Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 54

Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sannsöguleg stórmynd framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni. Ingvar Sigurðsson fer á kostum í magnaðri mynd sem þú mátt ekki missa af! Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.  Kvikmyndir .com Sýnd kl. 8 og 10. mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE  Radíó X 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. með íslensku tali. Yfir 15.000 MANNS Sýnd kl.5.30.  HL Mbl miðaverð aðeins 350 kr! STUTTMYND  HJ Mbl  ÓHT Rás 2 - www.borgarbio.is -  DV Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 6 og 8. Yfir 27.000 MANNS „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i l i li EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Yfir 20.000 MANNS The Sweetest Thing Sexý og Single i l  HL Mbl Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11. B. i. 14. Sannsöguleg stórmynd framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni. Ingvar Sigurðsson fer á kostum í magnaðri mynd sem þú mátt ekki missa af! miðaverð aðeins 350 kr! STUTTMYND  HJ Mbl  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 4 og 4.30. kl. 6.30 og 9.30.  Kvikmyndir .com Sýnd með íslensku tali. Sýnd kl. 4 og 6. með íslensku tali.  DV Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDUM kl. 22.25 er nú verið að sýna á Stöð 2 íslenska ferðaþætti sem nefnast Sætir draumar. Þar er Friðrik Örn ljósmyndari á ferðalagi í Indónesíu ásamt vini sínum Teiti Þorkelssyni þáttagerðarmanni. Og besti ferða- langur þeirra var lítil stafræn myndvél sem festi ævintýrið á filmu. Eyjastemning og köfun „Ég var búinn að ákveða að fara í frí eitthvað til Asíu, þegar Teitur vinur minn ákvað að skella sér með. Okkur langaði í eyjastemn- ingu þar sem engir ferðamenn væru og lífið allt mjög afslappað. Okkur var sama um þægindin og vildum bara geta kafað,“ segir Friðrik spurður um hugmyndina að gerð þáttanna. „Nokkrum dögum fyrir brottför datt mér síðan í hug að gaman væri að taka upp efni, aldrei að vita nema við gætum gert eitthvað úr því. Ég fór daginn áður og keypti pínulitla stafræna myndavél, fullt af batteríum og nóg af spólum. Svo þurftum við ekkert meira en eina íþróttatösku með rakvélinni, stuttermabolum, stuttbuxum og sundskýlu, og þá var þetta komið. Jú, svo tók ég tvær litlar mynda- vélar með mér.“ Orðnir hálfinnfæddir Strákarnir flugu til Balí og fóru þaðan til eyjunnar Sulawesi, sem er tvöfalt stærri en Ísland, og ferð- uðust hana frá suðri til norðurs. „Teitur er mikill tungumála- áhugamaður, og var sífellt að glugga í bækur til að reyna að tala við fólkið. Ég hélt mig meira til baka og var með vélina á lofti,“ segir Friðrik. „Við héldum áfram til Togian- eyja þar sem við ætluðum að dvelja í tvær vikur en enduðum með að vera þar í heilan mánuð. Við kom- umst því í miklu nánara samband við umhverfið og fólkið, heldur en venjulega á ferðalögum. Þetta er pínulítil eyja þar sem voru bara átta strákofar, bátar og köfunar- útbúnaður. Það kostaði okkur 250 krónur á dag að fá þrjár máltíðir, aðstoðarstrák og vera á ströndinni. Þetta var alveg dásamlegt. Við vor- um orðnir hálfinnfæddir. Síðan fór- um við aðeins norðar til að kafa og komum síðan heim.“ Öfugt veðurfar – Hvernig var heimkoman? „Við vorum einn dag í bænum og vorum að fríka út á öllu brjálæðinu, eftir að vera orðnir vanir allt öðr- um ryþma. En við fengum góða hugmynd og fórum út í eyju á Breiðafirði sem vinur okkar á, og sátum þar í viku og byrjuðum að vinna efnið í ferðatölvunni minni. Það var einstakt að komast aftur í þessa einangruðu eyjarstemningu. Svipað umhverfi nema öfugt veð- urfar. Þarna komu þættirnir mest saman. Eyjamyndin var unnin á eyju. Þetta var hægt því við vorum með svo lítinn búnað.