Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 44
KVIKMYNDIR 44 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ UPPHAFSATRIÐI The Salton Sea er órætt og óvenjulegt. Sama máli gegnir um myndina í heild en þó lýkst leyndardómur hennar smám saman upp fyrir áhorfandan- um þrátt fyrir að hún hefjist á loka- kaflanum, líkt og hin minnisstæða Memento. Aðalpersónan í þessum forvitni- lega og metnaðarfulla hefndartrylli er trompetleikarinn Tom Van Allen/ spíttfíkilinn Danny Parker (Val Kilmer). Þeir eru einn og sami mað- urinn þótt ólíkir séu líkt og dagur og nótt. Framvindan skýrir ástæðuna fyrir því að Van Allen, ástfanginn og farsæll tónlistarmaður, sogast niður í forina, gerist uppljóstrarinn Par- ker og dregur fram lífið meðal snar- ruglaðra dópista, glæpamanna og annars rosalýðs í Los Angeles. Það er hefndin sem rekur Parker áfram. Sem djassleikarinn Van Allen var stóra ástin hans (Sharlom Har- low) myrt fyrir augum á honum án þess að hann fengi rönd við reist. Þá taka hefndaráformin við. Van Allen veit það eitt að morðingjana er að finna innan lögreglunnar í Los Ang- eles, skiptir um hlutverk og leggst út meðal fíkla og gerist uppljóstrari – allt í einum tilgangi: Að finna sína menn í hópi varða laganna. The Salton Sea segir tvær sögur samtímis þannig að framvindan virkar ruglingsleg meðan áhorfand- inn er að ná áttum. Frásagnarmát- inn er frjálslegur, stílfærður þó heldur fráhrindandi líkt og nánast allar persónurnar. Atburðarásin er níðgrimm og miskunnarlaus, um- hverfið á botni mannsorans forvitni- legt og persónurnar ferskar og framandi, gæddar fjarlægum trú- verðugleika. Þrátt fyrir annmarka sögunnar tekst Caruso að halda vöku manns, heldur vel á glompóttu handriti og vinnur sérstaklega vel með leikara og umhverfi. Vicent D’Onofrio vinn- ur enn einn leiksigur sem Polar Beer, forhertur dópsali sem gengur með gervinef þar sem hans eigið er ónýtt af eiturlyfjaneyslu. Sannar- lega ófélegur náungi sem D’Onofrio gerir einkar minnisstæðan. Bæði kómískan og ógnvekjandi í senn og gervið er magnað. Fjöldi virtra skapgerðarleikara lífga uppá framvinduna, þ.á m. Luis Guzmán, Anthony LaPaglia, R. Lee Ermey, Shirley Knight, Peter Sarsgaard, Meat Loaf og Deborah Unger að ógleymdum Glenn Plumm- er sem fer á kostum sem snarvitlaus dópsali. Öll bæta þau myndina ásamt Kilmer í tvískiptu aðalhlutverkinu. Það er ár og dagur síðan þessi eins- leiti leikari hefur sýnt umtalsverð tilþrif. Hann er óaðfinnanlegur sem djassleikarinn og á góða spretti í botnfallinu. Hinsvegar er persóna Parkers aldrei fyllilega trúverðug meðal dóprónanna því aldurinn og útlitið passa ekki inní hópinn. Mynd- inni verður jafnan líkt við Memento, bæði vegna frásagnarmátans, metn- aðarins og áræðis kvikmyndargerð- armannanna. The Salton Sea er hvergi nærri jafn heilsteypt verk og viðmiðunin en hún á sín mögnuðu og frumlegu augnablik. Caruso vogar sér útí erfiðan línudans, tekur nokk- ur bakföll en kemst klakklaust yfir og með reisn þess sem þorir. Brotið niður og byggt upp KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjóri: D.J. Caruso. Handrit: Tony Gayton. Kvikmyndatökustjóri: Amir M. Mokri. Tónlist: Thomas Newman. Aðal- leikendur: Val Kilmer, Vincent D’Onofrio, Adam Goldberg, Luis Guzmán, Doug Hutchinson, Anthony LaPaglia, Glen Plummer, Peter Sarsgaard, Deborah Unger. 100 mín. Warner Bros. Bandaríkin 2002. THE SALTON SEA  The Salton Sea: „Það eru ár og dag- ar“ síðan Val Kilmer hefur „sýnt umtalsverð tilþrif. Hann er óaðfinn- anlegur sem djassleikarinn og á góða spretti í botnfallinu.“ Sæbjörn Valdimarsson AUSTUR og vestur hafa mæst í nokkrum gamansömum smámyndum sem notið hafa lítilsháttar vinsælda að undanförnu. Þar liggur sjálfsagt ástæðan fyrir tilvist þessarar kjána- legu og tilþrifalausu gamanmyndar sem höfðar e.t.v. betur til Bollywood- markaðar Indlands en hins vestræna. Ramu (Jimi Mistry), er dísætur danskennari í Bombay sem lætur sig dreyma um frægð og frama í Banda- ríkjunum. Heldur þangað í humátt á eftir vini sínum sem segist vera kom- inn á Benz og í lúxusíbúð. Þegar Ramu er kominn til fyrirheitna lands- ins sér hann að það eru stórar ýkjur. Ramu reynir að finna starf á fjölum Broadway en kemst að því að lítið pláss er fyrir hans landsmenn í skemmtanaiðnaði Bandaríkjanna; eini Indverjinn sem þar hefur slegið í gegn síðustu áratugina er teikni- myndafígúran Apu í Simpson-þáttun- um. Ramu lendir því í klámmynda- bransanum þar sem allir sem rís hold fá vinnu. