Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 9 SAMKVÆMT samningi sem tekur gildi um næstu mánaðamót geta læknar við Landspítala – háskóla- sjúkrahús, LSH, sem starfrækja læknastofu eða stunda annan rekstur utan spítalans, að hámarki verið í 80% stöðu við spítalann. Til þessa hafa fjölmargir læknar í einkastof- urekstri einnig verið í 100% stöðu við spítalann, að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar, lækningaforstjóra LSH. Þá mun um næstu áramót taka gildi sú ákvörðun stjórnar LSH frá því í desember í fyrra að yfirlæknar spítalans, sem eru í 79 stöðum, megi ekki jafnframt stunda einkarekstur utan spítalans. Jóhannes segir við Morgunblaðið að verið sé að vinna úr kjarasamningi við lækna og ganga frá launaflokka- röðun. Meðal annars er einn launa- flokkur fyrir þá lækna sem eingöngu starfa við spítalann. „Það kemur fram í kjarasamningi að almennum læknum, sem eru í störfum utan spítalans, er ekki boðið nema í mesta lagi 80% starf við spít- alann. Þetta mun taka gildi um næstu mánaðamót,“ segir Jóhannes. Yfirlæknar minntir á ákvörðun stjórnar LSH Hann segir ennfremur að stjórn spítalans hafi í desember á síðasta ári samþykkt að öllum yfirlæknum verði gert að vera í fullu starfi og ekki með starfsemi utan spítalans. Yfirlækn- um hafi verið gefinn aðlögunartími og þetta taki gildi um næstu áramót. Hann bendir á að lausar stöður yf- irlækna á þessu ári hafi verið aug- lýstar til samræmis við samþykkt stjórnar. Í gær hafi yfirlæknar, sem enn starfi utan spítalans, verið minntir á þessa dagsetningu. „Margir læknar eru í stofurekstri og spítalinn hefur í sjálfu sér ekkert við það að athuga á meðan það bitnar ekki á störfum þeirra við spítalann. Hins vegar teljum við ábyrgðar- og stjórnendastörfin vera full störf og það er ekki heppilegt að dreifa þeim kröftum of mikið. Með þessu erum við að gera leikreglurnar skýrari. Það er öllum til góðs,“ segir Jóhann- es. Samningur við lækna Landspítalans í einkarekstri Geta að hámarki verið í 80% starfi við spítalann TVEIR piltar voru handteknir af lögreglu í Slökkvistöðinni við Skóg- arhlíð 14 í Reykjavík upp úr klukkan eitt eftir miðnætti í fyrrinótt. Þeir höfðu farið inn í nýbyggingu slökkvi- liðsins og tekið þar verkfæri til að brjótast inn í eldri byggingu slökkvi- liðsins. Þjófarnir voru með bakpoka og höfðu fyllt þá af rafmagnsverk- færum iðnaðarmanna þegar lög- reglumenn handtóku þá. Í fórum mannanna fundust einnig fíkniefni og sprautur. Innbrot hjá slökkviliðinu Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.- Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is ...framundan RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI Matseðill: Saffranbætt sjávarréttasúpa. Einiberjaleginn lambavöðvi m/gráðosta-bláberjasósu Frönsk súkklaðiterta m/vanilluís. • Þau syngja, dansa og þjóna þér ! • Þau láta þig hlæja, dansa og syngja ! • Ekki missa af þessari sýningu ! • Þau eru Le'Sing... Sýningar föstudag og laugardag Verð fyrir kvöldverð og sýningu er 6.400,- krónur. Litla sviðið opnar klukkan 19.30 . Sýningin hefst stundvíslega kl. 20:00. Sýningar eru á föstudögum og laugardögum. Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. - Klúbbstemmning 5. áratugarins. Sérstakur gestur: Örn Árnason. Kynnið ykkur nýja plötu Selmu og Hönsu „Sögur af sviðinu“, fæst í Skífunni. Húsið opnað kl. 23:00. Verð kr. 1.500 Frábær sýning, sem slegið hefur rækilega í gegn! Miðaverð: 6,400 kr. fyrir sýningu, kvöldverð og dansleik. 2,500 kr. fyrir sýningu og dansleik. Dansleikur kr. 1.200. Húsið opnar klukkan 19:00 fyrir matargesti. Sýningin hefst kl. 22:00 23. nóvember, jólahlaðborð 29. nóvember, jólahlaðborð 30. nóvember, jólahlaðborð 7. desember, jólahlaðborð 19. október, 3ja rétta kvöldverður 25. október, 3ja rétta kvöldverður 8. nóvember, 3ja rétta kvöldverður 16. nóvember, 3ja rétta kvöldverður Sýningar til jóla: St afr æn a h ug m yn da sm ið jan /2 37 1 Fös. 18. okt. Pacha FUTURA II. Lau. 19. okt. Viva Latino. Fös. 25. okt. Viva Latino. Love Box partý Paradisio. Fös. 8. nóv. Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 9. nóv. 80 ára afmæli Fáks og og uppskeruhátíð hestamanna. Sun. 10. nóv. Íslandsmeistaramótið í vaxtarækt. Fös. 15. nóv. Love Box partý Playmate. Lau. 16. nóv. Viva Latino. Fim. 21. nóv. Herra Ísland. Fös. 22. nóv. VESTMANNAEYJAKVÖLD Logar og Papar skemmta á skemmtun og dansleik. Lau. 23. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Fös. 29. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 30. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Lau. 7. des. Jólahlaðborð - Viva Latino. Spútnik leikur fyrir dansi. Fös. 13. des. Jólahlaðborð - ELVIS, stórsýning - Sixties. Lau. 14. des. Jólahlaðborð - ELVIS, stórsýning- Sixties. Lau. 21. des. Love Box partý, jólaball Þri . 31. des. GAMLÁRSKVÖLD - Sálin, dansleikur 1. jan. 2003 Óperuballið Samkvæmisblússur og -jakkar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir 30-40% afsláttur af völdum vörum KRINGLUNNI LAUGAVEGI 97 Kringlukast Laugavegi 84, sími 551 0756 Buxnadragtir með stuttum og síðum jökkum frá Pottar - gufupottar - pönnur Glæsileg gjöf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.