Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 31

Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 31 MARBERT Nýju vetrarlitirnir frá MARBERT eru komnir Kynning og ráðgjöf Miðvikudag Árnes Apótek Fimmtudag Zitas, Firði Laugarnes Apótek Föstudag Apótek Vestmannaeyja Kaupauki Aðrir útsölustaðir Reykjavík og nágrenni: Libia, Mjódd, Nana, Hólagarði, Snyrtistofa Hönnu Kristínar, Skeifunni, Snyrtivörudeildir Hagkaups, Kringlunni, Skeifunni, Spönginni, Laugarnes Apótek, Hringbrautarapótek, Snyrtivörudeild Hagkaups, Smáralind, Kópavogi, Zitas, Firði, Hafnarfiði, Landið: Silfurtorg, Ísafirði, Árnes Apótek, Selfossi, Húsavíkurapótek, Apótek Vestmannaeyja, Snyrtivörudeild Hagkaups, Akureyri. www.forval.is SKOTAR eru vinaþjóð okkar Íslendinga, þeim hefur tekist að halda og virða menningararf- leifð sína með sekkjarpípunni, pilsunum og fleiru sem þeir eru stoltir af og gætum við ýmislegt lært af þeim í þeim efnum. Skotar væla ekki, Skotar eru hraustmenni og miklir bardaga- menn. Síðastliðinn laugardag birtist hér í Morgunblaðinu á blaðsíðu sjö einhver ömurlegasta auglýs- ing sem undirritaður hefur séð þótt ég kalli nú ekki allt ömmu mína í þeim efnum. Fyrirsögnin á auglýsingunni var „Nú stopp- um við þetta væl“ og síðan var mynd af sekkjarpípu. Þetta var auglýsing um leik Íslands og Skotlands. Sennilega átti þessi auglýsing að vera brandari. En þetta er ótrúlegur aulahúmor. Það var reyndar undarlegt að auglýsingin skyldi yfirhöfuð birtast því það var jú uppselt á leik Íslendinga og Skota nokkr- um dögum áður. Hver var þá til- gangurinn? Að koma höggi á andstæðinginn? Skotar eru frægir fyrir það í knattspyrnuheiminum að vera allra áhorfenda prúðastir og setja skemmtilegan svip á leiki þar sem landslið þeirra leikur. Það er hluti af stemningunni. Það var mjög gaman að sjá til þeirra þar sem þeir skemmtu sér í höfuðborginni og sannar- lega settu þeir svip á borgarlífið og leikinn og voru góð tilbreyt- ing í menningarlífinu á meðan þeir dvöldu hér. Undir auglýsinguna skrifuðu Knattspyrnusambönd Íslands og Evrópu ásamt nokkrum fjölda fyrirtækja sem eru stuðn- ingsaðilar KSÍ. Vissu þeir af þessum texta sem þeir skrifuðu undir? Veit til dæmis Knattspyrnu- samband Evrópu þetta, sem berst fyrir því á öllum vígstöðv- um að koma í veg fyrir ofbeldi og óheiðarleika þegar leikir fara fram á milli landa? Þetta átak hefur staðið í langan tíma undir kjörorðinu „Fair Play“ eða sýn- um háttvísi. Er þessi texti í samræmi við það? Nei þetta var argasta móðgun við þessa stoltu og sterku þjóð sem Skotar svo sannarlega eru. Ekki trúi ég því að Flugleiðir, það mæta fyrirtæki, hafi verið að þakka tæplega 3.000 Skotum fyrir óvænt viðskipti og gisti- nætur á meðan þeir dvöldu hér með þessum hætti. Eða VISA og Búnaðarbankinn, sem örugg- lega hafa notið þeirra viðskipta sem þeir áttu. Esso fyrir bens- ínlítrana sem þeir notuðu, Sím- inn fyrir öll dýru millilandasím- tölin sem þeir hringdu, Coke fyrir drykkina sem þeir drukku frá þeim, bara svo nokkur dæmi