Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 1
242. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. OKTÓBER 2002
Vinsæl
tilboð
Bílaumboðið Brimborg sendi frá
sér stóra Ford-blaðið með
Morgunblaðinu sl. laugardag þar
sem fyrirtækið auglýsti mögnuð
tilboð helgarinnar. Komust færri
að en vildu til að nýta sér mögnuð
helgartilboðin og urðu margir frá
að hverfa. Af þessari ástæðu
hefur Brimborg ákveðið að
framlengja gildistíma tilboðanna
út vikuna. Þannig geta allir sem
urðu frá að hverfa, nýtt sér
tilboðin á meðan einhverjir Ford
bílar eru eftir. Skoðaðu nánar
auglýsinguna inn í blaðinu í dag
eða hafðu samband við
Brimborg í síma 515 7000.
SEX milljónir barna undir fimm
ára aldri deyja úr hungri á ári
hverju og stórar yfirlýsingar um
að vinna bug á skortinum fyrir ár-
ið 2015 eru að litlu orðnar. Verði
engin breyting á, mun það taka
heila öld eða meira að ná takmark-
inu. Kom þetta fram hjá Jacques
Diouf, yfirmanni FAO, Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna, í tilefni af Alþjóða-
matvæladeginum, sem er í dag.
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna
settu sér það mark 1996 að vera
búin að bægja burt hungurdauð-
anum að mestu árið 2015 en Diouf
segir, að með sama áframhaldi ná-
ist það ekki fyrr en 100 árum síð-
ar, í fyrsta lagi 2115 og kannski
ekki fyrr en 2150. Sagði hann, að í
raun hefði baráttan gegn hung-
urvofunni stöðvast.
„Góðu fréttirnar eru þær, að
vannærðu fólki hefur fækkað en
þær slæmu, að því fækkar allt of
lítið,“ sagði Diouf.
Nú fækkar í hópi hinna hungr-
uðu um 2,5 milljónir á ári en Diouf
sagði, að nauðsynlegt væri að
fækka þeim um 24 milljónir á ári
hverju ætti markmiðið að nást um
2015. Áætlað er, að um 840 millj-
ónir manna séu vannærðar, þar af
800 millj. í þriðja heiminum.
Diouf sagði, að sex milljónir
barna undir fimm ára dæju úr
hungri árlega en það væri jafnmik-
ill fjöldi og öll börn á þessum aldri
í Japan, Frakklandi og Ítalíu sam-
tals. Sagði hann, að meginástæðan
fyrir hungrinu væri fátækt auk
þess sem þurrkar, flóð, stríðsátök
og félagsleg og efnahagsleg upp-
lausn skiptu miklu. Oft væri það
svo, að ofan á fátæktina bættust
þessar hörmungar af náttúrunnar
eða manna völdum.
Bitnar oft mest á
konum og börnum
Fjölgun vannærðra hefur að
undanförnu verið mest í Mið-Afr-
íku, einkum í Kongó, en áætlað er,
að þar líði 36,4 millj. manna af
næringarskorti. Bestur hefur ár-
angurinn verið í Kína og í Suð-
austur-Asíu.
Fátæktin og matarskorturinn
bitna oft harðast á konum og börn-
um. Sagði Diouf, að allt að 140
milljónir barna mættu búast við
sjónskaða vegna skorts á A-vítam-
íni í uppvextinum.
Milljónir barna
svelta í hel árlega
Baráttan gegn
hungri í heim-
inum skilar of
litlum árangri
Róm. AFP.
SÓLIN sest á bak við F-14 Tomcat-
orrustuþotu um borð í bandaríska
flugmóðurskipinu Abraham Lin-
coln. Það og önnur skip í Lincoln-
flotanum eru nú á norðanverðum
Arabíuflóa en Bandaríkjamenn eru
farnir að auka viðbúnað sinn í Mið-
Austurlöndum vegna hugsanlegra
átaka í Írak. Hefur verið fjölgað í
bandaríska herliðinu í Kúveit og
aðalstjórnstöð þess er nú í ná-
grannaríkinu Qatar. Þar eru nú
2.000 bandarískir hermenn en sagt
er, að þeim verði fjölgað verulega á
næstunni. Saudi-Arabar, gamall
bandamaður Bandaríkjanna, hafa
neitað Bandaríkjastjórn um að-
stöðu vegna hugsanlegrar árásar á
Írak en stjórnin í Qatar segist hins
vegar munu taka það til athugunar.
Reuters
Viðbún-
aður á
Arabíuflóa
HUGSANLEGT er, að kallað verði á
aðstoð hersins í leit að fjöldamorð-
ingjanum í Bandaríkjunum en stað-
fest hefur verið, að hann skaut konu
til bana í fyrrakvöld. Eru þá níu látn-
ir og tveir særðir.