“ Friðrik segir tvennt vera nýtt við vinnsluna á þáttunum. Það að vera unnir á eins lítinn búnað og hægt er að vinna sjónvarpsþátt í dag. Bún- aðurinn er ein lítil tökuvél og snúra úr henni í ferðatölvu. Öll klipping, hljóðsetningin, þulur og allt unnið í tölvunni og kemur þannig tilbúið út úr tölvunni og spilast svo inn á nýja spólu. „Ég setti líka nokkrar ljós- myndir inn í þættina og svo allan textann, og notaði tækifærið að hafa það mjög óhefðbundið.“ Ólík sjónarmið Stöð 2 sýndi síðan sl. vetur röð örþátta úr ferðalaginu, 5–10 mín- útna langa, þar sem hver þáttur fjallar um eitthvert einstakt atvik sem kom upp á þessum framandi slóðum, eins og þegar Teitur var bitinn af risaskötu. „Núna er hins vegar verið að sýna fjóra hálftíma þætti, unna úr örþáttunum. Ég er mjög ánægður með hvernig þættirnir hafa komið út, það er mikið af tónlist, hraðar klippingar og öðruvísi sjónarmið en við erum vön. Og það var litla myndavélin sem gerði okkur kleift að mynda hvað sem var, hvenær sem var, í myrkri, sól, á ferð eða í kyrrstöðu.“ – Og í þáttunum leitist þið við að sýna lífið á þessum eyjum? „Fyrir utan það að vera venju- legur ferðaþáttur þar sem fegurð landsins er sýnd, tókum við upp á ýmsu. Eins og þegar ég var búinn að fá leið á að fá fisk í hvert mál, sendi ég mann til að kaupa handa mér kjúklinga í næsta þorpi. Þeim þurfti síðan að slátra fyrir elda- mennskuna og þá fylgdumst við með því hvernig þessir múslimir slátruðu kjúklingnum. Þau báðu fyrir skepnunni, drápu hana hægt og rólega, eiginlega leiddu hana inn í dauðann, til að hafa allt á hreinu þegar þeir hitta þessa skepnu í næsta lífi. Síðan sést ég, ís- lenski drengurinn sem er búinn að vera í sveit, sveifla exi og höggva af kjúklingi hausinn. Það eru þessi ólíku sjónarmið sem oft má sjá í þáttunum.“ Að detta úr sambandi „Síðan er auðvitað þetta einfalda líf alveg einstök lífsreynsla. Við komum t.d. í þorp þar sem húsin eru reist á stultum úti í sjó. Þá eru engar pöddur, engir snákar. Þau sigla svo á bátum til að veiða og faðirinn fer einstaka sinnum í bæ- inn að selja aflann. Þau eru ekki með húsgögn, og það eina sem minnir á heimili er steinhrúga sem kveiktur er eldur í til að hita mat. Það er annað en lífsgæðakapp- hlaupið hér. Það var gaman að sjá svona algerlega frumstæða lifn- aðarhætti. Og það er frábært fyrir mann að vera minntur á hvað mað- ur hefur það rosalega gott!“ – Hvað stendur upp úr í ferðinni? „Það er Kadidiri-eyjan í Togian- eyjaklasanum, þar sem við vorum sem lengst. Og þessi sérstaka til- finning að vera búinn að vera í mánuð á sama stað, þekkja alla með nafni, vita hvernig allt gengur fyrir sig og vera orðinn virkur þátttakandi í þessu samfélagi. Mað- ur er eiginlega ekki lengur ferða- maður, heldur orðinn hluti af um- hverfinu. Þetta var algjör andstaða þess sem maður er vanur. Að fá að detta úr sambandi við sitt venju- lega líf og umheiminn. Það var sex stunda sigling í næsta gervitungls- síma. Þetta var ótrúlegt. Það er hefur verið svo gaman að vinna þessa sjónvarpsþætti því ferðalagið hefur þannig enst miklu lengur fyr- ir mig. En núna er það að verða bú- ið.“ – Er tregi í þér? „Nja … kannski ekki tregi. Frek- ar spenna við tilhugsunina: hvað gerist næst?“ Einfalt líf og einstakt Með íþróttatösku í annarri og vídeómynda- vél í hinni héldu Teitur Þorkelsson og Friðrik Örn á vit sætra drauma í Indónes- íu. Drauma sem rættust á skjánum. Ljósmynd/Friðrik Örn Þessi litla stelpa og bróðir hennar voru einu börnin á Kadidiri. Ljósmynd/Friðrik Örn Í hópi innfæddra félaga sem ráku köfunar- og strákofaþjónustuna. Frið- rik Örn fyrir miðju, Teitur t.h. og Salómon, svissneskur ferðalangur, t.v. Ferðaþættirnir Sætir draumar á Stöð 2 hilo@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.