Morgunblaðið - 10.09.2002, Síða 60

Morgunblaðið - 10.09.2002, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÁKVEÐIÐ hefur verið af ráðherra- nefnd um einkavæðingu að ganga til viðræðna við Samson ehf. um kaup á umtalsverðum hlut í Landsbanka Ís- lands hf. Félagið er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, Magnúsar Þorsteinssonar og Björgólfs Guð- mundssonar. Jafnframt hefur verið ákveðið að hefja nú þegar frekari undirbúning að sölu á umtalsverðum hlut í Búnaðarbanka Íslands hf. Varðandi sölu Landsbankans byggist ákvörðunin á forsendum framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu og mati alþjóðlega bankans HSBC á þeim gögnum sem borist hafa frá þeim þremur aðilum sem nefndin hefur átt í viðræðum við. Áhugi eigenda Samson á að ger- ast kjölfestufjárfestir í Landsbank- anum kom fyrst fram í bréfi sem sent var framkvæmdanefnd um einkavæðingu 27. júní sl. Í bréfinu voru verðhugmyndir tilgreindar og líta aðstandendur félagsins á þær sem helstu forsendur viðskiptanna. Björgólfur Thor Björgólfsson seg- ir að eigendur Samson séu ánægðir með að einkavæðingarnefnd skuli hafa ákveðið að hefja viðræður við þá en ekki sé þar með sagt að þeir séu búnir að kaupa Landsbankann. Þeir hafi ekki enn fengið nægar upp- lýsingar um áætlanir bankans til næstu ára eða hvaða áhrif sala á 45% eignarhlut í VÍS muni hafa á af- komu hans. Einnig eigi eftir að ræða um hversu stóran hlut sé að ræða, verð og hvernig greiðslum verði háttað. Auk eigenda Samson var einka- væðingarnefnd í viðræðum við Kald- bak hf. og hóp sem samanstendur af eignarhaldsfélögunum Andvöku og Samvinnutryggingum, Fiskiðjunni Skagfirðingi, Kaupfélagi Skagfirð- inga, Keri hf., Samskipum og Sam- vinnulífeyrissjóðnum. Forráðamenn þeirra hópa fjár- festa sem Morgunblaðið náði tali af í gærkvöldi vildu ekki tjá sig um nið- urstöðu einkavæðingarnefndar. Kári Arnór Kárason, varaformaður stjórnar Kaldbaks, sagði að félagið hefði bæði sýnt Landsbankanum og Búnaðarbankanum áhuga. Nú sagð- ist hann reikna með að rætt yrði við þá fjóra hópa sem eftir stæðu um kaup á hlut í Búnaðarbankanum, þ.e. þá tvo sem ekki verður rætt frekar við um Landsbankann auk hinna tveggja sem ekki var rætt við vegna sama banka, en það eru Ís- landsbanki og hópur fjárfesta undir forystu Þórðar Magnússonar. HNEFALEIKAR njóta mikilla vin- sælda hjá ungu fólki um þessar mundir og stunda börn allt niður í 6 ára gömul þessa íþrótt. Sigurjón Gunnsteinsson, formaður Hnefa- leikafélags Reykjavíkur, segir að mikil aðsókn sé á námskeið í hnefa- leikum og að 500–600 manns hafi haft samband við félagið. Síðustu tvær vikur hafi fjöldi félagsmanna næstum því tvöfaldast, 100 manns hafi verið í félaginu fyrir hálfum mánuði en í dag séu þeir um 170. „Þetta er fólk á öllum aldri, en það sem kemur okkur mest á óvart er fjöldi kvenna. Þær sækja mest í þetta sem líkamsrækt, þetta er mikil brennsla og það er hugs- anlega það sem konurnar eru að sækjast eftir. Margir eru að berjast við aukakílóin. Ég veit að stelp- unum finnst þetta líka flott og skemmtilegt. Þetta er eitthvað öðruvísi,“ segir Sigurjón. Hann áætlar að um 60–70 konur stundi hnefaleika með félaginu. Yngstu börnin 6 ára Boðið er upp á sérstök kvenna- námskeið og einnig unglinga- og barnanámskeið. Segir Sigurjón að yngstu börnin sem æfi hnefaleika séu 6 ára gömul. Fyrst sé börn- unum kennt fyrir framan spegil án boxhanska, þar sem farið er í tækniatriði og líkamsstöðu. „Síðan er byrjað að slá í sekki og önnur áhöld með hanska. Á barna- námskeiðunum reynum við að hafa leiki sem örva snerpu, fljótt við- bragð og annað.