Lögreglan í Virginíu sagði í gær,
að Linda Franklin, 47 ára starfsmað-
ur FBI, bandarísku alríkislögregl-
unnar, væri níunda manneskjan,
sem leyniskyttan hefði banað. Var
hún skotin fyrir utan stórverslun. Er
lögreglan nú að vinna að mynd af
morðingjanum samkvæmt lýsingu
vitna en auk þess hafa nokkur vitni
veitt upplýsingar um bílnúmer, sem
ber þó ekki saman. Bendir það til
þess, að morðinginn skipti oft um
númer. Lýsingin á bílnum, sem sást í
fyrrakvöld, er lík og áður, ljós- eða
rjómalitur Chevrolet Astro-sendi-
bíll. Að auki voru bundnar vonir við,
að eftirlitsmyndavélar við verslunina
gætu gefið einhverjar upplýsingar.
Að öðru leyti lætur lögreglan fátt
uppi um rannsóknina.
Tæknilegt eftirlit
CNN-fréttasjónvarpið sagði í
gær, að verið væri að kanna í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu hvern-
ig herinn gæti aðstoðað við leit að
morðingjanum. Kæmi þar margt til
greina, allt frá könnun á feril-
skýrslum hermanna til ýmiss konar
tæknilegs eftirlits. Í sérstökum lög-
um frá 1878, sem kallast Posse
Comitatus, er Bandaríkjaher raunar
bannað að taka þátt í löggæslu inn-
anlands en hann getur þó veitt að-
stoð þegar sérstaklega stendur á.
Embættismenn í varnarmálaráðu-
neytinu neituðu þessu ekki en sögðu,
að engar ákvarðanir hefðu verið
teknar enn.
Leitin að fjöldamorðingjanum í Bandaríkjunum
Kannað hvort her-
inn geti aðstoðað
Fairfax, Washington. AP, AFP.
LÖGREGLA á Indónesíu hafði í gær
í varðhaldi tvo Indónesa í tengslum
við sprengjutilræðin á Balí á laugar-
daginn, þar sem hátt í 200 létust,
flestir erlendir ferðamenn. Mennirnir
tveir eru í hópi 27 manna sem hafa
verið yfirheyrðir vegna málsins. Þeir
liggja ekki undir grun um aðild að til-
ræðunum en vöktu grunsemdir með
því að neita að svara spurningum eða
gefa misvísandi svör, að því er lög-
reglan greindi frá.
Talsmaður lögreglunnar, Saleh
Saaf, sagði að annar mannanna hefði
verið í Kuta, þar sem sprengja sprakk
rétt hjá næturklúbbnum Sari, og að
þessi maður tengdist handhafa per-
sónuskilríkja sem fundist hefðu á
vettvanginum. Hinn maðurinn væri
skyldur eiganda persónuskilríkjanna,
sagði Saaf, en sagði ekkert um það
hvað hefði orðið af sjálfum handhafa
umræddra persónuskilríkja.
Fórnarlömbin
frá 24 löndum
Alls hafa fundist 182 lík, en aðeins
hafa verið borin kennsl á um 40. Lík-
legt er talið að í ljós komi að langflest
fórnarlambanna hafi verið áströlsk,
en mörg voru indónesísk og bresk.
Alls hafa borist tilkynningar um að
ríkisborgarar frá 24 löndum hafi látist
eða ekki sé vitað um afdrif þeirra í
kjölfar sprengjutilræðanna. Í sumum
tilvikum kann þó að vera um að ræða,
að fjölskyldur eða yfirvöld hafi enn
ekki frétt frá fólkinu.
Flestir þeirra sem saknað er eru
Ástralir, um 160, en einnig er margra
Breta, Þjóðverja og Svía saknað, auk
fólks frá fleiri löndum.
Indónesía
Tveir
í varð-
haldi
Kuta. AFP.
Áfall/20
KIRK Mombert, sem býr í Oregon
í Bandaríkjunum, bar sigur úr být-
um í Heimsmeistaramóti graskers-
ræktenda, sem fram fór í Half
Moon Bay í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. Vó graskerið hans rúmlega
hálft tonn enda hafði hann verið
vakinn og sofinn yfir velferð þess í
uppvextinum og ekkert til sparað.
Fékk hann að launum rúmlega
hálfa milljón íslenskra króna.
AP
Risavaxið
grasker
„HORF þú ekki á vínið, hve
rautt það er … Að síðustu bítur
það sem höggormur.“ Svo segir
í orðskviðum Salómons og nú
hefur kínverskur bóndi fengið
að reyna sannleiksgildi þessara
orða á sjálfum sér.
Bóndinn, Li að nafni, tók
tappa úr flösku og vissi þá ekki
fyrri til en vínsnákurinn hafði
læst tönnunum í háls honum.
Gerðist þetta síðastliðinn laug-
ardag að því er fram kemur í
kínverska dagblaðinu Xin Bao.
Sagði það, að bóndinn hefði
verið fluttur á sjúkrahús, en
væri nú á batavegi.
Í Kína er vinsælt að setja
snáka í flöskur með ýmsu víni,
til dæmis hrísgrjónavíni, og í
því eiga þeir að marínerast í
eitt ár. Korktappinn í flöskunni
hans Lis var hins vegar ekki
nógu þéttur og þess vegna mun
snákurinn hafa fengið nóg loft
til að tóra í flöskunni í heilt ár.
Varasöm
vínnautn
Peking. AFP.