séu tekin. Við erum ekki búin að gleyma því þegar leikmenn welska landsliðsins sýndu okkur þá óvirðingu að setja upp apagrím- ur þegar Ísland lék gegn þeim á sínum tíma. Það varð til þess að okkar menn urðu sárir og reiðir og sóru og sárt við lögðu að sýna þeim hvar Davíð keypti öl- ið, sem þeir og gerðu. Ætli Skotarnir hafi ekki fengið sömu tilfinningu sem vítamínsprautu með þessari auglýsingu? Það skyldi þó aldrei vera. Knattspyrnuforystan á Ís- landi þarf að breyta vinnubrögð- um sínum og koma þannig fram við áhorfendur og leikmenn að sem flestir séu sáttir. Þannig náum við sameiginlega bestum árangri, vinnum fleiri leiki og þá er tilganginum náð. Hver var tilgangurinn? Höfundur er framkvæmdastjóri og knattspyrnuáhugamaður. Baldvin Jónsson GREIN eftir Harald Sverrisson, formann bæjarráðs Mosfellsbæjar, birtist í Morgunblaðinu hinn 3. okt. sl. og bar yfirskriftina „Sannleikan- um verður hver sárreiðastur“. Þar fer Haraldur mikinn og ber mér ýmislegt á brýn sem ég ætla ekki að leggjast svo lágt að elta ólar við, enda honum til minnkunar. Í greininni fjallar hann um árs- hlutauppgjör KPMG yfir fyrstu sex mánuði þessa árs og m.a. að þar hafi komið fram að rekstrarkostnaður sem hlutfall af skatttekjum sé kom- inn í 97,4%. Reynslulitlum meiri- hluta hefur verið bent á að tekjur seinni hluta ársins eru mun meiri hjá sveitarfélögum. Það er ekki nóg að skoða bara gjaldahliðina og leggja út frá henni, tekjuhliðin verður líka að vera rétt. Fráleitt er að leggja út af þessu 6 mánaða uppgjöri um að niðurstaða ársins verði þessi, það vita allir reyndir sveitarstjórnarmenn. Það er því viðvaningslegt af manni eins og Haraldi sem starfar sem rekstrarstjóri fjármálaráðuneytisins að draga ályktanir af þessu 6 mán- aðauppgjöri með þessum hætti. Til- lögur og aðgerðir meirihlutans í framhaldinu eru flumbrulegar. Að- gerðir sem oddviti og bæjarstjóri sjálfstæðismanna er að reyna að klóra sig út úr og nefnir „illa orð- aðar“. Nær hefði verið að eyða meiri tíma í að lesa sér betur til, útfæra og orða þessar tillögur, en þær eru að hluta á skjön við samþykktir Mos- fellsbæjar, eins og bent hefur verið á. Eins er sú fullyrðing að rekstur bæjarsjóðs hafi verið fjármagnaður með lántökum og þjónustugjöld greidd niður með þeim bein fölsun. Ársreikningar undanfarinna ára eru til vitnis um það. Lántökur bæjarins hafa á undan- förnum árum nær eingöngu miðast við uppbyggingu skólamannvirkja í samræmi við einsetningarákvæði grunnskólalaga sem og að bæta úr alvarlegri vanrækslu fyrrverandi meirihluta sjálfstæðismanna í þeim efnum, uppbyggingu leikskóla til að útrýma biðlistum barna eftir leik- skóladvöl og aðstöðu fyrir iðkun íþrótta og líkams- og heilsuræktar. Því hafa miklar eignir myndast á móti skuldum. Til fróðleiks má benda á að fjárfest hefur verið í grunnskólabyggingum á síðustu 8 árum fyrir um kr. 250.000 kr. á hvern íbúa. Fyrrverandi meirihluti B- og G- lista hefur ítrekað bent á vegna mál- flutnings sjálfstæðismanna að til framtíðar litið sé staða bæjarsjóðs traust. Niðurlagsorð ofangreindrar skýrslu frá KPMG eru einnig í þá veru og eru eftirfarandi: „Þrátt fyrir skuldsetningu bæjar- sjóðs samkvæmt árshlutareikningi 30. júní 2002 teljum við að þegar horft er til heildareigna og framtíð- armöguleika sveitarfélagsins sé staða bæjarsjóðs í heildina litið traust.