Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 6

Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ KJARANEFND felldi í gær úr- skurð um laun og önnur starfskjör heilsugæslulækna, sem taka á gildi 1. nóvember næstkomandi. Úr- skurður um mánaðarlaun nær þó aftur til 1. apríl á þessu ári og 1. janúar næstkomandi eiga laun heilsugæslulækna að hækka um 3%. Tók kjaranefnd mið af samningi rík- isins við Læknafélag Íslands sl. vor en einnig var höfð hliðsjón af gjald- skrársamningum sérfræðilækna við Tryggingastofnun ríkisins. Samkvæmt úrskurðinum geta heilsugæslulæknar valið á milli fastra mánaðarlauna og samsettra launa. Verði heilsugæslulækni greidd föst mánaðarlaun fyrir 100% starf þá verður heilsugæslustöðvum og heilbrigðisstofnunum heimilt að greiða honum allt að 15% álag ofan á mánaðarlaun, enda sinni hann ekki öðrum launuðum störfum utan heilsugæslunnar. Álag til læknis án sérfræðimenntunar verður allt að 10% af mánaðarlaunum. Samsett laun þýða að heilsu- gæslulækni verði greidd að hluta föst mánaðarlaun og að hluta af- kastatengd laun samkvæmt gjald- skrá. Læknir getur þannig innt af hendi allt að 20% af vinnuskyldu sinni á afkastatengdum launum gegn samsvarandi lækkun fastra mánaðarlauna. Innifalin í föstum mánaðarlaunum eru öll laun fyrir viðtöl og önnur læknisverk á dag- vinnutíma. Laun fyrir læknisverk og vitjanir og eða viðtöl á vöktum verða greidd samkvæmt gjaldskrá en öll laun eiga samkvæmt úrskurði kjaranefndar að vera greidd af heilsugæslustöð eða heilbrigðis- stofnun. Til þess hafa greiðslur einnig komið frá Tryggingastofnun. Yfirlæknir með 508 þús. kr. í mánaðarlaun Frá 1. apríl sl. eiga mánaðarlaun heilsugæslulækna án sérfræði- menntunar að vera frá 222 þúsund krónum að 246 þús. kr., allt eftir starfsaldri, og laun heilsugæslu- lækna með sérfræðileyfi frá 378 þús. kr. til 425 þús. kr. Mánaðarlaun yfirlækna verða 508 þús. kr. sam- kvæmt úrskurðinum. Læknir án sérfræðimenntunar sem 1. janúar árið 1995 átti að baki minnst tólf ára reynslu við heim- ilislækningar skal taka laun sem sérfræðingur. Heilsugæslulæknir, sem fær greidd samsett laun, þarf að inna af hendi allt að 20% af vinnuskyldu sinni við sérstaka móttöku á stöð- inni á afkastatengdum launum sam- kvæmt gjaldskrá. Á móti kemur að föst mánaðarlaun lækka um 2,5% fyrir hverja klukkustund sem unnið er samkvæmt gjaldskrá eða um allt að 20%. Einingarverð samkvæmt gjaldskránni er 90 krónur en var áður 42 krónur. Álag vegna yfir- vinnu og helgidagavinnu greiðist ekki. Vinnuskylda læknis í fullu starfi er 40 klukkustundir á viku og er læknum skylt að taka vaktir þar sem þess er þörf. Heimilt verður að semja um að heilsugæslulæknir taki frí í stað greiðslu fyrir gæsluvaktir. Kjaranefnd úrskurðar að tíma- kaup fyrir yfirvinnu verði rúmar 3 þúsund kr. hjá heimilislækni með sérfræðileyfi og tímakaup fyrir yf- irvinnu á stórhátíðum verði rúmar 4 þúsund kr. Tímakaup læknis án sér- fræðileyfis er rúmt 1% af mánaðar- launum. Úrskurðinn má nálgast á vef heil- brigðisráðuneytisins. Slóðin er http://www.heilbrigdisraduneyti.is. Kjaranefnd hefur úrskurðað um laun heilsugæslulækna Geta valið á milli fastra og samsettra launa ÞAÐ var fallegt og bjart um að litast við Þingeyrarklausturskirkju að morgni ann- ars dags opinberrar heimsóknar forseta Ís- lands, Ólafs Ragnars Grímssonar, í Húna- þing. Á Þingeyrum í Austur-Húnavatns- sýslu er óvenju mikið og fagurt útsýni um sýsluna og saga klausturs og kirkju þar spannar hartnær 900 ár. Forseti hafði orð á því að náttúran skartaði sínu fegursta í heimsókn sinni í Húnaþing. „Hún gerði það reyndar líka kvöldið áður þegar við komum af fjölmennri kvöldskemmtun á Hvammstanga; þegar við ókum þaðan skartaði himinhvolfið einhverjum mesta norðurljósadansi sem ég hef séð í áratugi þannig að Húnavatnssýsla hefur tekið vel á móti okkur, bæði á himni og jörð ef svo má segja.