Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÓvíst hvort Rúnar Kristinsson getur leikið gegn Litháum / B1 Haukar og Grótta/KR heppin í ́Evrópudrættinum / B2 4 SÍÐUR Sérblöð í dag SEX byggingafyrirtæki og Bygg- ingarfélag Arnarness, sem er í eigu Jóns Ólafssonar, stjórnarformanns Norðurljósa, hafa undirritað bind- andi samning um kaup bygginga- fyrirtækjanna á eignarlóðum fyrir búsetu í landi Arnarness í Garða- bæ. Jón Ólafsson keypti Arnarnes- landið í ársbyrjun 1999 fyrir tæpar 700 milljónir króna. Fljótlega seldi hann hluta landsins fyrir 200 millj- ónir króna. Talsmaður byggingafyrirtækj- anna vildi í samtali við Morgunblað- ið í gær hvorki upplýsa hvaða fyr- irtæki standa að þessum kaupum, né á hvaða verði landið verður keypt. Sagði talsmaðurinn að fjár- mögnun kaupanna væri ekki lokið og því væri ótímabært að greina frá því á hvaða verði væri keypt og hverjir mundu byggja á svæðinu. Hann sagði byggingaraðila telja eignarlóðir í Arnarneslandi eitt besta byggingaland sem völ væri á á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir 416 heimilum í skipulaginu: 168 íbúðum í fjölbýli, 107 rað- eða parhúsum og 141 ein- býlishúsi. Yfirlýsing milli kaupenda og selj- anda felur í sér að náðst hefur sam- komulag um kaup á öllum rað-, par- og fjölbýlishúsalóðunum eða sam- tals um 275 íbúðum á svæðinu, sem eru 66% af öllum íbúðum á svæðinu, þannig að enn á Jón Ólafsson eftir 141 einbýlishússlóð. Arnarneslandið var skipulagt árið 1997 af Ingimundi Sveinssyni arki- tekt. Áætlað er að um 1.500 manna byggð verði á þessu svæði. Kemur í ljós hvort forsendur hafa breyst Að sögn Ásdísar Höllu Braga- dóttur bæjarstjóra Garðabæjar hafa viðræður um uppbyggingu á landinu verið í gangi milli bæjaryf- irvalda og landeiganda um nokkurt skeið og drög að samningi verið í þróun í alllangan tíma. „Þessi áform voru kynnt okkur nú á síðustu dögum og við höfum ekki hafið neinar viðræður við nýja eigendur,“ segir Ásdís Halla. Hún segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort þeirra forsendur séu aðrar en fyrri landeigenda. Jón Ólafsson selur sex fyrirtækjum hluta af Arnarneslandi Gert ráð fyrir 275 íbúðum á svæðinu ÞÓRÐUR Axel Þórisson lét sig ekki muna um það í gær þar sem hann lék golf á golfvellinum á Korpúlfs- stöðum að fara holu í höggi á par 3 á sjöundu braut. Rétt er að geta þess að kúlan fór 120 metra áður en hún hafnaði í holunni. Fyrir þá sem ekki þekkja til golfíþróttarinnar skal áréttað að par 3 merkir að það tekur meðalleikmanninn þrjú högg að koma kúlunni í holuna. Venju- lega spilar Þórður Axel golf með fé- lögum sínum en þennan dag voru þeir fjarri góðu gamni. Hann segir að tvær konur sem spiluðu með honum hringinn hafi orðið vitni að högginu. Þórður Axel byrjaði að æfa golf í vor en þá hafði hann leikið sér með tvær kylfur í tvö ár. Hann æfir nú 3 – 4 sinnum í viku. „Þegar skólinn er búinn fer ég heim og læri og tek síðan strætó út á golfvöll,“ segir hann. Þórður Axel býr í Rimahverfinu í Grafarvogi og ferðast með golfsettið með sér í strætó. Fór holu í höggi Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórður Axel, 12 ára, reynir að æfa golf eins oft og hann getur. BÆKLUNARSKURÐDEILD á Landspítalanum í Fossvogi hefur verið lokað vegna sjaldgæfrar bakt- eríu sem ræktaðist í sýnum af fjór- um sjúklingum á þremur stofum deildarinnar. Bakterían, sem er ónæm fyrir algengustu sýklalyfjum, kom fyrst upp fyrir rúmri viku og var þá hætt að taka inn sjúklinga af biðlistum. Bráðatilfelli hafa verið meðhöndluð á öðrum deildum en að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar lækningaforstjóra verður deildin opnuð í næstu viku að loknum sótt- hreinsunaraðgerðum. Jóhannes segir sjálfa smitleiðina inn á deildina ekki hafa fundist, þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir. Einn starfsmaður hafi greinst með bakt- eríuna, án þess að fá sýkingu, en