“ Kemur það heim og saman við niðurstöðu eftirlitsnefndar sveit- arfélaga. Þetta segir allan sannleik- ann. Annað er ekkert nema pólitískt moldviðri og sjónarspil. Meirihlutinn er augljóslega með þessu að búa til umhverfi til að losna undan því að standa við hástemmd kosningaloforð og þröngva inn stór- felldri hækkun gjalda á íbúa bæjar- félagsins. Svona málflutningur dæmir sig sjálfur og er ekki til eins annars en að eyðileggja fyrir ímynd bæjarins og framtíðaráformum bæj- arbúa. Flumbrulegar ályktanir Eftir Þröst Karlsson „Meirihlut- inn er aug- ljóslega með þessu að búa til umhverfi til að losna undan því að standa við hástemmd kosningalof- orð …“ Höfundur er oddviti B-listans í Mosfellsbæ. ALÞINGISMENN hafa áttað sig á að verð á brýnustu lífsnauðsynjum er hér mun hærra en í nágranna- löndunum. Athyglisverð tillaga um könnun á háu matvælaverði hefur verið flutt á Alþingi og fróðlegt hefur verið að fylgjast með umræðum á Al- þingi um tillöguna. Nokkrir þing- menn tala um dulbúinn áróður fyrir ágæti Evrópusambandsins. Fulltrú- ar framleiðenda á þingi bera sakir af umbjóðendum sínum og segja fólki að troða í sig slátri. En fólk lifir ekki af hlussufeitu slátri einu saman frek- ar en af brauðinu dýra. Forseti Al- þingis Halldór Blöndal fann svarið við því af hverju matvörur eru svona dýrar. Forsetinn telur fákeppni, Samkeppnisstofnun og Baugi sé um að kenna. Forseti Alþingis áttar sig ekki á að matvæli á Íslandi voru hlut- fallslega jafndýr eða dýrari miðað við önnur Evrópulönd áður en Baug- ur, fákeppnin og Samkeppnisstofnun fóru að hafa áhrif á matvælaverð í landinu. Eitt mikilvægt hefur þó náðst í þessari umræðu. Nú viður- kenna allir að verðlag hér á brýnustu lífsnauðsynjum sé miklu hærra en í öðrum Evrópulöndum. Út frá þeirri forsendu verður að vinna og finna leiðir til að lækka verðlag. Þáttur forseta Alþingis Biturð forseta Alþingis út í Sam- keppnisstofnun á ekkert skylt við hátt matvælaverð. Biturð hans staf- ar frá ráðherratíð hans þegar hann var yfirmaður aðal síbrotafyrirtækis landsins á samkeppnislögum, Pósti og síma. Þá var forsetinn í eina tíð landbúnaðarráðherra. Ekki lækkuðu búvörur í verði til neytenda í sam- anburði við önnur Evrópulönd í ráð- herratíð hans nema e.t.v. í þeim greinum sem dauð hönd landbúnað- arráðuneytisins þess tíma hafði ekki áhrif. Framkoma forseta gagnvart starfsmanni Samkeppnisstofnunar, sem forsetinn nafngreindi úr ræðu- stól, á Alþingi voru óviðurkvæmileg, óþingleg og spurning virðingar þingsins vegna hvort forsetinn geti áfram gegnt jafn miklu virðingar- starfi eftir að hafa sýnt slíka hegðun og dómgreindarleysi. Verðlag hér hefur lengi verið mun hærra en í öðrum