Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 41
Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á tíu borðum mánu- daginn 14. október sl. Meðalskor 168. Beztum árangri náðu: NS Sigurpáll Árnas. og Sig. Gunnlaugss. 204 Einar Markúss. og Sverrir Gunnarss. 202 Unnur Jónsdóttir og Jónas Jónss. 193 AV Helga Helgad. og Þórhildur Magnúsd. 218 Páll Guðmundss. og Filip Höskuldss. 213 Auðunn Bergsveinss. og Stefán Friðbj. 195 Spilað mánu- og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45 á hádegi. Félag eldri borgara í Kópavogi Mjög góð þátttaka var hjá eldri borgurum í Gjábakka í síðustu viku en báða dagana spiluðu 27 pör. Lokastaða efstu para í N/S þriðju- daginn 8. október: BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 41 ÞAÐ getur hent okkur öll að veikj- ast og lenda inni á sjúkrahúsi, enda þótt við getum að öðru jöfnu talist við hestaheilsu. Þetta fékk ég að reyna nú á haustdögum. Heimilislæknirinn minn sá að ekki var allt með felldu og sendi mig rak- leitt á Háskólasjúkrahúsið í Foss- vogi. Er skemmst frá því að segja að ég, sem kom þangað síðdegis á mánudegi, sárþjáður og styðjandi við staf, gekk þaðan út um hádegi á föstudegi sömu viku fær í flestan sjó. Að lokinni dvölinni á A7 þennan tíma er hugur minn barmafullur af þakk- læti til alls þess góða fólks sem ann- aðist mig og kom mér til heilsu á ný. Vil ég nota þetta tækifæri og senda því öllu mínar hlýjustu kveðjur. En þessi lífsreynsla varð mér jafnframt tilefni til nokkurra hug- leiðinga um okkar ágæta heilbrigð- iskerfi og stöðu þess í þjóðfélaginu nú um stundir. Varla þarf að taka fram að öll dvöl mín þennan tíma var mér algjörlega að kostnaðarlausu. Þess naut ég sem borgari í þjóð- félaginu. Og þar stendur hnífurinn í kúnni… Fjárveitingavaldið ber sig illa yfir þeim mikla kostnaði sem af rekstri þessa ágæta heilbrigðiskerfis leiðir, sem vonlegt er, þar sem yfir 40% af fjárlögum er varið til þessa mála- flokks. Og ekki getur talist óeðlilegt að reynt sé að leita leiða til þess að lækka hann. En hvernig verður það gert? Sá sem kynni einfalt svar við því væri „gení“ sem ætti heima í æðstu stjórn kerfisins. Ýmsir hafa þó bent á að besta og skilvirkasta leiðin að þessu marki væri að stuðla að betra heilsufari með fyrirbyggjandi ráð- stöfunum og heilsusamlegu líferni. Öðru hverju verður reyndar vart vakningar í þessa átt sem sjálfsagt skilar einhverju. En það er auðvitað að langmestu leyti komið undir hverjum og einum þjóðfélagsþegn hvað hann vill á sig leggja í því efni, því mörgum reynist erfitt að synda á móti straumi tísku og vana í lifnaðarháttum sem því miður eru oft lakari en vera ætti. Að ekki sé nú minnst á þá fjötra sem neysla tóbaks, áfengis og vímuefna færir fórnarlömb sín í. En hvað er til ráða? Sem leikmaður kemur mér helst í hug að ráðlegast væri að sundur- greina hina ýmsu kostnaðarliði heil- brigðiskerfisins og sjá hvernig þeir myndast og reyna síðan að átta sig á hvað mætti betur fara og ganga svo í að ráða þar bót á. Mér kemur þar sérstaklega í hug að verðugt athugunarefni væri hvort sú mikla notkun lyfja sem hér á sér stað sé öll nauðsynleg, en hún mun vera langt umfram það sem gerist í nálægum löndum, í stað þess að ráðamenn standi eins og naut í flagi með upphrópanir sem jaðra við hót- anir um niðurskurð þegar kostnað- urinn fer framyfir einhverja fasta upphæð sem þeim hefur þóknast að setja á blað og stafar oft af auknum launakostnaði sem þeir hafa sjálfir samið um. Þeir sem lifa langa ævi líta gjarn- an yfir farinn veg og bera saman það „mottó“ sem þeim finnst ríkjandi á sínum æviferli. Þannig hefur mér oft fundist nú í seinni tíð að sú sam- félagshyggja sem átti mikinn hljóm- grunn, jafnvel á kreppuárunum fyrir styrjaldarárin 1939–45, hafi látið undan síga fyrir vaxandi sérhyggju, að ég ekki segi græðgi þeirra sem best hefur orðið ágengt við að raka til sín fjármunum