Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert nærgætinn og hlúir
að öllu sem andann dregur.
Vinir þínir treysta þér fyrir
sjálfum sér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur mætt hvaða áskorun
sem er ef þú nýtir hæfileika
þína. Láttu ekkert koma þér á
óvart þegar leitað verður eftir
stuðningi þínum við ákveðið
mál.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Haltu þínu striki og þá munu
draumar þínir rætast. Þú hef-
ur lagt hart að þér en munt nú
uppskera árangur erfiðis
þíns.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú þarftu að taka til hendinni
og klára allt það sem þú hefur
látið sitja á hakanum. Ýttu
nýjum verkefnum frá þér á
meðan; öðruvísi hefst það
ekki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er ósiður að svara ekki
skilaboðum. Taktu þig nú á og
gerðu að reglu að svara þeim
símtölum og tölvubréfum,
a.m.k. þeim sem skipta ein-
hverju máli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu viðbúinn því að þurfa
að bregðast við með litlum
fyrirvara. Það er ekki alltaf
hægt að velja stað og stund og
því gott að vera á varðbergi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gefðu þér góðan tíma til þess
að lesa smáa letrið því það eru
einmitt oft smáatriðin sem
hafa mestu afleiðingarnar
hvort heldur er til hins betra
eða verra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Varastu að vera of kröfuharð-
ur við fjölskyldumeðlim af
eldri kynslóðinni. Líttu í eigin
barm og skoðaðu málin í ró-
legheitunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu ekkert að vanhugsuðu
máli í viðskiptum. Leitaðu
ráða hjá þér reyndari mönn-
um, ef einhver efi leynist í
brjósti þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Viljirðu ná einhverjum ár-
angri skaltu gera hlutina
sjálfur því það tekur svo lang-
an tíma að kenna öðrum ný
vinnubrögð.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu allar meiriháttar samn-
ingaviðræður bíða fram á
haustið og njóttu þess sem
eftir lifir sumars og sinntu
sjálfum þér og þínum nán-
ustu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það getur reynst erfitt að
snúa blaðinu við þegar deilur
um viðkvæm málefni hafa far-
ið úr böndunum. Gættu þess
vegna orða þinna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er nauðsynlegt að geta
bæði gefið og þegið því án
annars er hitt ekkert. Varastu
samt að láta aðra ganga of
nærri þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
75 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 10.
september, er 75 ára Elín
Eiríksdóttir frá Dröngum,
Gullsmára 7, Kópavogi.
Hún er að heiman á afmæl-
isdaginn.
LJÓÐABROT
GLEYM MÉR EI
Þú fæddist á blásnum og hrjóstrugum hól
einn helkaldan éljadag,
er blómkrónan ljóselska bað um skjól;
þá byrgðu stormskýin vorsins sól
og kváðu þér líksöngslag.
Það sýndist svo tilgangslaust strit og stríð
að standa á eyðimel,
dreyma um sóldægur, söng í hlíð,
seytlandi lindir og vorljóð blíð,
en sjá aðeins sorta og él.
Hvort var þér ei ofraun, hið viðkvæma blóm
með vorþrá í hverri taug,
að skjálfa í næðingsins úthafsóm,
en elska og teyga hvern lit og hljóm
í ljóssins skínandi laug.
– – –
Kristín Sigfúsdóttir
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.051
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau heita Hallveig, Stef-
án, Auður, Anna Hjördís og Elísabet.
Morgunblaðið/Júlíus
Þessar duglegu stúlkur héldu flóamarkað til styrktar
krabbameinssjúkum börnum og söfnuðu þær 7.819 kr. Þær
heita Björk, Kristín, Þórdís, Þórunn og Erna Rós.
HEFÐ hefur skapast fyrir
því að halda silfurstigamót
eina helgi á haustin til að
hita spilara upp fyrir vetr-
arstarfið. Aðstandendur
sumarspilamennskunnar,
hjónin Matthías Þorvalds-
son og Ljósbrá Baldurs-
dóttir, stóðu fyrir slíku
móti um helgina í húsnæði
BSÍ við Síðumúla, bæði
tvímenningi og sveita-
keppni. Tvímennings-
keppnin fór fram á laug-
ardeginum með þátttöku
40 para, en 22 sveitir tóku
þátt í sveitakeppninni á
sunnudeginum. Heiðar
Sigurjónsson og Þröstur
Þorláksson unnu tvímenn-
inginn, en sveit Júlíusar
Sigurjónssonar sveita-
keppnina. Með Júlíusi
spiluðu Steinar Jónsson,
Ragnar Magnússon og
Jónas P. Erlingsson.