Evrópulöndum. Lengi var verð miklu hærra á öllum sviðum en tekist hefur að ná fram sambærilegu verði á ýmsum vöru- flokkum á síðustu árum. Matvara og lánastarfsemi sker sig enn úr og er miklu dýrari hér en í öðrum Evr- ópulöndum. Einnig mætti nefna verð á bensíni og ýmsum tryggingum. Fyrir rúmum áratug kom ég á fram- færi tillögu við þáverandi viðskipta- ráðherra um skoðun á verðmyndun í landinu og orsakir fyrir háu verðlagi hér. Viðskiptaráðherrann þáverandi tók vel í þetta en entist ekki aldur í ráðherrastóli til að fylgja málinu eft- ir. Tillagan var síðan tekin upp á sameiginlegum norrænum neyt- endavettvangi en eftir að Finnar og Svíar gengu í Evrópusambandið höfðu þeir ekki lengur áhuga á mál- inu þá náðu neytendur þar fram sín- um markmiðum. Í samanburðarverðkönnunum kemur í ljós að landbúnaðarvörur eru miklu dýrari hér en jafnframt sker sig úr verð á brauði og kornvör- um. Innlend iðnaðarvara er líka dýr- ari, t.d. gosdrykkir. Við höfum iðu- lega keypt dýrasta kók í heimi. Skyldi vatnið vera svona dýrt? Bú- vörur vega þungt í matarkörfunni og því meginorsakanna að leita þar fyr- ir háu matvælaverði. Skortur hag- ræðingar í landbúnaði, innflutnings- höft, ofurtollar og há skattlagning sem allt er á ábyrgð ríkisstjórnar og þingmanna er meginástæða ofur- verðs á matvælum. Ábyrgð Stjórnmálamenn bera mesta ábyrgð á því hvað matarkarfan er dýr en þeir eru ekki þeir einu. Getur verið að neytendur hafi ekki notið hagræðingar í verslunarrekstri? Kaupmaðurinn á horninu þurfti á sínum tíma að panta vörurnar, taka á móti, verðmerkja og raða í hillur og þola verulegan hluta rýrnunar. Kaupmaðurinn í stórmarkaðnum leigir í mörgum tilvikum fermetra- eða hillupláss. Framleiðendur og heildsalar koma með vöruna, raða henni upp, verðmerkja og taka í burtu þegar komið er fram yfir síð- asta söludag. Hafa neytendur notið þessara breytinga og hagræðis í lægri álagningu? Hvað með fákeppn- ina; er hún slík að verðlag hafi hækk- að? Hvað með flutningskostnað til landsins er hann eðlilegur eða of hár? Hvað með að kaupmenn selji burðarpoka með mörg hundrað pró- sent álagningu? Allt þetta má kanna með einföldum hætti á stuttum tíma. Ofurverð er óviðunandi Fólk má ekki sætta sig við það ár eftir ár og áratug eftir áratug að matvælaverð sé hér hærra en í ná- grannalöndunum. Stjórnmálamenn verða að hlutast til um að þau atriði sem þeir hafa ráð á leiði til lækkunar matvælaverðs. Eru stjórnmálamenn tilbúnir til að lýsa því yfir að þeir séu tilbúnir til að hlíta niðurstöðu könn- unnar varðandi matvælaverð og gera þær ráðstafanir sem þarf til að matvælaverð verði hér sambærilegt og í nágrannalöndunum? Þeir stjórnmálamenn sem eru ekki til- búnir til þess eiga ekki að fá stuðn- ings fólksins í landinu. Þá á að setja í pólitískt slátur. Af brauðinu dýra Eftir Jón Magnússon „Fólk má ekki sætta sig við það ár eftir ár að matvæla- verð sé hér hærra en í nágrannalöndunum.“ Höfundur er fv. formaður Neytendasamtakanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.