þessa heims. En einmitt á þessu tímabili kreppu og fátæktar var grunnurinn lagður að því velferðarkerfi sem við búum við í dag. Þessarar vaxandi sérhyggju varð reyndar vart þegar „stríðsgróðinn“ barst þjóðinni í hendur og má segja að þar sannaðist máltækið að „margur verður af aur- um api“. Því er ekki að leyna að þar er heil- brigðiskerfið ekki undan skilið hvað varðar áhugaverða hagnaðarmögu- leika þeirra afla sem sjá sér leik á borði á þeim vettvangi. Hætt er við að ýmsum þeim sem minna mega sín muni finnast að sér þrengt, ef langt verður gengið á þeirri braut, þar sem þeir sem meira hafa milli hand- anna geti keypt sér forgang. Tillögur hafa komið fram um að mæta auknum kostnaði með því að sjúklingar taki þátt í dvalarkostnaði sínum á sjúkrahúsi t.d. með því að greiða fæði sitt meðan á dvölinni stendur. Þótt það í fljótu bragði sýn- ist ekki óréttlátt er vandséð að lang- legusjúklingar hefðu efni á slíku. Hugsanlegt væri þó að ganga eitt- hvað inn á þá braut, heldur en sleppa rekstri heilbrigðiskerfisins út í ferli einkavæðingar, þar sem það gæti kannski endað í ameríska kerfinu sem ég held að flestum ói við. Því segi ég: Reynum í lengstu lög að verja okkar ágæta heilbrigðis- kerfi og látum þar einskis ófreistað. SIGMAR HRÓBJARTSSON, Brautarási 10, Reykjavík. Verjum heil- brigðiskerfið Frá Sigmari Hróbjartssyni: MIG langar að varpa ljósi á einn flöt þess álitamáls sem virkjun við Kára- hnjúka og uppbygging álvers við Reyðarfjörð óneitanlega er. Mér finnst sem of margir græningj- ar hafi fjallað um þetta mál með hálf „hrepp- arígs“-kenndum hætti. Þeir gleyma því að þetta framlag Ís- lendinga til al- menns orkusparnaðar í heiminum er nauðsynlegt og raunar ómetanlegt. Hvað geta menn lokað mörgum kola- brennandi orkuverum sem knýja úr- elt álver, þegar Alcoa kemur með há- gæðaframleiðslu sína á markað úr álverinu „okkar“? Það sögðu mér sérfræðingar, og glæsilegur árangur í Straumsvík sem og í Hvalfirði sannar það, að stöðugur straumur raforku úr vatns- aflsvirkjunum er lykillinn að farsælli framleiðslu á áli. Allir sem skilja nauðsyn þess að auka hlutdeild þessa léttmálms í smíði samgöngu- tækja hljóta að fagna því að við Ís- lendingar höfum möguleika á að stórauka slíka framleiðslu til hags- bóta fyrir alla jarðarbúa, í samvinnu við traust fyrirtæki sem opinberlega hefur lagt áherslu á ánægju sína með að engin mannvirki verði eyðilögð í þess þágu, eins og sums staðar er- lendis hefði víst orðið raunin. Því er bæði brýnt og gagnlegt að við Ís- lendingar tökum þátt í þeim orku- sparnaðaraðgerðum er nú standa fyrir dyrum í heiminum og mér finnst ekki til of mikils mælst að svo- kallaðir náttúruverndarsinnar fari að hafa hægar um sig hérlendis. Þegar á allt er litið kemur í ljós að við Íslendingar eigum yfirdrifið landsvæði sem kalla má auðnir og sáralitlu máli skiptir hvort sökkvi undir uppistöðulón. Meðan Friðrik Sophusson er forstjóri Landsvirkj- unar tel ég öruggt að við getum treyst því að engum náttúruperlum verður fórnað að óþörfu og allt það land sem fer forgörðum í þeirri merkingu að verða vatnsbotn telst að mínu mati ásættanlegur her- kostnaður í baráttunni fyrir að gera móður jörð ennþá byggilegri dvalar- stað. PÁLL P. DANÍELSSON, Vogatungu 25, Kópavogi. Um orkusparnað Frá Páli P. Daníelssyni: Páll P. Daníelsson Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraðra í dag kl. 13:00. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12:10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520-9700. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Brjósta- gjöf. Ingibjörg Baldvinsdóttir, hjúkrunar- fræðingur. Samverustund fyrir 6-8 ára börn kl. 15 í kórkjallara. 910 klúbburinn kl. 16. 112 klúbburinn kl. 17:30. Fræðslukvöld um kristin trúfélög kl. 20. Umsjón sr. Sigurður Pálsson. Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12:10 bænagjörð með orgelleik og sálmasöng. Allir vel- komnir. Kl. 12:30 súpa og brauð í safn- aðarheimilinu (kr. 300) Kl. 13-16 opið hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall, föndur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl. 17-18:10 Krúttakórinn, 4-7 ára. Kl. 17- 18:30 Ævintýraklúbburinn, 7-9 ára starf. Kl. 18-18:15 kvöldbænir í kirkj- unni. Kl. 18:15-19 Trú og líf. Prestar kirkjunnar bjóða upp á umræður og fræðslu um ýmis trúaratriði sem vakna hjá þátttakendum og hafa einnig stutt innlegg um trúmál. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) kl. 14:10. Leikir, söngvar, Bibl- íusaga, bænir, djús og kex. TTT-fundur (10-12 ára) kl. 16:15. Menntaskóla- nemarnir Andri og Þorkell leiða starfið ásamt hópi sjálfboðaliða. Fermingartími kl. 19:15. Unglingakvöld Laugarnes- kirkju og Þróttheima kl. 20. (8. bekkur). (Sjá síðu 650 í Textavarpi) Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárus- dóttir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl.14:30. Sögur, leikir, föndur og fleira. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Biblíu- fræðsla kl. 17. Farið verður í sálma Dav- íðs. Umsjón sr. Frank M. Halldórsson. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur hádegisverður eftir stundina. Árbæjarkirkja. Kl. 12. Kyrrðarstund í há- degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrir- bænir og íhugun. Kl. 13-15. Opið hús. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12:10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16:30. TTT. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17:30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM & K og kirkjunnar kl. 20. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomn- ir. Kirkjukrakkar fyrir börn 7-9 ára í Rima- skóla kl. 17:30-18:30. KFUM fyrir drengi 9-12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17:30- 18:30. TTT fyrir börn 10-12 ára í Rima- skóla kl. 18:30-19:30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk í Engjaskóla kl. 20:00-22:00. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl.10- 12. Opið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17. Tólf spora námskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börn- um í dag kl. 16:45-17:45 í safnaðar- heimilinu Borgum. Starf með 10-12 ára börnum TTT, á sama stað kl. 17:45- 18:45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart- anlega velkomnir. Tekið á móti fyrir- bænaefnun í kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfundur fyrir unglinga 14-15 ára kl. 20. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-16 í samstarfi við Félag eldri borg- ara á Álftanesi. Notalegar samveru- stundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Erlendur sjá um akstur á und- an og eftir. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10-12. Hitt- umst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomin með eða án barna. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Bóka- kynning. Í tilefni af áttræðisafmæli sr. Jörg Zink verður bókakynning í safnaðar- heimilinu í kvöld kl. 20. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn- ar í dag kl. 10-12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 16:20 TTT yngri hópur ( 9- 10 ára). Sr. Þorvaldur Víðisson og leið- togarnir. Kl. 17:30 TTT eldri hópur (11- 12 ára). Sr. Þorvaldur Víðisson og leið- togarnir. Kl. 20 opið hús í KFUM & K. Hulda Líney Magnúsdóttir og leiðtogarn- ir. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12:10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12:25 – súpa, salat og brauð á vægu verði fyrir alla aldurshópa. Umsjón Ólaf- ur Oddur Jónsson. Æfing Kórs Keflavík- urkirkju frá 19:00-22:30.Stjórnandi Há- kon Leifsson. Njarðvíkurkirkja. (Innri-Njarðvík.) For- eldramorgun í safnaðarheimilinu mið- vikudaginn 16. október kl.10:30. í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sig- urðardóttur. Sóknarprestur. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20:30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20:30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiks- molar og vitnisburðir. Allt ungt fólk hjart- anlega velkomið. Sík, KFUM, KFUK og Skólahreyfingin. Haustátak! Samkoma í Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58, kl. 20:30 Upphafsorð Gísli Friðgeirsson. Ole Lille- heim talar. Allir velkomnir Akureyrarkirkja. Mömmumorgun kl. 10 í safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall, safi fyrir börnin, Fundur í Æsku- lýðsfélagi Akureyrarkirkju, yngri deild, kl. 20 í safnaðarheimili. Biblíulestur kl. 20:30. „Kristniboðar sendir.“ Post. 13:1-12;14: 21-28. Sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur. Safnaðarstarf Bridsfélagið Muninn í Sandgerði Fimmtudaginn 10. okt. lauk vanir/ óvanir tvímenningi, en þar spiluðu óvanir bridsspilarar við aðra meira reynda spilara. Aðsókn var ágæt, en alls mættu 10 pör. Úrslit urðu eft- irfarandi: Gunnar Guðbjörnsson – Birgir 126 Jóhannes Benediktss. – Einar Júlíuss. 125 Þröstur Þorláksson – Sturlaugur 122 Fimmtudaginn 17. okt. kl. 19.30, verður aftur spilakvöld fyrir óvana spilara, þ.e. vanir/óvanir saman í pörum, en nú með öðruvísi sniði, þ.e. sveitakeppni. Dregið verður í sveitir og spila tvö pör saman í sveit. Ef ein- hverjir óreyndir spilarar eru þarna úti og vilja prufa er hægt að hringja í Þröst Þorláksson. s: 421-7772 og 848-9578 eða Heiðar Sigurjónsson. s: 423-7771 og við munum hjálpa til við myndun para. Annars er skráning í símum tilgreindum að ofan eða á staðnum. Spilað verður á Mánagrund (við hesthúsin, milli Garðs, Sandgerðis og Keflavíkur), í félagsheimili brids- BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Reyknesingar og Borgnesingar mættust í bæjarkeppni í Keflavík um síðustu helgi. Heimamenn endurheimtu bik- arinn í sveitakeppninni en Borgnesingar unnu tvímenninginn. Það var glatt á hjalla í mótslok eins og sjá má. Talið frá vinstri: Kristján Örn Kristjánsson, formaður BS, með bikarinn, Gunnlaugur Sævarsson, Karl G. Karlsson, Jón Ágúst Guðmundsson, Rúnar Ragnarsson, Gunnar Guðbjörnsson og Randver Ragnarsson, en þessir fírar voru í efstu sætunum í tvímenningnum sem spilaður var á sunnudag í félagsheimilinu Mánagrund. Bridsfélag Selfoss og nágrennis Að vel athuguðu máli ákvað stjórn félagsins að breyta fyrsta móti vetr- arins úr sveitakeppni í butler tví- menning. Fimmtudaginn 10. október sl. var fyrsta kvöldið spilað í mótinu, sem nefnist Málarabutler. Í mótinu taka þátt 14 pör, og efstu pör eru: Gísli Hauksson – Magnús Guðmundsson 62 Höskuldur Gunnarss. – Jón S. Péturss. 43 Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorras. 34 Þröstur Árnason – Þórður Sigurðsson 29 Gunnar Þórðars. – Sigurður Vilhjálmss. 38 Mótinu verður fram haldið fimmtudaginn 17. október kl. 19.30 í Tryggvaskála. félaga á Suðurnesjum og hesta- manna. Það er alltaf heitt kaffi á könnunni og eru allir hvattir til að mæta, brids- spilarar sem aðrir áhugamenn og áhorfendur. Ingibjörg Halldórsd. - Sigríður Pálsd. 373 Aðalbj. Benediktsd. - Leifur Jóhanness. 353 Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss. 339 Hæsta skor í A/V: Brynja Dýrborgard. Þorleifur Þórarinss.395 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 386 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 360 Sl. föstudag urðu úrslitin þessi: Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 396 Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 383 Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 341 Hæsta skorin í A/V: Halla Ólafsdóttir - Jón Lárusson 378 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 372 Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 363 Meðalskor báða dagana var 312.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.