utan barnabætur. Samkvæmt
opinberum útreikningum kostar því
yfir 30 þúsund krónur á mánuði að
sjá fyrir barni á Íslandi. Kostnaður
við framfærslu barns á Indlandi er
ekki nema brot af þeirri upphæð.
Flestir Íslendingar ráða við það fjár-
hagslega að sjá fyrir barni hér á
landi. Fyrir sömu upphæð má sjá
fyrir 10 börnum á Heimili litlu ljós-
anna. Barn er blessun. Fleiri börn
eru enn meiri blessun. ABC-hjálp-
arstarf er farvegur blessunar bæði
fyrir stuðningsaðila og börnin sem
þeir styrkja. Nú þegar eru yfir 3500
börn sem þiggja framfærslu sína frá
stuðningsaðilum á Íslandi í gegnum
ABC-hjálparstarf og fer þeim stöð-
ugt fjölgandi.
Í dag verður ABC-dagur á Út-
varpsstöðinni Lindinni þar sem Ís-
lendingum gefst tækifæri til að taka
að sér börn á Heimili litlu ljósanna.
Heimili litlu ljósanna var stofnað ár-
ið 1992 og er því 10 ára á þessu ári. Í
byrjun voru 40 börn tekin inn af göt-
unni, en í dag eru börnin orðin 1500
talsins og 200 til viðbótar bíða þess
að komast inn. Mikill húsakostur
hefur verið byggður upp á heimilinu
og vantar nú ekkert nema stuðnings-
aðila fyrir börnin. 143 af þeim börn-
um sem þegar eru komin inn vantar
stuðningsaðila auk allra þeirra sem
bíða.
Þarna er því upplagt tækifæri fyr-
ir okkur að láta gott af okkur leiða.
Tækifæri sem við ættum ekki að láta
fram hjá okkur fara. Útvarpssöfnun-
in á Lindinni stendur frá kl. 9–18.30 í
dag og er hægt að hringja þangað í s.
567–1818 eða í ABC-hjálparstarf í s.
561–6117 og tilkynna stuðning.
Lindin sendir út á FM 102,9 á höf-
uðborgarsvæðinu, Ísafirði og Höfn,
en á bylgjulengdum 103,1 á Akur-
eyri, 104,5 á Húsavík, 106,5 á Ólafs-
firði og Siglufirði, 88,9 á Suðurlandi
og í Vestmannaeyjum og 99,6 á Sel-
fossi.
GUÐRÚN MARGRÉT
PÁLSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri ABC-hjálparstarfs.
Heimili litlu
ljósanna 10 ára
Frá Guðrúnu Margréti Pálsdóttur:
Frá Heimili litlu ljósanna.