úti- lokað talið að hann hafi smitað sjúk- lingana. Sjúklingarnir hafa ekki orðið al- varlega veikir en einn þeirra hlaut sýkingu. Alls voru átta sjúklingar á deildinni í gær, fjórum verður komið fyrir á öðrum deildum en hinir verða væntanlega útskrifaðir af spítalan- um í dag, að sögn Jóhannesar. Bakterían hefur þau áhrif að að- gerðir á um 25 sjúklingum frestast en um 600 manns bíða eftir bækl- unaraðgerðum á Landspítalanum. Jóhannes bendir á að mörg lönd hafi gefist upp í baráttunni við um- rædda bakteríu og meðhöndlað hana með dýrum lyfjum. Aðeins Íslandi og Noregi hafi tekist að halda sjúkra- húsunum hreinum af bakteríu sem þessari. Hér á landi verði barist gegn henni með öðrum aðferðum. Deildin verði á næstu dögum sótt- hreinsuð hátt og lágt og svonefnd umhverfissýni tekin til ræktunar að því loknu. „Óneitanlega truflar þetta starf- semi spítalans mikið og er mjög óþægilegt. Þarna er einmitt verið að glíma við þá biðlista sem eru okkur einna erfiðastir, eða bið eftir lið- skiptaaðgerðum, sem getur verið upp undir eitt ár,“ segir Jóhannes. Sjaldgæf baktería greindist á sjúkradeild á Landspítalanum í Fossvogi Bæklunarskurð- deild lokuð fram í næstu viku HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra gekkst undir aðgerð á Landspítalanum í gærmorgun vegna meins í blöðru- hálskirtli, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Meinið var staðbundið og gekk aðgerðin mjög vel. Að lok- inni sjúkrahús- vist verður Hall- dór í veikindaleyfi um nokkurt skeið til að hvílast og ná fullri starfsorku. Ekki verður skip- aður staðgengill á meðan ráð- herrann er á landinu og mun hann taka þær ákvarðanir sem þörf er á, samkvæmt upplýsingum úr utanrík- isráðuneytinu. Halldór í veikinda- leyfi eftir aðgerð Halldór Ásgrímsson BORGARRÁÐSFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins fóru fram á það á borgarráðsfundi í dag að fenginn yrði hlutlaus aðili til að fara yfir fjár- hagslegar forsendur sem liggja til grundvallar kaupverði á ljósleiðara- neti og tengdum kerfum Línu.nets. Þá setti fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fram fjölmargar spurningar varð- andi forsendur samninganna í bókun á fundinum og var sérstaklega óskað eftir því að þeim yrði svarað. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fóru einnig fram á að borg- arráði yrði gerð grein fyrir stöðu Línu.nets og fyrrgreindum samning- um milli Orkuveitu Reykjavíkur og Línu.nets. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks Vilja hlut- laust mat á eignum Línu.nets FULLTRÚUM Svía urðu á mistök í atkvæðagreiðslu um tillögu formanns Alþjóðahvalveiðiráðsins, Bo Fern- holms, þess efnis að Ísland ætti aðeins að hafa áheyrnaraðild að ráðinu. Þetta kemur fram í netútgáfu norska dag- blaðsins Aftenposten. Svíar greiddu atkvæði á móti tillögu landa síns, sem gerði að verkum að Íslendingar eru nú fullgildir aðilar að ráðinu. Atkvæði Svía réð úrslitum í af- greiðslu tillögunnar, en hún var felld með 19 atkvæðum gegn 18. Í samtali við Aftenposten sagði starfsmaður sænska umhverfisráðuneytisins, Brigitta Bodström, að hún harmaði mistökin mjög. Atkvæðagreiðslan væri ekki í samræmi við stefnu Sví- þjóðar. Mistökin urðu þrátt fyrir að sænska sendinefndin væri í símasam- bandi við yfirmenn sína í Stokkhólmi. „Nú reynum við að komast að því hvað fór úrskeiðis, með það í huga að ef til vill megi leiðrétta mistökin. Við óttumst mjög afleiðingarnar,“ sagði Bodström. Innganga Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðið Svíar segja að mistök hafi átt sér stað PAVEL Tregubov og Predrag Nik- olic eru efstir og jafnir að stigum með sex vinninga þegar átta umferð- um er lokið á Mjólkurskákmótinu sem fram fer á Selfossi. Lokaumferð fer fram á Hótel Sel- fossi á fimmtudag og hefst hún kl. 13. Skákmótið á Selfossi Tregubov og Nikolic efstir ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.