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Þrátt fyrir heimatíma hjá klámmyndadrottningunni Sharona (Heather Graham), sefur Ramu litli svefninum langa. Fyrir tilstilli for- ríkrar pabbastelpu (Marisa Tomei) verður Ramu hins vegar kynlífsgúrú peningaaðalsins í New York um sinn. Ámóta slöpp skemmtun og líffæri Ramus frammi fyrir myndavélunum. The Guru er sárasjaldan fyndin þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir – enda gefur hún sig út fyrir að vera gam- anmynd. Handritshöfundi nýtast ekki árekstrar menningarheimanna, því síður að honum takist að gera sæmi- legt grín að trúgirni Vesturlandabúa og undirlægjuhætti gagnvart aust- rænum trúarbrögðum. Graham lætur misnota sig í vesælli endurtekningu á klámleikonuhlutverkinu úr Boogie Night og fer langt með að sólunda því áliti sem hún ávann sér í þeirri ágætu mynd. Marisa Tomei er annað smá- stirni bandarískt sem lætur ljós sitt skína í The Guru og stendur sig jafn- vel enn verr, enda með hæfileikalaus- ari leikkonum Hollywood-borgar og hlutverk hennar ótrúlega kauðskt (líkt og flest önnur), í ofanálag. Jimi Mistry fer vonandi aftur í dansskóna sína í Bombay, hann þarf að gera tals- vert betur til að upplifa ameríska drauminn. Klámmyndastjarnan og kynlífsgúrúinn KVIKMYNDIR Háskólabíó, Laugarásbíó Leikstjóri: Daisy Von Scherler Mayer. Handrit: Tracy Jackson. Kvikmyndatöku- stjóri: John de Boman. Tónlist: David Carbonara. Aðalleikendur: Jimi Mistry, Heather Graham, Marisa Tomei, Christine Baranski, Sanjeev Bhaskar, Bobby Cannavale, Michael McKean 90 mín. Universal. England 2002. THE GURU  Í The Guru reynir Indverjinn ungi Ramu að feta í fótspor landa síns Apu úr The Simpsons en á ekki er- indi sem erfiði. Sæbjörn Valdimarsson NÝJASTA mynd Robertos Benign- is, sagan sígilda um spýtustrákinn Gosa, setti nýtt aðsóknarmet þegar hún var heimsfrumsýnd á Ítalíu um helgina en fyrra metið átti Hringa- dróttinssaga. Gosi var sýnd í næstum því þriðja hverju kvikmyndahúsi á Ítalíu en alls sáu myndina um 1,1 milljón Ítala. Líkt og í Lífið er dásamlegt, sem færði Benigni Óskarsverðlaun fyr- ir bestu erlendu mynd og besta leik í aðalhlutverki, þá leikstýrir hann Gosa og leikur aðalhlutverkið en eiginkona hans, Nicoletta Braschi, fer með hlutverk bláhærða álfsins. Gosi slær met á Ítalíu Sumir hafa lýst yfir þeim áhyggjum sínum að Benigni sé helst til of gamall til að leika Gosa en hann verður fimmtugur 27. október. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR 7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin. 10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000 Stóra svið SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Frumsýning fö 25/10 kl 20 - UPPSELT 2. sýn Gul kort su 27/10 kl 20 HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 20. okt kl 14, Su 27. okt kl 14 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau 19. okt kl 20, Lau 26. okt kl 20 ATH: Fáar sýningar eftir MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fö 18. okt kl. 20 - Aukasýning Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20, Fi 24/10 kl 20, Fö 25/10 kl 20, Lau 26/10 kl 20 AND BJÖRK, OF COURSE .. e. Þorvald Þorsteinsson Su 20/10 kl 20, Síðasta sýning 15:15 TÓNLEIKAR Lau 19/10 Karólína Eiríksdóttir - CAPUT Nýja sviðið Leikferð Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 PÍKUSÖGUR Á ÍSAFIRÐI má 21. okt. kl. 17 og kl. 21 í Edinborgarhúsinu Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Lau 19/10 kl. 21 Örfá sæti Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt Sun20/10 kl. 21 Örfá sæti Mið23/10 kl. 21 Aukasýning Uppselt Fim24/10 kl. 21 Örfá sæti Sun27/10 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti Lau 2/11 kl. 21 Uppselt Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 8/11 kl. 21 Uppselt Fös 8/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Lau 9/11 kl. 21 Uppselt Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 15/11 kl. 21 Laus sæti Lau 16/11 kl. 21 Laus sæti Lau 16/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 22/11 kl. 21 Laus sæti í Loftkastalanum kl. 20 Miðasala: 552 3000  „Sprenghlægileg“ „drepfyndin“ „frábær skemmtun“ sun. 13 kl. 20,fös. 18/10 Miðnætursýning kl. 23, lokasýning Grettissaga föstudags-og laugardagskvöld Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu fös 18. okt. kl. 20, lau 19. okt. kl. 20, föst 25. okt. kl. 20, lau 26. okt. kl. 20 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur mið 16, okt, uppselt, fim 17. okt. uppselt, sun 20 okt. uppselt, þri 22. okt. uppselt, mið 23. okt. uppselt, sun 27. okt. uppselt, þri 29. okt. uppselt, mið 30. okt. uppselt, sun. 3. nóv. uppselt, mið. 6. nóv. nokkur sæti, sun 10. nóv. örfá sæti. 3. sýn. sun. 20. okt. kl. 14 örfá sæti 4. sýn. sun 27. okt. kl. 14 laus sæti 5. sýn. sun 3. nóv. kl. 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.