“ Á Skagaströnd heimsótti forseti m.a. fiskvinnslufyrirtækið Norðurströnd en það sérhæfir sig í framleiðslu á aukaafurðum úr bolfiski og Rækjuvinnsluna, sem er í eigu Skagstrendings. Þar heiðraði forset- inn Sigurð Bjarnason sem unnið hefur við rækjuvinnslu í liðlega þrjá áratugi. Forseti og Dorrit Moussaief og fylgd- arlið snæddu hádegisverð í Kántríbæ og þágu þar forláta hatta af Hallbirni Hjart- arsyni í kveðjugjöf. „Mér finnst merki- legt,“ sagði forsetinn, „hvernig menn hér á Skagaströnd hafa þróað fiskvinnslu úr þeim hluta af þorskinum og öðrum fiski sem áður var hent og fullvinna á erlendan markað og hafa náð að tvöfalda verðmætið á fáeinum árum. Það sýnir okkur að nýj- ungar í sjávarútvegi geta einnig sprottið fram í hinum smærri byggðum og við að- stæður þar sem lítið annað en hugvitið og dugnaðurinn búa að baki. Og Kántríbær, sem að vísu er annarrar tegundar, er dæmi um hvernig hugmyndaauðgi eins manns getur umskapað svipmót heils byggðarlags. Það er kannski boðskapurinn í þessari ferð að það er mannauðurinn sem skiptir okkur mestu máli. Hugmyndaauðg- in og framsæknin eru sá burðarás sem byggðirnar geta byggt framtíð sína á.“ Eftir hádegi var ekið í glaðasólskini og blíðu á Blönduós en þar tóku nemendur og kennarar í Grunnskólanum á Blönduósi á móti forsetanum en í skólanum eru 123 nemendur og 28 starfsmenn. Greinilegt var að yngstu nemendurnir höfðu beðið komu forsetans í ofvæni og rigndi spurn- ingum yfir forsetann þegar hann kom í salinn. Nemendur lásu úr Vatnsdæla sögu, léku á hljóðfæri, fluttu leikþætti og sungu Maístjörnuna. Fóru forsetinn og heitkona hans, Dorrit, um salinn og heilsuðu öllum nemendum og kennurum skólans. Forset- inn lofaði dagskrá nemenda sem öll var byggð á sögu héraðsins, fornsögum, skáld- skap Jónasar Hallgrímssonar og byggða- sögu Blönduóss. „Þannig hefur fortíð og framtíðin ofist hér saman og mér hefur fundist ánægjulegt að skynja að það er mikill kraftur í Húnvetningum. Þeir eru enn þeirrar ættar, sem þeir hafa löngum verið, að hugsa djarft og láta mikið að sér kveða. Það eru þau einkenni Húnvetninga sem við metum mikils.“ Forsetinn heimsótti síðan Heimilisiðn- aðarsafnið á Blönduósi en þar er að finna fágætt safn listfengra hannyrða, þjóðbún- inga og tóvinnu frá horfinni tíð og er þetta eina safnið sinnar tegundar í landinu. Þá heimsótti forsetinn Sölufélag Austur- Húnvetninga, Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi, þar sem eru 36 sjúkrarúm auk ellideildar, og Hnitbjörg, félagsstarf eldri borgara á Blönduósi. Á Blönduósi er og að finna elsta timburhús landsins, að því er talið er, Hillebrandthúsið, sem byggt var á Skagaströnd árið 1733 en flutt og endur- reist á Blönduósi árið 1876. Þar skoðaði forsetinn gamlar myndir sem gefa skemmtilega innsýn í líf og byggð á Blönduósi á fyrri tíð. Fjölmenni var síðan á fjölskylduhátíðinni með forsetanum í íþróttahúsinu á Blönduósi um kvöldið þar sem fram fór fjölbreytt dagskrá. Opinberri heimsókn forsetans lýkur í dag en þá sækir hann m.a. Húnavallaskóla heim og fer um Vatns- og Langadal. Forseti Íslands heimsótti Blönduós á öðrum degi opinberrar heimsóknar í Húnaþing Yngstu nemendur Grunnskólans á Blönduósi voru að mála þeg- ar forsetinn leit við í heimsókn. Forseti og fylgdarlið snæddu hádegisverð í Kántríbæ og þáðu þar forláta hatta af Hallbirni Hjartarsyni í kveðjugjöf. Stubbarnir í leikskóla Blönduóss kveðja forsetahjónin. Mann- auðurinn skiptir mestu Morgunblaðið/Ómar Krakkarnir í Grunnskóla Blönduóss fylgjast með skemmtidagskrá til heiðurs forsetanum í íþróttasal skólans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.