“ Hann segir að börnin fari ekki í hringinn fyrstu mánuðina. „Þegar þau fara í hringinn eru þau með stóra hanska og byrja að slá inn fyrir vörnina hvert hjá öðru. Þau nota bara vinstri höndina og eiga ekki að kýla andstæðinginn, heldur bara snerta,“ segir Sigurjón. Hann telur að á milli 30 og 40 börn á aldrinum 6–12 ára séu skráð á námskeið og um 40–50 unglingar á aldrinum 12–16 ára. Sigurjón segir að íþrótt- in virðist vera í tísku hjá ung- lingum og fólki á þrítugsaldri, en fólk allt upp í fimmtugt stundi íþróttina. Engar reglur séu í gildi um lágmarksaldur til að æfa íþróttina, en börn þurfi að vera orðin 9 ára til að geta keppt í hnefaleikum. Myndin var tekin á æfingu hjá Hnefaleikafélaginu í gærkvöld. Konur flykkjast í hnefa- leika Morgunblaðið/Kristinn ÞRÍR Mongólar á þrítugs- og fer- tugsaldri, sem komu til landsins með ferjunni Norrönu á fimmtudag, hafa sótt um pólitískt hæli hérlendis og rannsakar lögreglan í Reykjavík mál þeirra. Í hópnum eru tveir 32 ára karlmenn og systir annars þeirra, 27 ára. Þau voru með vegabréf þegar þau komu til landsins, en sögðust hafa af- hent þau tilteknum manni hér á landi, sem grunur leikur á að hafi smyglað þeim hingað. Fólkið var í viðtölum hjá Útlendingaeftirlitinu í gær, en að þeim loknum átti það að fara í fingrafara- og myndatöku hjá lögreglunni og því næst í gistingu hjá RKÍ. Þetta er í þriðja sinn sem Mong- ólar koma í hælisleit til Íslands á stuttum tíma. Í júlí komu þrír Mong- ólar en yfirgáfu landið sjálfviljugir. Í lok ágúst komu tveir Mongólar en fóru sömuleiðis sjálfviljugir af landi brott. Fólkið sem kom á fimmtudag átti bókað far úr landi í dag, þriðju- dag, en vill hins vegar vera um kyrrt og láta á það reyna hvort það fær hæli. Þrír Mongólar sækja um póli- tískt hæli HEIÐRÍKJA var yfir mestum hluta landsins um tvöleytið í gær eins og þessi mynd ber með sér. Myndina tók veðurtungl á vegum bandarísku stofnunarinnar NOAA (National Oceanic and Atmospheric Admin- istration). Að sögn Haralds Ólafssonar veð- urfræðings er tiltölulega sjaldgæft að ná slíkum myndum þar sem nær allt landið sést jafnvel og raun ber vitni. „Þetta gerist ekki mjög oft því það er oftast einhver landshluti und- ir skýjum,“ segir Haraldur. Á mynd- inni sést reyndar að örlítill hluti af Vestfjörðum er undir skýjum. Veðurstofan spáir sunnanáttum næstu daga Hann segir gulu flekkina á kortinu suðaustan og suðvestan við landið vera svokölluð lágský en bláhvíta slæðan norðan og vestan við landið sé háský. Þegar slík ský séu yfir finnist fólki vera léttskýjað þar sem skuggar komi af skýjunum af og til og sólin sé ekki jafn sterk og annars. Aðspurður um framhaldið segir Haraldur að í dag og næstu daga líti út fyrir suðaustanátt og meiri dumb- ung yfir landinu en verið hefur. Þó verði léttara yfir norðanlands en í öðrum landshlutum. Heið- skírt yf- ir öllu landinu Óvenjulegt að ná slíkum myndum úr gervitungli Rætt við Samson ehf. um kaup á hlut í Landsbanka Undirbúningur hafinn á frekari sölu á Búnaðarbankanum  Engin ákvörðun/20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.