Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 53
SAGA hljómsveitarinnar The
Leaves er ekki löng, en óvenjuleg,
að minnsta kosti á íslenskan mæli-
kvarða. Hún var á hvers manns
vörum áður en varla nokkur hafði
heyrt með henni lag, umtöluð vegna
væntanlegs plötusamnings við er-
lent útgáfufyrirtæki. Hún var eig-
inlega búin að
„meika það“ fyrir-
fram, og vænting-
arnar miklar.
Laufskrúðið
minnir mjög á vin-
sælar sveitir í dag sem gera út á
melódískt tilfinningarokk og er
næstum óþægilega lík Coldplay. Við
fyrstu hlustanir þarf því meðvitað að
komast framhjá þessum skyldleika-
pirringi, og ekki síður skruminu í
kringum sveitina, svo að lögin geti
talað fyrir sig sjálf. En eftir nokkrar
heiðarlegar tilraunir til hlustunar
kemst maður því miður að þeirri
niðurstöðu að hér sé engin stórkost-
leg frumsmíð á ferðinni. Eftir fimm
ár verður hægt að hlusta á þessa
plötu og vita nákvæmlega á hvaða
ári hún var gerð – svo rækilega
fylgir þetta meginstraumum rokks-
ins í dag.
Það vantar ekki að allt sé vel gert
og fagmannlega unnið og hljómur-
inn þéttur en það sem mest fer í
taugarnar á mér er hversu efnistök-
in eru formúlukennd og stundum illa
farið með góðar laglínur – því þær
eru vissulega fyrir hendi. Þetta
gengur út á tilfinningaríkar kafla-
skiptingar milli kröftugra gítarkafla
og hægara millispils þar sem allt er
látið deyja út nema nokkrar mel-
ankólískar gítarnótur eða píanóstef,
síðan rennt aftur upp í dramatískt
viðlag með gítargusum og strengj-
um – alltof mikið af strengjum – og
falsetturöddin notuð hvar sem henni
verður við komið. Mér finnst eins og
verið sé að ráðskast með hlustand-
ann með þessum tilfinningabrellum
en samt sem áður virðist söngvaran-
um ekki liggja neitt mjög mikið á
hjarta, textarnir ósköp meinlausir
og mestanpart hugsað um að orðin
rími og falli að laglínunni.
Á stundum skilur maður þó á
hverju væntingarnar byggjast, t.d.
hljómar lagið „Catch“ nokkuð frískt
með mjög svo grípandi viðlagi sem
límist við heilann (annað varla hægt
því það er endurtekið svona tuttugu
sinnum) og einna best er titillagið
„Breathe“, sem er falleg poppball-
aða með hugljúfu viðlagi og
skemmtilegum gítarkafla. Ofnotkun
strengja gerir það þó væmnara en
ella. Flest lögin eiga það sameig-
inlegt að vera heldur löng og síðustu
mínúturnar fara yfirleitt í endur-
tekningar á viðlögunum sem gerir
yfirbragðið þunglamalegt. Kassagít-
arballaðan „Suppose“ fær mann þó
til að anda aðeins léttar, er einföld
en virkar einlæg. Lokalagið „We“ er
ekki eins rígbundið í byggingu og
flest lögin, virkar grófara og áhuga-
verðara og stefið sem endar diskinn
eftir að hann hefur endað (frekar
þreytt fyrirbæri) skapar andrúms-
loft innilokunarkenndar með rifinni
gítarlínu og kaldri og fjarlægri rödd.
Kalt mat er þó að hér sé of fátt
um frumleg efnistök og of langt
gengið í því að ná tískuhljómi dags-
ins til að lögin skapi sér sérstöðu.
Þótt stundum náist gott samband
við melódíuguðinn, þá eru umbúðir
og efnistök einum of sjoppuleg og
einnota til að pakkinn gangi upp.
Tónlist
Lífs eða
liðnir?
The Leaves
Breathe
B Unique Records
Frumburður hljómsveitarinnar The Leav-
es en hana skipa Arnar Guðjónsson, Arn-
ar Ólafsson, Hallur Már Hallsson og
Bjarni Grímsson. Upptökur voru í umsjón
Arnars G. og awayTEAM og fóru fram í
Thule-hljóðverinu hér heima, en Steve
Osborne sá síðan um hljóðblöndun.
Strengjaútsetningar: Hlynur Aðils og Arn-
ar G.
Steinunn Haraldsdóttir
Arnar Guðjónsson, söngvari og gítarleikari Leaves, á sviði.
Morgunblaðið/Jim Smart
KVIKMYNDIN The Magdalene
Sisters, eftir skoska leikstjórann
Peter Mullan, var valin besta mynd-
in á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
sem lauk á sunnudag.
Myndin, sem byggð er á sann-
sögulegum atburðum, gerist á Ír-
landi fyrir fjórum áratugum og
fjallar um slæma meðferð á konum
af hálfu kaþólsku kirkjunnar. Páfa-
garður hefur fordæmt myndina en
hún þótti sigurstrangleg á kvik-
myndahátíðinni.
Ítalinn Stefano Accorsi var valinn
besti karlleikarinn fyrir leik í mynd-
inni Un Viaggio Chiamato Amore og
bandaríska leikkonan Julianne
Moore var valin besta leikkonan í
myndinni Far from Heaven eftir
Todd Haynes. Suður-Kóreumaður-
inn Lee Chang-Dong var valinn besti
leikstjórinn fyrir mynd sína Oasis.
Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum lokið
Gullljónið
til skoskr-
ar myndar
Reuters
Skoski leikstjórinn og leikarinn
Peter Mullan með Gullljónið.
Frönskunámskeið
Innritun 2. - 13. september
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
Taltímar og einkatímar
Námskeið fyrir börn.
NÝTT! Viðskiptafranska
NÝTT! Lagafranska
Hringbraut 121 - JL-húsið, 107 Reykjavík, fax 562 3820
Veffang: http://af.ismennt.is
Netfang: af@ismennt.is
Innritun í síma
552 3870 og 562 3820
Námskeiðin hefjast 16. september
Grjótháls
Vesturlandsvegur
H
öfðabakki
Bíldshöfði