Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
7.9. 2002
6
5 8 8 9 5
9 6 0 2 5
7 17 19 32
36
4.9. 2002
8 24 28
30 31 48
10 23
Einfaldur 1.
vinningur næsta
miðvikudag
Tvöfaldur
1. vinningur
næsta laugardag
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 426
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6.45 og 9. B.i. 12. Vit 427
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 423
M E L G I B S O N
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Hetja framtíðarinnar
er mætt í frábærri
grínmynd!
EddieMurphyog RandyQuaidí sprenghlægilegri
gamanmynd sem kemur verulega á óvart.
Sýnd kl. 4 og 5.Íslenskt tal. Vit 429
“Litla bláa geimveran Stitcher
skemmtilegasta persónan sem
komið hefur úr smiðju Disney.”
“Frábær skemmtun fyrir börn og
fullorðna.” “Stitcher ekkert
venjulegt Disneykrútt!”
ÞÞ Fréttablaðið
1/2
Kvikmyndir.is
Það er einn í hverri
fjölskyldu!
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
4507-2900-0005-8609
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
! "#
"$%&'
()()$$$
Líf þitt mun
aldrei
verða
eins!
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
M E L G I B S O N
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B. i. 12.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
SG. DV
SV Mbl
1/2
SV Mbl
1/2
HI.Mbl i i
Sýnd kl. 6.
ÓHT Rás2
SK Radíó X
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10. Enskt tal.
Sjáið myndina í frábæru
nýju hljóðkerfi Háskólabíós
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Rómantísk gamanmynd úr raunveru-
leikanum sem fjallar um íslenskan
mann, Jón Gnarr, sem verður ást-
fangin af Kínverskri stúlku.
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÉG HÉLT reyndar að þetta væru
Þjóðverjar að tylla sér niður hjá mér.
En þá víkur einn þeirra sér að mér og
spyr mig hvort ég muni ekki eftir
honum. Ég jánka að sjálfsögðu þó ég
muni ekkert hvaða maður þetta er.
En þá rennur allt í einu upp ljós. Hér
er kominn Sólarn Solmunde, músík-
mógúll frá Færeyjum, sem var í sam-
tali við Morgunblaðið fyrr á þessu
ári, þegar „færeyska“ bylgjan reið
yfir Íslendinga, með rokksveitina Tý
fremsta í flokki.
Um þessar mundir starfar hann
sem umboðsmaður rokksveitarinnar
Clickhaze og er þarna sestur niður til
snæðings ásamt gítarleikara hennar,
Jóni Tyril. Clickhaze spilaði á hinu
svokallaða Tjaldsviði, tónleikatjaldi
sem í gangi var daganna fyrir opin-
bera dagskrá Hróarskeldu. Söng-
kona sveitarinnar er Eivør nokkur
Pálsdóttir, ung og efnileg söngkona
sem heimsótti Ísland í vor en eftir
hana liggur m.a. sólóplata sem fengið
hefur framúrskarandi dóma. Click-
haze þykir vera það frambærilegasta
í Færeyjum um þessar mundir og
ekki stóð á stemmningunni hjá lönd-
unum, sem voru búnir að koma sér
fyrir framan við sviðið, veifandi fær-
eyska fánanum og syngjandi þjóð-
sönginn.
„Fáránlegt,“ segir Sólarn og glott-
ir. „En samt óneitanlega sætt líka.“
Ísland í gegnum hjartað
Clickhaze hefur verið að fá fína
dóma að undanförnu, einkum í
dönskum blöðum. Einn rýnirinn
gekk meira að segja svo langt að
segja Clickhaze besta rokkband
Skandinavíu í dag. Hvað sem gíf-
uryrðum líður hefur umtalið um
sveitina verið afar jákvætt, en tón-
listin er framsækið rokk, blandað al-
þýðutónlist Færeyja með heilnæm-
um skammti af nútíma raftónlist.
Einstök rödd Eivarar sér svo til þess
að blandan virkar snurðulaust en
dæmi er hægt að nálgast á nýlegri
þröngskífu, sem kallast einfaldlega
EP. Tónlistarlíf í Færeyjum hefur
reyndar verið með eindæmum
hressilegt undanfarin tíu ár eða svo –
eða allt síðan efnahagskerfið þar
hrundi með látum. Neyðin kennir
greinilega naktri konu að ... spila á
gítar?
„Árið 2001 unnum við keppnina
Prix Føryoar,“ útskýrir Jón, er hann
er spurður hvernig þeir hafi komist
að á Hróarskeldu. „Í kjölfarið spil-
uðum við á tónleikum í Danmörku,
fengum prýðilega dóma, og í kjölfarið
var haft samband við okkur.“
Þeir segjast ánægðir með við-
brögðin við tónleikunum og í kjölfar-
ið hafi þeir aukinheldur náð að selja
slatta af geisladiskum.
Á Hróarskeldu varð blaðamanni
dagljóst að það er mikilvægt að hafa
umboðsmann – þ.e. að segja, ætli
menn sér í alvörunni að leika með
„stóru strákunum.“
„Jú, þetta er afar mikilvægt,“ sam-
þykkir Sólarn. „Allt pappírsflóðið,
rafpóstar og símtöl fer yfir á umboðs-
manninn. Hljómsveitin getur þá ein-
beitt sér að tónlistinni. Ég hef aldrei
gert þetta áður og er að læra þetta
jafnóðum.“
Aðspurðir um „færeysku“ bylgj-
una sem reið yfir Ísland fyrir stuttu
segir Sólarn.
„Það hefur verið mjög gaman og
gott fyrir færeyskar sveitir að fara til
Íslands og spila,“ segir hann. „Mark-
aðurinn hjá ykkur er auðvitað mun
stærri en hjá okkur. Ísland virðist
líka mikið í tísku um þessar mundir.“
Jón bætir við: „Tengslin við Ísland
og Danmörku eru mjög ólík. Við er-
um tengd Danmörku meira á stjórn-
arfarslegan hátt. En Íslandi tengj-
umst við í gegnum hjartað. Okkur
finnst Íslendingar vera meira svona
bræður og systur.“
Möguleiki er á heimsókn þessara
systkina okkar í haust. Ekkert hefur
þó verið staðfest enn. Færeyska tón-
list, gamla sem nýja, er hægt að nálg-
ast á meðan í Hljómalind, Laugavegi,
og vel hugsanlega í einhverjum fleiri
hljómplötuverslunum.
Morgunblaðið/Arnar Eggert
Sólarn Solmunde og Jón Tyril nutu veitinganna í Shark House.
Clickhaze nýtur lífsins.
Clickhaze er efnilegasta rokksveit Færeyinga
Besta hljómsveit
Skandinavíu?
Umliðin Hróarskelduhátíð einkenndist
m.a. af vænum Skandinavíuvinkli. Á meðal
sveita sem þar lék var Clickhaze, helsta
rokksveit Færeyja um þessar mundir.
Arnar Eggert Thoroddsen rakst á
tvo Clickhaze-liða í veitingatjaldinu
Shark House og tók þá tali.
TENGLAR
.....................................................
www.pop.fo
www.clickhaze.net
arnart@mbl.is
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739