Norður
♠ ÁG63
♥ DG82
♦ ÁK6
♣ÁG
Vestur Austur
♠ D10975 ♠ 2
♥ 53 ♥ 764
♦ 1095 ♦ G8432
♣D74 ♣K986
Suður
♠ K84
♥ ÁK109
♦ D7
♣10532
Spilið að ofan kom upp í
síðustu umferð sveita-
keppninnar. Sex hjörtu er
góð slemma í NS og vinnst
auðveldlega með því að
trompa tvö lauf í borði. En
Steinar og Júlíus enduðu í
sex gröndum gegn Subaru-
mönnunum Jóni Baldurs-
syni og Þorláki Jónssyni. Í
grandslemmunni eru að 10
toppslagir og 11 með svín-
ingu fyrir spaðadrottn-
ingu. Tólfti slagurinn skil-
ar sér hins vegar
sjálfkrafa með þvingun á
vestur í svörtu litunum.
Það er sama hvað kemur
út, en við skulum gera ráð
fyrir tígli. Sagnhafi tekur
slaginn heima og spilar
strax laufi á gosann og
kóng austurs. Laufásinn er
svo tekinn við fyrsta tæki-
færi og þegar sagnhafi
spilar síðasta rauða spilinu
sínu þvingast vestur með
laufdrottningu og spaða-
lengdina.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. g4 0-0 5. g5 Re8 6.
Hg1 d5 7. Db3 Bxc3 8. Dxc3
Rd6 9. b3 Re4 10. Dc2 c5 11.
Bb2 Rc6 12. a3 b6 13. e3 f5
14. gxf6 Rxf6 15. cxd5 exd5
16. Rg5 d4 17. Bg2 Bd7 18.
Bxc6 Bxc6
Staðan kom upp á franska
meistaramótinu sem lauk
fyrir skömmu í Val d’Isère.
Anatoly Vaisser (2581)
hafði hvítt gegn
Andrei Sokolov
(2587). 19. Bxd4!
cxd4 20. Dxc6
dxe3 21. fxe3 Hc8
22. De6+ Kh8 23.
Rf7+ Hxf7 24.
Dxf7 Hc7 25. De6
h6 26. Ke2 He7
27. Df5 Re4 28.
Ha2 Dc7 29. Hg2
He8 30. Dg6 De5
31. Hc2 Hf8 32.
Hc6 Rg5 33. h4
Db5+ 34. Hc4
Dxb3 35. Dc2 og
svartur gafst upp.
Lokastaða móts-
ins varð þessi: 1.-2. Etienne
Bacrot (2653) og Joel Laut-
ier 7½ vinning af 11 mögu-
legum (2663) 3. Josif Dorf-
man (2617) 6½ v. 4.-5.
Christian Bauer (2550) og
Andrei Sokolov (2587) 6 v. 6.
Anatoly Vaisser (2581) 5½
v. 7.-8. Cyril Marcelin
(2470) og Almira Skripch-
enko-Lautier (2497) 5 v. 9.-
11. Jean-Marc Degraeve
(2586), Laurent Fressinet
(2619) og Robert Fontaine
(2514) 4½ v. 12. Emmanuel
Bricard (2454) 3½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hlutavelta
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Nei, ég hef ekki hitt á
munninn ennþá, en
tvisvar hef ég verið
ansi nálægt.
Smælki
Mörkinni 6, sími 588 5518
Stórútsala
Opið virka
daga kl. 9-18.
Laugardaga
kl. 10-15
Regnkápur - Stuttkápur - Vindjakkar
- Úlpur - Hattar - Húfur
Kanínuskinn kr. 2.900
Allt á 50% afslætti
Síðustu dagar
NÁMSK
EIÐ Í
SJÁLFS
TYRKIN
GU
Áhersluatriði:
• Að greina eigið samskiptamynstur
• Að efla öryggi og sveigjanleika
• Að ráða við vandasöm samskipti
• Að auka sjálfstyrk á markvissan hátt
Höfundar og leiðbeinendur námskeiðs eru
sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir
og Guðfinna Eydal.
Skráning í síma 562 3075
Netfang: psych.center@mmedia.is
SÁLFRÆÐISTÖÐIN
börn og fullorðna á öllum aldri
Byrjendur Keppnispör
Framhald Brúðarpör
Erlendir gestakennarar
Kenndir verða allir almennir samkvæmisdansar, barnadansar,
standard-, suður-amerískir-, kántrý- og gömlu dansarnir.
Kennsla hefst laugardaginn 21. september!
Innritun og upplýsingar 2.-20. september
Dansfélagið Hvönn
HK-húsið við Digranesveg, 200 Kópavogur,
sími 862 6168,
netfang: hvonn@islandia.is — danshusid@islandia.is,
www.islandia.is/danshusid Ísak og Helga Dögg
Hildur Ýr danskennari
Troðfull búð af
nýjum vörum
Mikið úrval af
peysum, buxum
og dressum
NÝJAR HAUSTVÖRUR
Ath. stórar stærðir